Morgunblaðið - 26.09.2000, Page 20
* 20 C ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
"A CX$P
Sú breska
best í sjö-
þrautinni
DENISE Lewis frá Bretlandi
varð Ólympíumeistari í sjöþraut
kvenna á sunnudaginn eftir
geysilega harða keppni sem
réðst á síðustu metrum loka-
greinarinnar, 800 metra hlaups-
ins.
Jelena Prokhorova frá Rúss-
landi vann 800 metrana en varð
að sætta sig við silfrið þar sem
Lewis hélt sig nógu nálægt
henni til að halda forskoti sínu á
stigum. Prokhorova varð að
koma 8 sekúndum á undan
Lewis í mark til að hirða gullið
af henni. Lewis fékk 6.584 stig
en Prokhorova 6.531. Bronsið
fékk Natalja Sazanovich frá
Hvita-Rússlandi með 6.527 stig.
Tvær sigurstranglegar konur
heltust úr iestinni því Ghada
Shouaa frá Sýrlandi, Óiympíu-
meistarinn frá 1996, tognaði eft-
ir aðeins 20 metra í fyrstu grein
þrautarinnar, 100 metra grinda-
hlaupinu, og Eunice Barber,
heimsmeistarinn frá Frakkiandi,
hætti þegar tvær greinar voru
eftir en hún var þá langt frá sínu
besta.
„Þetta var gríðarlega erfitt og
- ég er öll lurkum iamin. Eg hef
alltaf sagt að úrslitin réðust af
því hver héldi best út og það
kom á daginn. Það féllu nokkrar
sterkar úr keppni og ég þakka
fyrir að hafa komist í 800 metra
hlaupið á báðum fótum," sagði
Lewis eftir sigurinn.
Hún var að sjálfsögðu alsæl
með sigurinn því þetta eru
fyrstu gullverðlaun Breta í
frjálsíþróttum á Ólympíuleikum
siðan í Barcelona 1992.
Spánverjinn Inaki Urdangarin reynir að stöðva Svíann Stefan Lövgren.
Grunnt á því góða milli
Svía og Spánverja
SVÍAR luku riðlakeppninni í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna
með fullu húsi stiga, en þeir lögðu Spánverja, 28:27, í lokaumferð-
inni á sunnudaginn. Þar með mæta þeir Egyptum í átta liða úrslit-
unum og þar eigast því við tvær þjóðir sem leika með íslandi í riðli á
HM í Frakklandi í janúar. Slóvenía náði síðasta sætinu í átta liða úr-
slitunum með því að sigra Túnis naumlega, 22:20.
Svíar þurftu á sinni gamalkunnu
seiglu að halda til að knýja fram
sigurinn gegn Spánverjum, sem voru
yfir lengst af í leiknum, mest fimm
mörkum í fyrri hálfleik. Svíar breyttu
stöðunni úr 17:20 í 23:21 og voru jafn-
an með undirtökin á hörkuspennandi
lokakafla. Andreas Larsson skoraði
sigurmarkið 18 sekúndum fyrir leiks-
lok og síðan varði sænska vörnin skot
frá Talant Dujshebaev. Stefan
Lövgren skoraði 7 mörk fyrir Svía og
Mathias Franzen 6 en Rafael Guijosa
skoraði 8 mörk fyrir Spánverja.
Enn einu sinni var grunnt á því
góða á milli þjóðanna. Mateo Garr-
alda, einn besti leikmaður Spánverja,
fékk rauða spjaldið og Svíarnh- vönd-
uðu honum ekki kveðjurnar. „Hann
er svín, það megið þið hafa eftir mér,“
sagði Andreas Larsson, og Bengt
Johansson, þjálfari Svía, sagði að á
milli þessara þjóða væri ekkert til
sem héti vináttuleikur.
„Spánverjarnir eru alltaf með
sóðakjaft og þeir kenna jafnan dóm-
urunum um þegar þeir tapa fyrir
okkur. Fyrir svona liði myndi maður
ekki þola að tapa,“ sagði Johan Pett-
ersson, homamaður Svía. Frakkar
tryggðu sér annað sætið í B-riðli með
auðveldum sigri á Áströlum, 28:16,
og Slóvenar fengu fjórða sætið með
því að vinna Túnis, 22:20, eftir að hafa
verið undir, 18:19, rétt fyrir leikslok.
Egyptar skelltu Þjóðverjum og
Rússar unnu riðilinn
Egyptar sýndu enn og sönnuðu
styrk sinn þegar þeir skelltu Þjóð-
verjum, 22:21, og komu í veg fyrir
sigur þeirra í A-riðlinum. Leikurinn
var mjög sveiflukenndur, Þjóðverjar
voru 2-3 mörkum yfir í fyni hálfleik
en Egyptar komust í 19:15 í þeim síð-
ari og héldu út í lokin. Litlu munaði
að Volker Zerbe jafnaði á síðustu
sekúndunum þegar hann skaut í
stöngina á marki Egypta. Mohamm-
ed Gohar skoraði 5 mörk fyrir
Egypta og þeir Ashraw Awaad og
Moon Sherif gerðu 4 mörk hvor.
Frank von Behren og Florian Kehr-
mann gerðu 5 mörk hvor fyrir Þjóð-
verja.
Rússar nýttu sér þetta og tryggðu
sér efsta sætið í riðUnum með því að
sigra Júgóslava, 27:25. Rússar voru
með undirtökin að mestu og höfðu
fimm marka forystu rétt fyrir leiks-
lok. Edouard Kokcharov og Lev Vor-
onin gerðu 8 mörk hvor fyrir Rússa
en Igor Butulja og Dragan Skrbic
gerðu 5 hvor fyrir Júgóslava.
Suður-Kórea vann loks leik, sigr-
aði Kúbu 35:28, en það var of seint til
að komast áfram. Yoon gerði 8 mörk
fyrir Kóreu en Rolando Urios gerði 9
fyrir Kúbu.
Átta liða úrslitin verða leikin í dag
og þar mætast Svíþjóð og Egypta-
land, Rússland og Slóvenía, Þýska-
land og Spánn og loks Frakkland og
Júgóslavía.
Denise
Lewis
Bretlandi
Ólympíumeistari í sjöþraut
kvenna.
Fædd: 27. ágúst 1972 í
West Bromwich í Engiandi.
Helstu afrek: Silfur á HM
1999 og brons á Ólympíu-
leikunum í Atlanta 1996.
Eina breska konan sem
komst á pall í frjálsum
íþróttum í Atlanta.
■ Sló í gegn með sigri á
Samveldisleikunum 1994.
Hristi af sér meiðsli á þessu
ári og varð samveldismeist-
ari með 6.831 stig.
■ Iþróttakona ársins í
Bretlandi árið 1996.
Reuters
Breska stúlkan Denise Lewis fagnaði sigri í sjöþraut.
Handknattleikur
vekur áhuga
Handknattleikur hefur vakið
talsverða athygli á Ólympíu-
leikunum en að sögn dagblaðsins
Daily Telegraph í
Ivar Sydney þá vissu
Benediktsson fæstir íbúar Sydney
hvaða íþrótta þetta
ra y ney var áður en leikam-
ir byrjuðu. Uppselt hefur verið á
flesta leiki keppninnar, þá ekki síst
viðureignir kvenna- og karlaliðs
Ástralíu.
Það skiptir engu máli þótt lið
Ástrala hafi ekki riði feitum hestum
frá leikjum sínum í handknattleiks-
keppninni. Blaðið segir ennfremur
að áhorfendur þekki lítt reglumar
en þyki hraðinn og átökin sem
íþróttin býður upp á forvitnilega.
Meðal annars er rætt við einn leik-
mann kvennaliðsins og segir hann
íþróttina vera hraða þar sem allir
leikmenn geti skorað, meira að
segja markvörðurinn. „Þetta er
íþrótt sem ég tel að Áströlum líki,“
segir Lydia Kahmke, fyrirliði
kvennaliðs Ástralíu.
Einn sem reyndi að útskýra
reglur íþróttarinnar fyrir löndum
sínum sagði handknattleik vera
svipaða knattspymu, en munurinn
væri sá að handknattleikur væri
leikinn með höndunum en knatt-
spyrna með fótum, flóknari væri
íþróttin ekki.
Flestir leikmenn kvennaliðsins
þekktu hvorki haus né sporð á
handknattleik fyrir nokkmm áram
þegar ákveðið var að Sydney héldi
leikana árið 2000. Þar fylgdi sá
böggull skammrifi að þjóðin varð að
verða sér út um landslið í hand-
knattleik karla og kvenna. Gera
menn sér hér í landi vonir um að
handknattleiksáhuginn muni lifa
fram yfir Ólympíuleikanna og hægt
verði að hefja kennslu í íþróttinni á
meðal barna og unglinga þannig að
í framtíðinni geti þjóðin átt fram-
bærileg landslið og áhugasamir
áhorfendur sjái þau vinna landsleik,
en til þessa hafa landsliðin frekar
farið halloka frá viðureignum sínum
við harðsnúin landslið frá Evrópu.