Morgunblaðið - 17.09.2000, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 17.09.2000, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 25 hrinunni. „Pað vissi enginn hvað við ættum eftir að sjá, en við sáum kletta, sem var skemmtilegra en fyrri myndir frá Mars, sem sýndu flatt og sviplaust landslag. Við höfð- um einmitt vonast til að lenda þar sem hefðu verið flóð og landslagið því tætt, eins og hér,“ segir Smith og bendir í kringum sig á rofið hraunið. „Við þessar aðstæður getur að líta margar bergtegundir saman og við höldum að við höfum séð slíkt á Mars.“ Það lætur vísindamönnum misvel að skýra fag sitt út fyrir óinnvígðum, en Peter Smith á ekki í neinum vand- ræðum með það. Hann segir að margir starfsbræður hans geti ekki ímyndað sér rneiri vanþekkingu en hjá stúdentum á íyrsta ári. „En það þarf að fara öllu neðar en það,“ bætir hann við og hlær. „Eg var að tala við fjórtán ára frænku mína um daginn og hún áleit að það væri sólin, sem snerist í kringum jörðina, en ekki öf- ugt, svo ég sagði við hana að hún hugsaði eins og stelpa á sextándu öld, fyrir daga Kóperníkusar. Þegar ég skýrði Pathfinder-myndirnar fyr- ir blaðamönnum hafði ég móður mína í huga, notaði einfaldar skýr- ingar eins og þegar ég skýrði verk- efni mína fyrir henni. Hún lést nokkrum árum áður og mér þótti miður að hún skildi ekki upplifa þennan atburð." Menn til Mars? En það hafa ekki allir leiðangrar tekist svona vel. I janúar 1999 var skotið flaug til Mars, sem lenti í sept- ember það ár og átti að kanna pól- svæðin. Sú flaug skilaði aldrei nein- um myndum, svo eitthvað hefur farið úrskeiðis, en NASA hefur í hug að endurtaka þann leiðangur, þó ekki hafi verið ákveðið hvenær það verði. En hvernig er með mannaðar ferð- ir til Mars? Peter Smith er ekki í vafa um að það verði og þá líklega einhvem tímann á bilinu 2015-25. Til þess að svo megi verða þarf að safna miklu meiri upplýsingum um Mars og aðstæður þar. Smith vinnur einn- ig að gerð tækis til að kanna litla hvirfilvinda, sem kallast rykdjöflar, „dust devils" í Bandaríkjunum. Þar eru þeir algengir á sumum svæðum og ekki hættulegir. „Á Mars em rykdjöflamir hins vegar allt að sjö kílómetra háir og hálfur kílómetri á breidd og eru lík- lega rafhlaðnir sökum núnings ryk- koma í þeim, svo þeir eru eins og risastórar rafhlöður, sem gætu skað- að bæði menn og vélar,“ bendir Smith á. Þó mannaðir leiðangrar hafi enn ekki verið ákveðnir er samt verið að kanna aðstæður með slíka leið- angra í huga. Bæði leiðangurinn til Satúmusar og Mars afla upplýsinga um aðstæður úti í geimnum, en gefa oft einnig vísbendingar um aðstæður á jörðinni fyrir milljónum ára. Peter Smith hefur orð á því að hann sé fremur draumóramaður en hagsýnn, en afköstin benda nú til að það sé kannski ekki alveg rétt. Það þarf dágóða hagsýni til að skipu- leggja rannsóknarvinnu af því tagi, sem hann vinnur. En það er alla vega ekki gróðavonin, sem stjórnar lífi hans, heldur þekkingarþorstinn. En er þá ekkert erfitt að rannsaka staði, sem enginn von er að hann komist til að sjá með bemm augum? „Ég lifi held ég heilmikið í hugan- um,“ segir Peter Smith. „Ein ástæð- an til þess að ég heillast af rannsókn- um á himintunglunum er að ég get ekki farið þangað. Ég hef ekkert annað en myndirnar og hugmyndir mínar. Það hentar mér vel og ýtir undir draumana. Ég hef gjaman í huga að það sé líf á Mars, hugsa ekki svo mikið um all- ar ástæðumar fyrir því að þar geti ekki verið líf. Lífið gæti þrifist á litl- um svæðum, við aðstæður eins og á íslensku hverasvæðunum, í bullandi og sjóðandi litlum pyttum og í heit- um spmngum. Það gætu verið einfrumungar eða bakteríur, en kannski líka þróaðra líf eins og köngulær og leðurblökur. Líffræð- ingar hafna því, en þeir gætu haft rangt fyrir sér. Leit að slíku lífi krefst vélmenna eða mannaðra geimferða. Þangað til þar að kemur er það bara ímyndunaraflið, sem vís- ar veginn. Eins og aðrir vísindamenn læt ég mér annt um sannleikann, en ég kýs að sannleikurinn sé ekki að- eins áhugaverður, heldur líka æsi- spennandi." Varstu undir 6 á vorpróíunum? NÁMSAÐSTOÐ er þá eitlhvað fyrir þig sólarhringinn. Fax 557 9458 Íhfemendiafy'ónustaníf. Þangbakki 10, Mjódd. Veffang namsadstod.is Að dansa ölduna ^ með Alain AKIard 5 Rhythms® námskeið 22.-24. september Helgi til að leyfa líkamanum og önduninni að hreyfa við hjartanu og sálinni Staður: Danshöllin, Drafnarfelli 2, Reykjavík. Nánari upplýsingar og skráning: Sigurborg Kr. Hannesdóttir í síma 866 5527 og Birta Einarsdóttir í síma 894 0639. Alain Allard, sem kemur frá Bretlandi, hefur hlotið kennaraþjálfun hjá Gabrielle Roth. Grand Prix 3 tölvuleikirnir eru til sölu á flestum Shellstöövum meðan á keppninni stendur. COMPAOL Kynniseintak með Grand Prix 3 tölvuleiknum fylgir meö í hvert skipti sem þú kaupir Shell Formula eldsneyti. Þú keppir á tölvunni þinni og skráir árangurinn á www.shell.is Verðlaun 1. Ferð fyrir tvo, gisting og boðsmiðar á Formúlu 1 í Silverstone á Englandi í maí 2001. 2. Compaq Presario ferðatölva frá BT tölvum. 3.-7. Tölvustýri frá BT tölvum. 8.-48. Ferraribolir * ,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.