Morgunblaðið - 17.11.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 31
Nýjar bækur
• ÚT er komin ný útgáfa skáldsög-
unnar Gnga eftir Ólaí Gunnarsson,
en hún kom fyrst út árið 1984 og í
enskri þýðingu Davids McDuffs árið
1988. í bókinni em myndir kanadísku
myndlistarkonunnar Judy Pennan-
en.
í fréttatilkynningu segir: „Sjoppu-
eigandi í Reykjavík vaknar einn
morgun á plánetunni Mars. Hann er
óvelkominn en Marsbúai- losa sig við
boðílennm- með sérstakri aðferð. Þeir
setja átthaga jarðarbúans nákvæm-
lega á svið og fara í ham foreldra,
ættingja og nágranna. Síðan láta þeir
hann hverfa á voveiflegan hátt þegar
hann er farinn að trúa að hann sé
heima hjá sér. Sjoppueigandinn sér
hins vegar í gegnum blekkingamar
og gengur á hólm við óvininn.
Olafur Gunnarsson er fæddur árið
1948 í Reykjavík. Hann hefur skrifað
skáldsögur, smásögur, bamasögur,
leikrit og ljóð. Þekktastur er Ólafur
fyrir ti-flógíuna: Tröllakirkju (1992),
Blóðakur (1996) og Vetrarferðina
(1999).
Utgefandi er JPV forlag. Bókin er
64 bls., prentuðíDanmörku. Hunang
hannaði kápu. Leiðbeinandi verð:
2.480 krónur.
------------------
Strandlengju-
sýningu lýkur
KOMIÐ er að sýningarlokum á
sýningarþrennu Myndhöggvarafé-
lagsins, sem hófst sumarið 1998, er
Strandlengjusýningin, útisýning á
því vinsæla útivistarsvæði meðfram
strönd Skerjafjarðar og Fossvogs,
var sett upp.
Sumarið næsta opnaði Firma ’99,
sem unnin var í samvinnu við
nokkrar borgarstofnanir og voru
verkin ýmist staðsett utan dyra eða
innan.
I sumar var síðan Strandlengjan
2000 opnuð, með útiverkum við Sæ-
brautina frá Kalkofnsvegi og fram-
hjá Kringlumýrarbraut, sem hluti
af dagskrá Reykjavíkur - menning-
arborgar Evrópu 2000.
Sýningarnar þrjár höfðu hver
sína sérstöðu í einskonar yfirreið
um borgarlandslagið. Sú fyrsta í
suðri, við náttúmlega strönd, sú
næsta á víð og dreif um bæinn og
sú síðasta við manngerða strönd í
norðri, en öll verkin era sérstaklega
unnin fyrir sýningarnar.
Síðustu sýningardagarnir em nú
um helgina, 18. og 19. nóvember.
Morgunblaðið/Sverrir
Gullsmíða-
sýning
GULLSMÍÐASÝNING Ragnhildar
Sifjar Reynisdóttur gullsmiðs í
Gullsmiðju Hansínu Jens, Lauga-
vegi 20B, hefst á morgun, laugar-
dag.
A sýningunni verða aðallega háls-
men og armbönd.
Ragnhildur Sif útskrifaðist með
sveins- og meistarapróf frá Iðnskól-
anum í Reykjavík. Meistari hennar
var Reynir Guðlaugsson í Gull- og
silfursmiðjunni Ernu, og þar starf-
ar hun nú og smíðar m.a. þríkross-
inn fyrir Blindrafélagið.
Ragnhidur Sif hefur sótt nám-
skeið hér heima og í Danmörku.
Hún hefur haldið eina einkasýn-
ingu. Hún tók þátt í samkeppni
gullsmiða 35 ára og yngri í Sankti
Pétursborg nú síðasta vor.
Sýningin mun standa til 9. des-
ember. Opið er á venjulegum versl-
unartíma.
Skólakór Kársness.
Gradualekór Langholtskirkju.
Barnakórar
í Langholts-
kirkju
GRADUALEKÓR Langholts-
kirkju, Graduale Nobili og Skóla-
kór Kársness syngja á tónleikum
í Langholtskirkju í kvöld, föstu-
dagskvöld, kl. 20. Á þessum tón-
leikum mun hljóma barnakóra-
tónlist frá lokum síðustu aldar.
Gradualekór Langholtskirkju
mun flytja verk eftir Hjálmar H.
Ragnarsson, Jórunni Viðar og
Tryggva Baldvinsson.
Skólakór Kársness mun flytja
verk eftir Jón Þórarinsson, Jór-
unni Viðar, Ingibjörgu Þorbergs,
Fjölni Stefánsson, Gunnar Reyni
Sveinsson, Þorkel Sigurbjörns-
son, Hjálmar H. Ragnarsson, Mist
Þorkelsdóttur, Áskel Másson,
Atla Ingólfsson, Báru Grímsdótt-
ur, Tryggva Baldvinsson, Harald
V. Sveinbjörnsson, Þóru Mar-
teinsdóttur og Huga Guðmunds-
son.
Graduale Nobili mun flytja
verk eftir Mist Þorkelsdóttur,
Hildigunni Rúnarsdóttur,
Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og
Jón Nordal. Kórarnir munu flytja
saman verk eftir Þorkel Sigur-
björnsson, Atla Heimi Sveinsson
og Jón Ásgeirsson.
Gradualekór Langholtskirkju
fer í tónleikaferð í júní nk. til
Danmerkur og Finnlands þar sem
hann m.a. tekur þátt í kórahátíð-
inni í Tampere.
Stofnandi og stjórnandi kórsins
er Jón Stefánsson og kórinn nýt-
ur raddþjálfunar Ólafar Kolbrún-
ar Harðardóttur. Undirleikari er
Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Graduale Nobili-kórinn hefur
þegið boð um að taka þátt í
Evrópukeppni æskukóra í
Kalundborg í apríl nk. en aðeins
tuttugu evrópskir kórar fá inn-
göngu í keppnina.
Skólakór Kársness hefur m.a.
verið fulltrúi Islands á erlendum
menningarhátíðum í Kanada,
Bretlandi, Svíþjóð og Tékklandi.
Stjórnandi kórsins er Þórunn
Björnsdóttir og undirleikari Mar-
teinn H. Friðriksson.
Verk Gunnlaugs Blöndal sem boðið verður upp á Hótel Sögu.
Listmuna-
uppboð
á Hótel
Sögu
GALLERÍ Fold heldur listmuna-
uppboð í Súlnasal Hótels Sögu
nk. sunnudagskvöld kl. 20.
Boðin verða upp 99 verk og eru
þau til sýnis í Galleríi Fold, Rauð-
arárstíg 14, föstudag kl. 10-18,
laugardag kl. 10-17 og sunnudag
kl. 12-17.
Hægt er að nálgast sýningar-
skrána á heimasíðu Gallerís Fold-
ar á Netinu, en netfangið er:
www.myndlist.is.
M -2000
Föstudagur 17. nóvember
Þorbjörg*
Höskuldsdótt-
ir sýnir í
Kirkjuhvoli
ÞORBJÖRG Höskuldsdóttir opnar
sýningu í Listasetrinu Kirkjuhvoli,
Akranesi, á morgun, laugardag.
Þar sýnir hún olíumálverk, akrýl-
málverk og vatnslitamyndir.
Þorbjörg er fædd árið 1939. Hún
stundaði nám við Myndlistarskólann
í Reykjavík og lauk námi við Lista-
akademíuna í Kaupmannahöfn árið
1972.
Þetta er sautjánda einkasýning
Þorbjargar og hefur hún tekið þátt í
fjölda samsýninga bæði hér heima
og erlendis. Hún hefur einnig unnið
að bókaskreytingum og gert leik-
myndir, m.a. fyrir Þjóðleikhúsið.
Verk Þorbjargar eru í helstu lista-
söfnum hér á landi.
Sýningunni lýkur 3. desember og
er Listasetrið opið alla daga nema
mánudaga kl. 15—18.
IÐNÓ KL. 20
Medea
Magnþrunginn fjölskylduharmleikur
um blinda ást, botnlaust hatur, svik,
afbrýöi, hefnd ogmorð. Nýleikgerö
eftir Ingu Lísu Middleton, Þóreyju
Sigþórsdóttur og Hilmar Oddsson,
sem frumsýnd veröurí Iðnó, erbyggð
á samnefndum harmleik eftirgríska
skáldið Evrípídes. Sagan er tíma-
laus, uppgjör og átök hjóna, sem
vekur spurningar um það hversu
langt er réttlætanlegt að ganga til að
hefna fyrir svívirta ást. Hérerá ferð-
inni óvenjuleg tilraun til að færa forn-
an, sígildan harmleik til nútíðar. Hóp-
ur listamanna úr ólíkum áttum
sameinar krafta sína í nýstárlegri
glímu við leikhús í Ijósi margmiðlun-
ar. Leikurinn fer fram á sviði, á skjám
og á hljóðrás og öll hlutverkin eru
leikin aftveimurleikurum, manni og
konu. Leikstjóri er Hilmar Oddsson.
LANGHOLTSKIRKJA KL. 20
Barnakóratónleikar
Flytjendur eru Skólakór Kársness
undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur
og Gradualekór Langholtskirkju undir
stjórn Jóns Stefánssonar. Á efnis-
skránni er íslensk barnakóratónlist
frá síðustu 20 árum í flutningi kór-
anna tveggja, saman oghvors ísínu
lagi. Tónleikarnir eru liður í þriðja og
síðasta hluta hátíðar Tónskáldafé-
lagsins, sem hófstl8. októberog
lýkur 21. nóvember. Hátíðin ertil-
einkuð tónsmíðum frá 1985 og til al-
darloka.
Liíðrasveit
verkalýðsins
í Langholts-
kirkju
ÁRLEGIR hausttónleikar Lúðra-
sveitar verkalýðsins verða haldnir í
Langholtskirkju á morgun, laugar-
dag, kl. 15.
Tónleikarnir era að þessu sinni til-
einkaðir börnum á öllum aldri og er
öllum börnum og þeim sem hafa ein-
hverntímann verið börn sérstaklega
boðið á þessa tónleika. Á efnis-
skránni er að finna ýmsa tónlist sem
glatt hefur börn og fullorðna í gegn-
um tíðina og má fullyrða að allir ættu
að finna eitthvað við sitt hæfi á þess-
um tónleikum.
Kynnir á tónleikunum verður
leikarinn Felix Bergsson. Stjórnandi
Lúðrasveitar verkalýðsins er
Tryggvi M. Baldvinsson. Aðgangur
er ókeypis.
„Lausnin á lífinu er að búa sér til
góða fortíð."
Myndlistarsýn-
ing í Galleríi
Reykjavík
REYNIR Katrínarson opnar mál-
verkasýningu í Galleríi Reykjavík,
Skólavörðustíg 16, á morgun, laug-
ardag, kl. 15. Á sýningunni sýnir
Reynir olíumálverk sem hann hefur
unnið á áranum 1999 og 2000.
Reynir lærði myndlist í Hundorp-
folkehögskole á Noregi í myndlistar-
og tónlistarbraut, Handíða- og
myndlistaskóla íslands 1976-1980,
einkanám í málun og keramik í Nor-
egi 1983-1985 og forðun í Förðunar-
skóla No Name árið 2000. Reynir
hefur haldið fjölmargar einkasýn-
ingar og tekið þátt í samsýningum.
Reynir heldur myndlistarnám-
skeið í Keflavík á vetuma. Hann
starfar meðfram myndlistinni sem
nuddari, græðari, lithimnulesari og
við förðun/líkamsförðun.
Sýningunni lýkur 2. desember.
Eitt af verkum Friðríks á
sýningunni.
Myndverk í
Listhúsi
Ofeigs
FJÖLLISTAMAÐURINN Friðrík-
ur Róbertsson hefur opnað mynd-
listasýningu er ber heitið „Hljóð-
láta reisn ljósberans" í Listhúsi
Ófeigs, Skólavörðustíg 5.
Grunntónninn í þessum mynd-
verkum Friðríks er hinn leik- og
ljóðræni boðskapur lífsgleðinnar.
Sýningin stendur til 22. nóvem-
ber.