Morgunblaðið - 17.11.2000, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dómsmálaráðherra boðar frumvarp um þyngingu refsinga fyrir fíkniefnabrot
Margrét Frímannsdóttir, Samfylkingu, var málshefjandi utandagskrárumræðu um ein-
angrunarvistun fanga og fjárskort fíkniefnalögreglunnar.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra vísaði því á bug að í gildi væri
yfirvinnubann í fíkniefnalögreglunni.
Leggur til fjölgun
lögreglumanna og
sjóð til stórverkefna
SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra sagði í utandagskrárum-
ræðu á Alþingi í gær að hún hefði
lagt fram tillögu til fjármálaráð-
herra um fjölgun lögreglumanna,
fjölgun fíkniefnaleitarhunda og sér-
stakan sjóð til að kosta sérstakar
rannsóknir sem ekki rúmast innan
ramma venjulegrar starfsemi lög-
reglunnar. Þá sagðist dómsmálaráð-
herra innan skamms myndu leggja
fram á Alþingi frumvarp til laga um
þyngingu refsinga fyrir fíkniefna-
brot.
Sólveig vísaði því alfarið á bug að í
gildi væri yfirvinnubann hjá fíkni-
efnadeild lögreglunnar 1 Reykjavík.
Hún sagði rétt að rannsóknardeild
LR hefði farið fram úr fjárhagsáætl-
un vegna umfangsmikilla rannsókna
á þessu ári, en Sólveig sagði að hún
hefði gefið fyrirmæli um að rann-
sókn umræddra mála yrði haldið
áfram af fullum krafti og lögreglunni
yrði gert kleift að mæta þessum yfir-
vinnugreiðslum. Hún sagði einnig að
á tímabilinu 11. október til 10. nó-
vember hefðu verið skráðir 900 yftr-
vinnutímar í fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavik en
starfsmenn eru 12.
Margrét Frímannsdóttir, Sam-
fylkingu, var málshefjandi utandag-
skrárumræðu um einangrunarvisU
un fanga og fjárskort fíkniefna-
lögreglunnar. Tilefnið var ummæli
Sveins Andra Sveinssonar hæsta-
réttarlögmanns m.a. í dagblaðinu
Degi þess efnis að fjárskortur fíkni-
efnalögreglunnar hefði leitt til þess
að menn sætu í gæsluvarðhaldi og
einangrun dögum saman, án þess að
vera yfirheyrðir. Sagði hún hafa
komið fram að lögmaðurinn hefði
skrifað lögreglunni bréf þar sem
óskað var eftir skýringum á því hvað
ylli töfum á rannsókn á máli skjól-
stæðings hans. Engin skýr svör
hefðu fengist og í sumum tilfellum
reyndar neitað að svara á þeirri for-
sendu að leynd væri yfir starfsað-
ferðum lögreglu, rannsóknarhags-
munir krefðust þess.
Margrét sagði erfitt að sjá hvern-
ig rannsóknarhagsmunum lögreglu-
máls væri ógnað með því t.d. að
svara spumingum verjanda um
þann tímafjölda, sem farið hefði á
síðustu þremur vikum í yfirheyrslur
yfir skjólstæðingi hans. „Þvert á
móti virðist að þar sé verið að neita
veijandanum um upplýsingar, sem
engu máli skipta varðandi rannsókn-
arhagsmuni og ekki leiða til hættu á
því, að rannsóknargögnum verði
spillt, en gætu hins vegar orðið til
þess að gæsluvarðhaldi yrði
hnekkt,“ sagði hún.
Vitnaði Margrét síðan m.a. til þess
álits Ólafs Ólafssonar, fyrrv. land-
læknis, að einangrunarvistun sem
næði yfir lengri tíma en þrjár til
fjórar vikur gæti valdið verulegu
heilsutjóni hjá föngum, og þá fyrst
og fremst skaðað geðheilsu þeirra.
Loks þekktust þess einnig dæmi að
saklausir menn hefðu orðið fyrir
heilsutjóni eftir langa einangrunar-
vist á meðan mál þeirra voru rann-
sökuð.
Dómsmálaráðherra gagnrýndi
stjórnarandstöðuna fyrir að láta líta
svo út sem löggæslan í landinu væri í
kaldakoli, engu líkara væri en
markmiðið væri að rýra traust al-
mennings á lögreglunni. Staðreynd-
in væri þó sú að lögreglan hefði unn-
ið frábært starf að undanfómu, ekki
síst í tengslum við fíkniefnamál.
Sólveig tók reyndar fram að því
miður færi ísland ekki varhluta af
þeirri óhugnanlegu þróun sem orðið
hefði í nágrannaríkjunum og lýsti
sér í auknu smygli fíkniefna og mjög
alvarlegum afbrotum. „Ég tel því
fulla ástæðu til þess að lýsa því hér
yfír að ég hef nú þegar lagt fram til-
lögu til fjármálaráðherra um veru-
lega aukningu fjárframlaga til þessa
málaflokks. Tillögur sem miða að
fjölgun lögreglumanna, fjölgun
fíkniefnaleitarhunda og um sérstak-
an sjóð til að kosta umfangsmiklar
rannsóknir sem ekki rúmast innan
venjubundins rekstrar lögreglunn-
ar. Verður unnið að útfærslu þess-
ara tillagna í ríkisstjóminni á næst-
unni,“ sagði hún.
Málshefjandi hafði lagt fram
nokkrar spurningar til dómsmála-
ráðherra. Kom m.a. fram í svari Sól-
veigar að 24 einstaklingar væm nú í
gæsluvarðhaldi, þar af 6 í einangrun.
A síðustu þremur árum hefði 241
einstaklingur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald, þar af hefðu 76 verið
í einangrun lengur en þijár vikur
samfellt. Hún svaraði spurningu
þess efnis, hvort ráðherra hygðist
setja reglur er varða hámark þess
tíma sem einstaklingur er vistaður í
einangran, á þann veg að þar væri
um löggjafaratriði að ræða en ekki
reglusetningu ráðherra. Þetta atriði
kæmi hins vegar til skoðunar hjá
nefnd sem nú vinnur að endurskoð-
un laga um meðferð opinberra mála.
Dómstólar komi að
ákvörðunum um einangrun
Margir þingmenn lögðu orð í belg
í gær. Þuríður Backman, Vinstri
grænum, sagði yfirvinnubann í gildi
hjá fíkniefnalögreglunni þó að ráð-
herra héldi öðra fram en Jón Krist-
jánsson, Framsóknarflokki, hafnaði
fregnum um yfírvinnubann og sagði
fullan vilja innan stjórnarflokkanna
að taka fast á þessum málum. Guð-
jón A. Kristjánsson, Fijálslynda
flokknum, taldi ekkert mega skorta
á, tryggja þyrfti öryggi borgaranna
vegna tíðra brota í tengslum við
fíkniefni en Guðrún Ögmundsdóttir,
Samfylkingu, lagði hins vegar
áherslu á hve einangrun í gæslu-
varðhaldi væri alvarlegt úrræði.
Taldi hún að dómstólar ættu að
koma að ákvörðun þar að lútandi.
Þorgerður K. Gunnarsdóttir,
Sjálfstæðisflokki, sagði einangran
aðeins beitt í þágu rannsóknarhags-
muna. „Ég hef enga trú á að þeir
fagaðilar sem koma að refsimálum
eins og fíkniefnamálum fari ekki að
lögum. Við vitum að fíkniefnamál
taka mun lengri tíma í rannsókn en
margir aðrir málaflokkar og ef slík
rannsókn dregst á langinn er það
vegna umfangs málsins en ekki
vegna skorts á fjármagni til yfir-
vinnu. Að halda öðra fram er alvar-
legur hlutur," sagði hún.
Sveinn Andri gerir
athugasemd við frétt Dags
Steingrímur J. Sigfússon, Vinstri
grænum, taldi dómsmálaráðherra
hafa viðurkennt að ekki hefði verið
búið nógu vel að lögreglunni í land-
inu með yfirlýsingum sínum við
þessa umræðu. Lúðvík Bergvinsson,
Samfylkingu, tók í sama streng og
fagnaði því ef dómsmálaráðherra
væri nú að sjá að sér. Það breytti
hins vegar ekki því að skipulagsleysi
í þessum málum hefði verið algjört.
Ásta Möller, Sjálfstæðisflokki, var á
öndverðum meiði og sagði rannsókn-
ir á fíkniefnabrotum hafa verið sett-
ar í forgang.
Margrét Frímannsdóttir tók aftur
til máls í lok umræðunnar. Krafðist
hún afsökunar af hálfu ráðherra fyr-
ir að leggja henni þau orð í munn að
löggæslan í landinu væri í kaldakoli.
Sagði hún það hafa verið staðfest af
starfsmanni fíkniefnadeildar lög-
reglunnar fyrir héraðsdómi að yfir-
vinnubann gilti hjá deildinni. Sólveig
bar þetta enn til baka og upplýsti
síðan að hún hefði undir höndum af-
rit af bréfi sem Sveinn Andri Sveins-
son hefði sent ritstjórn Dags þar
sem hann gerði verulegar athuga-
semdir við framsetningu blaðsins á
viðtali við hann.
Vilja stemma
stigu við útbreiðslu
spilafíknar
RÍKISSTJÓRNINNI verður fal-
ið að skipa nefnd með fulltrúum
allra þingflokka til að leita leiða til
að stemma stigu við útbreiðslu
spilafíknar ef samþykkt verður
þingsályktunartillaga sem fimm
þingmenn úr jafnmörgum flokk-
um hafa lagt fram á Alþingi. Gerir
tillagan m.a. ráð fyrir að nefndin
afli upplýsinga um útbreiðslu
spilafíknar meðal íslendinga og
kanni umfang þeirra eigna og
fjármuna sem viðkomandi hafa
fórnað.
Ögmundur Jónasson, Vinstri-
grænum, er fyrsti flutningsmaður
tillögunnar en aðrir tillögumenn
era Drífa Hjartardóttir, Sjálf-
stæðisflokki, Gísli S. Einarsson,
Samfylkingu, Hjálmar Amason,
Framsóknarflokld, og Sverrir
Hermannsson, Frjálslynda
flokknum. í greinargerð með til-
lögunni segir m.a.: „A undanföm-
um þingum hafa verið lögð fram
ýmis þingmál sem tengjast þessu
alvarlega þjóðfélagsmeini, spila-
fíkn og fjárhættuspilum. Má þar
m.a. nefna framvarp til laga um að
banna spilakassa. Þessi þingmál
hafa ekki hlotið afgreiðslu. Nú er
leitað nýrra leiða til að stemma
stigu við þessu alvarlega og vax-
andi þjóðfélagsmeini. Um þær
leiðir verður að nást almenn sam-
staða.“
126 fangar eru á reynslu-
lausn og 426 á skilorði
ALLS eru 126 afbrotamenn á
reynslulausn úr fangelsi í dag en þeir
hafa aðallega verið látnir lausir á
þessu ári og því síðasta en einnig
1998. Um 40% þeirra hafa verið látin
laus eftir að hafa afplánað helming
dæmdrar refsingar og 60% þegar
þeir áttu eftir að sitja af sér þriðjung
refsingar. Þá era 426 manns í land-
inu nú á skilorði, þ.e. fengið dóma
sem era skilorðsbundnir, og 120-30
einstaklingum, sem hlotið hafa fang-
elsisdóm á árinu, hefur verið gefinn
kostur á að vinna af sér dóminn með
samfélagsþjónustu.
Erlendur Baldursson hjá Fang-
elsismálastofnun, sem tekur ákvörð-
un um hvort fanga skuli veitt
reynslulausn, segir að fjöldi fanga á
reynslulausn sé heldur minni nú en
fyrir t.d. 5 eða 10 árum. „Föngum
hefur heldur fækkað og þess vegna
era þeir færri sem fá reynslulausn.
Þróunin hefur í stóram dráttum ver-
ið sú að þeim hefur fækkað sem hafa
verið látnir lausir úr fangelsi að lok-
inni afplánun helmings refsingar en
þeim fjölgað sem sleppt er eftir að
hafa setið inni tvo þriðju tímans.“
Erlendur sagði að allur gangur
væri á því hvers konar afbrot
reynslufangar hefðu framið og væri
eitthvað um harða afbrotamenn
þeirra á meðal. Hann sagði að
reynslulausnarfangar væra venju-
lega á skilorði í ákveðinn tíma, sem
oftast nær væri lengri en eftirstöðv-
ar hinnar dæmdu refsingar væru, og
á þeim tíma væri hægt að dæma upp
mál þeirra. Reynsluföngum væri að
auki sett ákveðin skilyrði til að auka
aðhald að þeim en sagði þó að ekkert
eftirlit væri með föngum sem á
reynslulausn væra að öðra leyti en
því að þeir yrðu að láta vita af sér
Erlendur sagði að hluti skýringar-
innar á því að föngum á reynslulausn
hefði fækkað væri sú að komin væru
til sögunnar ný refsiúrræði, svo sem
samfélagsþjónusta. Ef menn fengju
styttri dóma, færa þeir ekki í fang-
elsi og fengju því enga reynslulausn,
heldur tækju hana út með þvi að
vinna hjá t.d. líknarfélögum.
Á þessu ári hefur 120-130 ein-
staklingum verið gefinn kostur á að
vinna af sér fangelsisdóm með sam-
félagsþjónustu. Um er að ræða ein-
staklinga sem t.d. hljóta dóm vegna
ölvunaraksturs, þjófnaðar eða
smærri afbrota. Hann segir góða
reynslu af þessu úrræði, einungis um
10% ijúfi skilorð en 90% standi sig.