Morgunblaðið - 20.05.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
VIKU
m
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000 43
Rannsóknir á meiðslum knattspyrnumanna
Unnið gegn aflögun
fóta og álagsmeiðslum
RANNSÓKNIR gefa
til kynna að mjög hátt
hlutfall knattspymu-
manna eigi við langvar-
andi vanda að etja í fót-
um vegna álags,
meiðsla og aflögunar,
sem fylgt hafi áralangri
iðkun íþróttarinnar. Af
þessum sökum er mjög
mikilvægt að allir þeir
sem að iðkun knatt-
spyrnu koma, leik-
menn, þjálfarar og
aðstaðdendur ungra
íþróttamanna geri sér
grein fyrir því álagi sem
henni fylgir auk mikil-
vægis fyrirbyggjandi aðgerða, segir
Mario Lafortune, forstöðumaður
rannsóknar- og þróunardeildar
Nike-íþróttavörufyrirtækisins en
hann hélt fyrirlestur á námstefnu
um meiðsli knattspymumanna sem
stoðfyrirtækið Óssur, Sjóvá-Al-
mennar og Knattspymusamband Is-
lands gengust fyrir í Reykjavík fyrr í
mánuðinum.
Mario Lafortune er þekktur vís-
indamaður á þessu sviði. Hann lauk
MS-gráðu í lífeðlisfræði og hreyf-
ingafræði og doktorsprófi í líf-
aflsfræði (Biomechanics) frá Penn
State University. Hann var pró-
fessor við háskólann í Penn State í
nokkur ár, hefur unnið hjá NASA að
rannsóknum og einnig hjá ástralska
íþrótta- og Ólympíusambandinu.
„Viðamikil rannsókn sem var gerð
á atvinnuknattspymumönnum fyrir
Ólympíuleikana árið 1996 leiddi í ljós
að 80% þeirra áttu við vanda að etja í
fótum eða þjáðust af aflögun fóta
vegna iðkunar íþróttarinnar,“ segir
Mario Lafortune. „Við hjá Nike vilj-
um kanna af hverju þessi vandi staf-
ar í þeim tilgangi að draga úr meiðsl-
um knattspyrnumanna og aflögun
fóta þeirra. Þetta er gert til að þróa
skó fyrir knattspyrnumenn sem
fallnir em til að svara kröfum þeirra
og draga jafnframt úr líkunum á
meiðslum, einkum álagsmeiðslum.“
Hjá Nike starfar fjöldi fólks að þess-
um rannsóknum en fyrirtækið hefur
svipuð umsvif á flestum sviðum
íþrótta í þeim tilgangi að þróa fram
betri skóbúnað fyrir áhuga- sem at-
vinnumenn.
„Alþekkt er að eldri leikmenn séu
mjög þjáðir í fótunum og það er yfir
allan vafa hafið að í mjög mörgum
tilfellum fylgja meiðsli og aflögun
fóta mönnum alla lífsleiðina. Aflögun
fóta er langtímafyrirbrigði, fætur
leikmanna aflagast á mörgum árum
m.a. sökum álags og of
þröngs skóbúnaðar.
Þetta er því ekki vandi
sem unnt er að bera
saman við meiðsli á
borð við t.d.
handleggsbrot. Þess
vegna höfum við
hleypt af stokkunum
stórri rannsókn í sam-
starfi við Duke-háskól-
ann í Bandaríkjunum
þar sem fylgst er með
ungum knattspyrnu-
iðkendum á aldrinum
11-18 ára. Tilgangur-
inn er m.a. sá að fá
betri yfirsýn yfir hvers
konar meiðsli hrjá þessa iðkendur.
Samhliða þessu hófum við rannsókn
á aflögun fóta hjá knattspyrnumönn-
um í samanburði við annars vegar
iðkendur körfubolta og hins vegar
fólk sem engar íþróttir stundar. Með
þessu móti vonumst við til að fá svar
m.a. við þeirri spumingu hvort aflög-
un fóta komi til af almennri iðkun
íþrótta eða hvort hana megi rekja
beint til þess að viðkomandi leggi
stund á knattspymu. Vera kann að
aflögun fóta fylgi einnig öðmm
íþróttagreinum en það vitum við
ekki og líklega er hún frekar tengd
knattspymu en öðmm íþróttum."
Mario Lafortune segir að rann-
sóknin á ungum iðkendum fótbolta
hafi leitt í ljós að tíðni meiðsla geti
ekki talist sérlega há eða fimm til níu
tilfelli meiðsla á hverja 1.000 klukku-
tíma við æfingar. „Hins vegar er
þetta nokkuð há tíðni miðað við flest-
ar aðrar íþróttir og það á vitanlega
einkum við um ökkla og hné.“
Rannsóknin miðar að því að
greina meiðsli og setja þau í sam-
hengi m.a. við aðstæður, vallargerð,
leiktíma ofl. Hver sá sem meiðist er
tekinn í viðtal þar sem allra upplýs-
inga um rás atburða er aflað.
Þessi rannsókn Duke-háskóla og
Nike hófst fyrir rúmum þremur ár-
um en ráðgert er að hún standi í tvö
ár til viðbótar. Rannsóknin fer fram í
Norður-Karólínu og tekur til 5.000
iðkenda á aldrinum 11-18 ára á
þessu fimm ára tímabili.
„Almenningur gerir sér trúlega
ekki Ijóst hversu algengt er að fætur
knattspymumanna aflagist. Hins
vegar þarf að hafa í huga að rann-
sóknin fyrir Ólympíuleikana tók til
manna sem leika íþróttina sem
landsliðs- og atvinnumenn „á æðsta
stigi“ ef svo má að orði komast. Hér
ræðir um menn sem eyða mun meiri
tíma í íþróttina en áhugafólk og þjást
því mun frekar af álagsmeiðslum."
Rannsóknir Nike miðast m.a. að því
að afla sem mestra upplýsinga um
slík álagsmeiðsli til að geta boðið
fram skó, sem hannaðir eru til að
draga úr hættunni á þeim.
Of litlir skór
Mario Lafortune segir að eitt af
því sem einkenni knattspyrnuheim-
inn sé að menn noti almennt of litla
skó. „Leikmenn telja sig margir
hverjir fá betri tilfinningu fyrir bolt-
anum með því að vera i þröngum
skóm. Við vitum að þetta má rekja til
þess þegar knattspyrnuskór voru
búnir til úr leðri. Nú framleiðum við
skó úr gervileðri sem teygist á með
allt öðrum og heppilegri hætti þann-
ig að ef til vill rennur sá dagur upp að
knattspymumenn hætti að nota of
litla skó. Of litlir skór geta haft áhrif
á vöxt beina í fætinum og álagið sem
fótur leikmannsins verður fyrir sök-
um þess að hann hleypur á tökkum
getur orðið skaðlegt ef skórinn er of
þröngur. Stafræn tölvutækni hefur
gert okkur kleift að rannsaka þetta.“
Atvinnumenn í knattspymu iðka
íþrótt sína í nokkra klukkutíma á
dag auk þess sem þeir ganga ekki á
hefðbundnum sólum heldur sex
tökkum á meðan þjálfun og leikir
fara fram. Þessar staðreyndir auka
vitanlega hættuna á meiðslum. „Ég
tel hins vegar hugsanlegt að of litlir
skór vegi þyngst í aflögun fóta knatt-
spymumanna," segir Lafortune og
segir mikilvægt að allir þeir sem að
knattspymu koma geri sér þetta
ljóst.
„Krakkamir herma eftir þeim
fullorðnu og hetjunum sínum á vell-
inum. Ef til vill em of litlir skór ekki
mikið vandamál hjá jmgstu iðkend-
unum en unglingar 15, 16, 17 ára
gamlir, líkja gjarnan eftir þeim
bestu og atvinnumönnunum þegar
þeir heyra að galdurinn sé ekid síst
fólginn í því að vera í of litlum skóm.
Á þessum ámm em unglingamir á
viðkvæmu vaxtarskeiði og fætur
þeirra, sem iðka mikið knattspyrnu,
geta aflagast noti þeir of þrönga
skó.“ Mario Lafortune bendir einnig
á að algengt sé að ungir iðkendur
noti skó með óhóflega löngum tökk-
um. Þetta skapi óeðlilega snertingu
við undirlagið, sem auki líkur t.d. á
ökklameiðslum.
• Tenglar
Ráð fyrir foreldra:http://sports-
parents.com/
Um knattspymumeiðslkhttp://
members.aol.com/DonMcGhie/
kick.html
Mario Lafortune
Boluefm úr æxli s.]úklings notað gegn krabbameini
Straumhvörf framundan í
krabbameinslækningum?
London. The Daily Telegraph.
TEKIST hefur að lækna breska
konu af krabbameini með því að örva
ónæmiskerfið með bóluefni sem gert
var úr æxli sjúklingsins.
Bresldr læknar skýrðu frá því ný-
lega að Cathryn Nosrati frá Verwood
í Dorset hefði læknast af krabba-
meini hálfu ári eftir að hún fékk bólu-
efnið. Þróun bóluefnisins tók tíu ár
og Nosrati var fyrsti krabbameins-
sjúklingurinn í heiminum sem fékk
það.
Vísindamenn telja að eftir fimm ár
verði hægt að nota bóluefnið til að
vinna á krabbameini í brjóstum,
blöðmhálskirtli, eggjastokkum og
ristli og að það geti valdið byltingu í
krabbameinslækningum.
Akveðin erfðaefni úr æxlisfrumum
voru tekin úr sjúklingnum og notuð
ásamt erfðaefnum úr eiturefni bakt-
eríu sem veldur stífkrampa, en það
fær ónæmiskerfið til að mynda bólu-
efnið. Nosrati, sem er 42 ára, var
bólusett aðra hveija viku í þrjá mán-
uði á sjúkrahúsi í Boumemouth.
Nosrati hafði áður gengist undir
efnameðferð. Bóluefnið örvar
ónæmiskerfið, fær það til að ráðast á
krabbameinsfrumumar sem ekki var
eytt með efnameðferðinni, en hún
leiðir yfirleitt til bakslags. Ónæmis-
kerfið þekkir eiturefni bakteríunnar
og leitast við að eyða því og ræðst um
leið á krabbameinsfrumurnar.
Terry Hamblin prófessor, sem
stjómaði rannsókninni, sagði að
komið hefði í ljós að bóluefnið hefði
valdið ónæmisviðbrögðum og Nos-
rati væri nú laus við krabbameinið.
Hún þyrfti að gangast undir aðra
rannsókn eftir eitt og hálft ár þar
sem hún gæti fengið sjúkdóminn aft-
ur innan tveggja ára. Hann bætti þó
við að niðurstöður fyrstu rannsókn-
arinnar væru mikilvægar.
„Við höfum sýnt að bóluefni úr
erfðaefnum gegn æxlismótefnisvök-
um geta valdið ónæmisviðbrögðum.
Sjúklingar með eitilæxli hafa veikt
ónæmiskerfi, svo og sjúklingar sem
hafa gengist undir efnameðferð.
Hvort tveggja átti við um Cathryn.
Þrátt fyrir það höfum við komist að
því að við getum bólusett sjúkling
gegn æxlinu.“
„Við viljum ekki vekja falskar von-
ir. En við erum hæfilega spennt yfir
þessum árangri," bætti prófessorinn
við.
• Tenglar
Krabbameinsfélagið:
www. krabb.is
Upplýsingavefur um eitla-
krabbamein
www.lymphomainfo.net
Apétekið
VICHY. HEILSULIND HUÐARINNAR
Kannast þú víð
éinhver eftirfarandi
einkenna ?
M Svitakóf
■ Nætursvita
■ Einbeitingarskort
U Leiða
U Þróttleysi
■ Þurrk í leggöngum
Ef þú kannast við einn eða fleiri
ofangreindra kvilla þá getur
Menopace öfluga vítamín- og
steinefnablandan e.tv. hjálpað þér
Fæst 130 og 90 daga skömmtum
besta aldri ?
eno&m
m
VITABIOTICS
- þar sem náttúran og vísindin vinna saman
Fæst aðeins í lyfjaverslunum
VICHY KYNNING
/íTéM
\\
EISTALL
er sprunginn úf
í sumarliMnuTB
Apótekið Smáratorgi 1
Smáratorgi sími: 564 5600
í DAG, 20. MAÍ
KL: 12-16
VICHY ráðgjafi verður á
síaðnum með
húðgreiningartæki.
NÝJUNGAR:
* Rétí C - rrýtt afi gegn
aídurseinkennum
* Sófvom SPF20 - í
spreyfonre.
TILBOÐ:
Flott sólgleraugu fylgja
kaupum á 2 eða fleirum
scáarkremum!
Komíð og kynntð ykkur
söluhæstu húðvörur Evrópu
sem eingorvgu eru seldar
I apótekum.