Morgunblaðið - 17.09.2000, Síða 31

Morgunblaðið - 17.09.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 31 Morgunblaðið/Ásdís Sælgætið er framleitt jafnóðum og reynt er að hafa lagerinn sem minnstan svo sælgætið sé alltaf nýtt og ferskt. hvers og eins er. Við giskum þó á að markaðshlut- deild okkar sé 12-13% af heildar- myndinni, þ.e. ef sala á innfluttu sælgæti er tekin með. Ef aðeins er horft á íslensku framleiðsluna þá teljum við að hlutdeild okkar sé 20%.“ Hvaðan kemur samkeppnin helst? „Samkeppnin er einkum frá gífur- lega miklu úrvali sælgætis sem flutt er inn ásamt samkeppni við inn- lenda framleiðendur sem eru með svipaðan vélakost og þar af leiðandi er framleiðslan ekki svo ólík.“ Það kemur fram í máli þeirra að árið 1996 fór Freyja að dreifa vör- um frá norska fyrirtækinu Freia og einnig KA-vörum en það fyrirtæki keyptu þeir ekki alls fyrir löngu. KA-vörur framleiða meðal annars bananastangir og súkkulaðifroska. Þegar spurt er um veltutölur fyr- irtæksins segjast þeir ekki vilja gefa þær upp. „Við höfum verið með 20% veltuaukningu í magni síðustu tvö árin og það stefnir í meiri aukningu á þessu ári.“ Hverju er þetta að þakka? „Við þökkum þetta einkum öflugu starfsfólki í framleiðslu og sölumál- um og svo auðvitað gæðum vörunn- ar.“ Teljum sameiningu nauðsynlega Þeir segja þó að það sé orðið mjög erfitt að fá starfsfólk í framleiðslu- störfin. „Nú vantar okkur 4-5 manns í framleiðsluna. Þetta þýðir mikið álag á þá sem fyrir eru.“ Hvert stefnið þið í framleiðslu ykkar? „Við munum leitast við að auka gæði vörunnar og reyna að halda hlutdeild okkar á markaðnum. Mið- að við húsnæðis- og tækjakost ráð- um við ekki við miklu meiri aukn- ingu en nú er orðin.“ Hafið þið reynt að koma vörum ykkar á erlendan markað? „Við reyndum útflutning árið 1998 til Damerkur. Fluttum við þá út Bombur. Til þess að útflutningur gangi þarf að leggja mikið fjármagn í markaðsmálin svo hægt sé að auglýsa vöruna upp. Við lögðum ekki út í þá fjárfestingu svo þessi tilraun gekk ekki upp.“ Hvernig sjá þeir framtíðina fyrir sér? „Við teljum að það sé nauðsynlegt að sameina Sælgætisgerðina Freyju öðru fyrirtæki á íslenskum mat- vælamarkaði og skapa stærri og öfl- ugri einingu þannig að við séum í stakk búnir til að keppa við erlend stórfyrirtæki. Ég sé því fyrir mér að við eigum síðar meir eftir að sam- einast íyrirtæki í matvælafram- leiðslu. Að öðru leyti er það markmið fyr- irtæksins að vera í stöðugri fram- þróun og auka tæknivæðinguna." Meira magn er krafa markaðarins Þróunin hefur verið sú að fólk hefur viljað í auknum mæli hafa eitthvað saman við súkkulaðið. Helst vilja neytendur fá sælgæti sem einhver athöfn er við að borða eins og það braki í súkkulaðinu eða það teygist á karamellunni. Þegar fólk borðar til dæmis Freyju staur þá rífur það gjarnan staurinn í tvennt, sleikir kremið innan úr og borðar síðan kexið. Hreint súkkul- aði er ekki á uppleið í sölu.“ „Krafa markaðarins hefur einnig verið meira magn, þar af leiðandi stærri umbúðir. Meira magn þýðir lægra verð en um það eru neytend- ur eflaust að hugsa,“ segir Ævar. „Neysla sælgætis hefur aukist á undanförnum tíu árum en hún hefur nánast tvöfaldast á þessu tímabili,“ bætir hann við. Umræða um gildi hollrar fæðu hefur ágerst töluvert í þjóðfélaginu. Hafið þið orðið varir við eftirspurn eftir hollustusælgæti? „Rannsóknir hafa sýnt að súkkul- aði er hollt ef þess er neytt í hófi. Við höfum gert tilraun til að þróa sælgæti meðal annars með þurrkuð- um ávöxtum en okkur hefur ekki tekist að gera bragðið þannig að við sættum okkur við það.“ Hver vörutegund hefur ákveðna hnynd Þegar markaðsmálin eru rædd kemur fram að innan fyrirtæksins er rekin sex manna söludeild sem sér um þá hliðina. Hvernig hefur kynningum á sælgætinu frá Freyju verið háttað? „Við auglýsum okkar vörur í öll- um helstu fjölmiðlum landsins, kynnum þær í verslunum og á vegg- spjöldum. Fyrir sælgætisiðnaðinn hefur myndmiðillinn verið talinn áhrifaiíkastur því höfum við lagt mesta áherslu á hann en tengt þær auglýsingar við blaða- og tímari- tsauglýsingar. Vefur fyrirtækisins var opnaður fyrir fjórum árum. Þar kynnum við fyrirtækið og þar er hægt að panta vönir. Þegar við höfum breytt vörum okkar höfum við markaðssett þær upp á nýtt og þá gjarnan farið í auglýsingaherferð. Stefnan hjá okkur hefur verið sú að hver vörutegund hafi ákveðna ímynd eins og þegar við vorum að auglýsa Rís súkkulaðið þá var yfir- skrift þeirrar auglýsingar: „Attu vin“ og átti það að höfða til þess að menn deildu súkkulaðinu með öðr- um. I flestum okkar auglýsingum höf- um við notast við þekkt andlit sem við teljum árangursríkt. Við fengum til dæmis Jón Gnarr til að auglýsa Villiköttinn sem heppnaðist vel. Kostnaður við markaðssetningu mikill Kostnaður við markaðssetningu sælgætis er mjög mikill. En við telj- um að um leið og við hættum að auglýsa fari markaðshlutdeild okkar niður.“ Hver er hlutdeild Sælgætisgerð- arinnar Freyju í heildarsælgætis- markaðnum? „Það hefur ríkt ákveðin leynd yfir veltutölum fyrirtækja í sælgætisiðn- aði hér á landi þannig að það hefur verið erfitt að átta sig hver hlutur Lokadagur Útsölunni lýkur kl. 18 í kvöld áESSO-stöðinni á Geirsgötunni viö Faxaskála! Dæmi um verð: • Svefnpokar - 1.900 kr. • Veiðistöng, Red Wolf - 1.400 kr. • Veiðibox, Red Wolf - 200 kr. • Nike golfgjafasett — 1.400 kr. • Jólaspiladós - 400 kr. • Áttaviti, stór - 400 kr. • Skæri með upptakara - 200 kr. • Grilláhöld, 5 stk. - 900 kr. • Grillkveikikubbar - 90 kr. • Geisladiskar - frá 200 kr. • Kolagrill - frá 900 kr. • Grillkol - 100 kr. • Körfuboltar - 100 kr. • Bílamottur, 4 stk. - 1.600 kr. • Sólgardínur í bíla, stórar - 300 kr. Uppboð Sýningargrillin frá ESSO-stöðvunum í sumar verða boðin upp klukkan 16 í dag á þjónustustöð ESSO við Geirsgötu. £sso Olíufélagið hf www.esso.is \ • 60 • Bí Atvötui Vauötut

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.