Morgunblaðið - 17.11.2000, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 47
MENNTUN
„Hvers vegna að reykja?“ Diljá, Hanna og Þura geta haldið góða fyrir-
lestra gegn reykingum.
ar með vitund foreldra og aðstoð-
uðu foreldrar þá með að vinna að
sumum verkefnum og verkþáttum.
Þau fóru m.a. inn í sjoppur og söl-
uturna og vildu með því kanna við-
brögð sölufólks þegar þau kæmu og
bæðu um að fá að kaupa sígarettur.
Höfðu þau meðferðis sérstakt
blað til að skrá inn á upplýsingar
um sölustaði, dagsetningu, tíma-
setningu og móttökur. Þegar var
búið að útbúa fyrirfram ákveðin
skjöl handa sölufólki. Þeir sem góð-
fúslega bentu á að ekki mætti selja
þeim tóbak fengu þakkarskjal. I
sumum sjoppum var afgreiðslufólk
alls ekki öruggt í afstöðu sinni að
ekki mætti selja tóbak til barna
yngri en sextán ára. Sumir sögðust
ekki merkja á þeim aldurinn og
aðrir veltu því ekkert fyrir sér og
voru tilbúnir að selja þeim tóbak. A
þeim stöðum afhentu nemendur
skammarskjal við mjög misjafnar
undirtektir viðtakenda og létu þau
skilaboð fylgja að þessar upplýsing-
ar færu til Krabbameinsfélags
Reykjavíkur og tóbaksvamarnefnd-
ar.
Fleiri verkefni voru unnin, t.d.
miðluðu þau fræðslu til nemenda í
6. og 7. bekkjum um skaðsemi
reykinga og hættuna sem felst í því
að reykja. Þau fengu upplýsingar
og gögn frá reyklaus.is og vegg-
spjöld, límmiða og póstkort frá
Ki-abbameinsfélaginu og þegar upp
var staðið höfðu þau komið góðri
samantekt um staðreyndir tóbaks
áleiðis til yngri skólafélaga sinna.
Þriðja verkefnið var að safna
auglýsingum til þess að prenta á
boli með slagorðinu „Hvers vegna
að reykja?“ Það verkefni gekk vel
og voru þeir svo seldir innan skól-
ans.
Opin samskipti kennara
og nemenda
Kennarar 9. bekkja í Áiftamýrar-
skóla eru Linda Rós Michaelsdóttir
og Fanný Gunnarsdóttir. Þær eru
ánægðar með áhuga og árangur
nemenda sinna af þeim verkefnum
sem unnin hafa verið í sambandi við
að vera reyklaus bekkur. Þær vilja
jafnframt benda á að í þessum
bekkjum hefur komist á sá háttur
að láta samskiptabækur ganga á
milli nemanda og kennara. Litið er
á það sem skrifað er í bækur þessar
sem trúnaðarmál sem eingöngu
kennari og nemandi eiga sín á milli.
Linda Rós og Fanný segja að
með þessum bókum hafí opnast
tjáningarleið sem gefur möguleika á
að ræða um hluti og persónuleg
málefni sem annars væru ekki sögð
með orðum. Þær segja nemendur
skrifa niður margvísleg mál í bækur
sínar, bæði sem tengjast gleði og
sorg þeirra og áhyggjum. Þau séu
flest opin fyrir því að deila málum
sínum og mörg hver hafi þörf fyrir
að tala um hluti sem ekki sjást á yf-
irborðinu. „Samskipti af þessu tagi
taka tíma en eru þess virði því ár-
angur af þeim er augljós,“ segja
Linda Rós Michaelsdóttir og Fanný
Gunnarsdóttir, kennarar í Álfta-
mýrarskóla.
Nemendurnir ákváðu að vera
áfram reyklaus árgangur. Hvers
vegna að reykja?
Umræða í 8. bekk
• Hvernig er hægt að afþakka
sígarettur? Afþakka má á ýms-
an hátt. Hér eru dæmi um svör
við spurningunni: Viltu sígar-
ettu?
- Nei, takk, ég reyki ekki.
- Sama og þegið. Viltu ekki
frekar kyssa mig?
- Geturðu ekki boðið mér
eitthvað betra?
- Já, takk, ég þigg hana ef ég
má gera það sem mér sýnist við
hana. (Hann/hún stingur sígar-
ettunni í eyrað, þegir drykk-
langa stund og kremur hana
svo ofan í öskubakkann.)
- Næst þegar þú vilt gefa
mér eitthvað skaltu athuga
fyrst hvað mig langar í.
- Jæja, svo þig langar til að
gefa mér eitur?
- Morðtilraun!
- Eg kann betri aðferðir til
að kynnast öðrum.
- Mér fínnst þú æði, en samt
hef ég meiri áhuga á minni eig-
in heilsu.
- Ef þú hættir að reykja gæti
ég hugsað mér að fara oftar
með þér í bíó.
- Er ekki nóg að annað okkar
eyðileggi heilsuna;
- Nei, takk. Ég kæri mig
hvorki um beinar né óbeinar
reykingar. Ef þú vilt reykja
skaltu setjast annars staðar.
- Hvað vakir fyiir þér að
bjóða mér sígarettu?
- Nei, takk, en verði þér að
góðu!
- Nei, takk, en ég lofa að
heimsækja þig á spítalann.
- Ég myndi gera allt fyrir þig
nema að reykja.
• Af hverju byrja sumir
unglingar að reykja? Hugsan-
leg svör: Félagar þeirra reykja.
Átrúnaðargoð þeirra reykja.
Þeir eru óöruggir. Þeim finnst
það gott. Það veitir þeim fé-
lagsskap. Það er róandi. Þeir
vilja byija að reykja. Hóp-
þrýstingur. Til að sýnast full-
orðnir. Til að virka töff. Það er
spennandi. Til að gera það sem
ekki má. Vandamál heima fyrir.
Vandamál í skólanum. Til að
sýnast. Annað.
Vertu reyklaus, vertu frjáls.
Krabbameinsfélagið
Tóbaksvarnarnefnd.
1
Handavinnuklúbburinn
Nvit á Driónun
Ert þú ekki
örugglega
áskrifandi?
Gríptu tækifærið
og skráðu þig í klúbbinn,
síminner
\[xyúnumun jqqq
Nældu þér f
^ nýjar hugmyndir
Frábærl inngöngutilboð!
Þú færð 50% afslátt af fyrsta pakkanum,
borgar aðeins 640 krónur og auk þess
færðu prjónahandbók að gjöf.
úrbreinaður, hunangsreyktur
:wfTmFfinrimmiTtrm
FERSKAR KJ0TV0RUR
799
medisterDylsa
kg
Dðlöclrifiasteik
H299:
FERSKAR KJÖTVÖRUR
Þú kaupir eina
liimim pízzii
pepperoní, supiime
royal eða cheese lllra 31
...bá fylgír Queéil
<? u K\r
i ll *JÍIJ
I II rhg
SSBHUm
, Úrvalaf
W dönskum
jólasmákökum
200 g stk á199„
HvfttlOOg stk á 119.-
Blátt 75 g stk á 119 r
Opið aila daga til kl. 23=00