Morgunblaðið - 10.02.2000, Síða 4
S 3 ooœ jiAúaa:^ .01 auoAauTMMH
4 C FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000
VIÐSKIPTI
GIGAJfr/lIOflOM
MORGUNBLAÐIÐ
Endurskoðunarfyrirtækin KPMG og Ernst & Young á íslandi sameinast
Stefnt að
fjölbreyttari
og markviss-
ari þjónustu
ENDURSKOÐUNAR- og ráðgjaf-
arfyrirtækin KPMG Endurskoðun
hf. og Ernst & Young endurskoðun
& ráðgjöf ehf. hafa undirritað sam-
komulag um samruna félaganna,
sem mun koma til framkvæmda á
miðju ári. Hið sameinaða félag
mun hafa um 180 starfsmenn og
verður stærsta endurskoðunar- og
ráðgjafarfyrirtæki landsins.
Fyrirtækin eru hvort um sig að-
ilar að KPMG International og
Ernst & Young International, og
mun hið nýja félag halda áfram
tengslum við hina erlendu sam-
starfsaðila. Nafnið á hinu væntan-
lega sameinaða félagi hefur enn
ekki verið ákveðið.
,Ástæða þessarar sameiningar
er fyrst og fremst sú að gera fyrir-
tækin samkeppnishæfari á mark-
aði. Atvinnulíflð er að taka miklum
breytingum og fyrirtækin að
stækka, og við ætlum okkur að
veita enn fjölbreyttari og mark-
vissari þjónustu í framtíðinni en
við höfum áður veitt. Ætlunin er
að auka sérhæfíngu í fyrirtækinu
og gefa starfsfólki kost á að auka
þekkingu sína á hinum ýmsu svið-
um sem við vinnum á,“ segir Ólaf-
ur Nilsson, löggiltur endurskoð-
andi og stjórnarformaður KPMG
Endurskoðunar hf., í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins.
„Við teljum að með stærra fyrir-
tæki getum við verið samkeppnis-
færari bæði við erlenda aðila sem
hingað sækja og við getum veitt ís-
lenskum fyrirtækjum sem sækja á
erlenda markaði betri þjónustu.
Við erum hér í neti alþjóðafyrir-
tækja sem hafa yfir að ráða mikl-
um upplýsingabrunni sem við get-
um sótt í,“ segir Ólafur.
Fylgja þróun um stærri
og öflugri einingar
Símon Á. Gunnarsson, löggiltur
endurskoðandi og framkvæmda-
stjóri Ernst & Young endurskoð-
unar & ráðgjafar ehf., tekur undir
orð Ólafs. „Við erum fyrst og
fremst að hugsa um að fyrirtækið
verði sterkara og betur í stakk
búið til að veita viðskiptavinum
Morgunblaðið/Sverrir
„Með sameiningunni erum við betur í stakk búin til að taka þátt í alþjóðavæðingu og auknu samstarfí milli fyrir-
tækja," segir Ólafur Nilsson. Frá vinstri Jón Eiríksson og Ólafur Nilsson frá KPMG Endurskoðun hf., og Súnon Á.
Gunnarsson og Ema Bryndís Halldórsdóttir frá Emst & Young endurskoðun & ráðgjöf ehf.
okkar þá þjónustu sem þeir þurfa
á að halda í dag, bæði hér á landi
og erlendis. Með þessu fylgjum við
þeirri þróun sem er að verða á
markaðnum, bæði á sviði endur-
skoðunar og ráðgjafar. Einingarn-
ar eru að stækka og verða öflugri,
og við teljum að með sameinuðu
fyrirtæki verðum við betur í stakk
búin til að veita viðskiptavininum
þá þjónustu sem hann þarf. Þættir
sem við getum kallað fastan kostn-
að, það er kostnaður vegna þjálf-
unar starfsfólks og símenntunar,
eru að verða fyrirferðameiri en áð-
ur. Hagræði verður af sameining-
unni vegna hagkvæmni stærðar-
innar,“ segir Símon.
Blaðamaður spyr um bakgrunn
þess að þessi tvö fyrirtæki séu að
sameinast, og segir Símon að hann
hafi stundum sagt það bæði í
gamni og alvöru að þau væru að
klára það ferli sem erlendu sam-
tökunum tókst ekki að klára fyrir
tveimur árum.
„Haustið 1997 hófust viðræður
milli KPMG og Ernst & Young á
alþjóðavísu um sameiningu, sem
gekk ekki eftir. Þeim viðræðum
var hætt í febrúar árið 1998. Við
vorum farin að tala saman á þeim
tíma sem hluti af því ferli. Það má
kannski halda því fram að þessi
sameining hafí átt sitt upphaf í
þeim viðræðum," segir Símon.
Erna Bryndís Halldórsdóttir,
löggiltur endurskoðandi og stjórn-
arformaður Ernst & Young endur-
skoðunar & ráðgjafar ehf., segir að
leitast verði eins og kostur er við
að halda sambandi við bæði er-
lendu félögin, KPMG International
og Ernst & Young International.
Hvað varðar viðbrögð þeirra við
áformunum um samruna þessara
tveggja aðila hérlendis segir Erna
Bryndís að viðræður standi yfir, og
ekki sé frágengið hvernig tengslin
verði í framhaldinu. Hún segir að
báðir aðilar vilji halda sameinuðu
fyrirtæki innan sinna banda.
Ólafur Nilsson bætir við að það
sé nokkuð ljóst að hið nýja félag
__________________________Ráðstejha Kaupþings_________________________________________
um alþjóðleg viðskiptafélög haldin ÍL febrúar 2000
/ Arsal Radisson SAS Hótel Sögu
Dagskrá:
15:30 Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, og fundarstjóri setur fundinn.
15:45 Adam Craig, skattasérfræðingur hjá alþjóðlegum höfuðstöðvum KPMG í Hollandi, fjallar almennt
um þróun og horfur í skattamálum: Afstaða Evrópusambandsins og OECD gagnvart
lágskattasvæðum.
16:15 Magnús Guðmundsson, bankastjóri Kaupthing Luxembourg S.A., kynnir alþjóðlega
einkabankaþjónustu.
16:45 Bernhard Bogason, iögfræðingur hjá KPMG á íslandi, ræðir um alþjóðleg viðskiptafélög á íslandi -
Gildandi lög og samanburður eignarhaidsfélaga á fsiandi við önnur lönd á borð við Danmörku og
Lúxemborg.
17:15 Bjarni Markússon, framkvæmdastjóri, kynnir þjónustu ITC ISLANDS ehf. til alþjóðlegra
viðskiptafélaga - Hvar stöndum við í dag?
17:45 Fyrirspurnir.
18:00 Léttar veitingar.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 515 1455 eða með
tölvupósti á itcisiand#kaupthing,is.
Aðgangttr ékeypts en mtmffoidi er taknutrkaður.
KAUPÞING
Ármúla 13A,
108 Reykjavík,
sími 515 1500,
fax 515 1509.
www.kaupthing.is