Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 B 13 , KNATTSPYRNA Breiðablik fslandsmeistari í 13. sinn Glæsimark Rakelar BREIÐABLIK tryggði sér íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu kvenna í 13. sinn á sunnudaginn þegar liðið sigraði Stjörnuna, 1:0, í lokaumferð deildarinnar. Fyrir lokaumferðina áttu Breiðablik og KR bæði möguleika á að hampa titlinum. Möguleiki KR-inga í að verða meistari fjórða árið í röð fólst í því að vinna leikinn gegn Val og stóla á að Stjörnunni tækist að leggja Breiðablik að velli. Þetta gekk ekki eftir hjá vesturbæjarliðinu því eins og áður sagði lögðu Blikakonur lið Stjörnunnar á útivelli en á sama tíma gerði KR jafntefli gegn Val að Hlíðarenda, 4:4. Það má segja að vindurinn hafi verið í aðalhlutverki í þessari lokaumferð deildarinnar. Sterkur vindur sem blés nán- ■■■■■■■ ast úr öllum áttum á Guðmundur Stjörnuvelli gerði Hilmarsson leikmönnum lífið leitt en engu að síð- ur náðu konurnar upp ágætum sam- leik sín á milli. Mark Rakelar Ögmundsdóttur strax á 3. mínútu leiksins skildi liðin að og það mark var hreint glæsilegt hjá þessari snjöllu knattspyrnu- konu. Rakel tók skemmtilega niður sendingu Ernu B. Sigurðardóttur rétt utan vítateigs, sneri á varnar- mann Stjömunnar og skoraði með hnitmiðuðu skoti frá vítateigslínu upp í bláhornið. Markið létti mikilli pressu af leikmönnum Kópavogs- liðsins sem réðu gangi leiksins allt til loka. Úrslitin 1:0, gefa ekki rétta mynd af leiknum því Blikakonur höfðu tögl og hagldir og ef ekki hefði komið til frábær markvarsla Maríu B. Ágústsdóttur í marki Stjörnunnar allan leikinn er hætt við að Stjarnan hefði tapað leiknum stórt. María var sá þröskuldur sem leikmenn Blika gátu ekki stigið yfir nema einu sinni og það var mark Rakelar sem María átti enga mögu- leika á að verja. Þá bjargaði mark- sláin liði Stjörnunnar undir lok fyrri hálfleiks er fallegt skot Hrefnu Jó- hannesdóttur small í slánni. Hið unga og mjög svo efnilega lið Stjömunnar á hrós skilið fyrir góða baráttu í þessum leik. Stjörnukonur vora staðráðnar í að bæta fyrir skellinn gegn KR á dögunum og þó svo að þær hefðu aldrei ógnað marki Blika að neinu ráði þá veittu þær íslandsmeisturanum verðuga keppni. María B. Ágústsóttir sýndi og sannaði að hún er einn allra besti markvörður landsins í kvennabolt- anum og ætti skilið að fá tækifæri á milli stanganna í landsliðinu. Lovísa Lind Sigurjónsdóttir sýndi góða takta í fremstu víglínu og þjálfarinn Auður Skúladóttir var öflug í vöm- inni. Stjarnan veitti Breiðablik og KR mjög harða keppni á toppnum á íslandsmótinu í ár og ljóst er að Garðabæjariiðið hefur alla burði til gera það áfram og jafnvel komast alla leið. Lið Breiðabliks er vel að titlinum komið. Kópavogsliðið sýndi jafna og góða leiki í allt sumar og tókst á endanum að hrifsa titilinn úr hönd- um KR-inga eftir þriggja ára bið. Helga Ósk Hannesdóttir og Sigrún Óttarsdóttir fóru fyrir vörninni í þessum lokaleik á íslandsmótinu, Margrét Ólafsdóttir og Laufey Ól- afsdóttir vora sterkar á miðsvæð- inu, Erna B. Sigurðardóttir átti góða spretti á hægri vængnum og í fremstu víglínu unnu þær vel sam- an, listakonan Rakel Ögmundsdótt- ir og Hrefna Jóhannesdóttir. Atta mörk voru skoruð í uppgjöri Reykjavíkurliðanna Vals og KR að Hlíðarenda en lokatölurnar, 4:4, gerðu draum KR-inga á að hampa Islandsmeistaratitlinum fjórða árið í röð að engu. KR-ingar byrjuðu leikinn vel og komust í 2:0 með mörkum frá Guð- laugu Jónsdóttur og Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur en Valskonur neit- uðu að gefast upp og náðu að jafna metin fyrir leikhlé með mörkum frá Ásgerði Ingibergsdóttur og Mar- gréti L. Hrafnkelsdóttur. KR náði svo aftur forystunni í upphafi síðari hálfleiks þegar Guðlaug skoraði þriðja markið beint úr homspymu en skömmu síðar var henni vikið af leikvelli sem þýðir að hún verður í leikbanni í bikarúrslitaleik KR og Breiðabliks.Valskonur færðu sér liðsmuninn í nyt. Kristín Ýr Bjarna- dóttir jafnaði metin og íris Andrés- dóttir kom þeim yfir í 4:3 með marki úr vítaspymu. KR átti svo lokaorðið þegar Ásthildur Helgadóttir jafnaði metin úr vítaspyrnu. FH-ingar féllu í 1. deild FH féll endanlega úr deildinni með því að steinliggja fyrir f BV, 0:7, á heimavelli. Það var ekki til að bæta úr skák fyrir FH-inga að markvörður liðsins fékk rautt spjald strax á 10. mínútu og eftirleikurinn því auðveldur fyrir Eyjakonur. Annar sigur Þórs /KA Á Akureyrivann Þór/KA sinn annan leik á tímabilinu með 2:1 sigri gegn ÍA. Þorbjörg Jóhannsdóttir skoraði bæði mörk Akureyrarliðs- ins og kom því 2:0 en Sólveig Sig- urðardóttir náði að laga stöðuna fyrir ÍA rétt fyrir leikhlé. ÞÓR/KA á möguleika á að halda sætinu í deildinni en liðið mætir Þrótti í aukaleikjum um sæti í efstu deild- inni. Sæti FH í úrvalsdeildinni tek- ur lið Grindavíkur. Enski boltinn á mbl.is Nýjar fréttir á hverjum degi. Á íþróttavef mbl.is finnur þú ítarlega umfjöllun um enska boltann og tengingar inn á heima- síður félaganna. Morgunblaðið/Ásdís Á íþróttavef mbl.is er einnig að finna skemmtilegan netleik í samvinnu við Ferðaskrifstofu Reykjavíkur. Þar getur þú valið þér þrjá framherja og safnað stigum samhliða því að þeir skora í deildinni. Einnig geta þrír þátttakendur myndað lið og safnað sínum stigum saman. Það er um að gera að vera með frá byrjun til að eiga sem besta möguleika á þeim glæsi- legu vinningum sem í boði eru. Ferð þú á leik með stjörnunum ? Glæsilegir ferðavinningar til Englands á leik í enska boltanum. Glæsilegir ferðavinningar á leik í Meistarakeppni Evrópu. með Vertu með frá byrjun ENSKI B0LTINN Á mbl.is Kristrún Lílja Daðadóttir og Sigrún Óttarsdóttir með bikarinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.