Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 1
KVIKMYNDAHATIÐ
f f
R E Y K J A V I K
BIOBLAÐIÐ
FOSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000
JfafgtiiiHjifeit
ÁFÖSTUDÖGUM
17. Kvikmyndahátíðin í Reykjavík hefst í dag og er nýjasta verk Angs Lee opnunarmyndin
Sýndar 34
kvikmyndir
frá 15
löndum
KVIKMYNDAHÁTÍÐ í Reykjavík verður sett í
17. sinn í dag. Opnunarmynd hátíðarinnar er
Krjúpandi tígur, dreiáíleynum - Crouching Tiger,
Hidden Dragon, nýjasta mynd tævanska leikstjór-
ans Angs Lee, en eftir hann verður einnig sýnd
Djöflareið eða Ride With The Devil. Alls verða
sýndar á hátíðinni 34 bíómyndir í fullri lengd eftir
26 leikstjóra frá-um 15 löndum. Sýningar á Kvik-
myndahátíð í Reykjavík standa í tæpar tvær vikur
en hátíðinni lýkur fímmtudaginn 12. október.
Gestir hátíðarinnar að þessu sinni eru fjórir.
Hinn umdeildi júgóslavneski leikstjóri Dusan
Makavejev sýnir sjö af þekktustu myndum sínum,
vesturíslenski leikstjórinn Sturla Gunnarsson frá
Kanada kemm- með nýjustu mynd sína, Scorn eða
Fyrirlitningu, norski leikstjórinn Hans Petter
ftío/and kynnir myndina Aberdeen og Þjóðverjinn
Veit Helmer sýnir Tuvalu.
Meðal nafnkunnra leikstjóra, sem myndir eiga á
hátíðinni, eru breski leikstjórinn Mike Figgis með
tvær, Atom Egoyan frá Kanada, Wim Wenders frá
Þýskalandi, David Lynchfvk Bandaríkjunum,
Giuseppe Tornatore og Gianni Amelio frá Ítalíu,
WongKar wai frá Kína, sem er einn umtalaðasti
leikstjóri samtímans og er með þrjár myndir á há-
tíðinni, landar hans Chen Kaige og Lou ye, Svíinn
Roy Andersson, svo dæmi séu tekin.
• Bíóblaðið í dag er að mestu helgað Kvik-
myndahátíð í Reykjavík, gerir grein fyrir öllum
leikstjórum hátíðarinnar og verkum þeirra, birtir
sýningarskrána, auk viðtala og greina um sögu og
gildi hátíðarinnar. Opnunarmyndin Krjúpandi tígur, dreki í leynum eftir Ang Lee: Michelle Yeoh og Chow Yun Fat.
GILDIÐ
„TIL þess að hér þrífist frjó kvikmyndagerð
verða menn að geta séð það nýjasta úr öðr-
um plássum en Hollywood. Víða er verið að
gera frábæra hluti sem eiga sér engan við-
skiptagrundvöll, það er ekki hægt að sýna
þessar myndir nema til komi fyrirbæri eins
og kvikmyndahátíðir." Þetta segir Friðrik
Þór Friðriksson sem verið hefur viðloðandi
Kvikmyndahátíð í Reykjavík frá upphafí. I
sama streng taka Arnaidur Indriðason, kvik-
myndagagnrýnandi Morgunblaðsins og
Þorfinnur Ómarsson, framkvæmdastjóri
Kvikmyndasjóðs íslands og leggja áherslu á
nauðsyn þess að tryggja betur fjárhags-
grundvöll hátíðarinnar. /2,4.
VIÐTÖLIN
TAÍVANSKI leikstjórinn Ang Lee stendur
að opnunarmynd hátíðarinnar, Krjúpandi
tígur, dreki íleynum. í Bíóblaðinu í dag
birtist viðtal Péturs Blöndalvið leikstjór-
ann og aðalleikkonu myndarinnar Michelle
Yeoh. Einnig ræðir Péturvið þrjá aðra leik-
stjóra sem myndir eiga á hátíðinni nú,
Svíann Roy Andersson, Kínverjann Chen
Kaige og Bretann Julien Temple. /5, 8,16.
GESTIRNIR
DUSAN Makavejev, Sturla Gunnarsson,
Hans Petter Moland og Veit Helmer eru
fjórir heiðursgestir Kviknryndahátíðar í
Reykjavík að þessu sinni. Arni Þórarinsson
og Pétur Blöndal gera grein fyrir ferli
þeirra og verkum. /6,7.
DAGSKRAIN
SÝNINGARSKRÁ fyrir Kvikmyndahátíð í
Reykjavík til loka hennar, 12. október, er
birt í heild í Bíóblaðinu í dag. /10-11
Frumsýnd í dag
Hláturinn lengir lífið.
Þú getur drepist úr hlátri.
„EXTRA FUN“ sýning í nótt kl. 2 í Regnboganum. Fyrstu
100 sem kaupa miða fá öskrandi Scary Movie glaóning.
Enga miskunn. Engin feimni. Ekkert fpamhald.
m
MIRAMAX nccMOAr.iMKi
;■ '/HArú..rtTir^: skHanJs