Morgunblaðið - 17.09.2000, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 29
Gaddar geta verið lengri á einu af-
brigði, styttri á hinu. Brynplötur
til varnar geta verið fleiri eða færri
þar sem þær eru til trafala og svo
geta síli verið alveg silfruð, t.d. í
jökulvatni, líkt og í sjó. Ýmis
vatnasvæði hér á landi bjóða upp á
óvenjugóða möguleika á að skoða
breytileika innan einnar tegundar
á borð við hornsíli. Nefna má
Vatnsdalskerfln þar sem ægir sam-
an ólikum búsvæðum og afbrigðin
lifa í návígi hvert við annað innan
um afræningja og „samkeppnis-
aðila“ um lífsins gæði. Einnig
mætti nefria Galtaból á Auðkúlu-
heiði, lítið lokað vatn með sérstakt
lífríki. Bjarni Jónsson hefur lagt
mikla vinnu í að rannsaka tvö af-
brigði í Galtabóli.
„Par eru þau tvö afbrigði sem ég
hef séð sem hvað mest eru aðskilin
og eru þau þó í miklu návígi. Það
eru aðeins tíu metrar á milli, en
það er útlitsmunur og munur á
fæðuvali. Annars vegar eru síli sem
lifa á grjótbotni og hins vegar sfli
sem lifa á gróðurmeiri leðjubotni.
Sflin á grjótbotninum eru renni-
legri og meiri sundfískar, hin eru
kubbslegri og fara hægar yfir. Ef
þessi síli hefðu val á rannsóknar-
stofu myndu þau líklega ekki tímg-
ast saman og líklega alls ekki úti í
náttúrunni. Þó er þetta hvort
tveggja sama tegundin, þ.e.a.s. ís-
lensk hornsíli. Það sem gerir þetta
fyrirbæri í Galtabóli enn merki-
legra og skemmtilegra er að
bleikjuafbrigðin í vatninu eru einn-
ig tvö og mjög ólík í útliti og lífs-
háttum. Fléttast lífshlaup sflanna
og bleikjanna að því leyti saman,
að önnur bleikjutegundin er rán-
bleikja sem lifir á sflunum sem lifa
á grjótbotninum, sbr. meiri sund-
hæfni þeirra. Sflableikjan í Galta-
bóli er miklum mun fáliðaðri en
hitt afbrigðið sem lifir að mestu á
ýmsum botndýrum og er útlitið í
samræmi við það,“ segir Bjarni.
En hvað geta menn ráðið af
þessu? „Það hafa komið ýmsar
merkilegar niðurstöður út úr þess-
um rannsóknum. Þær hafa ger-
breytt grunnþekkingu manna á
þeim ferlum sem leiða til aðlögun-
ar. Það sem vekur mikla athygli er
hvað hlutirnir hafa gerst hratt á
Islandi. Hér eru á ferðinni ferli
sem hafa orðið frá lokum síðasta
hlýskeiðs ísaldar, eða fyrir um 10
þúsund árum. Það er ótrúlegur
hraði og kemur kannski til af því
að á Islandi eru fáar tegundir sem
byggja búsvæðin, sem eru að öðru
leyti fjölbreytt, og ferlin verða því
einfaldari. Menn hafa séð afbrigði
verða til sem ekki voru áður fyrir
hendi. Einhver bestu dæmin sem
menn þekktu áður voru frá
Bresku-Kólumbíu þar sem við jaðr-
aði að hægt væri að tala um að sér-
tegundir hefðu orðið til við aðlögun
af þessu tagi. Þær niðurstöður sem
hér hafa komið fram eru ekki síðri,
breytingar sem menn sjá eru bæði
hraðari og meiri og eftir því hefur
verið tekið erlendis. Þú spyrð hvað
menn geta ráðið af þessu. Jú,
skilningur manna á þróun eykst
verulega,“ segir Bjarni.
Lífsmassinn og urriðinn
Bjarni segir fáa gera sér grein
fyrir því hversu mikið sé af horn:
sílum í íslenskum vatnakerfum. I
mörgum vötnum sé margfalt meiri
lífsmassi af hornsílum heldur en
öðrum tegundum sem vötnin
byggja. Hins vegar séu hornsílin
mjög viðkvæm fyrir breytingum,
t.d. gæti fjandinn orðið laus ef urr-
iða væri sleppt í vatnakerfi þar
sem hann er ekki fyrir og hornsíli
lifa í sambýli við bleikju eða hrein-
lega ein, eins og dæmi var um í
Frostastaðavatni. Þar var mikið
magn af hornsílum sem þurftu að
aðlagast upp á nýtt er urriða var
sleppt í vatnið fyrir nokkrum ár-
um. Það sama myndi verða ofan á
ef urriði kæmi í Galtaból, allt
myndi breytast og þróast upp á
nýtt og í sjálfu sér væri fróðlegt að
fylgjast náið með slíku, að mati
Bjarna.
Alls hafa sýni verið unnin úr
þrjátíu vötnum víða um land og
bæði Þingvallavatn og Mývatn eru
„vöktuð“, eins og Bjarni kemst að
orði. Hann segir að rannsóknirnar
muni halda áfram, enda séu menn
komnir í feitt eins og fram hefur
komið.
Fyrirlestur um
menningu og pdlitík
ÞRIÐJUDAGINN 19. september
nk. heldur Guðmundur Hálfdan-
arson fyrirlestur í hádegisfundar-
öð Sagnfræðingafélags íslands
sem hann nefnir „Er pólitík
menning?" Fundurinn hefst kl.
12.05 í stóra sal Norræna hússins
og lýkur stundvíslega kl. 13.
Fundurinn er opinn öllu áhuga-
fólki um sögu og menningu.
Hefðbundin stjórnmálasaga,
þar sem sagt var frá áhrifamikl-
um einstaklingum (oftast karl-
kyns) og mikilvægum atburðum,
féll að mestu úr tísku á 7. og 8.
áratugnum, þegar félags- og
hagsaga urðu ráðandi innan sagn-
fræðinnar. Nú er stjórnmálasag-
an aftur orðin vinsæl, en þó í
nokkuð breyttri mynd frá því sem
áður var, nefnilega í líki félags- og
menningarsögu, segir í fréttatil-
kynningu. í fyrirlestrinum ræðir
Guðmundur um margvíslegar or-
sakir þessara breytinga.
Guðmundur Hálfdanarson er
prófessor í sagnfræði við Háskóla
Islands. Lesa má fyrirlestra í
fundaröðinni í Kistunni, vefriti
um hugvísindi á slóðinni:
www.hi.is/~mattsam/Kistan. Þar
er einnig að finna skoðanaskipti
fyrirlesara og fundarmanna, seg-
ir í fréttatilkynningu.
ÖryggismiðstöBvar íslands
Nú býðst korthöfum VISA heimagæsla á sérstöku tilboðsverði.
Einungis er greitt fyrir 10 mánuði á ári.
Bjóðum einnig þráðlausan búnað.
0
FRÍÐINDAKLÚBBURINN
Sími533 2400
Fréttir á Netinu ^mbl.is
ALLTAf= GITTHVAÐ NÝTl
□
□
□
a
!□
rn
□
m
□
□
HúsGöGn og Hönnun
13 fyrirtæki - 2 dagar - 1 sýning [í Perlunni]
Bólstrarinn
Bólstrun Elínborgar
Exó
GÁ-Húsgögn
Lystadún - Snaeland
Kósý
Meistarafélag Bólstrara
Metal
Sólóhúsgögn
Ste g g u r
Tímaritið Lífsstíll
TM-Húsgögn
Valhúsgögn
□ndvegi
Perlan 16. -17. sept. 2000
Laugardag kl. 1 1 M - 1
Sunnudag kl. 11-- 1 8M
GETRflUll
Verðlaun að verðmæti kr.400.000
stni
W
LYSTADÚN
© Sólóhúsgögn
BÓLSTRUM
ELÍhBORGAR
^ZQhúsqðqn
STEGGUR.m