Morgunblaðið - 17.11.2000, Qupperneq 54
54 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
BENEDIKT
BJARNASON
+ Benedikt Bjarna-
son fæddist að
Holtum á Mýrum 22.
mars 1914. Hann lést
á Landspítalanum í
Fossvogi 4. nóvem-
ber síðastliðinn og
fór útfor hans fram
frá Hafnarkirkju 11.
nóvember.
Þau hverfa óðfluga
af sjónarsviðinu sem
hafa lifað 20. öldina
nær alla, öld breyting-
anna í íslandsögunni.
Heimsstyrjaldir,
kreppuár, stofnun sjálfstæðs ríkis og
síðar lýðveldis.
Nýtt líf í okkar gamla landi byggt
á hugsjónum og ótrúlegri bjartsýni,
sem varð aflvakinn að framförum á
öllum sviðum.
Samkennd okkar fámennu þjóðar
varð til að virkja samtakamáttinn í
ungmennafélaga- og samvinnuhreyf-
ingu og „ræktun lands og lýðs“ urðu
lifandi einkunnarorð sem gagntóku
hugi flestra. Sú umbreyting sem
þetta leiddi af sér í þjóðlífinu er auð-
vitað verk þúsunda fólks á ýmsum
'aldri. Við þau aldamót sem við lifum
nú, hafa mörg helstu gildi síðustu
aldar vikið fyrir öðrum nýjum.
Þetta leitar á huga minn nú þegar
við kveðjum Benedikt frá Tjörn. í
mínum huga er hann
einn af bestu merkis-
berum þessa tímabils
úr mínu umhverfi.
Benedikt var sérlega
heilsteyptur maður þar
sem allt fór saman,
andlegt og líkamlegt
atgervi, þrek og þor, og
hin rómaða skaftfellska
hógværð var honum
eiginleg án þess að
draga úr eðlilegu
sjálfstrausti hans.
Benedikt og Stein-
unn tóku við búsforráð-
um á Tjörn skömmu
áður en mesta uppbyggingarskeið
skaftfellskra byggða gekk í garð um
miðja öldina og það fór að sjálfsögðu
ekki hjá garði á Tjörn þar sem bygg-
ingar og ræktun urðu í fremstu röð.
I búi þeirra mátti gegnum tíðina
einnig finna framúrskarandi gripi
allra hinna hefðbundnu tegunda,
kúa, sauðfjár og hrossa. Þar var
stundað af kostgæfni alhliða ræktun-
arstarf.
Það fór ekki hjá því að Benedikt
væru falin trúnaðarstörf fyrir sitt
samfélag.
Ungmennafélag, sauðíjárræktar-
og nautgriparæktarfélag, sóknar-
kirkja, kaupfélag og síðast en ekki
síst sveitarfélag þar sem hann var
oddviti um skeið, nutu starfa hans í
SKILAFRESTUR
MINNINGARGREINA
EIGI minningargrein að birtast á
útfarardegi (eða í sunnudagsblaði
ef útför er á mánudegi), er skila-
frestur sem hér segir: I sunnu-
dags- og þriðjudagsblað þarf grein
að berast fyrir hádegi á föstudag. I
miðvikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þai’f
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir birt-
ingardag. Berist grein eftir að
skilafrestur er útrunninn eða eftir
að útfór hefur farið fram, er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingar-
degi. Þar sem pláss er takmarkað
getur þurft að fresta birtingu
greina, enda þótt þær berist innan
hins tiltekna skilafrests.
meira eða minna mæli um áratuga
skeið eða blómann af hans starfsævi.
Benedikt kunni vel að skipuleggja
störf sín og ekki varð séð að bú hans
gyldi þess þótt hann sinnti öðrum
störfum af samviskusemi og kost-
gæfni, og sýndarmennska kom þar
aldrei við sögu.
Benedikt var orðlagður fjalla- og
göngugarpur og sveltisgöngur í
klettum til lausnar ósjálfbjarga kind-
um voru honum léttari en flestum
öðrum enda bjó hann yfir kjarki,
gætni og krafti sem kom vel fram við
slíkar aðstæður.
Hann unni nátturu landsins,
byggðum sem óbyggðum og naut
ferðalaga og náttúruskoðunar í rík-
um mæli.
Benedikt og Steinunn bjuggu
rausnarbúi á Tjörn til 1985, hin síð-
ari ár í félagi við dóttur sína, Pálínu,
og hennar fjölskyldu, en þá fluttu
þau á Höfn.
Flest sækjum við þá öryggistil-
finningu sem við þörfnust í „fastar
skorður" daglegs hversdagslífs.
Þegar vel tekst til í þeim efnum
finnst okkur gjarna við vera skapar-
ar og húsbændur örlaga okkar, en
framvindan hefur sinn gang og
minnir okkur af og til á okkar tak-
markaða mátt og vald og þarf ekki
dausföll til. Þá reynir mest á atgervi
okkar og lífsleikni.
Við söknum vinar í stað, nú þegar
Benedikt er allur.
Söknuður er oftast blandinn eigin-
girni.
Mér er því efst í huga þakklæti
fyrir samfylgdina við Benedikt í
gegnum árin og þann lærdóm sem af
þeim leiddi.
Hlýja hans, áhugi og umhyggja
fyrir öllum sem hann unni verða
áfram til staðar.
Umhyggja tengdaföður míns fyrir
vellíðan og velgengni okkar Pálínu
var okkur mikils virði. Hann sýndi
búskap okkar lifandi áhuga og fylgd-
ist vel með hversu gekk. Þetta þökk-
um við sérstaklega á þessari stundu.
Minningar um mæta menn eru
meðal þeirra auðæfa sem mölur og
ryð fá ekki grandað og verða í far-
teski okkar á eilífðargöngunni svo
lengi sem við hirðum um að varð-
veita þær.
Sævar Kr. Jónsson.
HJORDIS
AÐALSTEINS-
DÓTTIR
+ Hjördís Aðal-
steinsdóttir
fæddist á Siglufírði
20. nóvember 1943.
Hún lést á gjör-
gæsludeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á
Akureyri 31. október
síðastliðinn og fór
útfór hennar fram
frá Siglufjarðar-
kirkju 11. nóvember.
Elsku amma mín.
Égsendiþérkæra
kveðju,
nú komin er lífs þíns nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjai’ta
þásælteraðvitaafþví
■ þú laus ert úr veikinda viðjum,
þínverölderbjörtáný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þáauðnuaðhafaþighér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þin minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Guð gefi þér góða nótt, amma mín,
og takk fyrir allt sem þú varst mér.
Ég bið Guð að passa afa.
Ég elska þig.
Þín ömmustelpa,
Lena Sóley.
11. nóvember sl. kvöddum við hálf-
systur mína Hjördísi hinstu kveðju.
Það var mér mikið áfall að frétta af
alvarlegum veikindum hennar sem
leiddu hana til dauða á aðeins þrem-
ur dögum.
Hjördís var yngst af þremur hálf-
systkinum mínum. Þegar hún var að-
eins átta mánaða gömul varð móðir
mín að gefa hana frá
sér vegna mikilla erfið-
leika í lífi sínu. Hjördís
átti því láni að fagna að
verða ættleidd af þeim
heiðurshjónum Aðal-
steini Sveinbjömssyni
og Þóru Jónsdóttur þar
sem hún naut mikils
ástríkis í uppvexti sín-
um.
Hjördís var sextán
árum eldri en ég svo
elstu bömin hennar eru
á svipuðu reki og ég.
Frá því ég man eftir
mér höfðu Hjördís og
fjölskylda hennar alltaf samband við
móður okkar og aðra í fjölskyldunni.
Mér er minnisstætt að þegai’ ég
fermdist vildi ég ekki halda veislu en
bauð í staðinn Hjördísi og fjölskyldu
hennar í kaffi ásamt annarri systur
minni og börnum hennar.
Örlögin höguðu þvf þannig til að
þegar leiðir okkar hjóna lágu saman
fyrsta sinni á Aðalgötunni á Siglu-
firði var Hjördís viðstödd. Við höfum
alltaf átt gott samband við Hjördísi
og Hansa upp frá þeim degi og þau
litu alltaf við hjá okkur þegar þau
áttu leið á Krókinn. Þau hafa alltaf
tekið okkur opnum örmum og alltaf
var notalegt að sjá hversu mikla
hlýju þau sýndu hvort í annars garð.
Það var aldrei lognmolla í kringum
Hjördísi og einatt slegið á létta
strengi í þessum heimsóknum eins
og Hjördísi einni var lagið.
Hjördísi var snyrtimennska í blóð
borin og hverskyns handverk lék í
höndum hennar. I heimsóknum okk-
ar hvorrar til annarrar bar hapdverk
ýmiss konar iðulega á góma. Ég mun
sakna sárt þessara samverustunda
okkar systra.
Ég bið góðan Guð að styrkja
Hansa, Þóru og Alla, börn hennar og
fjölskyldur þeirra í sorginni.
Lydia, Þorkell og börn.
Basar
Hrafnistu í Hafnarfirði
laugardaginn 18. nóvemberkl. 13.00 til 17.00
og mánudaginn 20. nóvember kl. 9.00 til 16.00.
Heimilisfóik Hrafnistu
í Hafnarfirði.
Landbúnaðarráðuneytið
Tollkvótar vegna innflutn-
ings á smjöri og ostum
Með vísan til 53. gr. laga nr. 99/1993 um fram-
leiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með
síðari breytingum og með vísan til reglugerðar
nr. 359/2000, er hér með auglýst eftir umsókn-
um um tollkvóta vegna innflutnings á smjöri
og ostum.
Nánari upplýsingar liggja frammi í ráðu-
neytinu á skrifstofutíma frá kl. 9.00—
16.00.
Skriflegar umsóknir skulu sendar með bréfi
eða með símbréfi til landbúnaðarráðuneytis-
ins, Sölvhólsgötu 7,150 Reykjavík, og skulu
hafa borist fyrir kl. 15.00 föstudaginn 24. nóv-
ember nk.
Landbúnaðarráðuneytinu,
15. nóvember 2000.
Landbúnaðarráðuneytið
Tollkvótar vegna innflutn-
ings á unnum kjötvörum
Með vísan til 53. gr. laga nr. 99/1993 um fram-
leiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með
síðari breytingum og með vísan til reglugerðar
nr. 360/2000, er hér með auglýst eftir umsókn-
um um tollkvóta vegna innflutnings á unnum
kjötvörum.
Nánari upplýsingar liggja frammi í ráðu-
neytinu á skrifstofutíma frá kl. 9.00—
16.00.
Skriflegar umsóknir skulu sendar með bréfi
eða með símbréfi til landbúnaðarráðuneytis-
ins, Sölvhólsgötu 7,150 Reykjavík, og skulu
hafa borist fyrir kl. 15.00 föstudaginn 24. nóv-
ember nk.
Landbúnaðarráðuneytinu,
15. nóvember 2000.
FÉLAGSSTARF
V/
Sjálfstæðisfélag Garðabæjar
Opið hús
með bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins í Garðabæ
Laugardaginn 18. nóvember nk. milli kl. 10.00 og 12.00 verður opið
hús hjá Sjálfstæðisfélagi Garðabæjar í húsnæði félagsins á Garða-
torgi 7.
Komdu hugmyndum þínum á framfæri við bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, m.a. varðandi fjárhagsáætlun næsta árs.
VERUM BLÁTT— ÁFRAM
Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar.
UPPBQQ
Uppboð
Eftirtaldir munir verða boðnir upp í Réttar-
holti, Gnúpverjahreppi, föstudaginn 24.
nóvember 2000 kl. 10.00:
2 hitablásarar með multifan mótor 4E40-6PP,
5tsement, aerotherme hitablásari nr. 188606,
Bob Cat smágrafa 753, árg. 1992, ca 10 bílhlöss
af vikursteini, ca 2300 stk. 18 mm spónaplötur,
DH-1500 hrærivél, árg. 1990, nr. 118, Harris
logsuðu- og rafsuðutæki nr. NP184P975HCI,
IM-0088, loftpressa, Alup EKV 510, JL-1838
lyftari og Nilo steypuv. og 2 vibralet staflarar,
annar Anmelt.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema
með samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
14. nóvember 2000.
mbl.is
__ALLTA/= €E/TTH\/A-Ð A/