Morgunblaðið - 17.11.2000, Page 57
‘ %0'RtitíNBtÁíjfÐ
HESTAR
■ PöS'níiiÁátiR'i". ‘nö^eMbé'r'öoöo ; !57
Miniature-hestar vekja alltaf jafnmikla athygli, aðal-
lega fyrir smæðina. Þeir geta þó dregið kerrur með
fullorðnu fólki í.
Baldvin Ari Guðlaugsson og John Lyons sem var
kampakátur eftir að hafa prófað stóðhestinn Feng
frá Hellulandi.
Islenski hesturinn og
John Lyons vinsæl
atriði á Equine Affair
Það er ótrúlegt hve margt er að sjá á stór-
um hestasýningum í útlöndum. Það finnst
okkur Islendingum að minnsta kosti þar
sem við höfum ekki haft tækifæri til að sjá
slíkar sýningar hér heima, þó það standi til
bóta. Ásdís Haraldsdóttir brá sér á eina
slíka í Springfíeld í Bandaríkjunum og hitti
meðal annars hinn fræga kappa John
Lyons, sem þar reið íslenskum hesti í fyrsta
sinn en vonandi ekki það síðasta.
AÐ ER spennandi að vita
hvaða áhrif það getur haft
á markaðssetningu ís-
lenska hestsins í Banda-
ríkjunum að fá svo vel þekktan og
virtan hestamann sem John Lyons
til að ríða íslenskum hesti í sýningu
þar sem þúsundir manna koma og
horfa á. Staðreyndin er sú að á
Equine Affair-hestasýningunum í
Bandaríkjunum hafa þessi tvö fyrir-
bæri, annars vegar John Lyons
tamningamaður og hins vegar ís-
lenski hesturinn, átt hvað mestum
vinsældum að fagna á kvöldsýning-
unum sem boðið er upp á á föstu-
dags- og laugardagskvöldum um
sýningarhelgamar.
En hver er þessi John Lyons?
Alvöru kúreki verður
hestahvíslari í fullu starfí
John Lyons hefur verið tamninga-
og sýningamaður mjög lengi og á
búgarði sínum í Vestur-Colorado
ræktaði hann Angus/Hereford-naut-
gripi. Árið 1981 var orðið svo mikið
að gera hjá honum að hann sneri sér
alfarið að því að halda tamninga-
námskeið sem aðallega voru fyrir
hestamenn sem komu með sína eigin
hesta. Eftir því sem vinsældir þess-
ara námskeiða jukust bætti hann við
námskeiðum í fyrirlestraformi fyrir
áhorfendur.
Aðferðir Johns miða að því að
temja hesta án átaka, eins og svo
margir aðrir „hestahvíslarar“ gera.
Hann vill kenna hestunum að komast
yfir hræðslu og vandræði og tamn-
ingamanninum að hafa alltaf stjórn-
ina í sínum höndum og fá hestinn til
að hlýða því sem hann biður um án
átaka. Auk þess lætur hann sig varða
hvaðeina sem tengist hestum og
fjallar um ýmis vandamál og leiðir í
tamningunni í fréttabréfi sínu og
ýmsum tímaritum.
Eftir því sem árin liðu varð eftir-
spum eftir námskeiðum Johns
Lyons sífellt meiri. Arið 1993 ákvað
hann að bjóða upp á námskeið fyrir
þá sem höfðu áhuga á að kenna sam-
kvæmt aðferðum hans. Nú, árið
2000, hafa verið haldin 4 tólf vikna
námskeið fyrir verðandi kennara
þrátt fyrir að hvert slíkt námskeið
kosti 18.000 dali og nemendur þurfi
að koma með sinn eigin hest, leigja
fyrir hann stíu og borga allt fóður og
flutninga þar að auki.
Fékk loksins tækifæri
til að prófa íslenskan hest
Þótt John sé sjálfur ekta kúreki og
ríði mest „westem“ í kúrekahnakk,
með kúrekahatt og í kúreka-
stígvélum, henta aðferðir hans hvaða
hrossum sem er og hvemig reið-
mennsku sem er. Hann virðist sjálf-
ur hafa áhuga á öllu sem viðkemur
hrossum og hefur greinilega gaman
af að prófa hinar ólíkustu tegundir
hesta og reiðmennsku.
Á kvöldsýningunni á Equine Af-
fair á föstudaginn var, kvöldið áður
en hann kom fram á íslenskum hesti,
kom hann fram í næstsíðasta at-
riðinu ríðandi á risastómm „warm-
blood“-hesti, klæddur í kjólföt, hvít-
ar reiðbuxur og svört leðurstígvél
með harðkúluhatt á höfðinu. Enda
þekkti hann enginn fyrst í stað.
Hann kom fram með konu sem er
margverðlaunaður hlýðniæfinga-
knapi og var kynntur sem meðreið-
arsveinn hennar. Þau sýndu hlýðni-
æfingar af mikilli list og þegar hann
fór að tala í hljóðnemann og lýsa
þessari nýju reynslu sinni vakti það
kátínu áhorfenda sem áttu síst von á
því að þama færi John Lyons. Þó
hann hafi enga reynslu í þessari reið-
mennsku tókst honum mjög vel upp.
John Lyons nær vel til áhorfenda,
talar beint til þeirra og lætur skop-
skynið njóta sín, hvort sem hann er á
sýningum sem þessum, í sýnikennslu
eða á fyrirlestrum. Hann er, þrátt
fyrir frægðina, mjög alþýðlegur
maður og kom það vel í ljós þegar
hann kom í hesthúsið þar sem ís-
lensku hestarnir voru til að fara í
reiðtúr með Baldvin Ara Guðlaugs-
syni áður en sýningin hófst á laugar-
dagskvöldið. Þrátt fyrir mikið ann-
ríki á sýningunni gaf hann sér tíma
til að spjalla við þá sem þar voru og
svara spurningum. Hann sagðist
vera afar ánægður með að hafa loks-
ins haft tækifæri til að prófa íslensk-
an hest. Hann sagðist oft hafa velt
því fyrir sér hvernig væri að ríða
slíkum hesti því að á þeim sýningum
sem hann hafði séð þá hafði það vak-
ið athygli hans hversu gaman það
virtist vera. Hann hafi alltaf haft það
á tilfinningunni að knaparnir
skemmtu sér konunglega. I raun
væri það furðulegt að hann hafi ekki
prófað þetta hestakyn fyrr þar sem
hann sagðist hafa prófað næstum því
allar hestategundir sem fyrirfyndust
í Bandaríkjunum.
Yfír 100.000 manns
á námskeiðum
Eftir því sem segir á heimasíðu
Johns Lyons hafa yfir 100.000 manns
komið á námskeið og sýnikennslu
hans. Auk þess hefur hann hannað
og framleitt ýmsar vörur tengdar
hestum, til dæmis færanlegt hring-
gerði og stíur svo eitthvað sé nefnt.
Hann setur einnig stimpil sinn á
ýmsar vörur sem aðrir framleiða og
hann telur hestvænar og öruggar,
hvort sem það er fóður eða bása-
mottur, svo eitthvað sé nefnt. Þá má
ekki gleyma bókum, myndböndum,
fréttabréfi og tímariti sem John
Lyons og kona hans gefa út. John
Lyons skrifar einnig greinar og svar-
ar fyrirspurnum í fjölda hestatíma-
rita í Bandaríkjunum og fjallað hefur
verið um hann í mörgum sjónvarps-
þáttum. Honum er lýst sem trúuðum
fjölskyldumanni og tekur fjölskylda
hans þátt í starii hans af miklum
krafti.
Á Equine Affair-sýningunum hef-
ur John Lyons jafnan stærsta sölu-
básinn þar sem hann selur allar vör-
ur sínar, bækur, myndbönd og fleira.
Auk þess heldur hann fjölda fyrir-
lestra og er með sýnikennslu í tamn-
ingum og hvemig bregðast eigi við
hinum ýmsu vandamálum hjá hest-
um og lagfæra þau.
Löðursveitt og móð
taugahrúga
Á sýningunni í Springfield á dög-
unum var hann með sýnikennslu á
stærsta hringvellinum á svæðinu
tvisvar á dag þá fjóra daga sem sýn-
ingin stóð yfir. Ég fylgdist með síð-
ustu sýningunni hans. Og satt best
að segja leist manni ekki á blikuna
þegar hrossið sem hann átti að reyna
að endurtemja kom inn á völlinn.
Þetta var 13 vetra gömul hryssa, lík-
lega arabablendingur, og þvílík
taugahrúga. Ég held ég megi full-
yrða að ég hafi aldrei séð annað eins.
Hryssu þessa hafði eigandinn, kona á
miðjum aldri, keypt á uppboði fyrir
nokki*um árum. Éflaust hefur hún
hrifist af fegurð hryssunnar sem var
einstök.
Konan teymdi hana inn á völlinn
sem er í yfirbyggðri höll með stórum
áhorfendapöllum. Hryssan skimaði í
allar áttir enda mörg ókunnug hljóð
sem henni leist greinilega ekki á.
John las bréf frá henni þar sem hún
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Stöðugur straumur var af fólki í fjóra daga í sýningarbása þeirra fyrir-
tækja sem voru fulltrúar fyrir íslenska hestinn.
■ r '
fslenskir, þýskir og bandariskir þátttakendur á Equine Affair. Frá
vinstri: Hulda G. Geirsdóttir, Jón Pétur Ólafsson, Götz George, Brad ,
Vogel, Snorri Dal, Holly Nelson og Baldvin Ari Guðlaugsson. Þau tóku
öll þátt í kvöldsýningunum nema Brad og Holly hjá Horsesnorth.
Holly og Loki frá Hofi að lokinni sýningu.
lýsti reynslu sinni með hryssuna. Þar
sagði hún meðal annars frá gífurlegri
sjónhræðslu hennar. Konan segist
vera búin að reyna allt til að róa hana
en ekkert hefiir gengið. Á meðan
John las bréfið kom aðstoðarmaður
hans til að halda í hryssuna fyrir
konuna sem var komin í vandræði
með hana og ekki gekk betur hjá
honum. Hryssan hringsnerist í
kringum hann og í þau fáu skipti sem
hún stoppaði stóð hún stíf og krafs-
aði í jörðina með framfótunum. Mað-
ur varð bókstaflega þreyttur á að
horfa á hana.
John Lyons benti á að svona hross
væri hættulegt vegna þess að það
væri algerlega stjórnlaust vegna
hræðslu. Þessi hryssa þyrði hrein-
lega ekki að vera til. Henni fyndist
eflaust alltaf að hún væri að drepast.
Þótt hann tæki homaboltakylfu og
slægi hana með henni myndi henni
ekki líða verr en hún gerði þegar.
Einnig sagði hann að margir eigend-
ur slíkra hesta væm alltaf að afsaka
hegðun þeirra með því að segja að
hesturinn ætlaði ekki að henda þeim
af baki eða að hann ætlaði ekki að slá.
Hann lagði mikla áherslu á að nauð-
synlegt væri að ná stjórn á henni.
Góður árangnr hjá þolinmóðum
en ákveðnum kennurum
Á um það bil hálftíma var John
búinn að kenna hryssunni að ganga
áfram í stað þess að fara í hringi og
víkja til hliðar. Bæði hryssan og
hann vom orðin löðursveitt og móð
og enn langt í land að hún væri orðin
alveg róleg. Þegar hér var komið
sögu var Ijóst að þessi hryssa þyrfti
meira en klukkutíma til að læra að
slappa af og treysta manninum.
Óneitanlega veltir maður því fyrir
sér hvað hafi eiginlega gerst í lífi
þessarar 13 vetra gömlu hryssu.
Eitthvað hlýtur að hafa gengið á því
hún var skelfingu lostin. Hún hlýtur
að vera ýkt dæmi um hross sem hann
fær til endurþjálfunar því varla held-
ur fólk upp á hross sem em öllu
verri.
Margir virðast halda að náttúmleg
hestamennska gangi út á að vera
bara „góður“ við hestana. En hjá
þeim sem stunda slíkar tamningaað-
ferðir og vora þama á sýningunni
var lögð mikil áhersla á að vera
ákveðinn við hrossin. Mikilvægt
að maðurinn sé sá sem stjómar og
þeir sem ég sá til sýndu mikla þolin-
mæði og gáfust ekki upp fyrr en þeir
vom búnir að kenna hrossunum það
sem þeir vildu að þau lærðu. Þetta
var þó gert alveg án þess að sýna
þeim hörku eða ofbeldi og var gaman
að fylgjast með hvemig hrossin
sýndu framfarir þótt tíminn væri
stuttur og sum hrossin ákaflega erf-
ið, eins og hryssan sem John Lyons
fékk í hendumar. Eins og endranær
var mikill spenningur fyrir íslensku
hestunum á kvöldsýningunum.
Áhorfendur vom vel með á nótunum
og fögnuðu ákaft, ekki síst yfir pott-
þéttum skeiðsprettum Baldvins Ara
Guðlaugssonar á Prúði frá Neðrp^
Ási sem álltaf stendur fyrir sínu á
sýningum sem þessum. Einnig vakti
það kátínu þegar hestarnir komu
fyrst inn var meðal annars einn
knapanna, Birga Wild, að lesa blað
og Hulda Geirsdóttir að varalita sig
þótt hrossin væm á fullri ferð.
Á kynningu á íslenska hestinum á
sunnudaginn var ekki lögð eins mikil
áhersla á hraða sýningarinnar en
reynt að sýna að íslenski hesturinn
væri fyrir álla. Enda komu bæði sýn-
ingarknapar, unglingar og konur á
besta aldri fram í henni. Ung stúlka,
Holly að nafni, reið til að myndiU
stóðhestinum Loka frá Hofi og fór
hann ákaflega vel hjá henni. Þessi
stelpa kom fyrst á bak í sumar og
prófaði Loka í fyrsta sinn fáeinum
dögum fyrir sýninguna. Eftir sýn-
inguna söfnuðust margir áhugasam-
ir áhorfendur saman fyrir utan höll-
ina til að fá að klappa hestunum orr
spyrja spuminga. T'-