Morgunblaðið - 17.11.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 11
Halldór Björnsson valinn varaforseti ASÍ og sættir tókust um miðstjórn
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Grétar Þorsteinsson, forseti ASI, og Halldór G. Björnsson, formaður kjörneftidar, ræddust við í hliðargangi
upp úr hádegi í gær, skömmu áður en fyrir lá að sættir tækjust um kosningu Halldórs og um miðstjórn.
Málamiðlun um
forystusveitina
til næsta vors
Málamiðlun náðist
á þingi ASI eftir mikil
átök um varaforseta
og fulltrúa í miðstjórn
á seinasta degi ASÍ-
þingsins í gær. Flestir
þingfulltrúar sem
rætt var við líta svo
á að um sé að ræða
skammtímalausn
fram að ársfundi
ASI næsta vor en
forystumenn sam-
bandsins leggja
áherslu á að sættir
hafí náðst. Omar
Friðriksson fylgdist
með atburðarásinni.
MIKIL kosningaátök einkenndu
þingstörf á seinasta degi ASÍ-þings
í gær, vegna óvissunnar um kjör
varaforseta og miðstjórnar og var
um tíma allt útlit fyrir að upp úr
syði með afdrifaríkum afleiðingum
fyrir samtökin. Þurfti að fram-
lengja frest sem kjörnefnd hafði til
að leggja fram tillögu um uppstill-
ingu í þessi embætti fram eftir degi
vegna ágreinings á þinginu um
skiptingu sæta. Lauk öðrum þing-
störfum nokkru fyrir hádegi en
ekki tókst að ganga til kosninga
fyrr en um miðjan dag vegna þess
ástands sem uppi var.
Fyrir lá að forystumenn verka-
lýðsfélaga á landsbyggðinni voru
mjög ósáttir við þær hugmyndir
sem uppi voru um miðstjórn og
töldu hlut höfuðborgarsvæðisins of
stóran. Óánægðir þingfulltrúar,
einkum af landsbyggðinni, undir-
bjuggu framboð Signýjar Jóhann-
esdóttur, formanns Vöku á Siglu-
firði, til varaforseta gegn vænt-
anlegri tillögu kjörnefndar. Miklar
þreiflngar til sátta fóru fram og var
fundað í hliðarsölum og út undir
veggjum þar sem reynt var að finna
einhveija málamiðlun.
Leit um tíma út fyrir að nokkrir
af helstu forystumönnum stærstu
félaga og landssamtaka myndu ekki
gefa kost á sér í miðstjórnina.
Átökin sem áttu sér stað á bak
við tjöldin blossuðu svo upp á sjálfu
þinginu skömmu fyrir hádegi þegar
Guðmundur Gunnarsson, fonnaður
Rafiðnaðarsambandsins (RSÍ), kom
í ræðustól og gagnrýndi harðlega
þá Finnbjörn Hermannsson, for-
mann Samiðnar, og Magnús L.
Sveinsson, formann Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur (VR).
Kom til harkalegra orðaskipta á
þinginu á milli Guðmundar, Finn-
björns og Magnúsar. Fyrr um
morguninn höfðu fulltrúar RSÍ ráð-
ið ráðum sínum á lokuð-
um fundi.
Guðmundur sagði að
sér hefði komið á óvart
að þegar hann hefði lýst
yfir að hann styddi Ára
Skúlason til forseta hefði Finnbjörn
Hermannsson kalla sig svikara og
sagði jafnframt að Magnús L.
Sveinsson hefði „tekið sjónvarps-
viðtal við sjálfan sig“, þar sem hann
hefði veist ítrekað að RSÍ með
órökstuddum dylgjum. Guðmundur
sagði að rafiðnaðarmenn hefðu vilj-
að taka þátt í að mynda samstöðu
um forystu ASÍ en gagnrýndi harð-
lega pólitísk vinnubrögð formanna
Samiðnar og VR. Sagðist hann hafa
ákveðið að gefa ekki kost á sér í
miðstjórn Alþýðusambandsins.
„Ég verð því miður að hverfa af
þinginu núna vegna þess að ég er
að fara til Finnlands," sagði Guð-
mundur og gekk þessu næst út af
þingi Alþýðusambandsins. Skv.
upplýsingum Morgunblaðsins verð-
ur sambandsstjórn RSI fljótlega
kölluð saman þar sem ræða á um
hugsanlega úrsögn sambandsins úr
ASI.
Finnbjörn Hermannsson vísaði
orðum Guðmundar ákveðið á bug
og Magnús L. Sveinsson svaraði
einnig fyrir sig og sagði ræðu Guð-
mundar bera þess merki að hann
hafi ekki miklar áhyggjur af því
þótt þinghaldið færi á lágt plan.
Sagðist Magnús jafnframt hafa
miklar áhyggjur af því styrjaldar-
ástandi sem ríkt hefði innan verka-
lýðshreyfingarinnar á undanförn-
um mánuðum og misserum.
Mikill ágreiningur var kominn
upp innan Starfsgreinasambands-
ins, á milli landsbyggðarfélaga og
forystu Flóabandalagsins svo-
nefnda. Kom framkvæmdastjórn
sambandsins saman til fundar í há-
deginu og var þar gerð úrslitatil-
raun til að ná sáttum um kosning-
arnar. Tókst þar málamiðlun á milli
deiluaðilanna um þá tillögu að Hall-
dór Björnsson yrði næsti varafor-
seti ASÍ og um lista með nöfnum
aðal- og varamanna í miðstjórn. Á
fundinum féllust Signý Jóhannes-
dóttir og stuðningsmenn hennar á
að hún drægi framboð sitt til baka.
í framhaldi af þessu
þurfti að ná samkomu-
lagi á þinginu um endan-
lega lausn á milli ann-
arra forystumanna sem
höfðu stórar fylkingar
þingfulltrúa að baki sér og lá end-
anlega fyrir að það tækist skömmu
fyrir kl. 15.
Signý Jóhannesdóttir dró
framboð sitt til baka
Af máli margra sem rætt var við
má ráða að um er að ræða mála-
miðlunarlausn um skipan forystu-
sveitarinnar fram að fyrsta árs-
fundi ASI sem haldinn verður skv.
nýjum lögum í maí á næsta ári.
Signý Jóhannesdóttir kvaddi sér
svo hljóðs á þinginu og lýsti yfir að
hún gæfi ekki kost á sér í embætti
varaforseta. Sagði hún að 38 þing-
fulltrúar víða af landinu hefðu skor-
að á sig að bjóða sig fram og hún
hefði í fyrstu orðið við þeirri áskor-
un. „Nú hefur hins vegar komið í
ljós að formanni Starfsgreinasam-
bandsins verður stillt upp af kjör-
nefnd og að ég nýt ekki stuðnings
innan framkvæmdastjórnar sam-
bandsins. Ég get auðvitað ekki litið
svo á að ef ég nyti ekki stuðnings
þeirra sem þar hafa verið valdir til
forystu, sé skynsamlegt sé af mér
að fara fram gegn sitjandi for-
manni. í Starfsgreinasambandinu
höfum við verið að reyna að setja
niður þær deilur sem þar hafa verið
uppi á undanförnum misserum og
ég vil ekki vera þess valdandi að sá
friður geti verið í húfi,“ sagði hún.
Signý bað þá sem stóðu að áskorun-
inni á hana að bjóða sig fram fyrir-
gefningar á því að hafa brugðist
trausti þeirra.
„Þurfti að vita hvort
ég nyti trausts“
Fundarstjóri las því næst upp til-
lögu kjörnefndar um að Halldór
Björnsson yrði valinn næsti vara-
forseti ASÍ. Engin mótframboð
komu úr sal og var Halldór því
sjálfkjörinn. Bar mikið á undrun og
óánægju meðal þingfulltrúa þegar
þessi niðurstaða lá fyrir og um þá
málamiðlun sem náðst hafði um
miðstjórn. Enginn hreyfði þó mót-
mælum úr ræðustóli.
Halldór sagði um aðdraganda
málsins í samtali við Morgunblaðið
að hann hefði verið ákveðinn í að
taka sæti í miðstjórn en upp hafi
komið ákveðin vandamál í Starfs-
greinasambandinu, sem hann hafi
þurft að leysa. „Ef ég hefði ekki
leyst þau, hefði ég ekki farið í fram-
boð. En þau mál leystust,“ sagði
hann. Halldór sagði að staðan hefði
verið mjög þröng. „Það var vitað
mál að við [starfsgreinasambandið]
höfðum gert kröfu um varaforset-
ann, og töldum það eðlilegt, þar
sem við erum stærsta landssam-
bandið, en við hefðum átt á hættu,
að annar framkvæmdastjórnarmað-
ur færi í kosningu á móti þeim sem
var verið að stilla upp. Þetta tók
ákveðinn tíma og ég sagði bara við
fólk að ef við næðum ekki þessari
niðurstöðu þá færi ég ekki fram.
Ég mat stöðuna þannig að þótt
ég hafi verið kosinn einróma á
stofnfundi [Starfsgreinasam-
bandsins] fyrir nokkrum vikum, þá
þurfti ég að vita hvort ég nyti
trausts. Það tók þennan tíma að
koma því í gegn og því skilyrði sem
ég setti um að það færi enginn í
framboð gegn fulltrúum Starfs-
greinasambandsins úr fram-
kvæmdastjórninni."
Halldór -sagðist vera þeirrar
skoðunar að sættir væru að nást
innan ASÍ eftir þær miklu deilur
sem staðið hafa yfir. „Stóra vanda-
málið er annars vegar að fækkað er
í miðstjórn úr 21 í 15 og hefur verið
þessi eilífi núningur á milli lands-
byggðar og höfuðborgarsvæðis en
það er vandamál sem Starfsgreina-
sambandið stendur frammi fyrir.
Við erum með stór og öflug félög
vítt og breitt um landið, sem telja
sig útundan, en við höfum ekki
nema ákveðin sæti til úthlutunar.
Þess vegna skiptir mestu að menn
verði sammála.“
Halldór studdi Ara Skúlason í
forsetakosningunum en aðspurður
sagðist hann telja að samstarf hans
við Grétar Þorsteinsson, forseta
ASI, yrði gott. „Við erum vinir til
margra ára. Ég hef ekkert legið á
þeirri skoðun minni að ég hef talið
hann vera of hæggengan í þessu og
að það þurfi að bera
meira á Alþýðusam-
bandinu, og hafði þess
vegna meiri trú á Ara en
kosning Grétars hafði í
sjálfu sér ekkert með
þetta að gera,“ sagði hann.
Halldór sagðist einnig vera þeirr-
ar skoðunar að ASI kæmi mun
sterkara út úr þinginu en útlit var
fyrir. „Það er undir okkur komið
hvort okkur tekst að púsla þessu
saman. Það er vont að missa út
samband eins og Rafiðnaðarsam-
bandið. Ef tekst að lægja þessar
öldur og við getum komið samein-
aðir að næsta ársfundi í maí á
næsta ári þá held ég að þetta verði
allt í lagi og við séum á réttri leið.“
Halldór lét af starfi formanns
Eflingar á seinasta ári en tók við
formennsku í hinu nýja Starfs-
greinasambandi fyrir nokkru. Að-
spurður hvort hann gæti hugsaði
sér að gegna lengi embætti varafor-
seta ASI sagðist hann líta á kjör
sitt sem skammtímaráðstöfun og
hann myndi væntanlega losna úr
því á næsta ársfundi í maí nk.
Listi kjömefndar með nöfnum 13
fulltrúa sem samkomulag varð um
fól annars vegar í sér tillögu um 7
fulltrúa í miðstjórn fram að árs-
fundi árið 2001 og 8 fulltrúa fram að
ársfundi sem halda á 2002. Ekki
bárust tillögur úr sal um aðra fram-
bjóðendur til miðstjórnar fram að
ársfundi 2001 og voru eftirtaldir því
sjálfkjörnir í miðstjórnina skv. til-
lögu kjörnefndar: Gunnar Páll Páls-
son, VR, Guðrún Erlingsdóttir,
Verslunarmannafélagi Vestmanna-
eyja, Jón Ingi Kristjánsson, Verka-
lýðsfélagi Norðfirðinga, Kristján
Gunnarsson, Verkalýðs- og sjó-
mannafélagi Keflavíkur og ná-
grennis, Pétur Sigurðsson, formað-
ur Verkalýðsfélagsins Baldurs,
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambandsins og Þórunn
Sveinbjörnsdóttir frá Eflingu.
Kjörnefnd gerði tillögu um 8 mið-
stjórnarfulltrúa fram til ársfundar
2002 og bárust auk þess tillögur um
tvo miðstjórnarmenn úr sal, annars
vegar Arnar G. Hjaltalín frá Vest-
mannaeyjum og hins vegar báru
fulltrúar félaga sem eiga beina að-
ild að ASÍ fram tillögu um Borgþór
Kjærnested, formann Félags
starfsfólks í ferðaþjónustu. Fór
fram kosning á þinginu síðdegis um
þessar tillögur og varð niðurstaða
hennar sú að allir þeir fulltrúar sem
kjörnefnd hafði stungið upp á náðu
kosningu. Flest atkvæði fékk Björn
Snæbjörnsson formaður Einingar-
Iðju á Akureyri, Ingibjörg R. Guð-
mundsdóttir, formaður Landssam-
bands verslunarmanna, fékk næst-
flest atkvæði, því næst komu
Finnbjörn Hermannsson, formaður
Samiðnar, Sigurður Bessason, for-
maður Eflingar, Niels S. Olgeirs-
son, formaður Matvís, og Pétur A.
Maack frá VR. Borgþór Kjærne-
sted og Arnar G. Hjaltalín náðu
ekki kjöri.
Rafiðnaðarsambandið á ekki
mann í nýkjörinni miðstjórn ASÍ,
eitt landssambanda, en athygli
vakti að fjórir fulltrúar verkalýðsfé-
laga af landsbyggðinni fengu sæti í
miðstjórninni.
Grétar Þorsteinsson telur ASI
koma sterkt út úr þinginu
Þegar niðurstöður kosninganna
lágu fyrir um kl. 17 sleit Grétar
Þorsteinsson, forseti ASÍ, 39. þingi
sambandsins.
„Ég tel að Alþýðusambandið
komi sterkt út úr þessu þingi,“
sagði Grétar í samtali við Morgun-
blaðið að þinginu loknu. „Það er öll-
um ljóst sem hafa fylgst með því að
það hafa verið hér allmikil átök í
gær og í dag. Það breytir því ekki
að mönnum tókst að lenda málum,
að mínu viti, í ágætri sátt. Hér var
mjög góð umfjöllun um tillögur að
nýjum lögum og starfsháttum
Álþýðusambandsins, sem voru sam-
þykkt af miklum meirihluta,“ sagði
Grétar í samtali við Morgunblaðið.
Kvaðst hann treysta því að sam-
komulagið sem náðist myndi halda
til lengri tíma.
Pétur Sigurðsson, formaður
Baldurs, sagðist telja að
þingið hafi verið mjög
starfsamt og mikil sam-
heldni hefði ríkt á þing-
inu, „þó auðvitað séu
skiptar skoðanir á því
hverjir eiga að skipa forystusveit í
svona þýðingarmiklu fyrirtæki eins
og Alþýðusamband Islands er. Þar
eru inni margar starfsgreinar og
ólík viðhorf sem menn þurfa að
samræma. Ég held að þessi mið-
stjórn hafi alla burði til að ná þeim
sáttum sem þarf,“ sagði hann.
„Mér líst vel á þessa miðstjórn.
Við náðum saman í lokin. Ég á von
á að við náum að starfa saman af
heilindum á þessu kjörtímabili. Það
var vissulega hart tekist á og ein-
staka maður dró sig til hlés að
sinni, en ég á von á því að menn
komi til starfa þegar þeir geta, sem
hafa verið með stóru orðin. Við
komum til með að starfa eins og við
höfum alltaf gert af fullum heilind-
um,“ sagði Finnbjörn A. Her-
mannsson, formaður Samiðnar.
Samkomulag
náðist á
hádegisfundi
Harkaleg
orðaskipti
forystumanna