Morgunblaðið - 17.10.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.10.1999, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Þáttur Alþjóðabankans í mótun heilbrigðisstefnu þróunarríkjanna Jane Robinson er prófessor í hjúkrunarfræðum. Morgunblaðið/Ásdís Mikilvægi hjúkrunar hefur iðulega gleymst JANE Robinson á að baki langan feril innan hjúkrunarfræða. Hún var prófessor á hjúkrunarsviði við Nottingham-háskólann á Englandi, um langt skeið og var einnig ráðgjafi um hjúkrunarfræðileg verkefni fyrir Alþjóða- heilbrigðismálastofnunina (WHO). Fyrir- lestur Robinsons, sem haldinn var á vegum Rannsóknarstofnunar í heilbrigðisfræðum, fjallaði einkum um alþjóðlega stefnumótun á sviði heilbrigðismála og þátt Alþjóðabank- ans á því sviði. Mikilvægi faglegrar meðvitundar „Ég var fengin til að vinna fyrir Alþjóða- heilbrigðismálastofnunina fyrir rúmum tíu árum. Fram að þeim tíma höfðu fyrst og fremst læknar verið fulltrúar heilbrigðis- stétta en á þessum tíma fór hlutur hjúkrun- arfræðinga vaxandi. Við skipulögðum mikla ráðstefnu sem haldin var í Vínarborg og fengum meðal annars til hennar hjúkrunar- fræðinga frá Austur-Evrópu. Á þessum tíma var Áustur-Evrópa að opnast og mikilvægt var að koma á sam- bandi við þessi lönd til að þróa þar hjúkrun og hjúkrunamám. Ástandið í þessum lönd- um var mjög 'slæmt. Starf hjúkrunarfólks hafði iyrst og fremst þróast innan sjúkra- húsa og af mikilli forræðishyggju; litið var á hjúkrunarfólk sem aðstoðarmenn lækna en ekki sem sjálfstætt fagfólk. Fagleg meðvit- und var því lítil. Þá var ástandið á heilbrigð- isstofnunum víða hörmulegt og allir muna eftir fréttamyndum frá sjúkrahúsum og munaðarleysingjahælum í Búlgaríu og Rúmeníu eftir að múrinn féll. Það er auðvit- í huga margra er það Alþjóða heilbrigðismála- stofnunin (WHO) sem mótar alþjóðlega stefnu í heilbrigðismálum. Nýlega hélt Jane Robin- son, prófessor í hjúkr- unarfræðum, fyrirlestur um þátt Alþjóðabankans í stefnumótun á þessu sviði og kom þar margt athyglisvert í ljós. Salvör Nordal hitti Robinson að máli. að augljóst að inni á slíkum stofnunum vant- aðgmjög upp á faglega meðvitund. Árið 1992 var ég síðan beðin um að taka þátt í vinnuhópi á vegum alþjóðlegu heil- brigðismálastofnunarinnar (WHO) sem gert var að koma með tillögur er vörðuðu mennt- un hjúkrunarfólks víða í heiminum, en það er mjög mikilvægt að námið sé hluti af æðri menntun. Áhrif Alþjóðabankans í framhaldi af ráðgjafarstarfi fyrir WHO og áhuga á alþjóðlegri stefnumörkun í heil- brigðismálum fékk Jane Robinson styrk til að kynna sér starfsemi Alþjóðabankans á sviði heilbrigðismála. „Alþjóðabankinn hefur mjög mikil áhrif á stefnumótun í heilbrigðismálum í þróunar- löndunum. Frá því um 1970 hefur bankinn haft á stefnu sinni að veita fátækum löndum lán til að styrkja innviði sína svo hægt sé að bæta heilsufar íbúanna, til dæmis með því að ná í hreint vatn, koma á bólusetningum gegn malaríu og til að auka almennt hrein- læti. Þetta svið bankans hefur aukist með hverju ári. Það er því ekki aðeins Alþjóða- heilbrigðisstofnunin sem mótar stefnu í þessum málum, heldur er nauðsynlegt að rannsaka líka þátt Alþjóðabankans. Vera mín hjá Alþjóðabankanum var mjög lær- dómsrík. Ég fór á vegum hans meðal annars til Indónesíu og Gambíu sem var mjög fróð- legt. Þá sannfærðist ég um að innan bank- ans starfar mikið hæfileikafólk sem leggur sig allt fram í sínu starfi. Þarna á sér stað mjög mikil umræða um þessi málefni sem var mjög fróðlegt að taka þátt í. Þegar bornar eru saman stofnanir eins og Alþjóðabankinn og Alþjóða heilbrigðismála- stofnunin er íyr-st að athuga að þær vinna mjög ólíkt og hafa ólík markmið. Markmið Alþjóðabankans er að veita lán sem komi sem flestum þegnum landsins að gagni og með það að markmiði að styrkja hagkerfi viðkomandi lands. WHO veitir hins vegar ríkisstjómum ráðgjöf á sviði heilbrigðis- „Alþjóðabankinn hefur mjög mikil áhrif á stefnumótun í heilbrigðismálum í þróunarlöndunum." mála. Þar er unnið út frá því sjónarmiði að aðgangur að heilbrigðisþjónustu séu ein af grundvallar mannréttindum hvers manns. Á fimmta áratugnum ríkti bjartsýni á sviði heilbrigðismála og var talið að með aukinni þekkingu og tækni væri hægt að ná tökum á mestu heilbrigðisvandamálunum. Þá var líka talið að hægt væri að aðstoða fátæku löndin til að ná þróuðu löndunum í þessum efnum. Það var því mikið lagt upp úr því að veita þessum fátæku löndum tæknilega lausnir. Eftir olíukreppuna, sem fór mjög illa með þessi fátæku lönd, var ljóst að þessi hugmyndafræði hafði ekki borið árangur, þvert á móti voru fátæku löndin aldrei skuldugri og verr sett á sviði heilbrigðis- mála en fyrr. Þessar stofnanir voru gagn- rýndar mikið fyrir sinn þátt í vanda þróun- arríkjanna. Þetta hefur haft í fór með sér að stofnanirnar hafa orðið að endurskoða markmið sín og leiðir. Það hefur meðal annars verið reynt að fara aðrar og ódýrari leiðir til að bæta heil- brigðisþjónustuna. Þessar leiðir hafa reynt mikið á hjúkrunarfræðinga enda er það víða svo þar sem fáir læknar eru á hvern íbúa að hjúkrunarfræðingar veita megnið af heil- brigðisþjónustunni. Samt er það svo að mjög litlu fjármagni er í raun veitt til hjúkrunar og menntunar á hjúkrunarfræðingum þrátt fyrir vaxandi þátt þeirra í heilbrigðisþjón- ustunni." Fjölbreytni Hver er þá lærdómurinn sem draga má af síðustu áratugum? „Það er ekki alltaf auð- velt að sjá afleiðingarnar fyrir og stefna op- inberra stofnana höfðu í sumum tilfellum óvæntar afleiðingar og því var árangurinn ekki sá sem menn höfðu vænst. Auðvitað er mikilvægt að reyna að sjá hlutina fyrir en á tímum mjög örra breytinga á öllum sviðum mannlífsins verður það sífellt erfiðara. Af þessum sökum er mikilvægt að alþjóðlegar stofnanir séu sveigjanlegar og hafi fjöl- breytt markmið og leiðir að þeim, í stað þess að ríghaldið sé í eina stefnu. Það er einnig mikilvægt að alþjóðlegar stofnanir stilli saman strengi sína eins og Alþjóðabankinn og Alþjóða heilbrigðisstofnunin hafa nýlega gert. Það sem ein stofnun gerir hefur áhrif á aðrar. Um leið og skuldsetning þróunarríkj- anna eykst verður efnahagskerfið veikara og þá versnar ástandið á sviði heilbrigðis- mála.? Ósýnileg störf Það eru rúm fjörutíu ár síðan Jane Robin- son hóf störf við hjúkrunarfræði og mikil þróun hefur orðið á starfi hjúkrunarfræð- inga síðan og fagleg vitund aukist. „Störf hjúkrunarfræðinga hafa verið van- metin. Það má líkja þeim við heimilsstörfin, engin tekur eftir þeim fyrr en hætt er að gera þau. Um þetta eru ótal dæmi eins og um krabbameinssjúklinginn sem var í með- ferð inni á stofnun sárkvalinn. Eina nóttina sat hjúkrunarfræðingir yfír honum og hélt í höndina á honum. Daginn eftir sagði hann að hann hefði ekki lifað nóttina af án hjúkr- unarfræðingsins. Nokkrum mánuðum síðar þegar hann var kominn til heilsu og var spurður um góðan bata sagði hann: „Þeir eru stórkostlegir, þessir læknar.“ Svona hefur þetta verið, mikilvægi hjúkr- unarinnar hefur iðulega gleymst. Hjúkrun- arfræðingar hafa núna miklu breiðari menntun og eru farnir að taka mun meiri þátt í rekstri stofnana. Þannig hefur falgeg vitund og metnaður aukist til muna. Fagið er líka að breytast með aukinni hagræðingu á stofnunum. Legudögum fækkar og þá veitist mun styttri tími til eiginlegrar hjúkr- unar. Hluti af vanda hjúkrunarstarfsins er að þetta er ennþá kvennastarf. Og eins og önnur kvennastörf eiga þær á brattann að sækja. Þótt miklar breytingar hafi orðið á síðustu árum er þó enn langt í land.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.