Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
BÍÓBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 C 19
Bíóin í borginni
Sæbjöm Valdimarsson/Amaldur Indriöason/Hildur Loftsdóttir
NÝJAR MYNDIR
TAXI2
Háskólabíó kl. 6-8-10. Laugardagkl. 2-4-6
-8.
Krlnglubíó M. 6-8-10. Aukasýning föstudagkl.
12, sýnd 10:10 laugardag og sunnudag.
SCARY MOVIE
Laugarásbíó kl. 6 - 8 - 10. Aukasýningar föstu-
dag/laugardag/sunnudag 4 og 12.
Stjörnubíó kl. 6-8-10. Aukasýningar föstudag
kl. 12, laugardag/sunnudag kl 4.
Regnboginn kt. 4 - 6 - 8 - 10. Aukasýningar
föstudag kl. 4-12- 02, iaugardag kl. 2 og 12,
sunnudagkl 2.
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í REYKJAVÍK
Sjá miðopnu Bíóblaðsins.
FORSÝNINGAR
U - 571
Kringlubíó föstudagkl. 12.
ÁSTRÍKUR OG STEINRÍKUR
Bíóhöllin sunnudagkl. 1:50 og 4. ísl. tal.
DANCERIN THE DARK ★★★★
DRAMA
Leikstjóri: Lars Von Trier. Aðalhlutverk: Björk Guö-
mundsdóttir, Peter Stormare, Catherine Deneu-
ve.
Túlkun Bjarkarí nýjustu mynd danska
leikstjórans Lars Von Triers er alveg
einstök og heldur uppi brothættum
söguþræði.
Bíóhöllln kl. 5:45 - 8:15.
Háskólabíó kl. 5:20-8-10:40.
ÍSLENSKI DRAUMURINN ★ ★★★
GAMAN
íslensk. 2000 Leikstjóri: Robert Douglas. Aðal-
leikendur: Þórhallur Sverrison, Jón Gnarr, Hafdís
Huld.
íslensk gamanmynd, sem er mein-
fyndin, hæfilega alvörulaus en þó
með báða fætur í íslenska veruleik-
anum, er komin fram. Alveg hreint af-
bragðsgóð mynd.
Bíóhöllin kl. 4-6-8-10. Aukasýningarlaugar-
dag/sunnudag kl. 2.
Bíóborgln kl. 8:15.
TOY STORY 2 ★★★% TEIKNIMYND
Bandarísk. 1999. Leikstjóri og handrit: John
Lassiter. ísl. talsetning. Raddir: Felix Bergsson,
Magnús Jónsson, Ragnheiöur Elín Gunnarsdóttir,
HaraldG. Haralds, AmarJónsson, SteinnÁrmann
Magnússon o.fl.
Framhald bráðskemmtilegrar og fjöl-
skylduvænnar teiknimyndar og gefur
henni ekkert eftir nema síöur sé.
Dótakassinn fer á stjá oggullin lenda
í hremmingum útum borg og bý;
dæmalaust skemmtilegarfígúrur.
Bíóhöllin: Alla daga kl. 4. Aukasýning taugardag/
sunnudagkl. 2.
HIGH FIDELITY ★★★ GAMANMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Stephen Frears. Aó-
alleikendur: John Cusack, Ibeb Hjejle, Todd Lou-
iso, Jack Black.
Skondin og mannleg mynd um sjálfs-
vorkunnsamt fórnarlamb í ástarmál-
um. Frábærirleikarar.
Bióhöllln kl. 5:55-8-10:10.
Kringlubíó kl. 8-10:10. Laugardag og sunnudag
kl. 8..
GLADIATOR ★★★ SPENNA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Ridley Scott. Aðal-
hlutverk: Russell Crowe.
Fantagóður skylmingahasar meö
sögulegu ívafi þar sem Crowe er frá-
bær sem skylmingakappinn og Scott
tekst að ná fram alvöru stórmynda-
blæ.
Laugarásbíó: Föstudag/laugardag kl. 7 og 10,
annars kl. 8
101 REYKJAVÍK ★★★
GAMAN
íslensk. 2000. Leikstjóm og handrit: Baltasar
Kormákur. Aðalleikendur: Victoria Abril, Hilmir
Snær Guðnason, Hanna María Karlsdóttir, Balt-
asar Kormákur.
Svört kynlífskómedía úr hjarta borg-
arinnar, nútímaleg og hress sem
skoðar samtímann í frísklegu og
fersku Ijósi raunsæis og farsa. Vel
leikin, einkum af hinni kynngimögn-
uðu Almodóvar-leikkonu Victoriu Abr-
il og er yfir höfuð besta afþreying.
Háskólabíó: Alla daga kl. 6 - 8.
MISSION: IMPOSSIBLE 2 ★★★
SPENNA
Bandarísk. 2000. Leikstjóm: John Woo. Handrit:
Nicky Butt. Aðalleikendur: Tom Cruise, Thandie
Newton.
Cruise er eiturbrattur í skemmtilega
gerðri framhaldsmynd hasarmynda-
leikstjórans Johns Woo. Fínasta
sumarskemmtun.
Háskólabíó: Alla daga kl. 8.
STJÖRNULEIT - GALAXY QUEST
★★★ GAMAN
Bandarísk. 1999. Leikstjóri Dean Parisot. Hand-
rit: David Howard. Aðalleikendur: Tim Allen, Sig-
oumey WeaverogAlan Rickman.
Hress og vel skrifuö grínmynd sem
skopast að Star Trek-dellunni og
Trekkurunum. Segir af óvæntum æv-
intýrum B-leikara í misskildum guöa-
hlutverkum í útheimi. Aðalleikararnir
hitta réttatóninn.
Háskólabíó: Alla daga kl. 10:30.
X-MEN ★★★ SPENNA
Bandarisk. 2000. Leikstjóm og handrit Bryan
Singer. Aðalleikendur: Patrick Stewart, lan
McKellen, Famke Janssen.
Fín afþreying sem kynnir áhorf-
andann fyrir áhugaverðum persónum
og furðuveröld stökkbreytta fólksins.
Sagan ofureinföld, boðskapurinn
sömuleiðis, en stendurfyrir sínu. Að-
alleikararnir eru góðir, bestur Hugh
Jackson sem Jarfi.
Regnboginn: kl. 8-10.
HOLLOW MAN ★★% SPENNA
Leikstjóm: Paul Verhoeven. Aðalleikendur: Kevin
Bacon, Elizabeth Shue, Josh Brolin, William Dev-
ane.
Vísindamaður missir stjórn á sér
þegar hann gerist ósýnilegur og við
tekur ásjálegur en heldur dellu-
kenndur spennutryllir.
Bíóhöllln kl. 5:50-8-10:15. Aukasýning föstu-
dag/laugardagkl. 4.
Stjörnubíó kl. 5:45-8-10:20. Aukasýninglaug-
ardag/sunnudag kl. 3:30.
Laugarásbíó kl. 8 -10:10.
TITAN A.E. ★★*>£ TEIKNIMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjórar: Don Bluth og Gary
Goldman. íslensk talsetning: Hilmir Snær Guðna-
son, Pálmi Gestsson, Þórunn Lárusdóttirofl.
Spennandi og skemmtileg geim-
fantasía um ungan mann sem hefur
það á valdi sínu aö bjarga mannkyn-
inufrá glötun.
Regnboginn. íslenskt tal kl. 4 - 6. Aukasýningar
laugardag2-8-10, sunnudagkl. 2-8.
Bíóhöllin. íslenskt tal kl. 4. Aukasýning laugar-
dag/sunnudagkl. 2. Enskt tal. 6:10-8-10.
UNDER SUSPICION ★★1/2 SPENNA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Stephen Hopkins.
AöaUeikendur: Gene Hackman, Morgan Freeman.
Hackman og Freeman eru í essinu
sínu í óvenjulegri spennumynd sem
segirfrá lögfræðingi sem grunaöurer
um morð og lögreglustjóranum sem
reynir að fá sannleikann út úr hon-
um.
Háskólabíó kl. 5:30-8.
PITCH BLACK ★★% SPENNA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: David Twohy. Hand-
rit: Ken og Jim Wheat og Twohy. Aðalleikendur:
Vin Diesel, Radha Mitchell og Cole Hauser.
Skemmtilega unninn útgeimstryllir
um strandaglópa á eyðilegri plánetu
sem verða fyrir árásum skrímsla þeg-
arsólmyrkvi veröur.
Háskólabíó kl. 10.
BIG MOMMA’S HOUSE irkVi GAM-
AN
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Raja Gosnell. Hand-
rit: Darryl Quaries. Aðalleikendur: Martin
Lawrence, Nial Long, Paul Giamatti.
Grínleikarinn Martin Lawrence bregð-
ur sér í gervi roskinnar og hávaða-
samrar ömmu í dálaglegu sumargríni
fyrir alla fjölskylduna. Ágætis
skemmtun og Martin fer stundum á
kostum.
Bíóhöllln kl. 4 - 6 - 8 -10. Aukasýning föstudag
kl. 12, laugardag/sunnudag 2.
Regnboginn kl. 6 - 8 -10 Aukasýningar föstudag
kl. 12, laugardag2-4-13, sunnudag2-4, eng-
insýningkl. 8..
MUSIC OFTHE HEART ★★1/>
DRAMA
Bandarísk. 1999. Leikstjóri: Wes Graven. Hand-
rit: Pamela Gray. Aðalleikendur: Meryl Streep,
Aidan Quinn og Gloria Estafan.
Frábær sönn saga sem gerð er að
hálfgerðri klútamynd undir stjórn
Wes Cravens.
Regnboginn kl. 5:50. Aukasýning laugardag/
sunnudag kl. 3:40.
SHANGHAI NOON ★★% GAMAN
MYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Tom Dey. Aðalleik-
endur. Jackie Chan, Owen Wilson, LucyLi.
Hressilegur og skemmtilegur gaman-
vestri með flottum bardagaatriðum
en stundum lummulegum húmor.
Laugarásbíó kl. 6. Aukasýningar föstudag/laug-
ardag/sunnudagkl. 4.
ERIN BROCKOWICH ★★%
SPENNA
Bandarísk. 2000 Leikstjóri: Steven Soderbergh.
Handrit: Susannah Grant. Aðalleikendur: Julia
Roberts, Albert Finney, Marge Heigcnberger, Aar-
on Heckart.
Óvenjuleg kvikmyndahetja, einstæð
móðir með þrjú böm (Julia Roberts),
gerist rannsóknaraöili á lögfræöi-
stofu (Albert Finney) og hleypir af
stað stærsta skaðabótamáli í sögu
Bandaríkjanna. Jólasveinsleg en
sleppur, þökk sé meistara Finney og
Roberts sem sýnir tilþrif í langri en
notalegri afþreyingu Stevens Soder-
bergh.
Regnboginn: Alla daga kl. 8 -10:20.
THE PERFECT STORM ★★%
SPENNA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Wolfgang Petersen.
Handrit: Sebastian Junger. Aðalleikendur; Ge-
orge Clooney, Mark Wahlberg.
Spennandi og vönduð afþreying um
sjómenn í lífsháska. Tölvubrellurnar
áhrifaríkar en sögunni helst til ábóta-
vant.
Bíóhöllin kl. 8-10. Laugardag/sunnudag aðeins
kl. 10.
STÚART UTLISTUART LITTLE
★★^ FJÖLSKYLDUMYND
Bandarísk. 1999. Leikstjóri: Rob Minkoff. Hand-
rit: M. Night Shaymalan og Greg Brooker. Aðal-
leikendur: Geena Davis, Hugh Laurie, Jonathan
Upnicki.
Músin Stúart er svo sæt og raunveru-
leg. Ágætis fjölskyldumynd sem vant-
ar örlítinn kraft og galdra.
Regnboginn: Aðeins um helgarkl. 2.
TUMITÍGUR - íslenskt tal ★★1/2
TEIKNIMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Jun Falkenstein.
Handrit: A.A. Milne. Raddir Laddi, Jóhann Sigurö-
arson, Sigurður Sigurjónsson, ofl.
Þokkaleg teiknimynd fýrir yngstu
kynslóðina segir af ævintýrum Tuma
og vinar hans.Góö talsetning.
Bíóhöliin: kl. 4. Aukasýning laugardag/sunnudag
kl.2.
Kringlubíó: kl. 4. Aukasýning laugardag/sunnu-
dag kl.2.
Laugarásbíó: kl 4. Aukasýningar laugardag/
sunnudagkl. 2.
ROADTRIP ★★
GAMANMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Todd Phillips. Aðal-
leikendur: Breckin Meyer, Seann William Scott,
AmySmart.
Nokkuð lyndin gamanmynd um fjóra
lúða á ferðalagi. Hlutverk hins súra
Tom Greens mætti vera stærra.
Kringtubíó ki. 4-6-8-10. Aukasýningar föstu-
dag kl. 12:15. Laugardag/sunnudag kl. 2.
Laugarásbíó kl. 6 - 8 - 10. Aukasýningar föstu-
dag/laugardag kl. 4 ogl2, sunnudagkl. 4.
WHERE THE HEARTIS ★★
DRAMA
Bandarisk. 2000.Leikstjóri: Matt Williams. Hand-
rit: Loweli Ganz og Babaloo Mandel. Aðalleikend-
ur: Natalie Portman, Ashley Judd, Stockard
Channig og Joan Cusack.
Aöallega amerískt melódrama með
ágætum sprettum. Fjallar um sér-
stakt Iffshlaup Novalee Nation sem
Natalie Portman leikur ágætlega.
Háskólabíé kl. 5:30.
GONEIN 60 SECONDS ★★ DRAMA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Dominic Sena.
Handrit: Scott Rosenberg. Aöalleikendur. Nicolas
Cage, Angelina Jolie.
Bíóhöllin: Alla daga kl. 8 - 10:10. Aukasýning
föstudag kl. 12:15.
THE PATRIOT - FRELSISHETJAN
★★ STRÍÐ
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Roland Ennerich.
Handrit: Robert Rodat. Aðalleikendur: Mel Gib-
son, Heath Ledger, Chris Cooper.
Regnboginn kl. 10.
RETURN TO ME ★★ DRAMA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Bonnie Hynt. Hand-
rit: Don Lake, Hunt. Aðalleikendur: David
Duchovny, Minnie Driver.
Laugarásbíó: Föstudagoglaugardagkl. 8.
ROMEO MUST DIE ★★
SPENNA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Andrzej Bartowiak.
Handrit: Nicky Butt. Aðalleikendur Jet Li, Delroy
Lindo.
Li flýgurfimlega um loftin blá og virð-
ist liðtækur sem nýjasti loftfimleika-
slagsmálahundur kvikmyndanna í
hefðbundnum hefndartrylli.
Bíóhöllin: Alla daga kl. 10:05. Aukasýning föstu-
dagkl. 12:10.
THREE TO TANGO ★★ GAMAN
Bandarísk. 2000. Leikstjóri og handrit: Damon
Santostefano. Aðalleikendur: Matthew Perry,
Neve Campbell, Dylan McDermott.
Kringlubíó: Alla daga kl. 6.
BOYS AND GIRLS ★% GAMAN
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Robert Iscove. Aðal-
leikendur: Freddie Prinze, Claire Forlani.
j/k
Klisjukennd og ófrumleg mynd um
vini í háskóla sem eru að farast úr
ást á hvort öðru án þess að vilja viö-
urkenna það.
Regboginn kl. 8-10.
COYOTE UGLY ★% DRAMA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: David McNally. Aðal-
leikendur: Piper Perabo, Adam Garcia, John
Goodman, Maria Bello.
Bíóhöllin kl. 4 - 6 - 8. Aukasýning laugardag/
sunnudag kl. 2.
STEINALDARMENNIRNIR - THE
FLINTSTONES: VIVA ROCK VEGAS
★% FJÖLSKYLDUMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Brian Levant. Hand-
rit: Bruce Cohen. Aðalleikendur: Mark Addy,
Stephen Baldwin.
Háskólabíó: Laugardag ogsunnudag kl. 2 - 4.
BATTLEFIELD EARTH ★
SPENNUMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Roger Christian. Að-
alleikendur: John Travolta, Barry Pepper, Forest
Whitaker.
Háskólabíó kl. 10:15.
StJörnubfó kl. 8 -10:20.
POKEMON/ÍSL. TAL ★
BARNAMYND
Japónsk. 1999. Leikstjórar: M'ichael Hargrey,
Kunohiko Yuyama. Handrit: Norman J. Gmssfeld,
Takeshi Shudo. Teiknimynd.
Bíóhöllin: kl. 4. Aukasýning laugardag/sunnudag ’ *
kl.2.
Kringlubfó: Alla daga kl. 4-6. Aukasýning laugar■
dag/sunnudag kl. 2.
BARN í VÆNDUM - MAYBE BABY
★ GAMAN
Bresk. 2000. Leikstjóri: Handrit: Aðalleikendur
Hugh Laurie, Joely Richardson, Rowan Atkinson.
Háskólabíó: kl. 8.
m
Shue e?éfta
Ci/ínmunH Bandaríska leik-
ovipmynu konan Eilsabeth
EftirAmald Shue fer með ann-
Indriðason að aðalhlutverkið í
spennutrylli Paul
Verhoevens, Huldumanninum eða
Hollow Man. Hún leikur vinkonu
ósýnilega mannsins sem eltir hana á
röndum og hún reynir að átta sig á
honum og skilja og stendur sig vel í
hlutverkinu, sem kemur ekki á óvart
þeim sem sáu hana til dæmis í Leav-
ingLasVegas.
Hún er fædd í New Jersey fyrir 36
árum og byrjaði á því að leika í
auglýsingum fyrir Burger King.
Þaðan lá leiðin í myndir sem helst
voru ætlaðar unglingum eins og The
Karate Kid og Adventures in Baby-
sitting. Það var gamanmynd sem
sagði frá ævintýrum barnapíu er El-
isabeth lék af kostgæfni og kom
verulega á óvart fyrir húmor og
skemmtileg tilþrif. Hún hafði útlitið
með sér í hlutverk „góðu stúlkunnar"
þegar hún fór að leika í myndum fyr-
ir fullorðna og var flekklaus í mynd-
um eins og Cocktail og Aftur til fram-
tíðar II og III. Hún var fín í Soapdish
í hlutverki metnaðarfullrar leikkonu
en The Marrying Man og Heart and
Souls gerðu lítið fyrir hennar feril.
Það gerði hins vegar bölsýnis-
mynd Mike Figgis, Leaving Las
Vegas árið 1995. „Góða stúlkarí1 varð
götumella í Las Vegas og jarðaði
fyrri ímynd sína. Mellan lenti í slag-
togi með drykkjuræfli, sem Nicholas
Cage lék, og saman áttu þau ein-
hverjar súrustu stundir kvikmynd-
anna. Shue gaf Cage ekkert eftir og
átti það jafnvel til að stela frá honum
senunni sem tilfinningalega skemmd
mella og hún var útnefnd til Óskars-
verðlauna.
Þau féllu henni ekki í skaut. Susan
Sarandon vann það árið fyrir leik
sinn í Dead Man Walking en það var
engin ástæða til annars en að ætla El-
isabeth Shue aukinn frama í
draumaborginni og að hún fengi bita-
stæð hlutverk. Sú varð af einhverjum
ástæðum ekki raunin. Hún lék í miðl-
ungsmyndum og þaðan af verri eins
og The Trigger Effect, Palmetto og
Cousin Betty. Ljósi punkturinn var
mynd Woody Allens, Deconstructing
Harry, þar sem hún fór með lítið
hlutverk.
Hasarleikstjórinn ástralski, Phillip
Noyce, setti hana í stórmyndina
Dýrlinginn eða The Saint á móti Val
Kilmer, sem átti að verða ein af stór-
myndum sumarsins í þá tíð. Myndin
reyndist hins vegar gersamlega mis-
heppnuð, óspennandi og furðulega
heimskuleg (gervi Val Kilmers voru
fjöldamörg og öll jafnhlægileg) en
Huldumaðurinn hefur reynst ágæt-
lega vinæl og enn vakið athygli á El-
isabeth Shue sem einnar af bestu
leikkonunum vestanhafs. Huldumað-
urinn er lauslega byggð á Ósýnilega
manninum eftir H.G. Wells með Kev-
in Bacon í hlutverki brjálaða vísinda-
mannsins, sem finnur upp aðferð til
þess að gera sjálfan sig ósýnilegan en
við það breytist talsvert hans innri
maður.
Shue er þessa dagana að taka
lokapróf í stjómmálafræði við Harv-
ard-háskóla. Hún átti eina önn eftir
en háskólanám sitt hóf hún fyrir
nítján árum. Hún er spurð að því í
nýlegu hefti bandaríska kvik-
myndatímaritsins Movieline hvers
vegna hún hafi ákveðið að hverfa aft-
ur í háskólann og hún svarar: „Heil-
inn í mér var við það að þurrkast upp.
Maður er heppinn í Hollywood ef
maður fær hlutverk þar sem heilinn
kemur yfirleitt við sögu. Mér fannst
eins og ég þyrfti að gera eitthvað
meira með líf mitt. Ég vildi tengjast
heiminum betur.“
Elisabeth segist einnig viija hafa
að einhverju að hverfa þegar hún
eldist og hlutverkunum fækkar. „Ég
sé sjálfa mig ná ákveðnum aldri þar
sem hlutverkin eru ekki lengur eins
spennandi og þau voru og ég get ekki
ímyndað mér að líf mitt endi um það
bil sem ég þarf að fara í fyrstu and-
litslyftinguna.“
Eiisabeth Shue
er 36 ára gömul og lýkur námi í
stjórnmálafræði við Harvard-
háskóla um það bil sem Huldu-
maöurinn fer um allan heim.
Hún segist hafa verið að leita
séraðhlutverkiístórmyndþeg-
ar Huldumaðurinn bauðst og
hafði gaman af að leika á móti
Kevin Bacon. Þótt hann sé
ósýnilegur í myndinni lék hann
á móti henni í hverju einasta
atriði þeirra saman. Síðar var
hann strokaður út ef með
þurfti.
0