Morgunblaðið - 20.05.2000, Side 56

Morgunblaðið - 20.05.2000, Side 56
f 56 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR GUÐMUNDUR VALGEIR JÓHANNESSON + Guðmundur Val- geir Jóhannesson skipstjóri og útgerðar- maður fæddist á Flat- ejæi 17. desember 1905. Hann lést á öldr- unarstofnuninni Sól- borg á Flateyri hinn 9. maí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Jó- hannes Eugen Guð- mundsson (f.1870, d.1960) og Valgerður Guðbjartsdóttir (f.1877, d.1965). Guð- mundur Valgeir var yngstur þriggja systk- ina. Eldri voru Sigríður (f. 1902, d.1995) og Eiríkur (f. 1904, d. 1926). Uppeldissystur hans eru Ragnheiður Friðriksdóttir, f. 1916, og María Magnúsdóttir, f.1922. Eiginkona Guðmundar Valgeirs var Hallfríður Guðbjartsdóttir (f.1916, d.1994). Þau voru gefin saman í hjónaband hinn 5. aprfl 1941 og eignuðust þau sex börn. Þau eru: Jóhannes Valgeir sem lést nokkurra mánaða gamall; Jóhanna Elsku afi, nú ertu farinn frá okkur, nafni þinn á ekki lengur afa. Ein- hvern veginn er aldrei rétti tíminn til að skilja að eilífu, en við erum ekki spurð, heldur erum við þátttakendur í þessu lífi. Sú festa sem einkenndi þig er nú minningin ein, ég hugsa til þín og það hryggir mig að nú ertu ekki lengur hjá okkur. Allar þær góðu stundir sem ég átti með ykkur ömmu á Oldu- götunni eiga eftir að fylgja mér allt mitt líf og minna mig á að njóta þess að lifa lífinu lifandi. Mínar fyrstu minningar eru frá Öldugötunni þegar ég bjó hjá ykkur með mömmu og pabba, ég að stíga mín fyrstu skref út í lífið. Þá fór ég í fyrstu ferðirnar einsamall út á horn og beið eftir að þú kæmir hjólandi heim úr vinnunni. Þú tókst mig upp og reiddir mig heim sitjandi á stöng- inni, öi-uggur í afa höndum, við sam- an nafnarnir. Alltaf var tími fyrir kaffi og eitt sinn sem oftar kom ég í kvöldkaffi til ykkar. Þú spurðir hvort ég gæti ekki stillt sjónvarpið þannig að amma sæi betur textann. Eg sagði: Þú þarft bara að fá þér stærra sjónvarp, þá stækkar textinn og svo var það ekki rætt meir. Daginn eftir var komið nýtt sjónvarp. Svona var afi, ekkert að draga hlutina. Ég á eftir að minn- ast þess oft þegar ég vil að hlutirnir gangi hratt hvernig þú hafðir þetta hjá þér. Ef hugmyndin var fædd átti að gera hlutinn strax og ef enginn mátti vera að því að aðstoða, þá var ekkert annað að gera en gera það Valgerður sem er látin, var gift Fred L. Martin; Gunnar Kristján, kvæntur Elínu Jónsdóttur; Magnús Hringur, kvæntur Ebbu Jóns- dóttur; Eiríkur Guðbjartur, kvænt- ur Rögnu Óladóttur; og Guðjón, kvæntur Bjarnheiði Jónu Iv- arsdóttur. Barna- börn og barna- barnabörn eru 26 talsins. Guðmundur var skipstjóri og útgerðarmaður mestan hluta starfsævi sinnar, hann sat í hreppsnefnd Flateyr- arhrepps í fjögur ár og var ábyrgðarmaður í Sparisjóði On- undarfjarðar til fjölda ára. Hann hlaut heiðursmerki fyrir björg- unarstörf er togarinn Júní strandaði í Önundarfírði. Útfór Guðmundar Valgeirs fer fram frá Flateyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. sjálfur. Því ekkert gerist af sjálfu sér. Ég á eftir að sakna þess að geta ekki sest niður með þér, talað um líð- andi stund, skipst á skoðunum, sagt þér frá því hvað ég hef verið að gera og hvaða væntingar ég hef. Rætt um sjómennsku og fiskveiðar, verið með og á móti ríkisstjóminni, hælt því sem vel var gert og verið svo ekkert spar á það sem miður fór. Það var fjarri því að þú værir eitthvað feim- innvið að láta skoðanir þínar í Ijós. Ég held áfram að hugsa um þig og ykkur ömmu sem vomð mér svo kær. Margt ber að þakka og gleðjast yfir og lífsgleðin sem einkenndi líf ykkar ömmu er sú stóra gjöf sem þið gáfuð mér. Ég kveð þig í dag, elsku afi. Minn- ingin um þig lifir í hjarta mínu og ég trúi því að það sé meira en bara nafn- ið þitt sem lifir áfram með mér. Guðmundur Valgeir Magnússon. Með Guðmundi Valgeiri Jóhann- essyni er genginn góðvinur okkar og trúr kirkjugestur til margra ára. Hann brá lengi stórum svip yfir um- hverfi sitt, teinréttur, geðríkur og gustmikill. Svo mikið er víst, að Sól- borg á Flateyri verður ekki söm eftir fráfall þessa eftirminnilega manns. Guðmundur Valgeir fæddist 17. desember 1905 á Flateyri og voru foreldrar hans hjónin Valgerður Margrét Guðbjartardóttir, fædd á Læk í Dýrafirði 1877, og Jóhannes SIGURLAUG ÓLAFSDÓTTIR + Sigurlaug Ólafsdóttir fæddist á Læk í Viðvíkursveit í Skaga- firði 26. september 1927. Hún lést á líknardeild Landspítalans 12. maí siðastliðinn og fór útför henn- ar fram frá Bústaðakirkju 19. mai. „Nei, komdu sæll.“ Það er ótrú- legt hversu Sillu tókst að ljá svo stuttri kveðju mikla hlýju. Og þó, því ásamt hógværð og jafnlyndi var það einmitt hlýjan sem einkenndi hana. í þá þrjá áratugi sem ég þekkti * Sillu heyrði ég hana aldrei hækka róminn, þó að við Valdi sonur henn- ar hefðum svo sem oft gefið henni tilefni til þess hér áður fyrr. Ekki heyrði ég hana heldur nöldra eða kvarta, sem eru þó sjálfsögð réttindi þess sem þarf að halda utan um heimili með eiginmanni og þremur „ sonum. Nei, smámunir högguðu ekki jafnaðargeði Sillu. Ég efast um að stórir hlutir hafi gert það heldur. Silla var gædd sönnu lítillæti og æðruleysi, eigin- leikum sem eru því miður alltof sjaldgæfir og verða æ fátíðari. Augljóst var hversu kær hún var bamabörnum sínum, eins og þau henni. Betri meðmæli er ekki hægt að fá. Börnin þekkja hreinar tilfinn- ingar og hlýju og leita ósjálfrátt þangað sem þeirra er von. Samt var það ekki fyrr en á full- orðinsárum sem maður gerði sér virkilega grein fyrir kostunum sem Silla var búin. Þó að stundum liði langur tími á milli heimsókna eða símtala var alltaf sama hlýjan sem stafaði frá henni og sama kyrrðin í eldhúsinu hennar. Missir fjölskyldunnar er mikill og ég sendi henni kveðjur mínar. Sillu þakka ég kynnin, en fyrir þau finnst mér ég betri maður en ella. Adolf. Evgen Guðmundsson, fæddur í Vill- ingadal á Ingjaldssandi 1870. Þau voru bæði í húsmennsku hjá Eiríki Sigmundssyni á Hrauni á Ingjalds- sandi. Þegar Eiríkur flutti til Flat- eyrar réð hann ungu hjónunum að fara þangað með sér. Jóhannes Eugen var mikill vinnu- þjarkur, ætíð reiðubúinn að ganga í hvaða verk sem var. Hann var fjár- gæslumaður fyrir Kristján Torfason á Sólbakka, heyjaði fyrir skepnurnar og hirti þær. Aður hafði hann sókt sjóinn. A hákarlaskipi var hann eitt sinn einn uppi á dekki og féll þá fyrir borð. Langur tími leið áður en karl- arnir í lúkarnum rönkuðu við sér og fóru að svipast um eftir honum. Hékk Jóhannes þá á höndunum í taumi á færum kokksins. Eftir það voru báður hendur hans krepptar og mikill annmarki að búa við slíkt, sem nærri má geta. Valgerður Margrét var góð kona og ljúf í lund, þó skapmikil. Það átti illa við hana að lifa við fátækt. Engin var hún höfðingjasleikja, en sagði þá skrýtlu, að Snorri Sigfússon skóla- stjóri hefði aldrei tekið ofan fyrir henni, nema af því hvað hún var vel klædd, þegar hún var að fara út í póstinn að sækja vatnið. Á heimili þeirra dvaldi lengi faðir Valgerðar, Guðbjartur Björnsson. Seinna tóku þau hjónin tvær fóstur- dætur á fyrsta ári og ólu upp sem sín eigin börn. Þær hétu Ragnheiður Friðriksdóttir og María Magnús- dóttir. Foreldrar Guðmundar Valgeirs voru með öllu eignalaus, þegar þau komu til Flateyrar. Fyrst bjuggu þau í agnarlitlu herbergi í slotinu hjá Eiríki. Það var þá tvíbýli í eigu bræðranna Eiríks og Guðjóns Sig- mundssona, er bjuggu hvor í sínum enda hússins. Ragnheiður, dóttir Eiríks og konu hans, Sigríðar Jóns- dóttur, giftist Ásgeiri Torfasyni og flutti að Sólbakka. Jensína Éiríks- dóttir giftist Ásgeiri Guðnasyni og bjuggu þau áfram í húsinu. Seinna byggði Jóhannes Eugen hús, sem nú er nr. 11 við Brimnesveg á Flateyri. Það þótti stórmyndarlegt á þeim tíma. Ráðist var í bygginguna á þeim forsendum, að hjónin áttu tvo dugandi syni, sem gátu unnið og lagt í púkkið. Þeir Eiríkur og Guðmund- ur Valgeir réðu sig því hvor á sinn bátinn hjá Ásgeiri Guðbjartssyni, móðurbróður þeirra í Hnífsdal. Það var þá, sem Gummi Valli kom til Skjaldarbjarnarvíkur snemma vors. Þar voru á borðum æðaregg frá því árið áður. Eggin höfðu verið soðin, skumið tekið utan af og þau lögð í súr. Þau smökkuðust samt eins og ný, ekki vottur af súrbragði. Gummi Valli horfði á bóndann í Skjaldarbjarnarvík saga stórtré úr reka eftir endilöngu. Hann tók garn- spotta, elti í lófa sér og fór með þetta ofan í skorsteininn, svo bandið varð sótugt. Þá festi hann garnið í annan enda trésins og svo í hinn og strekkti vel á. Loks fór hann að miðju trénu, tók þéttingsfast í spottann og sleppti! Og viti menn: Kom þá ekki þráðbein, svört lína á tréð handa bóndanum að saga eftir. I bernsku Guðmundar Valgeirs var lítið um að vera á Flateyri. Guð- mundur heitinn í Görðum átti þó 6 tonna bát og var róið á honum vor og sumar, en ekki ellegar. En það var fjölmennt í Önundarfirði. Á tímabili áttu um 40 manns heima í Eiríks- húsi, þar sem nú er Veitingastofan Vagninn á Flateyri. Og á Hesti bjuggu um 100 manns. Vegna veikinda móður sinnar var Gummi Valli sem bam heimagangur hjá Friðrikku Halldórsdóttur, móð- ur Sturlu Ebenezerssonar, er bjó í svonefndu Sturluhúsi á Flateyri. Hún var gæðakona og hafði talsvert umleikis, tók m.a. menn í fæði og húsnæði. Gistiherbergið var uppi á hæstalofti, þar sem bjuggu synir hennar, þeir Sturla, Kristján og Júl- íus. Júlíus svaf einn, en þeir Sturla og Kristján saman í rúmi. Ef maður kom að gista svaf hann hjá Júlíusi. Bam að aldri var Gummi Valli smali, bæði á Ingjaldssandi, í Hjarð- ardal og á Kroppsstöðum. Þá tíðkuð- ust enn fráfærurnar (stundaðar fram til 1951 á Kirkjubóli í Bjarnar- dal). Hann var snemma röskur og fljótur á fæti. Þeir eiginleikar entust honum líka alla ævi. Hann var nokkra vetur í bama- skólanum hjá Snorra Sigfússyni, sem kenndi allt, sem kenna þurfti, meh-a að segja leikfimi og söng. Með Snorra kenndi Hinrik Þorláksson, langafi Hinriks og Hálfdáns Krist- jánssona á Flateyri. Stundum var Guðmundur í Mosdal fenginn til þess að segja smávegis til í handavinnu og smíðum. Var talsvert um það í hús- um á Flateyri fyrr á tíð, að til væru myndarammar uppi á veggjum, smíðaðir af Guðmundi í Mosdal. Gummi Valli fermdist hjá sr. Páli Stephensen í Holtskirkju. Þá var farið á bátum yfir að Holti. Ekki sagðist hann muna, hvort presturinn hefði spurt sig mikið fyrir ferming- una, „enda var sr. Páll ekkert mikið fyrir það að hamast á fólki, hvorki á börnum né fullorðnum", sagði Gummi Valli löngu síðar um það mál. En hann minntist þess úr fermingar- athöfninni, að meðhjálparinn, Guð- mundur Bjarnason á Mosvöllum, var alltaf að teygja sig lengra og lengra í átt að fermingarbarninu, til þess að heyra hverju það svaraði því, sem presturinn spurði. Eftir fermingu gerðist Gummi Valli kokkur á færabátnum Gammi, sem var í eigu Páls Kristjánssonar, föður Önundar heitins, og Stein- gríms Árnasonar, sem kominn var með fiskihús á Flateyri. Trébryggja, sem verið hafði inni í Álftafirði, var rifin og flutt til Flateyrar. Um borð í Gammi var aðeins til einn pottur. Önnur máltíðin var soðning, gjarnan steinbítur, en í hitt málið var mjólk- urvellingur. Stundum vildi verða fiskbragð af grautnum. Þá sögðu karlarnir: „Nú hefur helvítis eit- urbrasarinn og skítkokkurinn ekki þrifið pottinn almennilega!" En síðar sagðist Gumma Valla svo frá, að sjálfur hefði hann verið það sem kall- að er kjaftfor og kunnað að bíta frá sér; ekki dottið í hug að gleypa við öllu, sem borið var á borð. Taldi það arf úr móðurætt sinni. Gummi Valli var yngstur þriggja systkina. Elst var Sigríður ljósmóðir og í miðið Eiríkur, sem lést hálfþrí- tugur af slysforum á hafi úti, skip- verji á togaranum Apríl. Honum hafði verið vísað niður í vélina. Gufuvélamar voru mikil jámabákn og smurkoppar hingað og þangað um alla vél, sem þurfti að passa, og það þótt vélin væri í gangi. Smurkoppur hafði dottið ofan í vél- ina og Eiríkur farið niður á eftir hon- um. En vélin var öll á hreyfingu og hver armur hennar, risavaxinn, eirði engu. Kramdist Eiríkur þarna til bana. Gummi Valli var kolamokari á Apríl, þegar þetta gerðist. Karlarnir á dekkinu sögðu: „Þetta er helvítis kolablókin!" Seinna hækkaði hann í tign og varð vélstjóri. Þá kom annað hljóð í strokkinn: „Meistari Guð- mundur!“ Og það, sem mestu skipti: Kaupið hækkaði líka. Þarna var Guðmundur Valgeir kominn í góða stöðu, en þá lét öfund- skapurinn ekki heldur á sér standa. Hann var narraður í land; lofað starfi 3. meistara á varðskipinu Þór, en svikinn um það. Þá fór hann beina leið vestur, heim á Flateyri, og kom ekki til Reykjavíkur í 18 ár eftir þetta, Á Flateyri beið hans ekkert. Ás- geir Guðnason var þó kominn með fiskverkun og Sameinuðu vora með línubát og Gummi Valli var tekinn upp á kaup. Þá komst hann á einn bátinn hjá Sveini Jónssyni, for- manni, síðar verkstjóra hjá Hjálmi. Næsta árið var hann svo hjá Magn- úsi heitnum Jónssyni á litlum bát, sem hét Vísir. Þannig gekk nokkrar vertíðar. Þetta endaði með því að Gummi Valli keypti af Magnúsi bát- inn, átti hann í 20 ár og reri á honum vetur, vor og sumar. Og gekk alltaf vel. Missti þó einu sinni mann fyrir borð, en náði honum lifandi aftur, sem var mikil mildi. Sá hét Magnús Gíslason, seinna afgreiðslumaður hjá Skagfjörð. Háseti á Vísi var þá Gunnlaugur heitinn Kristjánsson. Hann hakaði í Bjama og hann náð- ist, en skalf allur og nötraði. Gummi Valli skellti hoffmannsdropum útí kaffi og sagði honum að drekka þetta. Eftir að hann hafði drakkið kom sjórinn upp úr honum eins og gosbrannur. Ragnar læknir sagði síðar, að þetta hefði orðið til þess að bjarga lífi Bjarna. Á stríðsáranum bar það til, að vél- báturinn Hólmsteinn frá Þingeyri fór í róður föstudaginn 30. maí, en eftir það spurðist ekkert til hans. Kristján heitinn Ebenezersson var kunnugur á Þingeyri, því að hann hafði verið með Hamónu fyrir Anton Proppé. Fékk Kristján upphring- ingu frá Þingeyri og var hann beðinn að útvega bát til þess að leita að Hólmsteini. Fannst Gumma Valla engin leið að neita þessari beiðni. Hann var þá ekki með neina talstöð á Vísi, en fór samt og hafði gran um hvert Hólmsteinn mundi hafa róið, út af Blakknum, suður undir Röst. Þar sveimaði Gummi Valli um dálít- inn tíma, þangð til hann fann lóðir Hólmsteins. Hann dró hluta af þeim og fór með til Þingeyrar til sanninda- merkis um leitina. 5. júní fann vél- báturinn Kveldúlfur frá Hnífsdal tvo lóðastampa frá Hólmsteini. Brotið var úr börmum þeirra og göt í gegn- um þá, sýnilega eftir sprengjubrot. Talið var, að Hólmsteinn hefði lent í kúlnaregni frá viðureign herskipa, enda hafði á laugardeginum heyrst skothríð á þessum slóðum. Fjórh’ menn höfðu verið á bátnum. For- maður var Ásgeir Sigurðsson frá Bolungarvík. Það þótti einkennilegt eftir á, að af öllum þeim bátafjölda sem þá var á Flateyri skyldi aðeins einn bátur vera sendur til þess að leita. Gummi Valli þurfti ekki langt að sækja sér konuefnið. Hallfríður heit- in, sem var stórmyndarleg húsfreyja og hannyrðakona og skapi farin eins og sólargeisli, fæddist í næsta húsi, nr. 4 við Báragötu. Guðbjartur, faðir hennar, byggði það í félagi við Greip Oddsson frá Kirkjubóli í Valþjófsdal. Síra Jón Ólafsson gaf þau saman í Flateyrarkirkju. Við sama tækifæri gengu í hjónaband þau Oddur Frið- riksson, sonur Friðriks rokkasmiðs í Fremri-Breiðadal, og Áifheiður Guð- jónsdóttir. Vora engir aðrir við- staddir en presturinn og brúðhjónin. Gummi Valli sagði síðar, að þessi háttur hefði verið hafður á hjóna- vígslunni, af því hvað þeir kunningj- arnir vora feimnir; þeir vildu ekki bianda sér í neinn mannsöfnuð. Hafði síra Jón látið svo ummælt á eftir, að sér hefði fundist þetta að mörgu leyti gott, en þó kvartað und- an því að ekki skyldi hafa verið neinn söngur. Þau byrjuðu að búa uppi á lofti í húsi foreldra Gumma Valla, en árið 1953 festu þau kaup á húsinu nr. 5 við Öldugötu, er átt hafði Magnús Reinaldsson. Kaupverðið var kr. 80.000,00 á borðið og kölluðu sumir gjafverð. En nú vantaði Gumma Valla 18 þúsund króna lán og hvergi smuga nema í Sparisjóðnum á Flat- eyri. Sparisjóðsstjóri var þá mágur hans, Kristján Brynjólfsson. Þeir vora þrír í stjórn Sparisjóðsins, Kristján, Hjörleifur á Sólvöllum og Hjörtur Hjálmarsson skólastjóri. Gummi Valli sagði, þegar hann kom inn til þeirra: „Ja, ég kann nú ekki formúluna, hvernig ég á að leggja að ykkur! En þið vitið allir, að ég er að leita eftir láni til þess að kaupa þetta hús. Og ef ég á að koma með ábyrgð- armenn, þá er það sama og neitun. Ég tek ekki lánið, ef ég á að koma með ábyrgðarmenn!" Stjórnin sam- þykkti þetta, sem þótti furðulegt, en Sparisjóðurinn fékk fyrsta veðrétt í húsinu. Þegar Gummi Valli kom á Dvalar- heimili aldraðra, Sólborgu á Flat- eyri, nefndi hann þrennt, sem hann vildi hafa með sér þangað: Gervi- hnattadisk, tvo páfagauka og kött. Hið síðast nefnda fékkst ekki sam- þykkt. Marga stund sat hann við sjónvarpið og hnýtti á tauma af mik- illi snerpu og öryggi. Hann hafði framkvæði að því að byggðar vora svalir og síðar sólstofa við húsnæði Sólborgar; lét sig ekki fyrr en þetta var orðið að veraleika - og borgaði hluta af framkvæmdinni úr eigin vasa. Við Ágústa þökkum góða vináttu og ógleymanleg kynni. A útfarardegi hans dvelur hugur okkar angurvær hjá góðum vinum í nóttlausri vor- aldarveröld íyrir vestan. Ástvinum hans öllum sendum við okkar inni- legustu samúðarkveðjur og biðjum þeim og Önfirðingum allrar Guðs blessunar. Gunnar Björnsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.