Morgunblaðið - 08.02.2000, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 08.02.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000 B 3 KNATTSPYRNA Guðni fékk mikið hrós Hann og Eiður skoruðu báðir fyrir Bolton GUÐNI Bergsson fékk í gær mikið hrós fyrir frammistöðu sína í sig- urleik Bolton gegn Blackburn á laugardaginn en hann og Eiður Smári Guðjohnsen skoruðu sitt markið hvor í sannfærandi 3:1 sigri í nágrannaslagnum í 1. deild ensku knattspymunnar. Samkvæmt Bolton Evening News átti Guðni stórleik í vörn liðs- ins. „Það verður gífurlegur missir þegar hann fer heim til Islands í vor til starfa sem lögfræðingur," sagði í grein blaðsins um leikinn. Guðni jafnaði metin á 18. mínútu með hörkuskalla eftir undirbún- ing Dananna Johansens og Jensens. Tveimur mínútum áður hafði Nathan Blake, fyrrverandi leikmaður Bolton, komið Blackbum yfir. Síðan var komið að Eiði Smára. Á 39. mínútu lagði hann upp mark fyrir Johansen á laglegan hátt, og á 69. mínútu skoraði síðan Eiður þriðja markið með hörkuskoti eftir skemmtilegt spil við Dean Holdsworth. Þetta var 14. mark Eiðs Smára fyrir Bolton á túnabil- inu. „Við lékum mjög vel á löngum köflum. Þegar við spilum svona sigmm við hvaða lið sem er í þessari deild. Nú em loksins allir heilir og mikil barátta um stöður í liðinu og það skilar sér,“ sagði Sam All- ardyce, knattspymustjóri Bolton. Lið hans er í 12. sæti deildarinnar en á tvo leiki til góða á Wolves sem er í sjötta sætinu, sjö stigum of- ar. Bolton getur því enn blandað sér í baráttuna um að komast í úr- slitakeppnina um úrvalsdeildarsæti í vor. ísland enn í brennidepli enskra fjöl- miðla UMFJÖLLUN um íslenska knattspyrnumenn heldur áfram í ensk- um fjölmiðlum. Sunday Times fjallaði um helgina ítarlega um Her- mann Hreiðarsson og stuttan en sérstæðan feril hans í ensku knattspyrnunni, og ennfremur er í blaðinu mikii úttekt á norræn- um leikmönnum í Englandi þar sem íslendingar koma mikið við sögu. Hermann er miðpunkturinn í um- fjöllun blaðsins um Egil „Drillo“ Olsen, knattspyrnustjóra Wimbledon, og leikaðferð hans. Ols- en segir þar að leikmenn frá Noregi og íslandi henti sér best, þeir standi næst sinni hugmyndafræði um ein- falda og árangursríka knattspymu. Ferill Hermanns á íslandi og í Morgunblaðið/Kristján Hermann Hreiðarsson í leik með Wimbledon á Englandi. Englandi er rakinn og rætt við hann um reynslu hans af því að leika í öll- um fjórum deildunum í Englandi á aðeins tveimur árum og ástæður þess að hann fór til Brentford á sín- um tíma. Frammistaða íslenska landsliðsins undanfarin misseri er fléttuð inn í greinina.Hermann segir meðal annars um dvöl sína hjá Brentford: „Það var góð reynsla og ég tók miklum framförum þar. Álag- ið var ekki það sama og í úrvalsdeild- inni. Ég gat einbeitt mér betur að boltameðferðinni og spili. Ég hafði alltaf fulla trú á sjálfum mér og var viss um að fyrr eða síðar yrði ég keyptur af úrvalsdeildarliði," segir Hermann í viðtali við blaðið. í annarri grein í sama blaði er fjallað um hinn mikla fjölda Norður- landabúa sem hefur streymt til ensku liðanna að undanfömu. Sagt er að fulltrúar 30 enskra félaga hafi verið á La Manga á dögunum til að fylgjast með leikjum Norðurlanda- mótsins, og erindi þeirra allra hefði verið að leita að ungum og efnilegum norrænum leikmönnum. Nú eru 88 leikmenn frá Norðurlöndum samn- ingsbundnir enskum félögum og þar af eru 22 Islendingar. Sunday Times segir að þar sé á ferð mesta sprengj- an og vitnað er í Ólaf Garðarsson umboðsmann sem segir að íslenskir leikmenn hafi rétta hugarfarið og líkamlega burði til að spjara sig í ensku knattspyrnunni. Þurfum betri sókn- armenn GUÐJÓN Þórðarson, knatt- spyrnusljóri Stoke City, segir að lið sitt vanti tilfinn- anlega sóknarmenn fyrir lokaslaginn í ensku 2. deild- inni. Eftír skell gegn Gill- ingham, 3:0, á laugardag- inn sagði Guðjón við staðarblaðið The Sentinel að hann þyrftí einn og jafn- vel tvo sóknarmenn. „Það er ekkert að gerast hjá okkur í vítateig mót- herjanna. Sóknarmennimir fá nóg af sendingum, en þá skortír sjálfstraust eða hæfíleika, jafnvel hvort tveggja. Ég varð fyrir mikl- um vonbrigðum með liðið í leiknum gegn Gillingham. Við fáum ekki betri færi en þau sem okkur buðust á upphafskafla leiksins en þau voru ekki nýtt,“ sagði Guðjón við blaðið. Stoke sækir Luton heim í 2. deild- inni í kvöld en þeim leik var frestað fyrir jólin. Guðjón gaf því sínum mönnum ekk- ert frí eftír tapið í Gilling- ham og boðaði þá á aukaæf- ingu á sunnudaginn. Landsleik- ur í mið- nætursól? ÚTLIT er fyrir að landsleikur; kvennaliða Noregs og Bandaríkj- anna, sem fyrirhugaður er í Tromsö' 27. júlí í sumar, verði leikinn um mið- nætti að staðartíma í Noregi. Mið- nætursólin er á lofti í Norður-Noregi um þetta leyti og Bandaríkjamenn, sem sýna leikinn beint í sjónvarpi, eru spenntir fyrir því að hann sé spil- aður við þessar einstöku aðstæður. Ef þeir fá sínu framgengt verður flautað til leiks kl. 23 um kvöldið. Bandaríkin og Noregur mættust í vináttulandsleik á Flórída á sunnu- daginn og þar sigruðu norsku stúlk- umar, 3:2. Dagny Mellgren skoraði sigurmarkið með stórglæsilegu skoti á lokasekúndum leiksins. Schröder gagnrýn- ir launagreiðslur GERHARD Schröder kanzlari Þýskalands er mikill áhugamaður um knattspyrnu, ef marka má viðtal við hann í knattspyrnutíma- ritinu Kicker. Hann segir að greiðslur þær sem félög eru farin að inna af hendi fyrir leikmenn vegna félagaskipta séu komin úr öll- um böndum. Schröder segist sjálfur hafa leikið knattspyrnu með TS Tulle í 5. deild og þeir verið með ágætis lið á þeim tíma. Hann lék þá í framlínu og segist hafa verið eini atvinnumaður liðsins. Þegar blaða- maður spyr nánar um „atvinnu- mannaferil" kanslarans segir Schröder að hann hafi stundað nám við háskólanum í Göttingen og félagið greitt lestarmiða fyrir hann á æfingar. Hann viðurkennir að uppáhaldslið sitt hafi alltaf ver- ið Borussia Dortmund og það breytist ekki þó maður verði kanzlari Þýskalands. Hann segist jafnframt halda mest uppá Otto Rehagel sem þjálfara og finnst hann mjög skemmtileg persóna sem alltaf sé gaman að hlusta á. Það skiptir engu þó hann hafi stutt andstæðinga jafnaðarmanna í kosningunum, öll- um verða á mistök, segir kanslar- inn. Schröder segir að nú sé sá tímapunktur fyrir knattspyrnuna að setjast niður og komast að ein- hverri vitrænni niðurstöðu með fé- lagaskiptagjald. „Ég óttast að ann- ars á einhverjum tímapunkti verði sprenging sem muni skaða félögin um langa framtíð. Hann segir jafn- framt að ríku félögin séu farin að stjóma alltof miklu og svokallað þáttasjónvarp þar sem greitt er fyrir áhorf sé ekki gott fyrir íþróttirnar, margir sem vilja horfa hafa ekki efni á slíku og fyrir hvern er þá íþróttin?" spyr kanzlarinn. Hann er þá spurður um Uli Höness sem einmitt krefst meiri peninga frá sjónvarpsstöðv- unum og ekki stendur á svari stjórnmálamannsins. „Uli Höness er ekki rétti maðurinn til að tjá sig um þessi mál. Það má vel vera að hann hafi gert góða hluti við mark- aðssetningu á Bayern en hann þénar í dag mest á hlutabréfa- kaupum og -sölum og það eina sem þeir hugsa um í dag er að græða meira. Þeir hafa ekki lengur fram- tíð knattspyrnunnar í huga heldur peningagróða fyrir sig og sitt fé- lag, og það er það hættulega sem félögin standa frammi fyrir, hinir ríku eru að verða ríkari en fátæku fátækari.“ Firmakeppni Fram í fótbolta Laugardaginn 12. og sunnudaginn 13. febrúar næstkomandi fer fram firmakeppni Fram í fótbolta í Framhúsinu. Fjöldi liða verður aðeins 20. Leikið verður í fjórum 5 liða riðlum, fjórir inná í einu og spilað er á handbolta- mörk. Tvö lið úr hverjum riðli fara áfram í úrslita- keppni sem leikin verður fimmtudaginn 27. febrúar. Þátttökugjald er kr. 20.000,- pr. lið. Veitt verða mjög vegleg verðlaun. 1. sæti: Flugfarseðill fyrlr fjóra til og frá London með Samvinnuferðum-Landsýn 2. sæti: Úttekt hjá Bræðrunum Ormsson að fjárhæð kr. 20.000,- Allar nánari upplýsingar og skráning fer fram í síma 533 5600, 863 1602 eða email gusti@fram.is.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.