Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 12

Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 12
12 C FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 BÍÓBLAÐ MORGUNBLAÐIÐ Roy Andersson vaknartil lífsins eftir Þyrnirósarsvefn í aldarfjórðung Einfaldleiki erTiokinn Sænski leikstjórinn Roy Andersson er vandvirkur og fer varla fram úr rúminu á morgnana nema hann hafi fjögur ár til aö klára morgunkornið. Þaö er í þaö minnsta sá tími sem hann tekur sér í gerö mynda sinna og þá er hann aö flýta sér. Pétur Blöndal tal- aöi viö hann um aldarfjórðungslanga þögnina, nýjan þankagang, ólík stílbrögö og uppreisn við Bergman. Söngvar af annarri hæð: Þriðja bíómynd Roys Anderssons. NÝRRAR kvikmyndar frá sænska leik- stjóranum Roy Andersson hefur verið beðið með óþreyju í aldarfjórðung. Fyrstu kvikmynd hans, Sænskri ástarsögu (1970), var hampað sem meistaraverki og að- sóknin var eftir því. Flestir vonuðust eflaust eft- ir því að næsta mynd hans yrði í sama dúr, en Andersson hlustaði ekkert á þær raddir og varði fimm árum í gerð nýstárlegrar myndar, Giíliap, sem var rökkuð niður af gagnrýnendum og sniðgengin af bíógestum, þótt margir séu á þeirri skoðun að sú mynd sé ekki síðra meist- araverk. Roy Andersson missti móðinn við þetta og dró sig í hlé frá kvikmyndagerð tii að byggja upp eigið framleiðslufyrirtæki, Studio 24, sem framleitt hefur stuttmyndir, heimildarmyndir og yfír þrjú hundruð auglýsingar, m.a. fyrir Air France, Volvo, Citroén og sósíaldemókrata. Hann þykir einn af fremstu auglýsingaleik- stjórum f heiminum og hefur unnið til átta gull- ljóna á auglýsingahátíðum í Cannes. Fyrir fjór- um árum hófst hann handa við gerð þriðju kvikmyndar sinnar í fullri lengd, Söngvar af annarri hæð, og lagði sjálfur um 60 milljónir í myndina til að koma verkefninu af stað. Það verður seint sagt um Roy Andersson að hann fari troðnar slóðir í stílbrögðum. Það eru aðeins 45 klippingar í Söngvum af annarri hæð og allir leikararnir eru í sínum fyrstu hlutverk- um, sumum þeirra mætti Andersson úti á götu eða á veitingastöðum og aðrir koma úr vina- hópnum. Þá eru lítil tengsl milli atriða myndar- innar, sem fjallar um fimmtíu persónur og er sextugi húsgagnasölumaðurinn Karl í for- grunni, hjákona hans og tveir synir. Og And- ersson er himinlifandi með afraksturinn. „Ég er ánægður með myndina sjálfa og við- tökuraar," segir hann og ræður sér vart fyrir kæti, enda myndin fallið í góðan jarðveg jafnt hjá gagnrýnendum sem áhorfendum. „Eg hef fundið fyrir því hjá fólki sem ég hitti... hvað get ég sagt... ég er ánægður.“ I ofanálag varð hann í kjölfarið á frumsýningu Söngva á annarri hæð fyrir valinu sem leikstjóri kvikmyndar sem byggð verður á skáldsögu Louis Ferdinand Cel- ine „Voyage au bout de la nuit“ [Ferðalag fram í morgunsárið]. „Það eru einu bókmenntir sem ég gæti gert kvikmynd eftir," segir Andersson og brosir út að eyrum. Er ekki ógjömingur að gera kvikmynd eftir ' þessari bók, spyr blaðamaður. „Næstum því,“ svarar hann og hlær. „Ég hef verið undir miklu álagi undanfarin fjögur ár, en þegar ég frétti að ég gæti hafíst handa á þessu verkefni fylltist ég starfsorku á ný. Mér finnst skáldsagan alvegyndisleg." Hefurðu hugmynd um hvaða efnistökum þú munt beita? „ Já, frægur franskur teiknari, Jacques Tardi, myndskreytti skáldsöguna og mun vonandi einnig gera veggspjald fyrir Söngva af annarri hæð í Svíþjóð. Þegar ég setti mig í samband við Tardi og sá teikningamar varð mér ljóst að hann var þeim vanda vaxinn að færa skáldsög- ^ una í myndrænan búning. Það ætti því ekki að vera ógjömingur." Hversu langan tíma heldurðu að gerð næstu myndareigi eftirað taka? ,M minnsta kosti fjögur ár,“ svarar hann fullur tilhlökkunar. „Maður verður að gæta ýtr- ustu nákvæmni og það tekur tíma. Þetta er ekki aðeins spuming um að leikstýra kvikmynd. í Söngvum á annarri hæð varð ég að vinna með "framleiðendunum á sama tíma og ég leikstýrði myndinni. Svo ég byijaði á því að fjármagna fyrstu 15 mínútumar sjálfur. Með þeim 15 mín- útum sannfærði ég fjárfesta um að fjármagna aðrar 15 mínútur. Þá aðrar 15 mínútur. Og þannig koll af kolli. Ég náði leiðarlokum með því að stíga eitt skref í einu.“ Það hlýtur að hafa tekið á þolinmæðina að gera þessa kvikmynd. „Það var erfitt af praktískum orsökum, að út- vega fjármagn, endast þolinmæði og úthald og halda í þá listrænu sýn sem maður hafði. Stund- um leigðum við nokkra byggingakrana og risa- stóra sali, t.d. þegar við bjuggum til lestarstöð- ina og flugvöllinn. Hvort tveggja er tilbúningur, leikmynd. Við leigðum öll þessi stóm tæki og ótal margir komu að tökunum. Þá þyrmdi stundum yfir mann og maður velti því fyrir sér hvort þetta væri þess virði. Það reyndi mest á þolrifin að halda sannfæringu sinni og missa ekki trúna á verkefninu.“ Voru tökumar sjálfar þá auðveldasti hluti ferlisins? „Nei, ég verð að segja að það er alltaf glíma að finna sjónarhornið, hvar á að stilla upp myndavélinni, nokkrum sentimetrum til vinstri, hægri, upp eða niður? Það er spurning um ná- kvæmni. Éf til vill felst í því ákveðin mótsögn, en það er flókið að vera nákvæmur, halda í ein- faldleikann. Einfaldleiki verður að vera ná- kvæmur til að vera áhugavcrður." Breyttirðu einhvem tíma sögunni í þessu langaferli? „Það féll aðeins eitt atriði út. Ég bútaði það niður og bætti við önnur atriði. Annars hélt ég sömu sýn á viðfangsefnið í fjögur ár. Að mínum dómi standa þau atriði sem fyrst voru tekin, fyr- ir fjórum árum, alveg jafn vel fyrir sínu og þau sem tekin vora síðast.“ Hvar fékkstu hugmyndina að þessari kvik- mynd? Það er erfitt að segja til um það,“ svarar hann og hlær „í það minnsta vildi ég gera háðslega lýsingu á stjórnmálaástandinu í Svíþjóð, í Evrópu ef út það er farið, eða heimin- um öllum.“ Fáránleikinn í kvikmyndinni minnir á köflum á ádeiluna í austur-evrópskum kvikmyndum frá sjöunda áratugnum, þar sem gagnrýnin beinist m. a.að skriffmnsku og valdníðslu. „Ég hef alltaf verið hrifinn af austur- evrópskri kvikmyndagerð. Þar taka menn listina alvarlega og era óhræddir við að axla þá ábyrgð sem því fylgir. Raunar gerði ég upp hug minn um að gerast kvikmyndagerðarmaður þegar ég horfði á stuttmyndir frá kvikmyndaskóla í Lodz í Póllandi. Fram að því hafði mig langað til að verða rithöfundur. Að ekki sé talað um þegar ég horfði á myndir Wajdas, þá rann upp fyrir mér að þetta væri mín köllun." Afhverju hættirðu kvikmyndagerð fyrir ald- aríjórðungi? „Ég byrjaði snemma og skrifaði handrit að kvikmynd þegar ég var enn í námi. Sú mynd naut mikilla vinsælda og ég hefði unnið gull- bjöminn í Berlín [árið 1970] ef keppnin hefði ekki verið stöðvuð vegna þess að hún þótti of borgaraleg [og samrýmdist ekki kommúnuhug- sjónum hippatímabilsins]. Ég skrifaði undir það sjálfur, svo ég get víst ekki kvartað," segir hann og brosir. „Þegar ég gerði mína aðra kvikmynd var það ákveðin tilraun og ef ég á að vera N: Ég kann að meta sumar af myndum Bergmans... einar sex... Hann leik- stýrði yffir fimmtíu! hreinskilinn þá brást mér svolítið bogalistin. Hún er ekki það meistaraverk sem sumir hafa haldið fram. Vissulega er hún góð, en mér urðu á nokkur mistök.“ Andersson leggur áherslu á orð sín með því að hrista höfuðið þegar hann heldur áfram: „Fyrir vikið var ég settur alveg út í kuldann ár- um saman. Ég reyndi að þrauka með því að snúa mér að auglýsingum og þróa stílbrögðin, án þess að vera með framleiðenduma á bakinu. Ég hef slæma reynslu af þeim. Það er til nokkuð sem heitir innri kostnaðaráætlun og ytri kostn- aðaráætlun. Einhvem tíma bað ég um að fá upptökuvél sem var í eigu fyrirtækisins til að skoða hvemig ég gæti tekið upp næsta atriði. „Nei, við höfum ekki efni á því vegna kostnaðar- áætlunarinnar," var svarið. Hún lá óhreyfð í kjallaranum! Ég ákvað þá þegar að ég ætlaði aldrei aftur að lenda í þessum aðstæðum; ég myndi eiga mína kvikmyndatökuvél sjálfur. Það rættist. Það tók lengri tíma en lög gerðu ráð fyrir, en mér tókst að byggja upp eigið fyrirtæki og verða óháður öðrum.“ Varstu þá ekkert hræddur við að ráðast aftur ígerð kvikmyndar í fullri lengd? „NeL“ Afhverju tók það 25 ár? Það tekur ekki svo langan tíma að safna fyrir kvikmyndatökuvél. ei, en ég hef verið að vinna að auglýsing- um og skrifa bækur. Svíþjóð er lítið land og því miður hef ég búið þar á miklum lá- deyðutímum; það var hvergi hjálp að fá.“ Áttu þá við sænsku kvikmyndastofnunina? „Já, en ég ætla ekki að kvarta núna því hún hjálpaði mér á endanum." Þegar sænska kvikmyndagerð ber á góma skyggir nafn Ingmars Bergmans óneitanlega á aðra kvikmyndagerðarmenn. Stóð það öðmm fyrirþrifum? „Ég kann virkilega að meta sumar af mynd- um Bergmans og hann hafði mikið að segja á ákveðnu tímabili á sjöunda áratugnum. Ætli það hafi ekki verið einar sex myndir. Hann leik- stýrði yfir fimmtíu! Margar af þeim standa ekki undir því lofi sem hlaðið hefur verið á þær, eink- um fyrstu og síðustu myndir hans. Að vissu leyti verðskuldar hann orðsporið sem af honum fer, en það má einnig segja að hann sé ofmetinn. Því miður hafði hann svo sterka stöðu í Svíþjóð að hann gat ráðið því sem hann vildi ráða. Éf mað- ur var ekki vinur hans eða til- heyrði vinahópnum, þá átti mað- ur erfitt uppdráttar. Mér þykir það leitt að svo skuli hafa verið. Ég var útskúfaður! Ég var ekki í vinahópi Bergmans. Ef til vill er ekki við hann að sakast heldur yfirmann Sænsku kvikmynda- stofnunarinnar, sem stýrði henni í yfir tuttugu ár. Hann þoldi ekki leikstjóra með póli- tískan metnað. Þegar við voram í kvikmynda- námi sagði hann við okkur: „Ekki gera pólitísk- ar kvikmyndir. Gerið eins og Bergman." Við fóram ekki að hans ráðum og voram útskúfaðir. Ég veit til dæmis að ef fyrsta kvikmyndin sem ég leikstýrði í fullri lengd hefði verið sýnd í Cannes hefði hún fengið afar góðar viðtökur. En hún var ekki sýnd hátíðamefndinni vegna þess að við máttum ekki verða frægir. Þetta er hreina satt. Þannig hafði Bergman áhrif.“ Þú minntist á að þú hefðir mótað stHbrögð þín sem kvikmyndagerðarmaður með auglýsinga- gerð. „Ég geri í mesta lagi tólf auglýsingar á ári. Það er hámark að leikstýra einni á mánuði. En það er líka nægur tími til að prófa sig áfram og gera tilraunir. Ég held að auglýsingar hafi hjálpað mér að koma mér upp eigin stíl og ná reiprennandi tökum á tungumáli kvikmyndu- tökunnar." Hvernigem þessar auglýsingar? „Þær era eldd svo ólíkar kvikmyndinni. Ég hef alltaf haft kúnna sem hafa gefíð mér frjálsar hendur. Brotum úr auglýsingunum hefur verið safnað saman í rúmlega tuttugu mínútna mynd og þar má greina nokkrar af persónunum í myndinni, sumar persónumar er að finna á báð- um stöðum, til dæmis töframanninn." Var það fyrir eldhúsáhöld? „Hann var í auglýsingu Air France." Hvað fínnst þér þegar þú horfír á auglýsingar annarra kvikmyndagerðarmanna? „Mér finnst þeim hafa farið hrakandi. Og ég verð að játa að unga kynslóðin hefur valdið mér vonbrigðum. Hún hefur svo mikinn áhuga á því að verða fræg og rík eins fljótt og mögulegt er að hún er of fljót að selja sig. Það finnst mér dapurlegt. Ef til viU er ég dómharður, en þetta er mín skoðun." Svo virðist sem hvert atriði í myndinni sé afar skýrt í sjálfu sér en tengslin á milli atriða séu ekki eins Ijós. Þegar ég hófst handa á verkefninu vakti fyrir mér að rjúfa hefðina fyrir engilsax- nesku dramatúrgi, sem hefur verið ráð- andi í of mörg ár. í Svíþjóð er hægt að sækja námskeið í gerð sölumynda, sem fylgja alltaf sömu formúlu! Ég var orðinn þreyttur á henni og vildi gera kvikmynd úr öðru byggingarefni, mótaða af öðram þankagangi. Ég verð að játa að ég hef ekki gengið alla leið. Ég ætlaði mér að vera jafnvel enn róttækari, en hélt mig í nám- unda við hefðimar." Afhverju gekkstu ekki alla leið? „Ég veit það ekki. Ef myndimar gætu verið lengri hefði ég notað sundurlausari stílbrögð. En nú finnst mér eins og ég verði að hafa ein- hvem rauðan þráð. Ég leik ekki eins lausum hala og ég hefði óskað mér.“ Þurfa áhorfendur ekki haldreipi? „Jú, en ég hafði vonast eftir meira fijálsræði. Ég verð að játa að ég er íhaldssamari en ég gat ímyndað mér.“ Leikstjórinn Arturo Ripstein líkir þér við myndhöggvara og segir að þú sért einn af fremstu óþekktu leikstjómm íheiminum. „Já,“ svarar hann. „Það hefur verið ládeyða í Sviþjóð í tvo áratugi. Þú mátt ekki gleyma því að Bunuel gerði bestu myndir sínar frá því hann var sextugur og þar til hann varð áttræður. En við skulum bíða og sjá. Ég á enn eftir þrjú ár fram að sextugu og þá get ég byrjað," segir hann og hlær. Er bjart framundan í sænskri kvikmynda- gerð? „Já, ég held að það sé til nóg af hæfileikafólki. En það vinnur alltaf undir getu vegna þeirrar andlegu deyfðar sem sligar kvikmyndaiðnað- inn. Eg vona að á því verði breyting og mun beita mér fyrir því. Viðtökur Söngva af annarri hæð, að vera valin í aðalkeppni í Cannes og vinna til verðlauna, munu veita mér aukin áhrif, svo ef til vill get ég þokað einhverju." Hvaðan kemur þessi groddahúmor í Söngv- um af annarri hæð? „Ég veit það ekki,“ svarar hann og glottir prakkaralega. „Þetta er ekki skopskyn heldur sannleikurinn; er hann ekki spaugilegur og groddalegur?"

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.