Morgunblaðið - 20.05.2000, Side 66

Morgunblaðið - 20.05.2000, Side 66
t66 laugardagur 20. maí 2000 MORGUNBLAÐIÐ Mvkra Endingabetra Gripmeira Rásfastara Hlífðarkantur, ver felguna fyrir skemmdum Gripflötur á hliðum Hljóðlátara dekk Ath! Margar nýjar stærðir fyrir 15 og 16” felgur NÝTT ogennmyKra Eftir 20 ár á toppnum kemur BFGoodrich með nýtt og byltingarkennt jeppadekk, All-Terrain KO (Kick Off-Road) Dekkið sem kom fram á áttunda áratugnum olli straumhvörfum og enn eru BFGoodrich fyrstir með nýjungarnar og tryggja sér þannig forystuna um ókomna framtíð. ehf. S: 561 4110 Suðurströnd 4 • Seltjarnarnesi Útsölustaðir um land allt www.benni.is Vagnhöfða 23 & Kringlunni • Sfmi: 587 0 587 • Fax: 567 4340 Lengí getur gott batnað! íþróttir á Netinu <§> mbUs Aukið samstarf um hafís- þjónustu STÓRAUKIÐ alþjóðlegt samstarf hófst nýlega um haflsþjónustu og hafísrannsóknir meðal strandríkja á norðurhveli jarðar. Er mikil sam- vinna milli þeirra og miðlun upp- lýsinga um hafís í Ishafí, Atlants- hafi, Kyrrahafi, Eystrasalti og á öðrum hafsvæðum þar sem hafís myndast. Samræður um samstarf um haf- ísþjónustu hafa farið fram síðastlið- ið ár á ráðstefnum í Bandaríkjun- um, Danmörku og nú nýverið í Kanada. í haust er röðin komin að íslandi og er ráðstefna um hafís fyrirhuguð í Reykjavík 3.-5. októ- ber 2000. Fjallað verður um ólík hafsvæði landanna, þjónustu við sjófarendur og nýja tækni, svo sem fjarkönnun úr gervihnöttum, upp- lýsingatækni og frágang gagna- safna um hafís víðs vegar um heim. Hafísþjónusta bandarísku og kanadísku veðurstofanna, sem báð- ar eru mjög viðamiklar, Evrópu- deild rannsóknadeildar Bandaríkja- flota og Veðurstofa Islands boða til ráðstefnunnar hér á Islandi. Búist er við þátttakendum frá Norður- Ameríku, Norðurlöndum, Rúss- landi, Japan, Kína og fleiri löndum. Nær einnig til suðurskautsins Þess má geta að í ráði er að víkka út samstarf þjóðanna til suð- urskauts og sótti fulltrúi Argentínu fyrrnefndan fund í Kanada. Hafís- þjónusta felst í könnun á hafís, öfl- un upplýsinga, spám og viðvörun- um. A ráðstefnunni í Reykjavík í haust verður einnig unnið að undir- búningi að vísindalegu framlagi á sviði hafísmála sem lagt yrði fyrir alþjóðlegt þing á Akureyri i júní á næsta ári. Alþjóðlega veðurfræði- stofnunin í Genf, sem er samtök veðurstofa í heiminum og ein af stofnunum Sameinuðu þjóðanna, mun halda þar þing um sjóveður- fræði og hagnýta hafeðlisfræði, í boði ríkisstjómar íslands. Slík þing eru haldin á fjögurra ára fresti, síðast á Kúbu 1997. Sumarbúða- kvöldvaka í Nanoq SUMARBÚÐAKVÖLDVAKA verður í versluninni Nanoq í Kringlunni mánudaginn 22. maí. Starfsfólk skáta, Úlfljótsvatni, stjórnar kvöldvökunni, sem hefst kl. 19.30. A kvöldvökunni gefst krökkun- um sem ætla að koma í sumarbúð- irnar í sumar og foreldrum kostur á að hitta starfsfólkið og fá for- smekkinn af ævintýrinu. Einnig eru allir velkomnir á kvöldvökuna sem hafa áhuga á að kynna sér starfsemi sumarbúðanna eða rifja upp gömul kynni. Sungnir verða nokkrir söngvar, sýnd skemmtiat- riði og sýndar myndir frá sumar- búðunum. Allir sem mæta á kvöldvökuna fá óvænta gjöf frá Nanoq, segir í fréttatilkynningu. Arfur aldanna ÞJOÐS AGNAS AFN TilvaUn stúdentsgjöf „Glæsilegt þjóðsagnaúrval... útgáfan er einstaklega smekkleg að útliti og öllum frágangi" Sigurjón Björnsson, Morgunblaðinu m VAKAHELGAFELL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.