Morgunblaðið - 17.11.2000, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 29
Þettaer
gjafverðl
Angistin snýst í
hamslausan fögnuð
Bangalorc. AFP, AP.
TUGÞÚSUNDIR gleðidrukkinna
aðdáenda indverska kvikmynda-
leikarans Rajkumars tóku á móti
honum í gær þegar hann kom til
heimaborgar sinnar, Bangalore,
eftir að hafa verið í haldi illræmd-
asta stigamanns Indlands í 108
daga.
Mannfjöldinn rak upp gleðióp
þegar kvikmyndagoðið steig út úr
þyrlu á flugvelli nálægt borginni.
Um 3.000 manns brutust í gegn-
um lögreglutálma til að fagna
leikaranum, báru hann á herðum
sór og létu blómum rigna yfir
hann. „Ljósið er komið aftur í lif
okkar,“ sagði einn dyggra aðdá-
enda leikarans.
Þúsundir annarra stóðu með-
fram vegi að miðborginni þegar
leikaranum var ekið í höfuðstöðv-
ar stjórnar Karnataka-ríkis. Þar
lýsti hann sálarangist sinni meðan
honum var haldið í frumskógar-
fylgsni stigamannsins í grannrík-
inu Tamil Nadu.
Indvcrskir fjölmiölar leiddu
getum að því að fjölskylda Ieikar-
ans hefði greitt mannræningjun-
um gríðarmikla fúlgu í Iausnar-
gjald. Rajkumar sagði ekkert um
þennan orðróm en sonur hans,
Sivraj Kumar, sagði að enginn
fótur væri fyrir honum.
Gerði sér upp veikindi
Leikarinn, sem er 72 ára að
aldri, kvaðst hafa gert sér upp
veikindi að ráði tveggja lækna
sem fengu að vitja hans í frum-
skóginum siðast þegar fulltrúar
stjórnvalda reyndu að semja við
mannræningjana. „Þeir sögðu
mér að þykjast vera með of háan
blóðþrýsting og hjartakvilla.
Nokkrum dögum síðar var ég lát-
inn laus.“
Rajkumar var rænt ásamt
þremur öðrum 30. júlí. Einn
þeirra komst undan og annar,
tengdasonur leikarans, var látinn
laus af heilsufarsástæðum í síð-
asta mánuði. Þriðja gíslinum var
sleppt um leið og Rajkumar.
Lcikarinn lagði áherslu á að
hann hefði ekki sætt illri meðferð
en kvaðst hafa óttast um líf sitt
þegar félagi hans komst undan og
mannræningjarnir hnepptu hina
gíslana í fjötra. „Ég hélt að þeir
ætluðu að skjóta okkur,“ sagði
hann. „Ég sagði við þá: látið fé-
laga mína í friði. Ég er gamall og
hræðist ekki dauðann."
Þrátt fyrir sálarangistina
kvaðst leikarinn vera andvígur
því að gripið yrði til ofbeldisað-
Flugslys í Angóla
Allt að
40 fórust
Luanda. AP.
FLUGVÉL af gerðinni Antonov 24
fórst skömmu eftir flugtak frá Lu-
anda-flugvelli í Angóla í fyrradag og
fórust allir um borð, 30-40 manns.
Vélin skall til jarðar skammt frá
vellinum ogvarð alelda. Ekki var vit-
að með vissu hve margir voru um
borð en vélar af þessu tagi geta tekið
allt að 40 manns. Ahöfnin var rúss-
nesk. Svarti kassinn svonefndi, með
upplýsingum um flugið, fannst í
brakinu, að sögn talsmanns stjórn-
valda.
Fyrir tveim vikum fórst vél af
gerðinni Antonov 26 í Angóla og fór-
ust með henni 48 manns. Flugmála-
sérfræðingar frá Afríkuríkinu voru
nýlega í Moskvu og báðu þeir rúss-
nesk stjómvöld að hætta að flytja
slitnar og varasamar flugvélar út til
Angóla. Ekki er Ijóst hvort vélin sem
fórst í fyrradag hafði loftferðaleyfi.
gerða gegn Veerappan sem hefur
verið sakaður um rúmlega 100
morð. „Menn þurfa að átta sig á
því að hann er maður og þess
vegna sleppti hann mér.“
Rajkumar er einn vinsælasti
leikari Indlands og hefur leikið í
meira en 200 kvikmyndum. Óeirð-
ir blossuðu upp í Bangalore þegar
honum var rænt. Margir dyggir
aðdáendur hans sóttu bænafundi
þá þrjá mánuði sem hann var í
gislingu og nokkrir hófu mót-
mælasvelti. Angistarfullir aðdá-
endur veltu sér jafnvel marga
kílómetra á jörðinni til að sefa
guðina í von um að þeir frelsuðu
leikarann.
Reuters
Indverski kvikmyndaleikarinn Rajkumar heilsar aðdáendum sínum,
umkringdur lögreglumönnum, eftir komu hans til Bangalore.
9.-20. november 2000
$
3- 6 kg.
4- 9 kg.
8-18kg.
12 - 25 kg.
bleiur
á aðeins
«MC*Í
Indverska kvikmyndagoðið snýr heim