Morgunblaðið - 29.09.2000, Page 15
MpKGUNBiAiJlij
BIOBLAB
KUKTUiJAGUK 29. SlpThMKKK 2000 10
KVIKMYNDAHÁ t í Ð
/? e y k j a V í K
Mike Figgis teflirfram tveimur myndum um syndafall
Ogurstundir karla og kvenna
FERILL breska leikstjórans
Mike Figgis er óvenjulegur í
besta máta. Hann fæddist í Kenýa
fyrir 51 ári en fluttist með for-
eldrum sínum til Neweastle á
Englandi átta ára að aldri. Hann
gerðist jazzleikari um nokkurra
ára skeið og hefur samið tónlistina
við sumar kvikmynda sinna. Þessi
bakgrunnur varð yrkisefni fyrstu
bíómyndar hans, Stormy Monday
(1988), sem fjallar einmitt um
jazzleikara í Newcastle og hremm-
ingar hans. Figgis vann í leikhús-
um áður en hann hóf kvikmynda-
gerð, en myndir hans fylla nú
tuginn. Sú frægasta er Leaving
Las Vegas (1995) og hann var til-
nefndur til Óskarsverðlauna fyrir
handrit hennar og leikstjórn. Nú
sýnir Kvikmyndahátíð í Reykjavík
tvær nýjar myndir eftir Mike
Figgis; þær spegla báðar fjölþætt-
an listrænan bakgrunn manns sem
virðist jafnvígur á hefðbundna
Hollywood-afþreyingu á borð við
spennutryllinn Internal Affairs
(1990), bókmenntadrama eins og
The Browning Version (1994) og
tilraunaverk eins og The Loss Of
Sexual Innocence (1999).
Missir kynferðislegs sakleysis er
einmitt önnur þeirra mynda sem
hátíðin sýnir. Þar tengir Figgis
saman nokkrar sögur úr lífi sama
manns og byggir myndina upp í
brotum en ekki samfeildri tímaröð.
Sum atvikin, sem henda aðalpers-
ónuna Nic, eru kómísk, önnur
„Þegar maður hefurgert kvik-
mynd sem fellur mörgum í geð
koma tilboðin í runurn," segir
Mike Figgis. „Þá dragnastmað-
ur með langan lista af verkefn-
um í huganum sem berjast um
athygli. Þær mynda minna sem
mér þykir vænst um eru Leav-
ing Las Vegas, The Loss Of
Sexual Innocence og Fröken
Júlía. Þærvoru allarteknará
16 mm filmu, voru ekki aðsókn-
armyndir á pappímum og kröfð-
ust mikillar baráttu af minni
hálfu til að afla peninga og
standast þá freistingu að gera
mynd sem skilaði enn meiri
peningum til baka.“
dramatísk, en öll eru þau púsl í
þeirri raðgátu sem persónuleiki
hans er, allt frá fimm ára dreng,
tólf ára unglingi, sextán ára tán-
ingi til fulltíða manns. Figgis, sem
einnig skrifar handritið og semur
tónlistina, tengir svo söguna af Nic
við gömlu Biblíusöguna um Adarri
og Evu og vísar þannig út fyrir sig
í algilt hlutskipti mannkynsins.
Julian Sands leikur Nic fullorðinn,
en hann hefur áður unnið með
Figgis í One Night Stand, Leaving
Las Vegas og The Browning Vers-
ion.
Hlutskipti konunnar er hins veg-
ar í brennidepli í hinni myndinni
eftir Figgis, sem hátíðin sýnir.
Þar tekst hann á við hið sígilda
leikrit Augusts Strindbergs,
Fröken Júlíu og fer aðalleikkonan
í Missi kynferðislegs sakleysis,
Saffron Burrows, með titilhlut-
verkið. Sjö ár eru síðan Figgis
ákvað að filma sígilt leikverk og
Fröken Júlía kom íljótlega í hug-
ann. „Leikritið fjallar um konu á
barmi sjálfsvígs; hún er brennur
afar hratt,“ segir hann. „Þetta er
tveggja manna kynferðistog-
hstreita og mér fannst verkið
smellpassa mér. Viðfangsefni eins
og kynhvöt og stéttaskipting geta
orðið leiðinleg í höndum minni
spámanna vegna þess að skáldin
eru að leika Guð. Það sem höfðaði
sérstaklega til mín í Fröken Júlíu
er að þrátt fyrir að verkið bjóði
upp á blýþungan áróður og hefð-
bundna bölsýni Strindbergs er það
í fullkomnu dramatísku jafnvægi.“
Figgis ákvað að taka myndina
nánast í „dogmastíl“. „Eg hef unn-
ið á þeirri línu undanfarin fimm ár
hvort eð er, nema hvað ég nota Ijós
og tónlist, því hún er mér mikil-
væg sem tónlistarmanni. En regl-
an um handmyndavél og lágmarks
tæknibúnað, náttúrulega lýsingu
eins og hægt er, fáar tökur og
stuttan tökutíma, er mér að skapi.
Mín útgáfa á Fröken Júlíu er því
ekki stúdíómynd, ekki hugguleg
bókmenntamynd í anda Merchants
og Ivory, heldur mjög persónuleg."
Missir kynferðislegs sakleysis: Púsluspil persónuleikans,
Síðustu samtöl víð Burroughs
Margt hæfileikamanna setur mark sitt á heimild-
armynd Johns McNaughton. Tom Waits, Danny
Elfman og Philip Glass eru á meöal tónlistar-
manna og þarna er að finna síðustu kvikmynd-
uðu samtölin við Allen Ginsberg og William S.
Burroughs.
Málverk Condos:
Nærmynd afsér-
stæðum iista-
manni.
John McNaughton spreytir sig
á nýstárlegri heimiidarmynd
Portrett af
poppTíszamanrn
ÞAÐ sem heillar listamanninn Ge-
orge Condo við popplistina eru
Campbells súpudósir. „Þær flokkuð-
ust ekki undir list fyiT en [Andyj
Warhol gerði þær að list,“ segir
hann. Þótt rætur þess framúrstefnu-
lega listamanns frá New York, sem
fæddist í Massachusetts árið 1957,
liggi í sígildum listaskólum er hann
allt eins líklegur til að skírskota til
sögupersónu í framhaldsþáttunum
Beverly HillbUlies eins og verka
Picassos.
„Ég sé engan mun á þessu,“ segir
hann. „Fyrir mér er þetta jafntrú-
verðugt." Að svo mæltu gerir hann
málverk sem er óaðfinnanlegt alveg
niður í minnstu smáatriði en í stað
Monu Lisu er það af höfuðlausri vís-
indaskáldsagnapersónu sem ætti
helst heima í framhaldsþáttunum
Ráðgátum. Condo hélt fyrstu einka-
sýningu sína í Los Angeles árið
1983. Síðan þá hafa verk hans, sem
samanstanda af málverkum, teikn-
ingum og höggmyndum, verið sýnd
viða í Bandaríkjunum og Evrópu.
Líf og Ust Condos er efniviður
heimildarmyndarinnar Málverk
Condos. John McNaughton leikstýr-
ir myndinni en hann hóf ferilinn á
gerð myndarinnar Henry, portrett
af fjöldamorðingja, sem kostaði að-
eins sjö milljónir króna í framleiðslu.
Myndin var hvergi sýnd íyrstu þrjú
árin en þá skaut henni upp á yfir-
borðið á Telluride-kvikmyndahátíð-
inni og var lofuð í hástert af gagn-
rýnendum. Hún var valin sem ein af
tíu bestu myndum ársins í Time,
USA Today, The Chicago Tribune
og The New York Post.
Eins og nærri má geta komst
skriður á feril McNaughtons sem
hefur leikstýrt ófáum verkefnum
eftir það, m.a. nokkrum myndum úr
Hollywoodsmiðjunni. Þar á meðal er
„Mad Dog and Glory“ með Robert
De Niro, Bill Murray og Umu
Thurman sem framleidd var af
Martin Scorsese. Þá leikstýrði hann
kynlífstryllinum „Wild Things“ með
Kevin Bacon, Matt Dillon, Neve
Campbell og Denise Richards.
Kveður við nýjan tón hjá David Lynch
Fyrirgefningin
i snart mig ojipsí
Á BEINU brautinni eða „The
Straight Story“ er ekki dæmigerð
kvikmynd úr smiðju bandaríska leik-
stjórans Davids Lynch, manns sem á
að baki um margt ógnvekjandi og
súrrealískar kvikmyndir úr kynja-
veröld eigin hugarflugs á borð við
Eraserhead, Fflamanninn, Blue
Velvet og Wild At Heart, auk fram-
haldsþáttanna Tvídranga. Þá ákveð-
ur hann skyndilega að gera lág-
stemmda kvikmynd, sem byggð er á
sönnum atburðum, og fjallar um
mörg hundruð kflómetra ferð 73 ára
gamalmennis á kraftlausri garð-
sláttuvél um Bandarfldn.
Lynch tekst afbragðsvel upp og
ekki síður Richard Farnsworth, sem
tilnefndur var til ösjcarsverðlauna
fyrir frammistöðu sína í hlutverki
Alvins Straight, sem fréttir að bróðir
sinn, Lyle (Harry Dean Stanton),
hafi fengið hjartaáfall og ákveður að
heimsækja hann til að sættast við
hann. Þar sem gamli maðurinn hefur
ekki efni á að kaupa sér farmiða, sér
of illa til að keyra og er of stoltur til
að þiggja far leggur hann af stað á
garðsláttuvélinni sinni, með birgða-
vagn í eftirdragi.
Á ferðalaginu verða fjölmargir
kynlegir kvistir á vegi gamla manns-
ins úr litskrúðugu persónugalleríi
Lynch. Þar er að finna kunnuglega
og sérkennilega útlítandi leikara,
sem efast má um að hafi vinnu þegar
snart mig dýpst,“ sagði hann á
fréttamannafundi, sem blaðamaður
Morgunblaðsins var viðstaddur.
Richard Famsworth bætti því við að
hann hefði ekki verið seinn að
stökkva á hlutverkið þegar honum
stóð það til boða.
„Ég var nýkominn úr aðgerð og
ekki vel á mig kominn líkamlega
þegar mér var boðið hlutverkið,“
segir hann. „Ég þurfti að ganga við
staf og þegar umboðsmaðurinn
hringdi og sagðist hafa lesið yndis-
legt handrit sagðist ég ekki vera viss
um að ég væri til stórræðanna.“ Hún
sagði: „Þú átt ekki eftir að trúa því
en þessi sögupersóna gengur við tvo
stafi.“ Og ég svaraði: „Eg ætti að
geta ráðið við það.“
Fimm kílómetrar á klukkustund
A beinu brautinni: Richard
Farnsworth ogSissy Spacek.
Lynch er ekki að leikstýra kvik-
myndum. En hvað var það sem hreif
Lynch við þessa sögu? „Það var
næmi handritshöfundanna [Mary
Sweeney og John Roach] fyrir til-
finningum og fyrirgefningin sem
Kvikmynd Davids Lynch, Á beinu brautinni, er afar hæg og einn gagnrýn-
andi lýsti henni svo að hún væri feröalag um Bandaríkin á fimm kíló-
metra hraöa.
„Ég þurfti að fá mérgamlan hjartagangráð til þess að geta þetta," sagði
Lynch um þetta á fréttamannafundi og kímdi.