Morgunblaðið - 17.11.2000, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 39
Rannsóknir á áhrifum Kárahnjúkavirkjunar
Svifaur í Lagarfljóti
myndi fímmfaldast
GRUGGIÐ í Lagarfljóti yrði fjórum
til fimm sinnum meira eftir Kára-
hnjúkavirkjun en það mælist nú, litur
fljótsins gæti breyst og gegnsæi
vatnsins verður helmingi minna en
nú. Þetta eru frumniðurstöður athug-
ana á vegum Verkfræðistofu Sigurð-
ar Thoroddsen (VST) og Orkustofn-
unar á styrk svifaurs í útrennsli
Hálslóns og áhrifum Kárahnjúka-
virkjunar á svifaur í Lagarfljóti, en
frá þeim er greint á kynningarsíðu
virkjunarinnar (karahnjukar.is).
Dæmigerður styrkur svifaurs í
vatninu við Lagaríljótsbrú við Eg-
ilsstaði er 25-35 milligrömm í lítra en
gert er ráð fyrir að styrkurinn verði á
bilinu 110-160 milligrömm í lítra eftir
2. áfanga Kárahnjúkavirkjunar. Jök-
ulsá á Dal (Jökla) er afar gruggug og
flytur gn'ðarlegan aur til sjávar. Eftir
virkjun fellur mest af aumum til
botns í Hálslóni við Fremri-Kára-
hnjúk og verður eftir þar en fínasta
efnið, svifaurinn, fer með vatninu í
gegnum hverfla virkjunarinnar í
Fljótsdal og áfram til sjávar með
Lagarfljóti.
Frekari kannanir standa yfir á
mögulegum áhrifum margfalds styrks
svifaurs á lit vatns í Lagarfljóti og er
fyrstu niðurstaðna að vænta á næstu
vikum. Á grundvelli eldri mælinga
Orkustofnunar á sambandi svifaurs og
gegnsæis í Lagarfljóti má gera ráð
fyrir að dæmigert gegnsæi í vatninu
minnki úr 140 cm niður í 70 cm með til-
komu Kárahnjúkavirkjunar.
Vatnsrennsli eykst í Lagarfljdti
Vatnsrennsli í Lagarfljóti er að
jafnaði lítið á vetrum en mikið á vorin
og snemmsumars en mest að sjálf-
sögðu í flóðum. Ef af Kárahnjúka-
virkjun verður eykst meðalrennsli í
Lagarfljóti og vatnsrennsli verður
þar jafnara en nú árið um kring.
Niðurstöður mælinga vegna um-
hverfismats Kárahnjúkavirkjunar
benda til þess að meðalrennsli í Lag-
arfljóti tvöfaldist við Kárahnjúka-
virkjun. Vatnsrennsli við Lagarfljóts-
brú mælist nú að meðaltali 90
rúmmetrar á sekúndu (þar af er um
þriðjungur vatnsins ættaður úr Jök-
ulsá í Fljótsdal). Eftir 2. áfanga Kára-
hnjúkavirkjunar er áætlað að meðal-
rennsli við Lagarfljótsbrú verði 170
rúmmetrar á sekúndu. Gert er ráð
fyrir að rýmka og dýpka farveg Lag-
arfljóts á milli Egilsstaða og Lagar-
foss til að auka rennslið svo vatnsborð
hækki ekki við vatnsflutninga vegna
virkjunarinnar (þ.e. þegar vatn úr
Jökiu bætist við Lagarfljót).
Gert er ráð fyrir að fullnaðamið-
urstöður athugunar á setmyndun í
Hálslóni og styrk svifaurs í Lagar-
fljótd muni liggja fyrir í desember nk.
Kirkjan hvetur auglýsendur til að huga að jólaboðskapnum
Auglýsingar veki
fólk til umhugsunar
Rýmum fyrir nýjum vörum
Ekta síðir pelsar aðeins 99 þús.
Handunnin húsgögn 20% afsl.
Sigurstjama
Opið virka daga kl. 11—18 09 lau. kl, 11—15 Fákafeni (Bláu húsin), s. 588 4545 |
Geðheilbrigðisvika barna 10.-17. november.
Hádegisfyrirlestrar milli 12:00-13:00 í Iðnó - Veitingahúsi 2. hæð.
Föstudagur 17. nóvember
Þunglyndi hjá börnum og unglingum - Einkenni,
algengi, meðferðarleiðir. Meðal annars hópmeðferðir
fyrir unglinga.
Dagbjörg Sigurðardóttir, barna og unglinga geðlæknir,
og Linda Kristmundsdóttir, Geðhjúkrunarfræðingur.
Súpa dagsins kr. 450-,
hrísgrjónaréttur með sjávarréttum kr. 980-.
Saman kr. 1.100-.
VEITA á viðurkenningu um næstu jól
fyrir þá útstillingu, það kynningarefn-
ið og þá auglýsingu sem verður í best-
um samhljómi við boðskap jólanna.
Að framtakinu standa biskupsstofa,
Samtök íslenskra auglýsingastofa,
Samtök verslunarinnar, Húsfélag
Kringlunnar og Þróunarfélag mið-
borgarinnar. Séra Bernharður Guð-
mundsson, verkefnisstjóri á Biskups-
stofu, er spurður hver sé ástæðan
fyrir þessu framtaki:
„Kirkjunni ber að koma boðskap
sínum á framfæri við þjóðina og leita
þeirra leiða sem ná til fólks á hverjum
tíma. Hún er hluti af samfélaginu og
þar staríar hún við þær aðstæður sem
þar eru. Á þessu ári, 2000, afmælisári
Krists, viljum við sérstaklega vekja
fólk til umhugsunar um hið raunveru-
lega tilefni jólanna og hvers vegna
jólagjafir eru gefnar,“ segir hann.
Auglýsingamennska gagnrýnd
„Verslunin setur mikinn og vaxandi
svip á undirbúning jólanna og jóla-
gjaftr eru mikill þáttur í jólahaldinu,
ekki síst með vaxandi velmegun þjóð-
arinnar. Kirkjan hefur sannarlega
gagnrýnt hina ágengu auglýsinga-
mennsku sem gjarnan heldur fram
umbúðum en ekki innihaldi. Þetta
hefur verið og verður fastur þáttur í
boðun ldrkjunnar á jólaföstunni.
En í ár höfum við beint sjónum
okkar að auglýsingaheiminum sem
stundum notar ýmis tákn úr heimi
trúarinnar sem gætu villt um fyrir
fólki. Umbúðir jólahaldsins skyggja
oft á innihaldið og íhugun þess, boð-
skapinn um hvar hin raunverulegu
lífsgæði er að finna. Við höfum leitað
til samtaka verslunar og auglýsinga-
stofa um að koma á samtali og sam-
starfi til þess að fjalla um þetta að
tónn jólanna heyrist og veki okkur til
umhugsunar.“
Sr. Bemharður segir að þess vegna
gangist samstarfshópurinn fyrir
átaldnu um þessar mundir. Þar er
annars vegar málþing þriðjudaginn
21. nóvember í Þjóðmenningarhúsinu
þar sem fjallað verður um táknmál
trúar og auglýsinga og hins vegar
veiting viðurkenningarinnar fyrir
þær útstillingar, auglýsingar og
kynningarefni sem er „í bestum sam-
hljóm við boðskap jólanna" eins og
samstarfshópurinn hefur orðað það.
„Það gæti verið mikill fengur að því
að hin skapandi orka og oft snjalla
hugsun sem nýtt er í auglýsingaiðn-
aðinum ynni að því að vekja fólk til
umhugsunar og koma boðskap jól-
anna á framfæri við þjóðina á sínum
forsendum rétt eins og hefur gerst í
tengslum við landgræðsluna, varð-
veislu tungunnar og almennt heil-
brigði svo að önnur dæmi séu tekin.
Við erum alls ekki að tala um að veita
„kristilegasta" efninu viðurkenningu,
eins og heyrst hefur í fjölmiðlum,
enda ekki auðvelt að skilgreina það,
heldur því efrii sem beinir sjónum
okkar að boðskap jólanna, vekur um-
ræðu og auðveldar okkur að sjá inni-
haldið í öllum umbúðunum," segir sr.
Bernharður að lokum.
Hefur fengið góðar undirtektir
Stefán S. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunarinn-
ar, sendi nýverið bréf til verslana um
land allt í nafni starfshópsins þar sem
átakið er kynnt. Óskað verður eftir
ábendingum frá almenningi um það
efni sem þykir koma tii greina. í bréf-
inu eru vers'unareigendur hvattir til
að hugleiða framsetningu auglýsinga
efnis fyrir jólin og taka þátt í verkefn-
inu. Stefán sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hugmyndin hefði fengið
góðar undirtektir og hann sagði sam-
tökin vilja leggja því lið að menn
tækju inntak jólaboðskaparins til um-
hugsunar við gerð efnis nú fyrir jólin.
Bent er á að leita megi til Kirkju-
húss eftir upplýsingaefni um táknmál
jóla og tjáningu á boðskap þeirra.
Auglýst verður sérstaklega eftir
ábendingum sem víðast að af landinu
þegar auglýsingar, kynningarefni eða
útstillingar eru metnar.
Unnið í samvinnu við Foreldr^félag geðsjúkra barna og unglinga,
Barnaheill, BUGL, Stórstúku Islands, Samfok, Umboðsmann barna
og Barnaverndarstofu.
Gefðu
nytsama gjöf
Lófeféff KULeÁéÁLLl
í bláum, rauðum og
grænum tit.
Verð 7.397 kr.
með 15% afslætti
H(ét MITffUAKfö
loðfóðraður með vasa
fyrir GSM síma, í bláum,
rauðum, svörtum og
grænum lit, stærðir
M-XXL
Verð frá 4.217 kr.
með 15% afslætti
6ÖN§U§Kd*
vaxborið leður og öndunarfilma
Peltor HIYRNARHLlíAfl
með innbyggðu FM útvarpi
fyrir tónelska
vAiAyés
níðsterk og vatnsþétt
Héfu©y§§
fyrir jeppamenn og göngugarpa
iiife fyrir öryggjíð
SKEIFAN 3 REYKJAVlK SIMI 588 5080 FAX 568 0470