Morgunblaðið - 20.05.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000 33
ERLENT
Valdarán framið á Fiii-eyjum
Halda ríkisstj órn
landsins í gíslingu
Suva. AFP, AP, Reuters.
VALDARÁN var framið í höfuð-
borg Fiji-eyja, Suva, í gær er sjö
vopnaðir, grímuklæddir menn tóku
yfir þinghúsið, hnepptu Mahendra
Chaudry, forsætisráðherra eyjanna
og ríkisstjórn hans í gíslingu og
lýstu því yfir að þeir færu nú með
völd á Fiji í nafni frumbyggja eyj-
anna. Ratu Sir Kamises Mara, for-
seti Fiji, hefur sagt valdaránið
ólöglegt og lýst yfir neyðarlögum í
landinu, en óánægja hefur ríkt
meðal margra frumbyggja með
Chaudry sem er af indverskum
uppruna.
Valdaræningjarnir skutu a.m.k.
tveimur skotum úr AK-47 rifflum
er þeir tóku þinghúsið yfir, en ekki
er vitað til þess að mannfall hafi
orðið. Þinghúsið var í kjölfar gísla-
tökunnar umkringt af lögreglu sem
hefur átt í samningaviðræðum við
forsprakka valdaránsins.
Leiðtogi valdaræningjanna,
George Speight, sem er kaupsýslu-
maður og sonur stjórnarandstöðu-
þingmannsins Sam Speight, sagði í
yfirlýsingu sinni að hann færi fyrir
frumbyggjum Fiji sem væru and-
snúnir því að Fijibúar af indversk-
um uppruna færu með stjórn
landsins. Þá sagðist Speight eiga
vísan stuðning stjórnarhers Fiji.
Herinn hefur hins vegar ekki feng-
ist til að staðfesta þá yfirlýsingu og
hefur starfandi utanríkisráðherra
Ástralíu sagt flest benda til þess
að her og lögregla starfi í sam-
ræmi við stjórnarskrá landsins.
Speight hefur nú skipað Ratu
Timoci Silatolu, þingmann Samein-
ingaflokks Fiji, í stöðu forsætis-
ráðherra til bráðabirgða og hafa
tveir aðrir þingmenn frumbyggja
einnig verið skipaðir í ráðherra-
stöður. í valdaránsyfirlýsingu sinni
sagðist Speight afturkalla stjórnar-
skrána. „Við leggjum nú grunninn
að breytingu á málefnum Fiji-eyja
í eitt skipti fyrir öll að ósk frum-
byg£ja,“ sagði Speight.
Óeirðir við þinghúsið
Að sögn ríkisrekinnar sjónvarps-
stöðvar, Fiji TV, kom til óeirða við
þinghúsið stuttu eftir að tilkynn-
ingunni um valdaránið var útvarp-
að, en 1.600 manns höfðu safnast
saman í Suva í gær er ár var liðið
frá stjórnarmyndun til að mótmæla
ríkisstjórn Chaudry. Hluti þess
hóps hélt til þinghússins þar sem
kom til átaka og grjóti var kastað.
Þúsundir eru svo sagðar hafa
flúið höfuðborgina eftir að kveikt
hafði verið í nokkrum byggingum
og sagði Fiji TV fólk hafa flýtt sér
að sækja börn sín í skóla. Þá hafi
viss ótti gripið um sig er brotist
var inn í verslanir og fyrirtæki í
nærliggjandi hverfum og herinn
kallaður út til að aðstoða lögreglu.
Að sögn ástralska utanríkisráðu-
neytisins virtist þó allt með kyrr-
um kjörum seinni partinn í gær.
Reuters
Lögregla stöðvar mótmælendur þegar þeir koma til þinghússins í Suva gær. Sjö vopnaðir og grímuklæddir
menn tóku yfir þinghúsið og lýstu stjórnarskrána ógilda.
Mahendra George
Chaudhry Speight
„Mér þykir miður að þurfa að
tilkynna að það sem hér hefur átt
sér stað í dag [í gær] brýtur í bága
við stjórnarskrána og er því ólög-
legt,“ sagði Ratu Sir Kamisese í
útvarpsávarpi sínu og lýsti því
næst yfir neyðarlögum í eyjunum.
Talið er að Adi Koila Mara Nailat-
ikau, dóttir forsetans, sé meðal
þeirra þingmanna sem haldið er í
gíslingu í þinghúsinu. Um 50
manns eru álitnir vera í þinghúsinu
og eru þeir að sögn Speight allir
heilir á húfi.
Valdatakan var í gær fordæmd
af Breska samveldinu og hefur
verið haft eftir heimildamönnum
frá utanríkisþjónustu Samveldis-
ríkjanna að tvö nýsjálensk herskip
séu í viðbragðsstöðu í nánd við eyj-
arnar. Þá hefur Don McKinnon,
framkvæmdastjóri Samveldisins,
f %-i- ■-$)
FlJI-eyjar ÁSTRAI.U r
Eyrfkið samanstendur nvm '/
af300eyjum. sJala|u
51 % íbúa eru frumbyggjar.
44% íbúa eru af indverskum 180»
rV';? Ȓi.
uppruna.
Lambasa-
/ .pVi'j
... VANUA
Kore
W/’ < OVALAU
Nadl. VITI . - ' .. 'íi : : . f
M LEVU . fteu5œi . ,8 S
suva
s mí
KANOAVII ;
100 km
hótað því að Fiji kunni að verða
rekið úr Samveldinu í kjölfar at-
burða gærdagsins.
Vaxandi óánægja frumbyggja
Chaudry er fyrsti forsætisráð-
herra Fiji sem er af indverskum
uppruna frá því að eyjarnar hlutu
sjálfstæði frá Bretum 1970. Ríkis-
stjórn Chaudrys er jafnframt sú
fyrsta sem kjörin hefur verið eftir
breyttri stjórnarskrá sem ekki
tryggir frumbyggjum völdin.
Umtalsverðrar óánægju hefur
hins vegar gætt meðal frumbyggja
Fiji og er stjórn Chaudrys sökuð
um að ala á misklíð milli frum-
byggja Fiji, sem eru 51% hinna
800.000 íbúa eyjanna og Fijibúa af
indverskum uppruna sem eru 44%.
Hópur þjóðarsinna efndi til að
mynda nýlega til mótmæla gegn
núverandi ríkisstjórn sem mótmæl-
endur hétu því að steypa af stóli.
Þeir íbúar Fiji sem eru af ind-
verskum uppruna voru fluttir til
eyjanna sem verkamenn með
breskum nýlenduherrum á síðari
hluta 19. aldar. Hópur frumbyggja
hefur síðan frá því eyjarnar öðluð-
ust sjálfstæði alið á þeim ótta að
indverskættaðir íbúar nái yfirráð-
um á eyjunum. Þeir eru í meiri-
hluta sykurreyrræktenda en syk-
urframleiðsla telst ein grunnstoða
efnahags Fiji.
Til þessa ótta má rekja tvær
valdaránstilraunir sem gerðar voru
árið 1987. I framhaldi voru gerðar
breytingar á stjórnarskrá eyjanna
með það að leiðarljósi að frum-
byggjum Fiji var tryggður örugg-
ur þingmeirihluti með lögum. Þess-
ar stjórnarskrárbreytingar voru
síðan afnumdar 1997, tíu árum síð-
ar, og virtist sem jafnræði hefði
verið komið á með þingkosningum
síðasta árs er Chaudry tók við
embætti forsætisráðherra.
Hollt að neyta
lítra af bj ór á dag
NÝLEGAR rannsóknir benda til
þess að allar tegundir áfengis
geti minnkað líkur á hjartasjúk-
dómum - sé drukkið oft en lítið
í einu. Að sögn BBC er besta að-
ferðin sú að drekka um lítra af
bjór á dag.
Margar rannsóknir hafa áður
sýnt fram á tengsl áfengisneyslu
og minni hættu á hjartasjúk-
dómum. Ekki hefur hins vegar
legið ljóst fyrir hvort allar teg-
undir áfengra drykkja byggju
yfir þessum eiginleika, eða ein-
göngu ákveðnir drykkir á borð
við rauðvín.
Dr. Martin Bobak og félagar
við Alþjóða heilbrigðis- og fé-
lagsvísindadeild University Coll-
ege í London beindu rannsókn-
um sínum að því hvort svipuð
tengsl væri að finna hjá bjór-
drykkjumönnum í Tékklandi og
sýnt hefur verið fram á í tengsl-
um við víndrykkju, en segja má
að bjór sé þjóðardrykkur Tékka.
í rannsókninni var gerður
samanburður á mönnum sem
fcngið höfðu hjartaáfall og heil-
brigðum mönnum á svipuðum
aldri. I* ljós kom að besta vörnin
gegn hjartasjúkdómum virtist sú
að neyta bjórs daglega, en að
takmarka þó neysluna við hálfan
til einn lítra á dag, því hjarta-
styrkjandi eiginleikar mjaðarins
virtust ekki ná til þeirra sem
neyttu hans í meira magni.
„Niðurstöðurnar benda til
þess að varnaráhrifin sé að
fínna í áfenginu sjálfu, goðsögn-
in um sérstök gæði víns er að
minu mati ekki sönn,“ sagði
Bobak í samtali við BBC.
Ástæða þess að vín, frekar en
bjór, hefði verið auglýst sem
gott fyrir hjartað mætti rekja til
þess að víndrykkjumenn til-
heyrðu gjarnan efri lögum þjóð-
félagsins og slíkt fólk hugaði al-
mennt betur að heilsu sinni en
bjórdrykkjumenn.
Rannsókn á
repjufræja-
máli
MARYLISE Lebranchu, ráð-
heiTa neytendamála í frönsku
ríkisstjórninni, lýsti því yfir í
gær að hafin yrði rannsókn á
því hvernig erfðabreyttum
repjufræjum hefði verið sáð í
Frakklandi eftir að umhverfis-
sinnar höfðu hreyft við hávær-
um mótmælum. Lebranchu,
sem einnig gegnir foiTnennsku
í spillingarmálanefnd stjórnar-
innar, skipaði starfsfólki ráðu-
neytis síns að hefja skjóta
rannsókn á því hversu út-
breidd sáning erfðabreyttu
repjufræjanna hafi verið.
„Mögulegur skaði sem tengist
erfðabreyttu fræjunum er
raunverulegur í augum neyt-
enda,“ sagði talsmaður Lebr-
anchu í París í gær. í yfirlýs-
ingu ráðherrans er hvatt til
aukins gagnsæis í málefnum er
varða erfðabreytt matvæli.
Styttra kjör-
tímabil forseta
LIONEL Jospin, forsætisráð-
herra Frakklands, sagði í gær
að hann vildi að ákvörðun um
styttingu kjörtímabils forseta
Frakklands yrði tekin í ár og
að kosið yrði um málið í þjóð-
aratkvæðagreiðslu ef Jacques
Chirac forseti fellst á það.
Jospin, sem af mörgum er
talinn líklegur forsetafram-
bjóðandi í næstu. kosningum,
sagði að nú væri kominn tími
til breytinga og að sjö ára kjör-
tímabili verði breytt í fimm ár
líkt og gildir um þingkosning-
ar. Talsmenn Chiracs sögðu í
gær að afstaða hans myndi
senn liggja fyrir. Fyrst myndi
forsetinn leita álits formanna
allra stjórnmálaflokka lands-
ins_.
í nýlegri skoðanakönnun
kom fram að 75% landsmanna
styðja tillögur um styttra kjör-
tímabil forsetans.
Lestarstjórar
án skírteina
EMBÆTTISMENN Lund-
únaborgar sögðu í gær að yfir
200 lestarstjórar neðanjarðar-
lestarkerfis borgarinnar hefðu
ekki sótt öryggisnámskeið og
sinntu starfi sínu þrátt fyrir að
vera með úrelt ökuskírteini.
Starfsskírteini lestarstjóra
falla sjálfkrafa úr gildi nema
þeir sæki upprifjunarnám-
skeið í öryggismálum sem
haldin eru ár hvert. Talsmaður
rekstraraðila neðanjarðarlest-
anna sagði í gær að ekki væri
ljóst hvers vegna lestarstjór-
arnir hefðu ekki viljað mæta á
námskeiðið. Málið hefur verið
litið alvarlegum augum af yfir-
völdum sem íhuga málaferli.
Pdlland í ESB
árið 2003?
POUL Nyrup Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur,
sagðist í gær styðja heilshugar
fyrirætlanir Pólverja um inn-
göngu í Evrópusambandið
(ESB) árið 2003. Átti Rasmus-
sen fund með pólskum starfs-
bróður sínum í Varsjá í gær og
sagði hann að svo virtist sem
Pólverjar yrðu reiðubúnir inn-
göngu um áramótin 2002-2003.
Embættismenn ESB hafa ver-
ið efins um að Pólland og fjög-
ur önnur Austur-Evrópuríki -
auk Kýpur - verði tilbúnir fyr-
ir aðild fyrr en árið 2005.