Morgunblaðið - 17.09.2000, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 17.09.2000, Qupperneq 8
8 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLADIÐ Umboösmaður Alþingis: Við gefum bara skít í þetta, þetta er allt eintómt íhaldspakk. Tvær orSabækur í einni Súrefiiisvörur Karin Herzog Silhouettc MYNDASÖGUBLAÐIÐ ZETA www.nordiccomic. com Pitsukassar meira vanda- mál en rusl- pósturinn ÖGMUNDUR Einarsson, fram- kvæmdastjóri Sorpu, segist telja að stór hluti af öllum „ruslpósti“ sem dreift er í hús á höfuðborgar- svæðinu endi óflokkaður í rusla- tunnum sveitarfélaganna. Hann segir að umtalsverður kostnaður fylgi þessum pósti, en hins vegar sé kostnaður við förgun umbúða utan af heimsendum pitsum enn meiri. Eins og kom fram í Morgunblað- inu hefur Hreggviður Jónsson framkvæmdastjóri sent borgarráði bréf þar sem hann vekur athygli á að mikið af ruslpósti berist óum- beðið í bréfalúgur höfuðborgarbúa. Á einu ári fékk hann 17,5 kíló af bæklingum og öðrum auglýsinga- pósti og dregur hann þá ályktun að árlega sé 1.110 tonnum af slík- um pósti dreift á höfuðborgar- svæðinu. „Við tökum árlega á móti 4.000- 5.000 tonnum af dagblöðum í blaðagámum okkar. Ef það er rétt hjá Hreggviði að þessi ruslpóstur sé um 1.100 tonn þá ætti hann að vera fjórðungur af því. Það er hann ekki. Ég tel því að stærstur hluti af þessum ruslpósti fari í sorptunn- urnar en ekki í blaðagámana,“ sagði Ögmundur. Kostnaður Sorpu við að taka á móti dagblaðapappír er um 6 krón- ur á kíló. Kostnaður Sorpu við að farga 1.110 tonnum af ruslpósti er því 6-7 milljónir. Ögmundur sagði að við þessa upphæð bættist kostnaður sveitarfélaganna við að flytja þennan úrgang til Sorpu. Hann sagði að sá kostnaður væri örugglega ekki lægri en móttöku- kostnaður Sorpu. „Ég hugsa að þessi kostnaður sé samt miklu lægri en kostnaðurinn við eyðingu pitsukassanna. Þess ber þó að geta að umbúðir af pits- um eru ekki sendar heim til þín óumbeðið. Þú ert hins vegar að búa sveitarfélaginu til ansi mikinn kostnað. Pitsukassar eru þar að auki þyngri og fyrirferðarmeiri en ruslpósturinn," sagði Ögmundur. í fyrsta sinn á íslandi er komin út ensk-íslensk/íslensk-ensk veltiorðabók. Bókin er tvískipt í kilju og er henni velt vi& til að skoða hvorn hluta fyrir sig þannig a& hún er afar handhæg í notkun. Hún er einnig með hra&virku uppflettikerfi og inniheldur 72.000 uppflettiorð þannig að auðvelt er að finna það sem leitað er að. Kynningarverb: 5800 kr. O ORÐABÓKAÚTGÁFAN Skiptinemanámskeið AFS Verið að mennta al- heimsborgara Elín Rögnvaldsdóttir DAGANA 22. til 24. september nk. verður á Úlfljóts- vatni námskeið fyrir ung- menni, annars vegar fyrir sjálfboðaliða AFS á ís- landi, en þeir eru nýkomnir heim úr dvöl eriendis á vegum samtakanna, og hins vegar fyrir erlenda skiptinema sem komu hingað til lands í lok ágúst á vegum sömu samtaka. Elín Rögnvaldsdóttir er hýsingarfulltrúi hjá AFS á Islandi, hún var spurð hve margir myndu sækja þessi námskeið. „Það verða um áttatíu manns. Þeir sem fara á vegum AFS á íslandi til dvalar erlendis eiga völ á mjög fjölbreyttu og skemmtilegu félagsstarfi eftir að þeir koma heim til íslands aftur. Sumir koma strax og starfa með okkur eftir að þeir koma heim, en aðrir koma ekki fyrr en seinna, jafnvel ekki fyrr en mörgum árum eftir að dvöl þeirra lauk erlendis, þannig að með okkur starfar fólk á öllum aldri, og við bjóðum því fólki alls konar námskeið, bæði hér heima og ytra. AFS eru ein stærstu sjálfboðaliðasamtök í heimi og með okkur starfar ekki bara fólk sem hefur dvalið á veg- um samtakanna erlendis heldur líka fósturfjölskyldur og foreldrar skiptinema sem hafa farið á okkar vegum út. Einnig verða 40 erlend- ir skiptinemar á námskeiði þessa daga, við erum að hjálpa þeim að skilgreina sig sem einstaklinga og skoða hvemig þeirra eigin menn- ing mótar þau og einnig hvemig menning yfirhöfuð mótar fólk. Síð- ast en ekki síst emm við á þessu námskeiði að hjálpa þeim að skilja og aðlagast íslenskri menningu.“ - Hvernig fara námskeiðin fram? „Hópvinna fer fram á báðum námskeiðunum. Unnið er að ýmis- konar verkefnum, bæði verkefn- um sem við höfum þróað hérlendis og líka verkefnum sem við höfum fengið frá alþjóðasamtökum AFS. Það er unnin gífurleg hugmynda- vinna innan samtakanna víða um heim og þau búa yfir mikilli þekk- ingu og reynslu á sviði nemenda- skipta, alþjóðasamtaka og sam- vinnu. Þótt námskeiðin séu aðskilin tengist fólkið, því það býr allt í blönduðum hópum saman í húsum og það verða sameiginlegar kvöldvökur." - Hvað er það sem gerir AFS- starfíð merkilegt? „Það er að við erum mennta- stofnun. Við bjóðum upp á alþjóð- lega menntun sem verður sífellt mikilvægari í minnkandi heimi. Skólakerfi í hverju landi býr sína nemendur undir lífið út frá menn- ingarlegum forsendum þess lands, en AFS býr fólk hins vegar undir lifið út frá fjölbreyttum menningarlegum for- sendum. Við gefum okkar skiptinemum kost á því að verða víðsýnni og færum þeim verkfæri til þess að starfa með og skilja fólk frá öðr- um menningarheimum.11 - Eru margir sem sækja um að komast út á ykkar vegum núna? „Já, það er alltaf fjöldi sem sæk- ir um. Við erum að taka á móti um- sóknum núna. Það er mikilvægt að sækja um með góðum fyrirvara því töluverður undirbúningur þarf að fara fram áður en farið er til ► Elín Rögnvaldsdóttir fæddist í Reykjavík 1950. Hún lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1970 og tók cand. mag.-próf frá Kennaraháskólan- um f Þrándheimi f Noregi. Hún hefur starfað frá 1992 hjá skipti- ncmasamtökunum AFS á Islandi. Elín er gift Björgvini Guðmunds- syni rafmagnsverkfræðingi sem starfar hjá Flögu. Þau eiga þrjú börn og eitt barnabam. dvalar í öðru landi. Það fara nemar frá Islandi tvisvar á ári, annars vegar eftir áramót og hins vegar á tímabilinu júlí til september." - / hvaða löndum eru ílestir Is- lendingar á vegum AFS? „Flestir í einu landi eru í Banda- ríkjunum, en ef tekið er eitt svæði þá fara flestir til Suður- og Mið- Ameríku." - Er kostnaður við svona náms- dvölmikill? „Hann er töluverður, en ekki þó mikill miðað við ávinninginn. Fyrir þessa peninga fær fólk tungumála- kunnáttu og aukið víðsýni, pers- ónulegan þroska og tæki tilað starfa og lifa í alþjóðlegu sam- hengi. Við segjum oft að við séum að mennta alheimsborgara." - Hefur þú dvalið erlendis sem skiptinemi? „Nei ekki sjálf, en ég hef tekið á móti fólki að utan, fjölskylda mín verið fósturfjölskylda. Mér finnst ég hafa haft af því mikinn ávinn- ing, bæði persónulegan og í tengsl- um við starf mitt hjá AFS. Þetta er gríðarlega skemmtilegt og gjöfult starf fyrir alla sem að því koma; starfsfólk, skiptinema, fósturfjöl- skyldur og alla aðra sem því sinna.“ -Koma aldrei upp vandræði í þessu sambandi? „Jú, vissulega, en vandamál eru til þess að leysa þau og læra af þeim. Sú vinna er eitt af þeim tækjum sem fólk lærir að beita í lífsbaráttunni og nýtist því allt líf- ið. Alls staðar þarf að leysa vanda- mál. Ég segi stundum að AFS sé eina stofnun- in sem býr fólk undir hjónaband, hjálpar því að læra að gefa og taka og líka að sætta sig við að annað fólk hafi aðrar skoðanir og þurfi svigrúm." -Hvernig hefur gengið að fá fósturfjölskyldur núná! „Það gengur seint en gengur þó. Það eru jafnvel sömu fjölskyldum- ar sem taka skiptinema aftur og aftur. Það sýnir að fólk telur það þess virði að taka að sér ungmenni frá öðru landi. Við þau myndast oft sterk tengsl sem endast ævilangt." Myndast oft sterk tengsl sem endast ævilangt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.