Morgunblaðið - 17.11.2000, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Japanskir sjónvarpsfréttamenn í Olafsfírði
Þáttur um netnotkun í
afskekktum byggðum
Ólafsfirði. Morgunblaðið.
60 ára vígsluafmæli Akureyrarkirkju
Matthíasarkvöld, há-
tíðar- og djassmessur
HÓPUR sjónvarpsfréttamanna var
á ferð í Ólafsfírði á mánudag. Þeir
voru þar til að taka viðtal við Þóri
Jónsson, kennara við Gagnfræða-
skólann, en hann var einn af frum-
kvöðlum Netsins á íslandi. Japönsk
fréttastofa er að gera þátt um
Netnotkun í afskekktum byggðum
og varð ísland fyrir valinu. Það er
Anna Hildur Hildibrandsdóttir í
London sem hafði veg og vanda af
ferðinni hingað. Það voru þrír
menn sem fyrstir fslendinga tóku
Netið í gagnið, þeir Pétur Þor-
steinsson á Kópaskeri, Jón Jónas-
son á Litlu-Laugum og Þórir Jóns-
son í ÓJafsfirði. Þetta var árið
1987. Ári síðar hóf Imba göngu
sína, en hún var fyrsti vísirinn að
Islenska menntanetinu.
Sjónvarpsfréttamennirnir fylgd-
ust með netkennslu í Gagnfræða-
skólanum þar sem Þórir kenndi
nemendum í 8. bekk. Síðan var
rætt við Þóri og nemendur. Auk
þeirra var rætt við Vilhjálm Sig-
urðsson, skipstjóra á frystitogar-
anum Sigurbjörgu ÓF 1, en hann
var einn þeirra sjómanna frá Ólafs-
fírði sem stunduðu fjarnám á hafi
úti.
Þátturinn verður sýndur í jap-
anska sjónvarpinu um áramótin.
AKUREYRARKIRKJA á 60 ára
vígsluafmæli í dag, 17. nóvember, og
á morgun, 18. nóvember, eru 80 ár
liðin frá andláti sr. Matthíasar
Jochumssonar og verður þessa
minnst með margvíslegum hætti í
kirkjunni um helgina.
Matthíasarkvöld verður í
kirkjunni í kvöld, fostudagskvöld, og
hefst það kl. 20.30. Þar fjallar Jón
Hjaltason sagnfræðingur í léttum
dúr um persónu sr. Matthíasar og
þátt hans í bæjarlífinu á sínum tíma.
Erlingur Sigurðarson, forstöðumað-
ur Sigurhæða, les valin ljóð eftir
skáldið og nokkur akureyrsk ung-
menni flytja sálmalög með textum
eftir sr. Matthías. Flytjendur tón-
listarinnar verða Lára Kristín Unn-
arsdóttir, fiðla, Laufey Sigrún Har-
aldsdóttir, píanó, Sunna Brá
Stefánsdóttir, víóla, Hrönn Sigurð-
ardóttir, söngur, og Svava Hrund
Friðriksdóttir, söngur. Þá verður al-
mennur söngur og boðið verður upp
ákaffi.
Tvö ný tónverk
verða frumflutt
Sunnudaginn 19. nóvember verð-
ur hátíðarmessa í Akureyrarkirkju
kl. 14. Prestar kirkjunnar þjóna fyrir
altari og séra Jóna Lísa Þorsteins-
dóttir predikar. I messunni verða
sungnir sálmar séra Matthíasar
Jochumssonar. Tvö ný tónverk
verða frumflutt, „Penta“, hugleiðing
um sálmalagið „Upp, þúsund ára
þjóð“ eftir Jón Hlöðver Askelsson,
og hátíðarútsetning Þorkels Sigur-
bjömssonar á sálmalaginu „í þennan
helga herrans sal“. Flytjendur tón-
listar í hátíðarmessunni verða Kór
Akureyrarkirkju, Barna- og ungl-
ingakór Akureyrarkirkju, Sveinn
Amar Sæmundsson, kórstjórn, for-
söngur, orgel; Alfheiður Guðmunds-
dóttir, flauta; málmblásarakvartett,
Björn Steinar Sólbergsson, stjóm-
andi og organisti. Eftir messu verð-
ur árlegur fjáröflunardagur Kvenfé-
lags Akureyrarkirkju, kaffisala,
basar og sala á lukkupökkum.
Um kvöldið verður djassmessa í
kirkjunni. Séra Svavar A. Jónsson
messar. Tónlistarflutning annast
Krossbandið með fulltingi Daníels
Þorsteinssonar. Auk þess flytur hóp-
ur ungmenna sálma eftir séra Matt-
hías.
Spurninga-
keppni Bald-
ursbrár
SEINNI hluti fyrstu umferðar í
spumingakeppni Baldursbrár
verður í safnaðarsal Glerár-
kirkju í kvöld, fóstudagskvöldið
17. nóvember, og hefst kl. 20.30.
Alls keppa tíu lið í þessari
spumingakeppni: Eldri borgar-
ar, Heilsugæslustöðin, Kjama-
fæði, Norðlenska lögreglan,
Prestar, Ráðhús, Síðuskóli,
Slippurinn og Vélsmiðja Stein-
dórs.
Allur ágóði rennur í söfnun
fyrir steindum glugga í Gler-
ái’kirkju.
INNKÖLLUN HLUTABRÉFA í VINNSLUSTÖÐINNI HF
Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf., kt. 700269-3299, gerir kunnugt að með heimild í 2. mgr. 27. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, hef-
ur hún tekið ákvörðun um að hlutabréf í félaginu verði tekin til rafrænnar skráningar í kerfi Verðbréfaskráningar íslands hf. Rafræn
skráning tekur gildi 27. nóvember árið 2000 kl. 9.00 árdegis. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í félaginu í samræmi
við heimild í ákvæði til bráðabirgða nr. II í lögum nr. 13/1997, um rafræna eignaskráningu verðréfa, sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000, um
breytingar á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignaskráningar á verðbréfum og reglugerð nr. 397/2000, um rafræna eigna-
skráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Vinnslustöðinni hf. tekin til rafrænnar skráningar, en þau eru í 5 flokkum, öllum jafn réttháum,
auðkennd í raðnúmerum frá 1 og í samfelldri röð nú 6500. Útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja nokkurn vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega fært í
hlutaskrá Vinnslustöðvarinnar hf., að staðreyna skráninguna með fyrirspum til skrifstofu Vinnslustöðvarinnar hf. Hafnargötu 2, 900
Vestmannaeyjum. Komi í ljós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart
félaginu innan þriggja mánaða frá síðari birtingu innköllunar í Lögbirtingi.
Ennfremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á ffamfæri við
fullgilda reikningsstofhun, sbr. 10. gr. laga nr. 131/1997, um rafræna eignaskráningu verðbréfa, innan þriggja mánaða frá síðari birt-
ingu innköllunar í Lögbirtingi. Gæta skal þess að reikningsstofnun hafi gert aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands hf.
Stjóm Vinnslustöðvarinnar hf. hefur ákveðið að eftir að innköllunarfrestur er liðinn og rafræn skráning á ofangreindum hlutabréfum
hefur átt sér stað í kerfi Verðbréfaskráningar íslands hf. skuli arðgreiðslur til hluthafa einungis fara fram í gegnum kerfi Verðbréfa-
skráningar íslands hf. sbr. heimild í 4. tölul. 54. gr. reglugerðar nr. 397/2000.
Við rafræna útgáfu ofangreindra hlutabréfa er nafnverð hluta ákveðið ein króna eða margfeldi þar af.
Að lokinni raffænni skráningu geta hluthafar falið reikningsstofnun sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands
hf. umsjón með eignarhlut sínum í félaginu. Hluthafar munu fá sendar tilkynningar og reikningsyfirlit í samræmi við ákvæði reglu-
gerðar nr. 397/2000.
VINNSLUSTÖÐIN HF.,
Vestmannaeyjum, 28. ágúst 2000
F.h. Stjórnar Vinnslustöðvarinnar hf.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
ffamkvæmdastjóri.