Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 18
18 C FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BÍÓBLAÐIÐ
*
r
Hvað
liggur
undir?
Stundum er eins og öll rökhugs-
un sé 1 fríi í Hollywood. Hvernig
er annars hægt að útskýra
markaðssetningu „ What lies
beneath?
Myndin vartilraun Ósk-
arsverðlaunaleik-
stjórans Robert
Zemeckis (Forrest
Gump) til aðgera spennumynd í
anda Hitchcock heitins.
Þ6 myndin hafi almenntveriö
talin þokkalega heppnuð þá er
rétt að benda þeim sem hafa
minnstu löngun til aö sjá mynd-
ina, á það að forðast að sjá sýn-
ishorn eöa auglýsingarfyrir
myndina. Dreifingaraðilar mynd-
arinnar sáu sig nefnilega knúna
til að uppljóstra mörgum
stærstu leyndarmálum myndar-
innarí auglýsingaherferðinni.
Þriggja mínútna sýnishorn segir
áhorfandanum jafn mikið og 70
mínútur af myndinni sjálfri.
Sennilega ekki þótt nóg að hafa
Harrison Ford og Michelle
Pfeifferi aðalhlutverkunum, eða
hvað? Það væri svekkjandi fyrir
hvaða leikstjóra sem er (svo
ekki sé nú minnst á toppmann
eins og Zemeckis) að eftir að
hafaeyttfleiri
mánuðum í
undirbúning,
kvikmyndatök-
urog klipping-
ar, þar sem
mikið erfiði og
miklarpæling-
arfaraíað
Zemeckis: skapa spennu
Leyndarmálum j myndinni, að
Ijóstrað upp? þurfa svo að
sjá spennunni eytt á nokkrum
sekúndum löngu áöur en áhorf-
andinn er mættur í bíóiö!
Hefðu The Sixth Sense, The
Usual Suspects eða The Crying
Game orðið jafn vinsælar (eða
verið jafn áhrifamiklar) hefðu
áhorfendur vitað um leyndu flétt-
urnar í söguþráðum þeirra?
Gæði myndanna væru svo sem
jöfn eftir sem áður, en þetta
heföi óneitanlega dregiö mikið
úránægju áhorfandans.
Þó svo enn hafi veriö til staðar
nokkrar fléttur í söguþræði
„ What Lies Beneath" sem ekki
hafði verið Ijóstrað upþ um, þá
var stór hluti bíógesta sem
aldrei sá þær því þeir annað
hvortfóru á aðrar myndir, eða
gengu einfaldlega út á fyrsta
klukkutímanum af þessari. Það
er nefnilega ansi leiðinlegt aö
sitja í klukkutíma og bíða eftir
þvf að aðalpersóna myndarinnar
uppgötvi eitthvaö sem þú vissir
áður en þú fórst að heiman.
Kvikmyndarýnirinn frægi Rog-
erEherthafði einmittorð á
þessu í umfjöllun sinni um
myndina. Hann sagöi að þetta
væri svipað og ef maður skrepp-
ur út í búð þar sem verið aö
kynna nýjarpylsur. Maðurferí
rööina og fær að smakka lítinn
bita átannstöngli. Maðurkemst
þá að öllu sem maður þarf að
vita um þylsuna, öllu nema
hvernig er aö borða hana heila.
Væri sniðugra að fá bara að
finna lyktina.
Þegarjafn mikið er undireins
og miöasalan sem Hollywood lif-
irá, þá eróskiljanlegtaö verið
sé að „gefa" áhorfendum svo
mikiö að þeir missi áhuga á að
kaupa afganginn.
Frumsýning Regnboginn, Stjörnubíó, Borgarbíó Akureyri, Laugarásbíó og
Nýja bíó Keflavíkfrumsýna bandarísku gamanmyndina ScaryMovie.
Hlegiðað
nrolfinum
ALLT byrjar það með morðinu á
glæsilegum bekkjarfélaga í
menntaskóla en skólasystkini hans,
allt táningar sem leiknir eru af
fólki á þrítugsaldri, komast að því
að morðinginn er einn af þeim.
Þeirra á meðal er Cindy Campbell
(Anna Faris) en vinir hennar Buffy
(Shannon Elizabeth), Brenda (Reg-
ina Hall), Bobby (Jon Abrahams)
og aðrir reyna að verja sig fyrir
aðsteðjandi hættu. Fréttamaðurinn
frakki, Gail Hailstorm (Cheri Ot-
eri) lætur þau náttúrlega ekki í
friði og brátt fara fleiri að týna töl-
unni.
Þannig er söguþráðurinn í gam-
anmyndinni Scary Movie sem
frumsýnd er í flmm kvikmyndahús-
um á landinu í dag. Leikstjóri
hennar er Keenen Ivory Wayans en
hún gerir taumlaust grín að ýms-
um nýlegum unglingahrollvekjum
og öðrum myndum eins og Sjötta
skilningarvitinu, The Matrix og
The Blair Witch Project svo aðeins
nokkrar séu nefndar. Með aðal-
hlutverkin í henni fara Anna Faris,
Shannon Eiizabeth, Regina Hall,
Cheri Oteri og Shawn og Marlon
Wayans, bræður leikstjórans.
Eftir að hafa hlegið að ungl-
ingahrollvekjunum árum saman
ákvað Keenen Ivory Wayans að
grínast svolítið með þær en hann
lét ekki þar við staðar numið.
Scary Movie er meira en bara
skopstæling á einni tegund bíó-
mynda, hún tekur allt litróf gaman-
Leikarar:_____________________
Anna Faris, Shannon Elizabeth,
Regina Hall, Cheri Oteri og
Shawn og Marlon Wayans.
Leikstjóri:___________________
Keenen Ivory Wayans (l’m
Gonna Get You Sucka, A Low
Down Dirty Shame).
myndanna fyrir,“ er haft eftir hon-
um. „Kynlífskómedíuna, unglinga-
kómedíuna, gamanspennumyndina
og fleira. Það hófst allt með því að
ég gerði mér grein fyrir að ungl-
ingahrollurinn og spennumynd-
irnar voru allar sem ein byggðar á
þeim hryllingsmyndum sem ég ólst
upp við eins og Hrekkjavaka,
Föstudagurinn 13di og Martröð á
Álmstræti. En þótt andlitin í þeim
hafi breyst eru alltaf sömu fárán-
legu atriðin í þeim og þau öskra á
mann að spauga með þau.“
Leikstjórinn fékk til liðs við sig
álitlegan hóp leikara til þess að
taka þátt í gamninu. „Þetta er
mjög spennandi hópur,“ segir
hann. „Hver og einn smellur í sína
rullu og leikararnir hafa lagt mjög
hart að sér. Við æfðum saman í
tvær vikur áður en kvikmyndatak-
an hófst og ég sendi þá alla heim
til sín á kvöldin með heimaverk-
efni. Þeir lögðu hart að sér og það
Menntaskólaskvísurnar: Skólafélagi myrtur.
sýnir sig í myndinni.
Við settum okkur einn-
ig mjög í spuna-
stellingar á meðan á
tökum stóð og það kom
heilmikið út úr því
líka.“
Leikstjórinn Wayans
er þekkastur í Banda-
ríkjunum fyrir
sjónvarpsþættina sem
hann stendur að ásamt
bræðrum sínum en þeir
heita In Living Color.
Fyrsta myndin sem
Keenen lék í var Holly-
wood Shuffie eftir
Robert Townsend.
Fyrsta myndin sem
Keenen leikstýrði var
hins vegar skopstæling
á svertingjamyndum
áttunda áratugaríns og
hét I’m gonna Get You
Sucka.
Scary Movie: Hér fá Scream-myndirnar skeyti.
Frumsýning Háskólabíó og Kringlubíó frumsýna frönsku spennu- og gaman-
myndina Taxi 2en framleiöandi og handritshöfundur hennar er Luc Besson.
Meiri braði.
meiri násar
Lögregiuforingi með mikilvægt verkefni: Bernard Farcy íhlutverki sínu.
Emilien (Frédéric Diefenthal): Meðjapansktgiæpagengiá hælunum.
VARNARMÁLARÁÐHERRA Jap-
ans ætlar að kynna sér hvernig
Frakkar skipuleggja baráttu gegn
hryðjuverkastarfsemi í eigin landi og
í framhaldi af því mun verða undirrit-
aður „samningur aldarinnar" á milli
landanna tveggja. En ráðherranum
er rænt og Daniel (Samy Nacéri) og
Emilien (Frédéric Diefenthal) flækj-
ast inn í ný ævintýri þegar þeir hefja
leit að þessum tignargesti.
Emilien tekur enn sem fyrr starf
sitt mjög alvarlega. Hann er í betra
líkamlegu formi
en ekki afkasta-
meiri að öðru
leyti. Það verður
enn og aftur Dán-
iel sem kemur
honum til bjarg-
ar. Nær Emilien
loks ökuprófinu?
Tekst honum að
vinna ástir hinnar
tilkomumiklu
Petru?
Daniel hefur
betrumbætt
leigubílinn sinn og fyllt hann af alls-
kyns aukahlutum og græjum. Hann
samþykkir að aðstoða föður hinnar
heittelskuðu Lilyar og situr þar með
uppi með hinn ráðvillta Emilien sér
við hlið og japanskt gengi á hælum
sér.
Lögreglúforinginn (Bernard
Farcy) tvíeflist þegar hann fær út-
hlutað mikilvægasta verkefni starfs-
ferils síns en það ber heitið „Ninja“.
Honum er uppálagt að gæta jap-
anska ráðherrans en sem fyrr er lög-
regluforinginn ekki alveg með á nót-
unum og allt sem hann kemur nálægt
fer í vaskinn.
Þannig er söguþráðurinn í fram-
haldsmyndinni Taxi 2, sem Luc Bess-
on skrifar handrit að og framleiðir en
hún er frumsýnd í Háskólabíói og
Kringlubíói. Leikstjóri er Gérard
Krawczyk en með aðalhlutverkin
fara Samy Nacéri, Bernard Farcy,
Marion Cotillard og sænska súper-
módelið og fegurðardísin Emma
Sjöberg. Hér er á
ferðinni sjálf-
stætt framhald
myndarinnar
Taxi, sem
frumsýnd var
fyrir tveimur ár-
um og naut vin-
sælda. Fram-
haldsmyndin var
frumsýnd í
Frakklandi í vor
og er aðsóknar-
mesta mynd árs-
ins þar.
„Eg tók að mér að leikstýra upp-
hafi fyrri Taxi-myndarinnar þar sem
leikstjórinn Gérard Pires var á spít-
ala,“ er haft eftir leikstjóranum,
Krawczyk. „Ég hafði mjög gaman að
þeirri vinnu. Árið eftir hitti ég Luc og
þá kom til tals hugmyndin að gera
framhaldsmynd og hann bauð mér að
leikstýra henni. Þetta vai- heilmikil
áskorun þegar litið er til ótrúlegra
vinsælda hinnar myndarinnar. Nýja
myndin yrði að hafa sama fersk-
leikann og kraftinn og persónurnar
yrðu að vera jafn aðlaðandi og fyndn-
ar svo ekki sé minnst á öll áhættuatr-
iðin og hasarinn sem þurfti að slá út!“
Og áfram heldur leikstjórinn:
„Þegar ég las handritið sá ég að
þetta yrði meira eins og ný mynd en
þó með sömu persónum og áður. Við
reyndum að gera fyndari og hraðari
mynd með enn meiri hasai' en sú
fyrri. Myndin hefst í Marseille og
endar í París. Vondu gæjarnir eru
japanskt glæpagengi og þeir sýna
ótrúlegustu listir."
Meiri
mm
meíri hasar
Leikarar:
Samy Nacéri, Bernard Farcy,
Marion Cotillard og Emma
Sjöberg.
Leikstjóri:
Gérard Krawczyk.
mfL,
ai'Ýiil
i.
Ú2L2k
iÉlHHHÉtfHÉÍHKMMMi