Morgunblaðið - 26.09.2000, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.09.2000, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ 'fovo OQQ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2000 C 7 Það besta dugði Magnúsi ekki MAGNÚS Aron Hallgrímsson varð í 21. sæti í undankeppni kringlukasts karla á Ólympíu- leikunum á sunnudaginn, en alls tóku 46 kastarar þátt í keppninni. Magnús kastaði lengst 60,95 metra sem er lengsta kast íslendings í grein- inni á Ólympíuleikum. Áður hafði þjálfari hans, Vésteinn Hafsteinsson, átt lengsta kast- ið 60,20 metra en það nægði Vésteini á sínum tíma til þess að komast í úrslit í Barcelona 1992. Markið var sett við 64 metra til þess að komast í úrslitin að þessu sinni. Sjö kastarar nóðu að þeyta kringlunni yfir þá vegalengd og þvi komust þeir lvar sem voru með fimm Benediktsson lengstu köstin þar skrífar fyrir neðan inn í úr- frá Sydney slitin til þess að fylla upp í töluna, en að vanda komust 12 í úrslit og var tólfti maður með 62,72 metra. Þetta er sterkasta undan- keppni í kringlukasti sem fram hef- ur farið á Olympíuleikum. Nokkir þekktir kastarar náðu ekki að vinna sér sæti í úrslitum, þar á meðal Roman Ubartas, Litháen, sem varð Ólympíumeistari 1992. Hann kast- aði aðeins 60,50 metra. Magnús kastaði lengsta kasti sínu strax í fyrstu umferð, 60,95, en alls fengu keppendur að kasta þrisvar í undankeppninni þar sem keppt var í tveimur riðlum. Magnús var í A- riðli og varð í 9. sæti af 23 þátttak- endum í honum. Fyrsta kastið lofaði góðu hjá Magnúsi en honum tókst ekki að fylgja þeim eftir sem skyldi. Annað kastið var 58,79 og það þriðja og síð- asta 60,03. Magnús virkaði afslapp- aður í keppninni og getur í raun vel við unað að ná þessum árangri þar sem hann hefur enga reynslu af því að keppa á stórmótum, Ólympíu- leikarnir eru fyrsta alvöru prófraun hans sem kringlukastara í fremstu röð. „Eg byrjaði vel en tókst ekki að fylgja því eftir í tveimur síðari köst- unum. Það munaði þó litiu í síðasta kastinu þar sem spurningin var um tæknilegt atriði. Það er hins vegar engin launung á að mig langaði að gera betur, það bjó meira í mér en mér tókst að ná fram,“ sagði Magn- ús að keppni lokinni. „Annars er ég sæmilega sáttur, ekkert meira en það,“ sagði Magnús ennfremur og ljóst er að þarna er á ferð metnaðar- fullur kastari sem ber hæfilega virð- ingu fyrir andstæðingum sínum þótt margir þeirra hafi lengri feril að baki. „Mér leið vel inni á vellinum, það hafði bara jákvæð áhrif á mig að það voru 100.000 áhorfendur á vellinum. Þetta var hreint meiriháttar upp- lifun og mér tókst að einbeita mér vel að því sem ég var að gera en því miður voru það ýmis tæknileg atriði sem brugðust fyrst og fremst og það er nokkuð sem ég á að geta lag- að,“ sagði Magnús ennfremur. „Það er engin ein skýring á hvað fór úr- skeiðis í tækninni." Magnús segir að það hafi verið ágætt að kasta á vell- inum. „Það var logn á vellinum eins og alltaf er á þessum stóru leik- vöngum og ég vanur að kasta við þessar aðstæður. Eg hef reynt að æfa sem frekast er kostur við að- stæður sem eru sem líkastar þess- um til þess að vera sem best undir- búinn fyrir mót sem þetta. Eg var tiltölulega afslappaður og langaði virkilega til þess að gera vel. Það er nú bara oft þannig að þeg- ar mann langar að þá tekst ekki allt- af að fylgja því eftir. Mótið er rosa- lega góð reynsla fyrir mig, enda það langstærsta sem ég hef tekið þátt í,“ sagði Magnús Aron Hallgrímsson. 4 m Magnús Aron Hallgrímsson kastaði kringlunni 60,95 m í fyrsta kastinu í Sydney. Morgunblaðið/Sverrir Margir sterkir komust ekki áfram MAGNÚS var skráður með 35. besta árangur ársins af kringlu- kösturunuin 46 sem tóku þátt, en tókst að enda í 21. sæti, þar sem keppnin var afar sterk og t.d. má nefna það að 60,20 nægði Vésteini tii þess að komast í úrslit á Ól- ympíuleikunum 1992. Nú hefði sá árangur nægt í 28. sæti. Til marks um hversu sterk und- ankeppnin í kringlukastinu var má nefna að Roman Ubartas, ól- ympfumeistari 1992, komst ekki áfram, ekki heldur John Godina, Bandaríkjunum, einn þekktasti kringlukastari samtímans, banda- ríski háskólameistarinn Gabor Mate frá Ungverjalandi sem kast- aði 65,50 í vor þegar hann vann, Vaclovas Kidykas, Litháen sem var fimmti á HM í fyrra, breski meistarinn Robert Weir, er bætti breska metið á dögunum, 65,08 og siðast en ekki síst Evrópu- meistari unglinga, Zoltan Kovago frá Ungveijalandi. Honum féllust hendur í undankcppuinni og voru öll köst hans ógild. Sjöunda sinn yfir 60 metra MAGNÚS Aron Hallgrúnsson hefur nú kastað kringlunni sjö sinnum yfir 60 metra á mótum í sumar en þátttaka hans á Ólympíuleikunum var þrettánda mót hans á keppnistúnabilinu. Þar af hefur hann ekki kastað styttra en 60 metra síð- an á Meistaramóti Islands eftir miðjan júlí. Fyrir Ólympíuleikana var meðaltal hans á mótum sumarsins 59,54 metrar þannig að honum tókst að kasta 1,42 metrum yfir meðaltal sitt á Ólympíuleik- unum. „Það eitt og sér er mjög jákvætt,“ segir Vésteinn Hafsteinsson, þjálfari Magnúsar og íslandsmethafi í kringlu- kasti, en Vésteinn er reyndasti kringlu- kastari íslands og tók m.a. þátt í femum Ólympíuleikum og fjöida annarra móta, s.s. heims- og Evrópumeistaramótum. Morgunblaðið/Sverrir Magnús Aron hefur náð bestum árangri íslendinga í kringlukasti á ÓL. Fór um mig sælutilfinning „MAGNÚS má vera stoltur af árangrinum, hann hefur nú kastað lengst allra íslendinga á Ólympíuleikum,“ sagði Vésteinn Haf- steinsson, íslandsmethafi í kringlukasti og þjálfari Magnúsar, að lokinni undankeppni kringlukastsins. Fyrir mótið sagði ég að ef hann yrði yfir meðaltali sínu væri það mjög gott, næði hann yfir 60 metra þá væri það framúrskarandi fyr- ir svo ungan og óreyndan kastara. Tækist honum að ná inn í úrslitin þá væri það hreinlega frábært," bætti Vésteinn við og var stoltur af lærisveini sínum. „Fyrst og fremst er ég þó ánægð- ur með að Magnús stóðst prófið. Þess vegna er hægt að veðja á hann Ivar Benediktsson skrilar frá Sydney á sem framtíðarafreksmann. Hann hefði vel geta lent í því að gera öll köstin ógild eða þá „frosið“ og kast- að aðeins 52 til 54 metra. Þvert á móti þá kastaði hann 60,95 í sínu fyrsta kasti á alþjóðlegu stórmóti. Það fór um mig sælutilfinning þeg- ar það gerðist því ég hef eytt mikl- um tíma með honum. Magnús hefur ekkert sýnt annað síðan ég tók við þjálfun hans fyrir þremur árum en að hann er andlega sterkur og það sýndi hann svo um munaði. Vésteinn segir að öll þjálfun Magnúsar hingað til hafi miðast að því að hann gæti kastað langt á stórmótum á stórum velli þar sem áhrifa af vindi gætir ekki. „Ég er reyna að forðast ýmslegt af því sem ég gerði rangt á mínum ferli, þann- ig að hann eigi mikið styttri leið fyrir höndum að komast í fremstu röð í heiminum. Ég gerði þau mis- tök að ná íslandsmeti mínu í mikl- um vindi, en átti oft í erfiðleikum á mótum sem þessum. Ég tók þann pól í hæðina við þjálfun Magnúsar að hann keppir ekki á litlum kast- mótum, hann æfir oft í „öfugum" vindi, meðvindi eða í logni þannig að við reynum að forðast það að keppa í vindi eins og kostur er á til þess að búa hann undir að keppa á stórum mótum. Ólympíuleikar eru fyrsta stórmót Magnúsar og hann er innan við tvo metra frá sínu besta, yfir meðaltali ársins og við getum ekki beðið um meira að sinni. Ánægðastur er ég þó með yfirbragðið á honum úti á vellinum. Hann er eins og einn úr hópnum, hann er ekki með minnimátt- arkennd, ekki með hausinn á milli lappanna. Þvert á móti ber hann höfuðið hátt og er óhræddur að keppa við þá bestu,“ sagði Vésteinn Hafsteinsson, þjálfari Magnúsar Arons Hallgrímssonar, kringlu- kastara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.