Morgunblaðið - 17.10.1999, Qupperneq 48
■*48 SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Ljóska
Smáfólk
50RRY I MIS5EP
TMAT ONE,MAMA6ER
A MANAOER CAN
ALWAYS F0R6IVE A
MECHANICAL ERROfc..
Mér þykir leitt að ég
missti þennan, stjóri.
BUT A MANA6ER
CANNOT F0R6IVE
A MENTAL
ERROR..
Framkvæmdastjóri
getur alltaf fyrirgefið
vélræna skyssu.
En hann getur
ekki fyrirgefa
greindarskort.
Ég er ástfangin
af gríparanum
þínum.
Það er greindarskortur!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Góðar fréttir fyrir
samkynhneigða!
Frá Nils Gíslasyni:
ÞRÁTT íyrir kenningar um að
kynhneigðum manna verði ekki
breytt hefur komið fram að til er
leið fyrir samkynhneigða einstak-
linga og pör að losna frá þeim víta-
hring sem þau hafa lent í. Mikið af
því sem haldið hefur verið fram í
tengslum við homma og lesbíur
hefur verið sett fram með órök-
studdum fullyrðingum og það jafn-
vel af ótrúlegustu aðilum sem
koma að þessum málum.
Til dæmis var því lengi haldið
fram að um tíu prósent manna
hefðu þessa kynhneigð. Nú eftir
áratuga áróður þeirra, misskilda
tillitssemi ýmissa og tísku síðustu
ára hefur ekki tekist að koma þess-
ari tölu að raungildi upp fyrir um
tvö til fimm prósent.
Þá hefur því víða verið haldið
fram að fólk geti ekki losnað við
þessar hneigðir og allar tilraunir til
þess séu tilgangslausar og valdi að-
ilum aðeins kvöl og þjáningu. Það
kom mér því þægilega á óvart þeg-
ar ég fyrir tveim árum sá tónlistar-
myndband þar sem viðtal við einn
söngvarann leiddi í ljós að hann
hafði verið hommi um árabil, verið
klæðskiptingur og stundað vændi.
Þessar hneigðir höfðu hoi’fið, og
löngun til að eignast maka af gagn-
stæðu kyni komið í staðin. Á mynd-
bandinu sást hann ásamt eiginkonu
sinni ásamt vitnisburði hans um
hvernig langanir hans og hneigðir
höfðu breyst til þess sem mannin-
um var upprunalega áskapað, og
hvernig honum hafði gefist eigin-
kona og hamingjusamt hjónaband.
Þegar ég leitaði á vefnum kom
fram fjöldi vitnisburða fólks sem
hafði þessa sömu reynslu. Það sem
kom þessum breytingum af stað
hjá tónlistarmanninum var að hann
kynntist lifandi trúuðu kristnu
fólki og söfnuði þar sem hann
kynntist boðskap kristinnar trúar.
Þessi boðskapur snerti við honum
og hann komst til trúar á Jesú
Krist og lét frelsast. Þegar fólk
gefst Kristi gerast ótrúlegir hlutir
sem oft eru kallaðir kraftaverk.
Orð Guðs og heilagur andi snerta
við hjarta mannsins. I stað þess að
fram komi krafa um að viðkomandi
þurfi að láta af þessu og hinu sem
hefur verið venja hans og athafnir,
kemur fram löngun og þrá til að
finna og gera vilja Drottins í öllum
hlutum. Ákveðin grundvallarlög-
mál taka gildi, Þú skalt ekki stela
(ekki heldur undan skatti). Þú
skalt ekki drýgja hór (ekki heldur
lauslæti). Þú skalt ekki morð
fremja. Þessi lögmál uppfyllast öll í
fyrsta og æðsta boðorðinu, að elska
Drottin af öllu hjarta, öllum huga,
öllum mætti og náungann eins og
sjálfan sig. Þegar hugur mannsins
og vilji fyllist af löngun til að gera
einmitt vifja Guðs, koma fram nýj-
ar langanir og þrár sem einmitt
miða að því að framkvæma vilja
Drottins eins og heilagur andi birt-
ir okkur hann í orði Drottins.
Það skiptir ekki máli hverjar
þær syndir eru sem haft hafa yfir-
ráð í lífi einstaklingsins. Guð bend-
ir okkur á þær og gefur okkur
löngun, vilja og kraft til að leggja
þær af. Guð elskar syndarann. en
hatar syndina sem leiðir hann af-
vega.
Það er gott að vita að Guð lætur
sér annt um eitt og sérhvert okkar
og vill að við lifum gæfuríku lífi í
návist hans.
Kæri samkynhneigði vinur. Guði
er annt um þig líka. Hann þráh- að
þú komir til hans og gefir þig hon-
um, þá umbreytir hann og uppfyllir
langanir hjarta þíns og gefur þér
sinn frið. Guð blessi þig til að koma
til hans.
NILS GÍSLASON,
Skógarhlíð 35, 601 Akureyri.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
HUGSKDT
Bomai ny ird atökw i
1 0% afsláttur I október
Bylting
i
Fjölnota byggingaplatan
sem allir hafa beðið eftir!
VIROC byggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf.
VIROC byggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin,
höggþolin, frostþolin og hljóðeinangrandi.
VIROC byggingaplatan er umhverfisvæn.
VIROC byggingaplatan er platan sem
verkfræðingurinn getur fyrirskrifaö nánast blint.
Staðalstærð: 1200x3000x12 mm.
Aðrar þykktir: 8,10,16,19, 22,25,32 & 37 mm.
Mesta lengd: 305 cm. Mesta breidd: 125 cm
Vlroc utanhússklæ&nlng
PP
&CO
Leltlð upplýslnga
Þ.ÞORGRfMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: S53 8640 & 568 6100