Morgunblaðið - 26.09.2000, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2000 C 15
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Bryivjar Gauti
Knötturinn í netinu hjá Eyjamönnum og bikarinn kominn til Skagamanna. Kári Steinn Reynisson, sem skoraði sigurmarkið, er lengst til vinstri.
ÍA minntist Dagbjarts
Hannessonar
SKAGAMENN léku með sorgarbönd í bikarúrslitaleiknum til
að minnast Dagbjarts Hannessonar, sem lést á dögunum.
Dagbjartur lék með ÍA frá 1946 tii 1955, hann var í fyrsta
meistaraliði ÍA árið 1951 og varð einnig meistari með félaginu
1953 og 1954. Dagbjartur lék þrjá landsleiki fyrir fslands
hönd á árunum 1953 og 1954 og tók þá þátt í fyrsta sigri ís-
lands á Noregi, 1:0 á Melavellinum árið 1954.
Gísli Gíslason slapp
við sjö prósentin
SKAGAMENN forðuðu bæjarstjóranum sínum, Gi'sla Gíslasyni,
frá 7 prósenta niðurskurði. Hann og Guðjón Hjörleifsson, bæjar-
stjóri Vestmannaeyja, hétu því fyrir leikinn að sá sem tapaði yrði
að skera líkamsþyngd sína niður um 7 prósent fyrir áramót. „Ég
var hvort eð er sá okkar sem þurfti ekkert á þessu að halda,“
sagði Gísli sigurreifur eftir leikinn en hann fagnaði bikarsigrin-
um innilega með sínum mönnum í búningsklcfanum.
Ólafur Þórðarson, hinn sigursæli leikmaður, fagnarsem þjálfari
A Akranesi erár án
titils mjög langt ár
ÓLAFUR Þórðarson var sigursæll sem leikmaður og hann fer vel
af stað sem þjálfari. Eftir að hafa leitt Fylki upp í efstu deild í ann-
arri tilraun stýrði hann ÍAtil bikarmeistaratitils á sínu fyrsta
tímabili sem þjálfari á heimaslóðum. Ólafur varð bikarmeistari
sem leikmaður með ÍA í úrslitaleikjunum 1984,1986,1993 og
1996 og íslandsmeistari 1984,1993,1994,1995 og 1996. Eftir
eitt ár í starfi sem þjálfari hefur hann þegar skilað fyrsta titlinum
í höfn og harðir Skagamenn höfðu á orði eftir leikinn við ÍBV á
sunnudaginn að þetta væri upphafið á nýrri gullöld á Akranesi.
Eftir
Víði
Sigurðsson
Eftir sigurárin frá 1992 til 1996
hafa Skagamenn ekki fagnað
stórum titli þar til bikarsigur
þeirra gegn IBV
var í höfn á sunnu-
daginn. Fögnuður
þeirra var að von-
um innilegur og fáir
létu gleði sína jafn innilega í ljós
þegar flautað var til leiksloka og
Ólafur Þórðarson. Það var því
nokkur hógværð í þeim orðum
hans við Morgunblaðið eftir leikinn
að hann væri mjög sáttur við þenn-
an bikarsigur.
„Skagamenn hljóta almennt að
vera mjög sáttir. Það er langt síðan
það hefur komið titill á Skagann og
það var því kominn tími á þennan
sigur. Við höfum ekki unnið neitt
síðan 1996 og á Akranesi er hvert
ár sem líður án titils mjög langt ár.
Við vitum það sjálfir og búum við
þessa pressu. Auðvitað reyna
menn alltaf að gera sitt besta en
hjá öllum félögum koma lægðir og
það þarf að viðurkenna. Sá toppur
sem við náðum upp úr 1990 var
óvenju langur, við urðum meistar-
ar fimm ár í röð og það halda fá lið
út slíkt við þær aðstæður sem við
búum við sem áhugamenn. Þetta
horfir öðruvísi við erlendis þar sem
leikmenn eru keyptir eftir því sem
með þarf en við þurfum að fram-
leiða leikmennina sjálfir. Þá koma
stundum slæm ár eins og í öðru.“
Það var meira í húfí í þessum
leik en í mörgum öðrum. Osigur
hefði væntanlega þýtt gífurleg
vonbrigði með tímabilið í heild?
„Þessi sigur bjargar andlitinu í
sumar og fyrir félagið er geysilega
mikilvægt að vera áfram í Evrópu-
keppni á næsta ári. Við þurfum
bara að gera betur þar en í sumar.
Það hefðu verið hrikaleg vonbrigði
að tapa þessum leik. Við komum
mjög vel undirbúnir, staðráðnir í
að sigi-a, og gerðum okkur grein
fyrir því að það væri mjög nauð-
synlegt að byrja vel; að stimpla sig
strax sterkt inn í leikinn. Við vor-
um búnir að uppskera eitt stig í
tveimur leikjum gegn ÍA í sumar,
þrátt fyrir að vera betri aðilinn í
báðum leikjunum. Það var því ljóst
að við þyrftum að fórna einhverju
meiru en venjulega til að sigra þá.
Menn þurftu að ná fram þessu
aukalega; gefa allt sem þeir áttu,
og það var gert í leiknum í dag.“
Varstu ekki farinn að búa þig
undir framlengingu þegar sigur-
markið kom ?
„Jú, ég var farinn að huga að
henni, en ég hélt alltaf í vonina.
Maður hefur horft á svo margt
gerast í þessum bikarleikjum að
undanförnu. Við fórum erfiða leið í
gegnum bikarkeppnina í ár en
kannski var það seiglan sem réði,
við gáfumst aldrei upp.“
Ykkur var spáð góðu gengi í vor
og fíestir virtust reikna með ykkur
í toppbaráttu í deildinni. Hvers
vegna gekk það ekki eftir?
„Kröfurnar á Akranesi eru mikl-
ar en þegar menn skoða málið
raunhæft þá voru gerðar of miklar
væntingar til liðsins fyrir þetta
tímabil, miðað við það sem á undan
var gengið. Breytingarnar á liðinu
síðasta vetur voru mjög miklar.
Við misstum níu leikmenn úr hópn-
um frá því í fyrra og fylltum að
mestu upp með ungum strákum,
auk þess sem við fengum til baka
Skagamenn sem voru að spila í
neðri deildum.
Það hefur því orðið mikil endur-
nýjun en mikið af ungum og
sprækum strákum hefur komið inn
í liðið og það skilaði sér í þessum
úrslitaleik. Við sóttum einn topp-
spilara sem við ætluðum að nota,
Una Arge, og hann meiddist eftir
40 mínútur í deildinni. Siggi Jóns
kom rétt fyrir mót og var kannski
ekki í alveg nógu góðu standi í upp-
hafi en spilaði síðan feikilega vel
þegar hann fór í vörnina.“
Horfa Skagamenn fram á bjart-
ari tíma á ný eftirþennan bikarsig-
ur? __
„Eg vona að þetta sé upphafið að
einhverju meira. Við erum með
marga unga menn og þetta tekur
tíma. Margir voru að ljúka sínu
fyrsta alvöru tímabili í deildinni og
þurfa að fá reynslu. Menn öðlast
enga reynslu nema að upplifa
hana, og það getur kostað sitt á
meðan verið er að byggja upp
sterkt lið að nýju,“ sagði Ólafur
Þórðarson.
Mjög
gott hjá
stráknum
AÐALSTEINN Baldursson,
verkalýðsforingi á Húsavík, var
að vonum kátur eftir leikinn en
sonur hans, Baldur, var hetja
Skagamanna; skoraði fyrra mark-
ið og lagði það siðara upp.
„ Já, þetta var mjög gott hjá
honum og sannfærandi sigur hjá
IA. Strákurinn var svo óstyrkur
þegar hann fór í leikinn, og liðið
virkaði dauft miðað við Eyjamenn
í upphituninni að ég hélt að þetta
yrði mjög erfitt. En Skagaliðið var
miklu ákveðnara strax frá byijun
og vann verðskuldað," sagði Aðal-
steinn við Morgunblaðið.
meistarinn
UNI Arge, sóknarmaður Skaga-
manna, varð fyrstur fær-
eyskra knattspyrnumanna til að
hljóta bikarmeistaratign erlendis.
Áður hafði einn Færeyingur, lands-
liðsmarkvörðurinn Jákup Mikkel-
sen, orðið landsmeistari erlendis en
hann varð danskur meistari með
Herfölge í vor.
„Já, þetta er fyrsti bikarsigurinn
erlendis og ég er mjög stoltur af því.
Nú fer ég beint heim til Færeyja á
morgun til að sýna verðlaunin. Ég
kem aftur og leik með ÍA næsta
sumar þar sem ég á ár eftir af samn-
ingnum við félagið," sagði Uni við
Morgunblaðið.
Uni lék sinn annan bikarúrslita-
leik á þeim þremur árum sem hann
hefur spilað á íslandi en hann lék
með Leiftri þegar liðið tapaði fyrir r
ÍBV, 2:0, árið 1998. Þá varð hann
markahæsti leikmaður bikarkeppn-
innar með 6 mörk og skoraði í öllum
umferðum fram að úrslitaleiknum.
Uni tryggði ÍA sæti í úrslitaleiknum
í ár; fyrst jafnaði hann á síðustu
mínútunni gegn FH í undanúrslit-
unum og skoraði síðan lokamarkið í
vítaspyrnukeppninni. r