Morgunblaðið - 20.05.2000, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 20.05.2000, Blaðsíða 80
SO LAUGARDAGUR 2p. MAÍ 2000 FRÉTTIR I DAG MORGUNBLAÐIÐ Lionsklúbburinn Freyr Morgunblaðio/Golli Gefur tæki til bjargar mannslífum LIONSKLÚBBURINN Freyr hefur gefið björgunarsveitinni Ársæli hlustunartæki. Tækið er af gerð- inni DELSAR og er ætlað til að leita í rústum eftir náttúruhamfar- ir. Tækið er svipað því og notað var af bandarískri björgunarsveit við leit í húsarústum í Tyrklandi eftir jarðskjálftann mikla á siðasta ári. Eins og kunnugt er tóku íslending- ar þátt í björguninni. Nýja DELS- AR-tækið er af nýrri kynslóð og mun fullkomnara en þau af eldri gerðinni. Gjöfin rennir styrkum stoðum undir alþjóðlega björgunarsveit, sem stendur til að stofna hér á landi. Lionsklúbburinn Freyr var stofn- aður 1968 og hefur síðan þá veitt úr líknarsjóði um það bil 80 milljónir króna. Því má með sanni segja að jóladagatölin frá Lions komi að góðum notum. Morgunblaðið/Kristinn Fulltrúar Lionsklúbbanna Fjörgyn og Fold afhenda fulltrúa augndeild- ar Landspítalans sjónhimnurita. Gáfu augndeild Land- spítalans sjónhimnurita LIONSKLÚBBURINN Fjörgyn og Fold afhentu á 10 ára afmæli sínu augndeild Landspítalans full- kominn tækjabúnað til sjónhimnu- ritunar. Samskonar tæki eru notuð á virtum sjúkrahúsum erlendis, m.a. við rannsóknasjúkrahús há- skólanna í Harvard og Stanford í Bandaríkjunum, segir í fréttatil- kynningu frá augndeild Landspít- alans. Kaupverð er 1,7 milljónir króna. Einnig segir: „Sjónhimnurit er aðferð sem notuð er til að meta ástand taugafrumna í auga sem skynja ljós, svokallaðra Ijósnema. Sérhver einstaklingur hefur sitt sérstaka sjónhimnurit og saman- burður á endurteknum mælingum, t.d. með nokkurra ára millibili, leið- ir í ljós hvort breytingar hafa orðið í starfsemi ljósnemanna. Ritann er hægt að nota til þess að ákvarða breytingar eða truflanir í starfsemi ljósnema af völdum sjúkdóma, áður en önnur einkenni þeirra koma fram. Tækið nýtist vel til þess að greina ýmsa augnsjúkdóma á frumstigi þeirra, t.d. „retinitis pig- mentosa“og meðfædda náttblindu. “ Norðurland Almennir stjórnmálafund- ir Frjálslynda flokksins FRJÁLSLYNDI flokkurinn boðaði til almennra stjórnmála- funda á Bolungarvík og ísafirði í aprfl en gengst fyrir almenn- um stjómmálafundum á Norð- urlandi á næstunni. Fundirnir verða sem hér seg- ir: Sunnudag 21. maí, Kaffi Króki á Sauðárkróki kl. 16, mánudag 22. maí, Bakka í Hrís- ey kl. 16, mánudag 22. maí, Sandhóli á Ólafsfirði kl. 20:30 og þriðjudag 23. maí á Hótel Húsa- vík kl. 20:30. Stuttar framsögur flytja: Guðjón A. Kristjánsson, Sverrir Hermannsson og Gunnar Ingi Gunnarsson. Að því loknu verða umræður. Allir velkomnir. VELVAKAMDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Fjárskortur sjúkra- húsanna MIG langaði til að vekja athygli á frétt sem birtist í Morgunblaðinu 16. apríl sl. um biðlista á sjúkrahúsun- um. Þar er sagt að 7229 manns séu á biðlista sam- kvæmt Landlæknisem- bættinu. Sem dæmi um þá sem bíða eru 977 á biðlista eftir bæklunaraðgerð, 930 á biðlista eftir háls-, nef- og eyrnaaðgerð. Það eru um 900 manns sem bíða eftir endurhæfingu, 655 eftir plássi á kvensjúk- dómadeild og 252 eftir hjartaaðgerð. Það kom fram síðar í fréttum að þessir biðlistar væru til- komnir vegna fjárskorts. Það virðist þurfa að endur- skipuleggja allt fjármagn hjá sjúkrahúsunum. Það vantar algerlega allt pen- ingainnstreymi inn á sjúkrahúsin. Félagasamtök og einstaklingar eru að safna og færa sjúkrahús- unum alls konar tæki til styrktar og er það hið besta mál. Fjármálafyrir- tæki og vel stæðir einstakl- ingar hér á landi eru farnir að kaupa banka erlendis og fjárfesta í hinum ýmsu fyr- irtækjum. Það virðist vera til nægt fjármagn. Því ekki að leyfa þeim sem eru vel stæðir og hafa efni á að greiða fyrir aðgerðir að hafa forgang? Þá kæmi að minnsta kosti eitthvert fjármagn inn á sjúkrahús- in. Þetta er hið viðkvæm- asta mál, en það vantar samt sem áður algerlega umræður um þessi mál. Það er hræðilegt til þess að hugsa að fólk bíði sárlasið í eitt til tvö ár eftir aðgerð- um vegna þess að sjúkra- húsin hafa ekki fjármagn til þess að framkvæma að- gerðir. G.S. Ráðstöfun fjármagns í kosningabaráttunni MER finnst það vítavert að Ástþór Magnússon og Sverrir Stormsker kosti þjóðina um það bil 50 millj- ónir í vonlausri kosninga- baráttu. Mig langar til að vekja fólk til umhugsunar um þessi mál. Einnig vil ég varpa fram þeirri spurn- ingu hvort þetta sé ekki vítavert. Ég vil kalla þá til ábyrgðar. Það væri nær að þessir peningar væru látn- ir ganga til ellilífeyrisþega og öryrkja. Þar væri þess- um peningum vel varið. Skúli Einarsson. Undirskriftalistar vegna Friðar 2000 FYRIR stuttu bönkuðu upp á hjá mér tvær ungar stúlkur og buðu mér að taka þátt í undirskrift fyi’ir Frið 2000. Mér fannst það alveg sjálfsagt mál, en vildi fá betri upplýsingar um hvað málið snérist. Þá sögðu þær mér að þetta væru undisrkriftalistar fyrir framboð vegna for- setakosninganna. Mér finnst það óheiðarlegt þeg- ar fólk gengur í hús og seg- ir fólki að þetta sé vegna Friðar 2000, en reynist svo ekki vera. Þetta eru óheið- arleg vinnubrögð. Ég sá að margir höfðu þegar ritað nöfnin sín á hstana og er ég viss um að fólk hefur haldið að það væri að styðja Frið 2000. Pálína Magnúsdóttir, Asparfelli 12. Tapað/fundid Lyklakippa fannst LYKLAKIPPA fannst í Safamýri miðvikudaginn 17. maí sl. Upplýsingar í síma 557-2726. Telpuþríhjól hvarf við Rauðalæk RAUTT og hvitt telpuþrí- hjól hvarf af róluvellinum við Laugalæk fyrir nokkru. Hjóhð er merkt „María Egilsdóttir Rauðalæk 18 sími 568-9628“. Vinsamleg- ast skilið hjólinu á Rauða- læk 18 eða hringið í síma 568-9628 eða 892-8590. Dýrahald Síarasköttur óskast ÉG óska eftir að fá árs- gamalt, ógelt síamsfress gefins. Upplýsingar í síma 696-0814 eða 692-4049. Morgunblaðið/Ásdís Víkverji skrifar... AÐ þóttu tíðindi meðal knatt- spyrnuáhugamanna þegar það spurðist út síðla vetrar að KR-ingar ætluðu að breyta um keppnisbún- ing. Víkverji varð eins og margir aðrir hissa á þeirri ákvörðun, ekki síst þegar hulunni var svipt af nýja búningnum. Svart-hvíti röndótti búningurinn, sem KR-ingar hafa notast við lítið breyttan í hundrað ár, var sennilega orðinn eitt þekkt- asta vörumerki á Islandi en nú hefur honum verið breytt svo mikið að hann er nánast óþekkjanlegur. Vík- verji hefur enn ekki hitt þann KR- ing sem telur breytinguna til bóta þótt flestir reyni að bera sig manna- lega. Víkverja fannst athyglisvert þegar hann heyrði fróðan mann líkja búningaævintýni KR-inga við það þegar Coea Cola ætlaði sér að breyta uppskriftinni að kóki, þess- um útbreiddasta drykk á jörðinni (fyrir utan vatn), og setja á markað- inn „nýtt kók“. Þá leið ekki á löngu áður en viðbrögð markaðarins komu viti fyrir stjórnendurna og þeir héldu áfram að selja fólki gamla „góða drykkinn“. Sennilega er búið að brenna uppskriftina að „nýja kókinu". Almennt er þessi tilraun fyrirtækisins talin eitt mesta mark- aðssetningarklúður í sögunni. Lær- dómurinn sem menn hafa dregið af hrakfallasögunni um „nýja kókið“ er sígildur: „If it works, don’t fix it“, þ.e. ekki reyna að laga það sem er í lagi. Hafi Víkverji verið hallur undir þessa kenningu félaga síns áður en Islandsmótið hófst runnu á hann tvær grímur þegar hann sá KR-inga hlaupa út á Laugardalsvöllinn til fyrsta leiks sumarsins. Liðið var nefnilega ekki klætt í nýja og breytta búninginn, sem þó var boð- inn stuðningsmönnum sérstaklega til sölu með auglýsingum á leikdag- inn, heldur voru leikmenn í nýjum varabúningi félagsins. Getur verið að KR-ingar sjálfir séu svo van- trúaðir á breytingarnar að þeir þori ekki að sýna nýja vörumerkið ann- ars staðar en í Frostaskjóli? Eða ætla þeir kannski að verða fyrstir ís- lenskra liða til þess að spila í einum keppnisbúningi á heimavelli og öðr- um á útivelli hvort sem búningur heimaliðsins kallar á slíkar tilfær- ingar eða ekki? Það væru nokkur tíðindi og kannski er sú skýring ekki ólíkleg þegar litið er til þess að fé- lagið er nú hlutafélag sem er rekið í hagnaðarskyni. Því fleiri búninga sem liðið notar því fleiri búninga má selja hverjum stuðningsmanni. Lið- ið á þegar svo marga stuðnings- menn að það getur tæpast aukið tekjur sínar af búningasölu að marki með aukinni velgengni á vellinum. Tekjumöguleikarnir liggja í því að skipta nógu oft um búning og hafa nógu marga búninga í takinu hverju sinni. Þetta hafa þeir í Frostaskjóli kannski lært af Manchester United sem skiptir árlega um útfærslu af aðalbúning, varabúning og gott ef ekki líka vara-varabúning. xxx EN talandi um Manchester Unit- ed. Víkverja fannst sérstaklega athyglisvert að fá að sjá þennan gráa varabúning KR-inga á fimmtu- dagskvöldið. Kona Víkverja, sem hefur auga fyrir fatahönnun, sagði að hann væri „flottur“ og vel heppn- aður. En Víkverji sá strax að þarna voru loksins komnir í leitirnar gömlu, gráu varabúningarnir sem Manchester United notaði einu sinni og aðeins einu sinni í leik á móti Southamton og frægt varð. Leikið var í þoku og gráklæddir Manchest- er-mennirnir sáu ekki hver annan og töpuðu stórt. Strax eftir leikinn voru þessir búningar látnir hverfa og það reyndist rétt ákvörðun því síðan hefur heimamönnum á Old Trafford gengið allt í haginn eins og kunnugt er. Víkverji hélt alltaf að Manchester-menn hefðu brennt gráu búningana en á fimmtudags- kvöldið komst hann að því að svo var ekki. Þeir seldu þá í Frostaskjólið. Fyrr eða síðar mun KR eiga útileik í þoku. Víkverji bíður spenntur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.