Morgunblaðið - 20.05.2000, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000 15
AKUREYRI
Myndlistarskdli Arnar Inga
Fjórir nemendur útskrifast úr Myndlistarskóla Arnar Inga í vor, frá
vinstri: Halla Gunnlaugsdóttir, Ingibjörg Eiríksdóttir, Margrét
Traustadóttir og Jóhanna Friðfinns.
Fjórir nemendur
útskrifast og sýna
Randalín kynnir
vörur í Býflugunni
og blóminu
FJÓRIR nemendur útskrifast nú í
vor úr Myndlistarskóla Arnar Inga
á Akureyri eftir þriggja ára nám.
Af því tilefni efna þeir til sýninga á
verkum sinum fjórar næstu helgar.
Fyrst sýnir Margrét Trausta-
dóttir verk sín nú um helgina, dag-
ana 20. og 21. maí í Klettagerði 6,
en þar er skólinn til húsa. Um
næstu helgi, 27. og 28. maí, sýnir
Halla Gunnlaugsdóttir í Kletta-
gerði 6. Jóhanna Friðfinns sýnir
verk sín í Klettagerði 6 fyrstu
helgina í júní, dagana 3. og 4. júní
og loks sýnir Ingibjörg Eiríksdótt-
ir verk sín í Sveinbjarnargerði
dagana 9. til 12. júni'.
Sýningarnar í Klettagerði eru
opnar frá kl. 14 til 18 þá daga sem
þær standa yfir, en sýning Ingi-
bjargar verður opnuð kl. 17 föstu-
daginn 9. júní næstkomandi.
RANDALÍN ehf. á Egilsstöðum
heldur kynningu á vörum sínum í
versluninni Býflugunni & blóminu
á Akureyri um helgina.
Sérstaklega verður kynnt ný lína
í ljóskerum úr bómullarkvoðu og
ný hönnun á lömpum. Þeir eru
samstarfsverkefni Randalínar og
Álfasteins, unnir úr óslípuðu nátt-
Daníel hlaut
styrkinn
DANIEL Þorsteinsson, píanókenn-
ari við Tónlistarskólann á Akur-
eyri, hlaut styrk úr Vísindasjóði
Starfsmannafélags Akureyrarbæj-
ar að þessu sinni. Styrkurinn er að
upphæð 170 þúsund krónur og hlýt-
ur Daníel styrkinn til rannsókna á
sönglögum eyfirskra tónskálda með
tilliti til fyrirhugaðrar heildarút-
gáfu. Sjóðurinn styrkir kennara við
Tónlistarskólann á Akureyri.
úrugrjóti og lampaskermarnir úr
litaðri bómullarkvoðu.
Randalín býður viðskiptavinum
sínum einnig að koma með gömlu
lampana og fá á þá sérunna skerma
við hæfi. Þá verða kynntar hand-
unnar gestabækur fyrir ýmis tæki-
færi, s.s. brúðkaup, útskriftir, erfi-
drykkjur, heimili og sumarbústaði.
Ársfundur
FSA
ÁRSFUNDUR Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri árið 2000 verður
haldinn mánudaginn 22. maí og hefst
hann kl. 14 í fundarsal Fiðlarans á 4.
hæð í Skipagötu 14.
Fundurinn er öllum opinn, en þar
verða fluttar skýrslur um starfsemi
sjúkrahússins á liðnu ári og fjallað
um stöðu þess nú. Viðurkenningar
verða veittar þeim starfsmönnum
sem starfað hjá FSA í 25 ár.
Vinabæja-
mótíjúní
VINABÆJAMÓT verðm- haldið
á Akureyri dagna 17. til 22. júní
næstkomandi og er gert ráð fyrir
að 85 gestir frá vinabæjum Ak-
ureyrar sæki mótið.
Eins og á fyrri vinabæjamót-
um á Akureyri er fyrh’hugað að
bjóða gestunum upp á gistingu í
heimahúsum meðan á dvölinni á
Akureyri stendur.
Þátttakendumir munu taka
þátt í þremur mismunandi við-
fangsefnum. Stærsti hópurinn
tekur þátt í dagskrá um bók-
menntir, ljóðlist og myndlist og
verður það sem þau semja og
mála jafnóðum sett inn á sér-
staka vefsíðu. Hinir hópamir
fást annars vegar við þjóðlaga-
tónlist og hins vegar þær greinar
sem tengjast þriþraut í íþróttum.
Ennþá vantar gistirými fyrir
hluta af gestunum og em því þeir
bæjarbúar sem gætu hugsað sér
að taka í gistingu og morgunverð
hress ungmenni frá vinabæjun-
um þessa daga beðnir að hafa
sem fyrst samband við Unni
Þorsteinsdóttur á skrifstofu
menningarmála.
frá 1.778.000 kr.
erð
1
1200
Söludeild 575 1220
Laguna Nevada - rneiri búnaður, meira pláss
í Rcnault Laguna Ncvada er meira pláss fyrir ökumann og farþega en gengur og gerist
í fólksbílum. Nevada er með 520 lítra farangursrými og svo ríkulega búinn að það er hrein
unun að keyra hann. Hann fæst líka í Evolution útgáiú með sjálfskiptingu, „cruise control“,
álfelgum o.fl. o.fl. Komdu og prófaðu meiri búnað og meira pláss í Renault Laguna Nevada.
RENAULT