Morgunblaðið - 17.11.2000, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
BÓKASALA ■ okt.
Röð Var Titill/ Höfundur/ Útgefanði__________________
1 20. Öldin-Brot úr sögu þjóðar/ Ritstj. Jakob F. Ásgeirsson/ Nýja bókafélagið
2 Hálendið í náttúru íslands/ Guðmundur Páll Ólafsson/ Mál og menning
3 Bókin um London/ Dagur Gunnarsson/ Mál og menning
4 Harty Potter og leyniklefinn/ Joanna Rowling/ Bjartur
5 Almanak Háskólans 2001/ Þorsteinn Sæmundsson sá um / Háskóli íslands
6-7 Dönsk-ísl. / ísl.-dönsk orðabók/ Ritstj. Sigurlín Sveinbjarnardóttir og
Svanhildur Edda Þórðardóttir/ Orðabókaútgáfan
6-7 Þulur/ Theodóra Thoroddsen/ Mál og menning
8 Harry Potter og viskusteinninn/ Joanna Rowling/ Bjartur
9 Ensk-ísl. / ísl.-ensk orðabók/ Ritstj. Sævar Hilbertsson/ Orðabókaútgáfan
10 Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk/ Peter J. D’Adamo/ Leiðarljós
Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDP SKÁLPVERK
1 101 Reykjavík/ Hallgrímur Helgason/ Mál og menning
2 Klór/ Þorsteinn Guðmundsson/ Mál og menning
3 Síðasta mál Morse/ Colin Dexter/ Mál og menning
4 Dís/ Birna Anna Björnsdóttir, Oddný Sturludóttir og Silja Hauksdóttir/ Forlagið
5 Englar alheimsins/ Einar Már Guðmundsson/ Mál og menning
6 Uppvöxtur Litla Trés/ Forrest Carter/ Mál og menning
7 Inga og Míra/ Marianne Fredriksson/ Vaka-Helgafell
8 Taumhald á skepnum/ Magnus Mills/ Bjartur
9 Snorra Edda/ Snorri Sturluson/ Mál og menning
10-11 Góðir íslendingar/ Huldar Breiðfjörð/ Bjartur
10-11 Faðmlög/ Ólöf Sigríður Davíðsdóttir/ Ólöf Sigríður Davíðsdóttir
ÍSLENSK OG ÞÝDP LJÓÐ
1 Hávamál - Ýmis tungumál/ / Guðrún
2 Spámaðurinn/ Kahlil Gibran/ Muninn
3 Öll fallegu orðin/ Linda Vilhjálmsdóttir/ Mál og menning
4 Eddukvæði/ Gísli Sigurðsson sá um útgáfuna/ Mál og menning
5 Völuspá - Ýmis tungumál/ / Mál og menning
ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGUNGABÆKUR
1 Harry Potter og leyniklefinn/ Joanna Rowling/ Bjartur
2 Þulur/ Theodóra Thoroddsen/ Mál og menning
3 Harry Potter og viskusteinninn/ Joanna Rowling/ Bjartur
4 Litla lambið/ Andrew Davenport/ Vaka-Helgafell
5 Sagan af bláa hnettinum/ Andri Snær Magnason/ Mál og menning
6 Snjóstubburinn/ Andrew Davenport/ Vaka-Helgafell
7 Drekastappan/ Sigrún Eldjárn/ Mál og menning
8 Kisur/ Steve Shott/ Mál og menning
9 Malla fer í leikskóla/ Lucy Cousins/ Æskan
10-11 Hjólin á strætó/ fsl. texti Stefán Júlíusson/ Björk
10-11 Ljónið, nornin og skápurinn/ C.S. Lewis/Almenna bókafélagið
ALNIENNT EFNl OG HANPBÆKUR
1 20. öldin-Brot úr sögu þjóðar/ Ritstj. Jakob F. Ásgeirsson/ Nýja bókafélagið
2 Hálendið í náttúru ííslands/ Guðmundur Páll Ólafsson/ Mál og menning
3 Bókin um London/ Dagur Gunnarsson/ Mál og menning
4 Almanak Háskólans 2001/ Þorsteinn Sæmundsson sá um/ Háskóli Islands
5 Dönsk-ísl. / ísl.-dönsk orðabók/ Ritstj. Sigurlín Sveinbjarnardóttir og
Svanhildur Edda Þórðardóttir/ Orðabókaútgáfan
6 Ensk-ísl. / (sl.-ensk orðabók/ Ritstj. Sævar Hilbertsson/ Orðabókaútgáfan
7 Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk/ Peter J. D’Adamo/ Leiðarljós
8 Hagfræðiorðasafn/ Brynhildur Benediktsdóttir et al/ Islensk málnefnd
9 Handbók um ritun og frágang/ Ingibjörg Axelsdóttir og Þórunn Blöndal/ Iðunn
10-11 Af bestu lyst/ Ritstj. Laufey Steingrímsdóttir/ Vaka-Helgafell
10-11 Reykjavík málaranna/ Hrafnhildur Schram/ Mál og menning
Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni
Höfuðborgarsvæðið:
Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi
Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla
Bókabúðin Hlemmí
Bókabúðin Mjódd
Bóksala stúdenta, Hringbraut
Eymundsson, Kringlunni
Penninn-Eymundsson, Austurstræti
Penninn, Kringlunní
Samantekt Féiagsvísindastofnunar á sölu bóka í október 2000. Unnið fyrir Morgunblaðið,
Félag fslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekkí eru taldar með þær
bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu timabili, né kennslubækur.
Bókabúðin Hamraborg, Kópavogi
Penninn-Eymundsson, Hafnarfirði
Utan höfuðborgarsvæðisins:
Bókabúð Keflavíkur, Keflavík
Bókval, Akureyri
Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum
KÁ, Selfossi
Ljóðað á píanó
TOIVLIST
S a 1 ii r í n n
PÍANÓTÓNLEIKAR
Hólmfríður Sigurðardóttir lék
píanóverk eftir Jóhann Sebastian
Bach í umritun Busonis, Wolfgang
Amadeus Mozart, Franz Liszt,
Edvard Grieg, Sergeij Rakhman-
inov og Dimitri Kabalevskíj.
Miðvikudag kl. 20.00.
í NÝRRI könnun Tónlistarráðs
Islands um tónleikahald á Islandi
árið 1999, kemur fram að af um
1.541 tónleikum á árinu, voru ein-
ungis 65 einleikstónleikar, og þar af
voru aðeins 29 haldnir á höfuðborg-
arsvæðinu. Petta er lítið miðað við
fjölda tónleika, og lítið miðað við
hvað framkvæmd einleikstónleika
er einfaldari og ódýrari en fram-
kvæmd tónleika þar sem margir
koma fram.
Að vísu liggur jafnan að baki
margfalt lengri æfingatími fyrir ein-
leikarann en þann sem tekur þátt í
kammertónlist með öðrum, en á
móti kemur að hér á landi er fjöld-
inn allur af hæfum sólistum sem
heldur sig til hlés þrátt fyrir færni
og getu. Sennilega spilar þarna inn í
bæði tíma- og aðstöðuleysi og sjálf-
sagt einnig kjör tónlistarfólks, sem
þykja víst ekki beysin.
Öll vinna af þessu tagi, að undir-
búa einleikstónleika, er vísast unnin
launalaust í frítíma tónlistarmanns-
ins frá launaðri vinnu. En þeir sem
vilja, geta. Hólmfríður Sigurðar-
dóttir píanóleikari er einn þeirra
listamanna sem alltof sjaldan leikur
opinberlega. Aðsókn að tónleikum
hennar í Salnum á miðvikudags-
kvöldið var góð og tónleikamir að
öllu leyti vel heppnaðir. Það væri
svekkjandi að þurfa að bíða lengi
eftir næstu einleikstónleikum henn-
ar.
A verkaskránni voru verk frá
ýmsum tímum; verk eftir marga
mestu snillinga hljómborðsins.
Sálmforleikurinn Ich ruf zu dir,
Herr Jesu Christ eftir Bach í umrit-
un Busonis fyrir píanó var fyrsta
verkið. Mjúkur ásláttur og lág-
stemmdur leikur Hólmfríðar skap-
aði stemmningu bljúgrar tilbeiðslu
og innileika. Mozart var fínlegur í
túlkun hennar; andante þátturinn
með sérstaklega fallegu legato í
syngjandi laglínunni.
Lokaþátturinn var mjög fallega
leikinn og sviptingar milli dúrs og
molls í aðalstefinu vel mótaðar.
Petrarca sonnetta nr. 104' eftir
Franz Liszt var leikin með sama
ljóðræna þokka og fyrri verkin.
Þótt Hólmfríður notaði talsvert
mikla dýnamík og gerði mikinn mun
á því veikasta og sterkasta, þá hefði
mátt færa sterkasta punktinn ofar á
hnitið til að skapa enn meiri breidd
í dýnamíkinni. Ljóðalögin hans
Griegs eru dægileg smástykki sem
láta vel í eyrum. Aríettan op. 12 nr.
1 var feiknar fallega spiluð, og með
þeim ljóðræna elegans og þokka
sem einkenndi allan leik Hólmfríðar
og Fiðrildið op. 43 nr. 1 geislaði af
léttleika og hraðir tónstigar í flökti
þess léku í höndum hennar. í El-
egía Rakhmaninovs op. 3 nr. 1 og
Prelúdía op. 32 nr. 12 eru svipmeiri
verk og þar reyndi enn meir á
breidd í dýnamík. Hólmfríður lék
verk Rakhmaninovs frábærlega vel.
Þar kom enn fram einkenni á leik
Hólmfríðar, fínleikinn og mjúki,
þýði áslátturinn; sterkustu kaflarnir
voru sterkir án þess að verða grófir
og veikustu kaflarnir mjög fallega
veikir. Enn var þó það besta eftir:
fjórar prelúdíur úr ópus 38 eftir
Dimitri Kabalevskíj. Prelúdíurnar
eru erfiðir spilagaldrar, lítil virtú-
ósastykki sem mikið er lagt í af höf-
undarins hendi. Hólmfríður Sigurð-
ardóttir lék verkin snilldar vel og
sýndi að hún á sannarlega heima í
landsliði píanóleikara.
Þetta voru skínandi góðir tónleik-
ar. Allt var vel unnið af hálfu píanó-
leikarans; enginn hálfkæringur
neins staðar; tónlistin hugsuð í
þaula. Þegar við bætist músíkgáfa í
jafn ríkum mæli og hjá Hólmfríði
Sigurðardóttur, getur ekki farið á
annan veg en vel.
Mínútuvalsinn eftir Chopin og
Maínótt eftir Selim Palmgren voru
aukalög, það síðamefnda ljóðrænt
verk og fallega leikið. Mínútuvals-
inn glimrandi fínn; hraður og snarp-
ur.
Það er ástæða til að hvetja fleiri
tónlistarmenn sem ala með sér
drauminn um að halda sólótónleika,
að láta af því verða.
Bergþóra Jónsdóttir
Söngkvartettinn Rúdolf skipa Sigrún Þorgeirsdóttir, Soffía
Stefánsdöttir, Skarphéðinn Hjartarson og Þór Ásgeirsson.
Söngskemmtun í Hömrum
SÖN GKVARTETTINN Rúdolf
heldur tónleika í Hömrum, sal Tón-
listarskóla Isafjarðar, á morgun,
laugardag, kl. 17.
Tónleikamir, sem eru áskriftar-
tónleikar á vegum Tónlistarfélags
IsaQarðar, verða með léttu sniði og
verða flutt lög úr ýmsum áttum.
í fréttatilkynningu segir:
„Stærstur hluti efnisskrárinnar
einkennist af íslenskum dægur-
lögum sem vinsæl hafa verið í
flutningi íslenskra hljómlistar-
manna og má þar helst nefna lög
eftir Sigfús Halldórsson, Magnús
Eiríksson, Stuðmenn o.fl. í erlendu
lögunum kveður við meiri jazztón
og eru það einkum klassískir
jazz-standardar og dægurflugur
eftir George og Ira Gershwin sem
verða flutt, en einnig verða sungn-
ar perlur eftir Evert Taube og Billy
Joel.
Söngkvartettinn Rúdolf skipa
þau Sigrún Þorgeirsdóttir, Soffía
Stefánsdóttir, Skarphéðinn Hjart-
arson og Þór Ásgeirsson. Kvartett-
inn flytur alla tónlistina án undir-
leiks og þykir þar fara ótroðnar
slóðir. Aðalútsef jari Rúdolfs er einn
liðsmanna hans, Skarphéðinn Þór
Hjartarson, sem er Vestfirðingum
að góðu kunnur. Hann bjó nokkur
ár á ísafirði og starfaði að tónlistar-
kennslu, bæði í grunnskólanum og
tónlistarskólanum.
Tónleikamir em 2. áskriftartón-
leikar Tónlistarfélags Isafjarðar á yf-
irstandandi starfsári. Áskriftarkort
félagsmanna gilda á tónleikana, en
verð stakra miða er 1.200. Ókeypis er
fyrir skólafólk 20 ára og yngra.“
Kórtónleik-
ar í Laugar-
neskirkju
SAMEIGINLEGIR tónleikar Ámes-
ingakórsins í Reykjavík, Samkórs
Selfoss og Vörðukórsins úr uppsveit-
um Árnessýslu verða haldnir í Laug-
ameskirkju á morgun, laugardag, kl.
17.
Kóramir syngja hver í sínu lagi og
síðan allir saman.
Söngstjóri Ámesingakórsins er
Sigurður Bragason, píanóleikari er
Bjami Þ. Jónatansson. Stjómandi
Samkórs Selfoss er Edit Molnár,
píanóleikari Miklos Dalmay. Hjá
Vörðukómum sér Stefán Guðmunds-
son um tónsprotann og píanóleik ann-
ast Katrín Sigurðardóttir.
---------------
Tónleikar í
Seltjarnar-
neskirkju
HLJÓMSVEITIR Tónskóla Sigur-
sveins koma fram á tónleikum í Sel-
tjarnameskirkju á morgun, laugar-
dag, kl. 14.
Gestir á tónleikunum era Heims-
Ijósin, kór nýbúa í Reykjavík, sem
flytur þjóðlög frá ýmsum löndum í
útsetningu John Speight.
Alls munu um 100 nemendur
koma fram á þessum tónleikum.
Stjómendur em Júlíana Rún
Indriðadóttir og Sigursveinn Magn-
ússon.
---------------
Myndlistarsýning* Nínu
Ivanovu á Isafirði
SYNING á verkum myndlistar-
konunnar Nínu ívanova í Edin-
borgarhúsinu á ísafirði verður
opnuð nk. sunnudag kl. 16.
Á sýningunni, sem heitir „Ég
var að hugsa um...“, era myndir,
hlutir og ýmisleg önnur verk frá
tímabilinu frá Moskvu til Æðeyj-
ar, að þeim meðtöldum. í kynn-
ingarskrá segir: „Samkvæmt
kenningum vísinda nútímans, þá
hugsum við ekki í orðum heldur í
myndum. Vegna þess að ég var að
hugsa, þegar ég bjó verkin mín til,
þá era þau hugsanir.“ Sýningin
stendur til 3. desember.
Ömar Smári
sýnir á ísafirði
SÝNING á verkum myndlistar-
mannsins Ómars Smára Kristins-
sonar á Bæjar-og héraðsbókasafn-
inu á Isafirði verður opnuð á
laugardaginn.
Þar verða sýnd um 30 bókverk
Ómars Smára auk margra vinnu-
bóka hans.
Sýningin stendur til 2. desember.
!
I
; .
b
í ■
I
mmm,