Morgunblaðið - 17.09.2000, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 10/9-16/9
► NÆR 150 fleiri erlendir
gestir komu að mcðaltali til
landsins á hverjum degi
fyrstu átta mánuði ársins
en á sama tíma í fyrra. Alls
komu á þessu tímabili
233.939 erlendir gestir, og
hefur fjölgað um 18%.
Tekjur af ferðamönnum
hafa sömuleiðis aukist um
12,7%.
► STÆRSTI lax sumarsins
veiddist sl. sunnudag í
Sandá í Þistilfirði, þegar
Heiðar Ingi Ágústsson dró
á land tæplega 28 punda
hæng, sem tdk tommulanga
svarta Snældu og var Heið-
ar 45 mínútur að ná laxin-
um.
► HÉRAÐSDÓMUR
Reykjavíkur hefur úr-
skurðað tæplega sjötiu ára
konu í gæsluvarðhald, en
konan er grunuð um stór-
felld fjársvik gagnvart
nokkrum einstaklingum.
Eru þessi fjársvik talin
nema tugum milljóna
króna.
► NÝR Goðafoss kom til
heimahafnar sl. þriðjudags-
kvöld, cn skipið er annað af
tveimur nýjum systur-
skipum Eimskipafclagsins.
Hitt systurskipið, Dettifoss,
er væntanlegt til landsins í
lok október, en þetta eru
stærstu og fullkomnustu
skip sem Eimskip hefur
verið með í rekstri.
► HÆSTIRÉTTUR hefur
staðfest úrskurð Héraðs-
dóms Reykjavikur um að
hafna kröfum réttargæslu-
manns ungrar stúlku um að
teknar yrðu skýrslur af
henni í Barnahúsi en ekki í
dómshúsi héraðsdóms.
Alvarlegnm umferðar-
slysum hefur fjölgað
STEFÁN Yngvason, yfirlæknir á
Grensásdeild Landspítalans, segir að
mjög alvarlegum slysum hafi farið
fjölgandi frá árinu 1998 og ljóst sé að
ökuhraði, aukinn umferðarþungi og
tilhneiging ungs fólks til að nota ekki
bílbelti skipti þar miklu máli því fólk
sem ekki er í bílbeltum slasast verr.
Einnig skiptir hraðinn þar miklu máli.
Um fjórðungur legudaga á endurhæf-
ingardeild á Grensási er vegna fólks
sem slasast hefur í umferðarslysum.
Salmonellufaraldur
á höfuðborgarsvæðinu
FIMMTÍU manns hafa veikst af
salmonellusýkingu og líklegt er talið
að tugir eða hundruð einstaklinga séu
einnig smitaðu-. Haraldur Briem
sóttvarnarlæknir segir að um faraldur
sé að ræða og nauðsynlegt að komast
að uppruna sýkingarinnar. Sýking-
arnar eru að mestu bundnar við höf-
uðborgarsvæðið og eru flestir þeirra
sem hafa sýkst á aldrinum 20 til 30
ára. Margir hafa þurft að leggjast inn
á sjúkrahús og sumir hafa legið þar í
nokkra daga. Til að áætla fjölda smit-
aðra má að minnsta kosti tífalda tölu
þeirra sem greinast, að sögn Haralds.
Nýtt landssamband
ófaglærðra
VINNUHÓPUR, sem skipaður er
fulltrúum Verkamannasambandsins,
Landssambands iðnverkafólks og
Þjónustusambandsins, hefur lokið
gerð tillagna um sameiningu þessara
sambanda í eitt landssamband ófag-
lærðra. Ákveðið hefur verið að stofn-
fundur verði haldinn dagana 12.-13.
október. Með þeirri stofnun verður til
stærsta landssamband innan ASI,
með alls rúmlega 38.000 félagsmenn.
Eldsneytisdeilurnar
í rénun
MÓTMÆLI gegn háu verði og sköttum
á eldsneyti virtust vera í rénun í Bret-
landi og Belgíu á fimmtudag, en virtust
hins vegar magnast á sama tíma í ýms-
um öðrum Evrópuríkjum og kom á
fimmtudag til aðgerða í Hollandi,
Þýskalandi, Spáni, Irlandi, Póllandi og
Tékklandi.
Ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands,
Belgíu og Þýskalands hafa þegar úti-
lokað að skattar á eldsneyti verði lækk-
aðir, en stjóm Gerhards Schröders,
kanslara Þýskalands, hefur þó sagst
munu leita leiða til að draga úr áhrifum
háa verðsins á þá sem minnst mega sín.
Dreifing eldsneytis hófst að nýju á
fimmtudagsmorgun í Bretlandi eftir að
mótmælaaðgerðir höfðu valdið gífur-
legum truflunum á umferð þar í landi
fyrr í vikunni og hafði tekist að opna
flestar birgða- og hreinsistöðvar á
fimmtudagskvöldið.
Vörubílstjórar í Svíþjóð hugðust,
ásamt þarlendum bændum, hindra að-
gang að helstu höfnum og feijum í Sví-
þjóð í gær.
Aðgerðum gegn
Austurrfki aflétt
FJÓRTAN aðildarríki Evrópusam-
bandsins (ESB) afléttu á þriðjudag
pólitískum einangrunaraðgerðum sem
gripið var til gegn Austurríki fyrir sjö
mánuðum eftir að Frelsisflokkurinn
fékk aðlild að stjóm landsins.
Stjórnin í Vín fagnaði ákvörðuninni
og lýsti henni sem sigri fyrir Austurrík-
ismenn. Evrópusambandsríkin sögðust
þó engu að síður enn hafa áhyggjur af
Frelsisflokknum sem sakaður hefur
verið um kynþáttafordóma og útlend-
ingahatur. Einangrunaraðgerðimar
áttu sér engin fordæmi í sögu Evrópu-
sambandsins og þær fólust í því að ríkin
hættu öllum tvíhliða samskiptum við
ráðamenn Austurríkis til að mótmæla
inngöngu Frelsisflokksins í stjómina í
Vín í febrúar.
► BRESKIR hermenn
frelsuðu á sunnudag sjö
gisla úr höndum upp-
reisnarmanna í Sierra
Leone. Einn breskur her-
maður og 25 upp-
reisnarmenn biðu bana í
árásinni sem var þaul-
skipulögð. í framhaldi af
árásinni tilkynnti breska
stjórnin á mánudag að hún
hygðist ekki kalla herlið
sitt heim frá Sierra Leone
og kvað jafnvel koma til
greina að senda liðsauka
ef hætta væri á hefndar-
árásum af hendi upp-
reisnarmanna.
► ÞING Frelsissamtaka
Palestínu (PLO) ákvað á
sunnudag að fresta því að
lýsa yfír stofnun sjálfstæðs
Palestínuríkis í að minnsta
kosti tvo mánuði í von um
að friðarviðræður við Isr-
aela beri árangur. Var
ákvörðuninni, sem talin er
draga úr líkum á blóðug-
um átökum, fagnað bæði
af fsraelskum og banda-
rískum stjórnvöldum.
► SAMTÓK olíuútflutn-
ingsríkja, OPEC, tilkynntu
á mánudag að þau hygðust
auka hráolfuframleiðslu
sfna um 3%. Sú fram-
leiðsluaukning nær þó
ekki, að mati sérfræðinga,
að hafa áhrif á olíuverð-
hækkanir sl. áratugar og
hélt verð áfram að hækka
á mörkuðum á mánudag.
OPEC-ríkin lýstu því þá yf-
ir á fimmtudag að þau séu
reiðubúin að íhuga frekari
framleiðsluaukningu.
Samtökin hafa þó vísað því
á bug að þau beri ábyrgð á
háu bensínverði í Evrópu,
heldur liggi ábyrgðin hjá
ríkisstjórnum landanna.
Heimildarmynd um Vestur-fslendinginn Holger Cahill
Mikils metinn
í forsetatíð
Roosevelts
í UNDIRBÚNINGI er
gerð heimildarmynd-
ar um ævi Vestur-
fslendingsins Sveins
Kristjáns Bjarnarson-
ar frá Breiðabólstað á
Skógarströnd, en
hann var einn af
æðstu yfirmönnum
menningarmála í
Bandaríkjunum í for-
setatíð Franklíns D.
Roosevelts á fjórða og
fimmta áratug al-
darinnar. Sveinn var
þó óþekktur undir
sínu rétta nafni því
hann tók upp nafnið
Holger Cahill á þrí-
tugsaldri og gekk
undir þvf nafni eftir
það. Haraldur Bessa-
son, prófessor segir í
bókinni Bréfi til
Brands sem út kom í
fyrra að bandarískir
fjölmiðlar hafi gert
sér mjög títt um
Holger Cahill en hafi
aldrei minnst á Svein
Kristján. Hafi enginn
maður íslenskrar ætt-
ar hlotið jafnmikla virðingu á
þeim vettvangi og hann. Var hann
til dæmis forsíðuefni í tímaritinu
Time haustið 1938 vegna starfa
sinna fyrir bandarfsku al-
ríkisstjórnina.
Hans Kristján Árnason, sem
fengið hefur styrk frá menningar-
sjóði útvarpsstöðva til að hefja
undirbúning að gerð að myndar-
innar, segir að Sveinn hafi verið
yfirmaður myndlistarmála al-
rfkisstjórnarinnar í forsetatíð
Roosevelts, en hann hafi einnig
verið forstjóri Museum of Modern
Art (MOMA) í New York um skeið,
einn af fimm stjórnarmönnum
bandarfsku sýningarnefndarinnar
á Heimssýningunni í New York
1939 og framkvæmdastjóri sýn-
ingarstjórnarinnar, auk þess að
hafa verið þekktur rithöfundur í
Bandaríkjunum. „Hann á sér mjög
merka sögu fyrir utan það að hafa
átt mjög dramatíska ævi,“ sagði
Hans Kristján.
Strauk að heiman
á unglingsárunum
Hann sagði að Sveinn hefði ver-
ið fæddur árið 1887 á Breiðaból-
stað á Skógarströnd og dáið í
TimePix
Forsíða Time 5. september 1938, en í tímaritinu
er fjallað um starfsemi Federal Art Project.
Sveinn Kristján var yfirmaður þess verkefnis.
Bandaríkjunum árið 1960. Hann
hefði flust til íslendingabyggð-
anna í Winnipeg og síðan til Norð-
ur-Dakóta með foreldrum sfnum
tveggja ára að aldri, en lent. í úti-
stöðum við fjölskyldu sína á ungl-
ingsárunum og strokið að heiman.
Eftir fiakk um heiminn, sem
meðal annars hafi leitt hann til
Japans og Kína, hafi hann endað í
New York þar sem hann hafi brot-
ist til mennta af eigin rammleik.
Að námi loknu hafi hann gerst
blaðamaður og ritstjóri í New
York og orðið einn fremsti sér-
fræðingur þjóðarinanr í öllu sem
laut að bandarfskri alþýðulist.
Á þessum tíma hafi hann tekið
upp nafnið Holger Cahill, senni-
lega eftir einhverju fólki sem ann-
aðist hann eftir að hann hafði yfir-
gefið æskuheimilið. Hann hafi
búið í Greenwich Village í New
York og þekkt marga helstu lista-
menn þarlenda, auk þess sem hann
hafi stofnað samtök listamanna og
fjallað mikið um samtfmalist og
verið kunningi Vihjálms Stef-
ánssonar, heimskautafara, sem
þar hafi búið á þessum tfma.
Hann hafi síðan verið gerður að
yfirmanni Federal Art Project,
Sveinn Kristján Bjarnarson
öðru nafni Holger Cahill.
sem hafi verið stofnun sem sett
hafi verið á laggirnar í tengslum
við New Deal stefnu Roosevelts til
þess að hleypa Iífi í listalífið á
kreppuárunum í Bandaríkjunum
og bjarga listamönnum frá svelti.
Stofnunin hafi verið lögð niður í
miðri síðari heimstyrjöldinni, en á
þessum tíma hafi orðið vendi-
punktur í bandarískri myndlist og
þyngdarpunktur myndlistariðkun-
ar færst frá París til New York.
Missti samband
við fjölskylduna
Hans Krisfján sagði að Sveinn
hefði misst samband við móður
sína og fjölskyldu eftir að hann fór
að hciman, en móðir hans giftist
aftur, fékk annað eftirnafn og
fluttist til Kanada. Hann hafi ekki
hitt móður sína aftur fyrr en árið
1947 þegar hann var sextugur að
að aldri og hún komin yfir nírætt.
Hann sagði að Sveinn hefði
aldrei komið til Islands eftir að
hann fór þaðan barn að aldri. Hall-
dór Laxnes hafi boðið honum að
koma hingað árið 1960, en þeir
liöfðu kynnst í New York árið áð-
ur. Hann hafi andast áður en af
heimsókninni hafi getað orðið.
Hans Kristján sagði að Sveinn
væri ekki síður áhugaverður fyrir
Bandaríkjamenn en Islendinga,
því hann væri að mörgu leyti ör-
lagavaldur í mcnningarsögu
þeirra. Mikið hefði verið skrifað
um hann í tengslum við það og því
þyrfti að standa mjög veglega að
gerð þessarar myndar, enda væri
hún ekki síður áhugaverð fyrir
Bandaríkjamenn en okkur Islend-
inga. Ef Islendingar gerðu ekki
þessa mynd um ævi hans væri hætt
við að hún yrði gerð frá banda-
rískum sjónarhóli eingöngu og þá
væri líklegt að hinn íslenski þáttur
í ævi hans yrði fyrir borð borinn.
„Næsta skref mitt er að leita að
samstarfsaðila hér heima sem sér í
þessu gildi fyrir sig og íslenska
menningu, auk samninga við
bandaríska aðila,“ sagði Hans
Kristján ennfremur.
I
OOtiDirMníEiMOMI
livað'íiii^r
nemur
BÓK30%
leikir og athafnir
sem henta hveiju
aldursskeiði.
leiðir til að styrkja
tengslin við bömin.
raunhæfar lausnir
við algengum
vandamálum.
Mál og menning j
malogmenning.isl
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sfmi 510 2500
Bilvelta við
Skeiðavegamót
FÓLKSBÍLL með fjórum ung-
mennum valt á mótum Skeiðár- og
Hrunamannavegar um fjögurleytið
aðfaranótt laugardags. Ökumaður og
farþegar voru fluttir á Heilbrigðis-
stofnun Selfoss, en fengu að fara
heim að lokinni skoðun. Að sögn lög-
reglunnar á Selfossi er bíllinn tals-
vert mikið skemmdur. Bíllinn lenti
utan í kantinum í beygju sem þarna
er, og virðist sem ökumaðurinn hafi
svipt bflnum of snöggt inn á veginn.
Bylta á dansleik
Sautján ára stúlka slasaðist þegar
hún féll á gólfið á dansleik á Flúðum
aðfaranótt laugardags. Atvikið átti
sér stað á fjórða tímanum um það
leyti sem dansleiknum var að ljúka.
Stúlkan var flutt með sjúki-abif-
reið á slysadeild, en að sögn vakthaf-
andi læknis voru meiðsli hennar ekki
talin alvarleg.