Morgunblaðið - 10.02.2000, Síða 2

Morgunblaðið - 10.02.2000, Síða 2
2 C FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Útgerðarfélag Akureyringa hf. skilaði 270 milljóna króna hagnaði af reglulegri starfsemi í fyrra Veltufé frá rekstri aldrei verið meira í sögu félagsins Útgerðarfélag Akureyringa hf. Úr reikningum ársins 1999 SAMSTÆÐA Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna 4.050 3.486 +16% Rekstrargjöld -3.135 -2.737 +15% Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) 12 -183 - Skattar -102 -7 +1.357 Afkoma af reglulegri starfsemi 168 2 +8.300 Aðrar tekjur og gjöld -10 249 - Áhrif dótturfélaga O -1 - Hagnaður ársins 157 251 ■38% Efnahagsreikningur 3i.des.: 1999 1998 Breytlng Eignir samtals Milljónir króna 8.157 5.695 +43% Eigið fé 3.053 2.073 +47% Skuldir 5.104 3.613 +41% Skuldir og eigið fé samtals 8.157 5.695 +43% Sjóðstreymi 1999 1998 Breyting Veltufé frá rekstri Milljónir króna 776 561 +38% Eiginfjárhlutfail 37,4% Veltufjárhlutfall 1,27 UTGE RÐARFÉ L AG Akureyringa hf. skilaði á liðnu ári 270 milljóna króna hagnaði af reglulegri starf- semi fyrir skatta. Að teknu tilliti til 102 milljóna króna í reiknaðan tekjuskatt og 10 milljóna króna gjaldfærslu vegna óreglulegra liða nemur hagnaðurinn 157 milljónum króna. Veltufé frá rekstri nam 776 milljónum króna á árinu sem er mesta fjármunamynd- un á einu ári í sögu félagsins. Stjórn félagsins leggur til að hluthöfum verði greiddur 10% arður vegna ársins 1999 eða samtals 98 milljónir króna. Heildarvelta samstæðunnar á liðnu ári nam tæpum 5 millj- örðum króna og jókst um rúm 18% frá árinu áður. Rekstrar- tekjur, þ.e. heildarvelta að frádregnum eigin afla til vinnslu, voru samtals 4.050 milljónir króna samanborið við 3.486 milljónir króna árið áður. Hér er um 564 milljóna króna aukningu að ræða á milli ára, eða sem svarar til 16,2% af tekjum. í tilkynningu frá ÚA kem- ur fram að þessi aukning skýrist annars vegar af auknum aflaheimildum til ráðstöf- unar á árinu 1999 og því að afurðaverð var að jafnaði nokkru hærra en árið áður. Rekstrargjöld námu samtals 3.135 millj- ónum króna, miðað við 2.737 milljónir króna árið áður. Hagnaður fyrir afskriftir og fjár- magnsliði nam 915 milljónum króna, eða sem svarar til 22,6% af rekstrartekjum. Árið áður var þessi fjárhæð 749 milljónir króna, eða 21,5% af rekstrartekjum. Afskriftir jukust um ÍOO milljónir króna Afskriftir námu samtals 657 milljónum króna, samanborið við 556 milljónir króna árið áður. Afskriftir jukust því um rúmar 100 milljónir króna á milli ára. Meginskýr- ingin er sú að við sameiningu ÚA og Jökuls 1. september sl. hækkuðu bókfærðar veiði- heimildir félagsins um 1.300 milljónir króna. f árslok námu því bókfærðar veiðiheimildir félagsins tæpum 2,6 milljörðum króna, sem verða síðan afskrifaðar á 10-12 árum. Fjármagnsliðir eru jákvæðir um 12 millj- ónir króna en voru neikvæðir um 183 millj- ónir króna árið áður. Munar þar mest um reiknaða tekjufærslu vegna verðbreytinga sem er um 112 milljónum króna hærri en ár- ið áður. Hagnaður af reglulegri starfsemi móðurfélagsins varð því tæpar 270 milljónir króna, borið saman við 9 milljónir árið áður. Þegar tekið hefur verið tillit til reiknaðra skatta og óreglulegra gjalda er félagið gert upp með 157 milljóna króna hagnaði, en árið áður nam hagnaður félagsins 251 milljón króna þar sem stærsti hlutinn var söluhagn- aður eigna. Heildareignir samstæðunnar í árslok 1999 voru bókfærðar á 8.157 milljónir króna. Skuldir námu hins vegar 5.104 milljónum króna og var því eigið fé félagsins í árslok 3.053 milljónir króna. Til samanburðar nam eigið fé í árslok 1998 2.073 milljónum króna og jókst því um tæpan milljarð króna á milli ára. í árslok 1999 var eiginfjárhlutfall sam- stæðunnar 37,4% og veltufjárhlutfall 1,27. Ánsgður með niðurstöðuna Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Útgerðarfélags Akureyringa hf., seg- ist vera mjög ánægður með þessa niður- stöðu enda sé hún í fullu samræmi við áætlanir félagsins. Hann segir að það sé sérlega ánægjulegt að veltufé frá rekstri hafi aukist mjög verulega þriðja árið í röð, og hann hafi oft bent á þá staðreynd að veltufé frá rekstri sé mun ár- eiðanlegri mælikvarði á rekstrarárangur sjávarútvegs- fyrirtækja en hagnaður, þar sem það mæli betur hversu miklum peningum reksturinn sé að skila. „Veltufé frá rekstri félags- ins nam 274 milljónum króna árið 1997, 552 milljónum króna á árinu 1998 og 776 milljónum króna á nýliðnu ári. Það hefur því nær þrefaldast á einungis þremur árum sem segir sína sögu um stigvax- andi bata í rekstri félagsins. Nýliðið ár er besta ár í sögu félagsins frá upphafi hvað það varðar," segir Guðbrandur. Hann segir rekstrarhorfur fyrir yfírstandandi ár vera góðar. „Við gerum ráð fyrir að reksturinn haldi áfram að batna á árinu og að veltufé frá rekstri aukist enn frekar. Þó er rétt að hafa í huga að rekstrarforsendur í íslenskum sjávarútvegi eru síbreytilegar og geta breyst til hins verra á skömmum tíma,“ segir Guð- brandur. Hlutabréf hækka um 4,5% í kjölfar tilkynningar Ekki voru mikil viðskipti með hlutabréf Útgerðarfélags Akureyringa á Verðbréfa- þingi Islands í gær. Heildarviðskipti með bréf félagsins námu 5,2 milljónum króna. Bréfin hækkuðu um 4,5%, úr 7,80 í 8,15 í kjölfar afkomutilkynningar félagsins. Til lengri tíma góð kaup í fölaginu Ingólfur Áskelsson, sérfræðingur hjá ís- lenskum verðbréfum hf., segir að afkoma ÚA sé ekki alveg í samræmi við spár ís- lenskra verðbréfa sem spáð hafi um 260 milljóna króna hagnaði, og sú spá hafi verið nálægt meðaltali annarra sérfræðinga á markaðnum. „Það sem helst skekkir spána er hversu mikla skatta félagið greiðir eða 102 m.kr., sem er um 38% hlutfall af hagnaði fyrir skatta. Talið var að ónýtt skattalegt tap Jökuls myndi lækka skattabyrðina. Eg tek undir það að líta beri á veltufé frá rekstri sem mælikvarða á rekstrarárangur í sjávar- útvegi og þar er félagið að bæta sig gífur- lega frá síðasta ári eða alls um 38%. ÚA-menn eru framsæknir og hafa verið að auka kvótastöðuna sína með kaupum á Tap af rekstn Hólmadrangs hf. 113 milljóni króna TAP af reglulegri starfsemi Hólmadrangs hf. nam 76 milljón- um króna á árinu 1999, samanbor- ið við 225 milljónir árið áður. Eftir að tekið hefur verið tillit til taps vegna óreglulegra liða upp á 37 milljónir króna er félagið gert upp með 113 milljóna króna tapi. Til samanburðar var tap ársins á und- an 61 milljón króna. Heildarvelta Hólmadrangs hf. á liðnu ári nam 900 milljónum króna og minnkaði um 100 milljónir króna frá árinu áður. Rekstrar- tekjur, þ.e. heildarvelta að frá- dregnum eigin afla til vinnslu, voru samtals 754 milljónir króna en voru 720 milljónir króna árið áður. Hér er um aukningu að ræða upp á 34 milljónir króna á milli ára, eða sem svarar til 4,7% af tekjum. Rekstrargjöld námu sam- tals 656 milljónum króna, miðað við 677 milljónir króna árið áður og lækkuðu um 21 milljón króna á milli ára. Hagnaður af rekstri félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 99 milljónum króna, eða sem svarar til 13,1% af rekstrartekj- um. Árið áður var þessi fjárhæð 43 milljónir króna, eða 6% af rekstr- artelqum. Afskriftir námu sam- tals 123 milljónum króna, saman- borið við 116 milljónir króna árið áður. Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur námu samtals 52 milljónum króna á móti 153 mil- ljónum árið áður og má m.a. rekja lækkunina til þess að tekjufærsla vegna verðbreytinga hækkaði um 64 milljónir króna á milli ára. Heildareignir félagsins í árslok 1999 voru bókfærðar á 1.086 millj- ónir króna. Skuldir námu hins vegar 1.236 milljónum króna og var því eigið fé félagsins í árslok neikvætt um 150 milljónir króna. Hólmadrangur hf. Úr reikningum ársins1999 Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld Fjármagnsliðir 754 -656 -52 720 -677 -153 +5% -3% Afkoma af reglul. starfs. f. skatta Aðrar tekjur og gjöld -76 -37 -225 164 - Hagnaður ársins -113 -61 -Bt)7o Efnahagsreikningur 31. des.: 1999 1998 Breyting Eignir samtals Milljónir króna 1.086 1.378 +43% Eigið fé -150 -69 +47% Skuldir 1.236 1.446 +41% Skuldir og eigið fé samtals 1.086 1.378 +43% Sjóðstreymi 1999 1998 Breyting Veltufé frá rekstrí Milljónir króna O -92 Til samanburðar var eigið fé í árs- lok 1998 neikvætt um 69 milljónir króna. Náð að taka til í rekstrinum Ingólfur Áskelsson hjá íslensk- um verðbréfum hf. segir ljóst að Hólmadrangur sé að bæta rekstur sinn til muna eins og sjáist best á að tap af reglulegri starfsemi minnkar um 149 milljónir milli ára. „Félagið hefur náð að taka til í rekstrinum frá íyrra ári og má gera ráð fyrir að þeir eigi meira inni og að sameiningin við ÚA muni koma báðum félögum til góða. Félagið er með talsverðar veiðiheimildir í þorski og eru horf- urnar bjartar í þorskinum," segir Ingólfur. Jökli og nú liggur fyrir sameining við Hólmadrang. Aætluð velta sameinaðs félags verður um 6 milljarðar og aflaheimildir verða um 25 þúsund þorskígildistonn, sem er með því mesta á landinu. Til lengri tíma eru góð kaup í félaginu," segir Ingólfur. Áætlað hafði verið að halda aðalfund Út- gerðarfélags Akureyringa 18. febrúar næst- komandi, en honum hefur verið frestað til loka marsmánaðar vegna þess að ákveðið hefur verið að leggja fyrir fundinn tillögu að sameiningu ÚA og Hólmadrangs hf. Hluthafar Hólmadrangs fá 7,65% í sameinuðu félagi Á síðasta fundi stjórna ÚA og Hólma- drangs var samþykkt að leggja til við hlut- hafa félaganna að Hólmadrangur verði sam- einaður ÚA frá og með 1. janúar 2000 og miðað við að gengi hlutabréfa ÚA sé 7,5 fá hluthafar Hólmadrangs hf. í hendur hluta- bréf í ÚA sem svarar til gengisins 3,72 fyrir sín bréf. Skiptihlutföll við sameiningu sem byggist á endurmetnu eigin fé félaganna um nýliðin áramót yrðu þau að hluthafar ÚA fengju 92,35% og hluthafar Hólmadrangs hf. 7,65% í hinu sameinaða félagi. Heildarhlutafé Útgerðarfélags Akureyr- inga hf. eftir fyrirhugaða sameiningu nemur tæplega 1,7 milljarði króna. Hið sameinaða félag mun hafa yfir að ráða aflaheimildum sem nema samtals 24.700 tonnum. Þar af er þorskur 11.666 tonn, karfi rúm 5.026 tonn, grálúða 1.189 tonn, úthafsrækja 1.327 tonn og rækja á Flæmingjagrunni 663 tonn. Að auki á félagið 1,06% aflahlutdeild í loðnu og leyfi til veiða á norsk-íslenskri sfld. Irving og Aalborg fá lóðir í Helguvík • AUSTNESI ehf., umboðsaðila kana- díska olíufélagsins Irving Oil, hefurverið úthlutað lóð undir eldsneytisbirgðastöð á tankasvæðinu í suö-vesturhluta Helguvík- ur, að því er fram kemur í fundargerö frá stjórnarfundi í Hafnasamlagi Suðurnesja. Jafnframt hefur Austnesi ehf. veriö boð- in lóð við hliö lóðarinnar undir aðra starf- semi fyrirtækisins. Teikningar skulu liggja fyrireigi síðaren eftir 6 mánuði ogfram- kvæmdir hafnar innan 9 mánaöa, að öðr- um kosti fellur lóðarúthlutunin úrgildi, að því er fram kemur í fundargerðinni. Dönsku sementsverksmiðjunni Aalborg Portland AS hefur einnig verið úthlutað lóð í Reykjanesbæ. Um er að ræða lóö um 30 m frá viðlegukanti í Helguvík. Áformað er að hefja byggingu birgðastöðv- arfyrirsementíbyrjun apríl. Bæði fyrirtækin hafa áður sótt um lóöir í Kópavogshöfn en fengið synjun. NIÐUR^ HLUTABRÉFAVIÐSKIPTI/SÍÐASTA VIKA • Viðskipti á VÞÍ námu 1.494,5 milljónum króna í seinustu viku. Viðskipti voru með hlutabréf í 52 félögum og hækkuöu 28 félög í veröi en 15 lækkuðu. (þús- kr.j kUktic. Loðnuvinnslan 2,00/1,50 200 1 33,3% Skýrrhf. 17,85/15,35 82.351 83 16,3% Tæknivai hf. 14,50/12,50 26.734 19 16,0% Opinkerfi 169/150 88.426 62-11,2% Nýherjl hf. 18,00/16,90 35.762 43 -6,1% Hraðfrystist. Þórsh. 3,15/3,00 1.800 2 -4,8% ^UPP NIÐUR'V' GENGI GJALDMIÐLA 01.02.2000 08.02.2000 +/-% Sænsk króna 8,346 8,565 2,62 Dönsk króna 9,626 9,743 1,22 Norsk króna 8,882 8,99 1,22 NIÐUR^P Japanskt jen 0,6886 0,6782 -2,29 Sterlingspund 119,28 117,81 -1,23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.