Morgunblaðið - 17.11.2000, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ
64 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
UMRÆÐAN
Áhrif breyttra laga
á vaxtabætur
HÉR á landi er það viðtekinn
hugsunarháttur að flestir eigi það
húsnæði sem þeir búa í. Lög og
reglur hafa verið sett með það að
markmiði að hjálpa þeim tekjulægri
að eignast íbúðarhúsnæði. A árum
áður byggðu sveitarfélög íbúðir sem
seldar voru á sérkjörum með veru-
lega niðurgreiddum vöxtum. Stærð
íbúðar fór eftir fjölskyldustærð. í
dag geta þeir sem eru innan tekju-
og eignamarka fengið viðbótarlán til
kaupa á íbúðum á frjálsum markaði.
Sveitarfélög t.d. Reykjavík hefur
sett hámark sem tekur mið af mark-
aðsverði fasteigna og fjölskyldu-
stærð. 5 manna fjölskylda má kaupa
allt að 12 milljóna króna eign. Vaxta-
bætur hafa tekið við af niðurgreidd-
um vöxtum. Bæturnar geta ekki orð-
ið hærri en 7% af eftirstöðvum
skulda til íbúðakaupa auk þess sem
þær skerðast hlutfallslega fari sam-
anlagðar eignir viðkomandi skv.
skattmati að frádregnum skuldum
yfir tiltekna fjárhæð. Frá vaxta-
gjöldum hjóna/sambúðarfólks eru
■' dregin 6% af tekjum og er hámark
vaxtabóta 245 þúsund. Hámark
vaxtabóta hjá einstæðu foreldri er
180 þúsund.
Fasteignaskattar
Á síðustu tveim árum hafa gífur-
legar breytingar átt sér stað á fast-
eignamarkaðnum. Mikill skortur er
á húsnæði á höfuðborgarsvæðinu, en
annars staðar á landinu má finna
fasteignir sem eru nær óseljanlegar
og því verðlitlar.
Fasteignaskatta á að miða við
Vextir
/
Eg beini þeim tilmælum
til Alþingis, segir Gerla,
að endurskoða frum-
varpið og bæta inn í það
ákvæðum sem tryggja
að vaxtabætur fylgi
fasteignaverði.
verðmæti eignar og því liggur fyrir
Alþingi tillaga að breytingum.
I núgildandi lögum er kveðið á um
að: álagning fasteignaskatts skuli
vera afskrifað endurstofnverð fast-
eignar margfaldað með markaðs-
stuðli fasteigna í Reykjavík. I frum-
varpinu sem nú liggur fyrir segir:
„Stofn til álagningar á allar fast-
eignir skal vera fasteignamat
þeirra“ og í athugasemdum við
frumvarpi segir að „I stað þessa (að
margfalda með markaðsstuðli fast-
eigna í Reykjavík) er lagt til að mið-
að verði við fasteignamat þeirra.
Með þessu móti á að vera tryggt að
fasteignaskattur reiknist af því sem
næst raunvirði fasteignar ... núver-
andi fyrirkomulag feli í sér ójöfnuð
gagnvart fasteignaeigendum á
landsbyggðinni sem oft á tíðum sé
gert að greiða fasteignaskatta sem
séu úr öllu samhengi við raunveru-
legt verðmæti fasteignar. Fasteign-
areigendur í Reykjavík og á stærst-
um hluta höfuðborgarsvæðisins
munu á hinn bóginn verða jafnsettir
og áður.“
Þessi lagabreyting þýðir að ef
miðað er við söluvirði gæti
fasteignamat viðkomandi eignar
lækkað um t.d.
50% þannig að eign úti á landi,
sem samkvæmt núgildandi lögum er
metin á 9 milljónir, verði metin á 4,5
milljónir.
En lagabreytingin hefur ekki að-
eins áhrif á fasteignagjöld heldur
einnig vaxtabætur eins og ég ætla að
sýna hér dæmi um.
Vaxtabætur
Staða tvennra hjóna með þrjú
börn er eins. Önnur búa í höfuðborg-
inni og hin úti á landi, tekjur eru
þær sömu, verðmæti íbúðar skv.
fasteignamati og þar með skattmati
er um 9 milljónir og bíls 1,5 milljón-
ir, skuldir beggja aðila vegna íbúðar-
kaupa eru 5 milljónir.
Eftir lagabreytingar eiga höfuð-
borgarhjónin, samkv. skattframtali,
áfram 5,5 í hreina eign, þ.e. íbúð að
verðmæti 9 milljónir auk 1,5 milljóna
bíls og þau skulda áfram 5 milljónir.
Þau fá því vaxtabætur skertar (í
hlutfalli við vaxandi eign) og vaxta-
bætur þeirra falla að fullu niður við
8,6 milljóna króna mörk hreinnar
eignar. Miðað við þessar forsendur
falla vaxtabætur að fullu niður þegar
þau skulda um 2 milljónir.
Staða hjónanna úti á landi verður
breytt. Skuldin er áfram 5 milljónir
en virði fasteignar þeirra skv. skatt-
framtali, hefur í samræmi við nýtt
fasteignarmat lækkað
um 50% og fer úr 9 millj-
ónum í 4,5 milljónir.
Landsbyggðarhjónin
eiga því skv. skattfram-
tali einungis 1 milijón í
eignir umfram skuldir
þegar virði bíls er með-
talið og fá þau því fullar
vaxtabætur.
Vaxtabætur til ein-
stæðra foreldra
Gefum okkur að í báð-
um tilfellum skilji hjónin
og það foreldri sem er
með bömin haldi íbúð og
bíl og taki yfir skuldir
vegna íbúðar.
I höfuðborginni er einstæða for-
eldrið áfram með 5,5 milljónir en
skv. núgildandi lögum falla vaxta-
bætur til einstæðs foreldris að fuOu
niður við 5,2 milljóna króna eign.
Þannig nýtur hið einstæða foreldri
engra vaxtabóta þrátt fyrir að
skulda um 5 milljónir vegna íbúðar-
kaupa.
Fráskilda foreldrið með börn sem
•býr úti á landi, fær hins vegar
óskertar vaxtabætur allt að 2,8 millj-
ónir eru eftir að skuld og skertar
vaxtabætur þar til 800 þúsund eru
eftir af skuldinni.
Mismunun
Frumvarpið sem nú liggur fyrir
þinginu mun hafa í för með sér að
vaxtabætur verða mismunandi eftir
búsetu. Þeir sem búa úti á landi
gætu notið þeirra þai- til eign er að
fullu greidd, á meðan þeir sem búa á
höfuðborgarsvæðinu sitja ekki við
sama borð.
I kerfi niðurgreiddra vaxta voru
vextirnir lengst af 1% hækkuðu í
2,4%, fyrir rúmum áratug. Vaxta-
prósentan hélst óbreyttir þar til
fasteign var að fullu greidd, svo
framarlega sem kaupandi var innan
tekjumarka. I þeim málum var eng-
mn gremarmunur
gerður á hjónum og
einstæðu foreldri.
Hér að framan er
sýnt með dæmum að
samkvæmt núgild-
andi lögum um vaxta-
bætim mega hjón/
sambýlisfólk eiga
mun meira án þess að
vaxtabætur skerðist
eða falli niður en ein-
stætt foreldri og ekki
er tekið tillit tO
hversu mörg börn eru
á heimilinu.
Þessar staðreyndir
vekja upp ýmsar
spurningar. Á að nota
hjúskaparstöðu en ekki fjölskyldu-
stærð sem viðmiðun? Er ekki eðli-
legt að bætur fylgi hækkun fast-
eignaverðs? Lágmarksstærð íbúðar
fyrir fjölskyldu breytist ekki þótt
fasteignaverð hækki. Er það ekki
stefna ríkisstjórnarinnar að aðstoða
þá tekjulægri til að eignast íbúð?
Eða hefur verið fallið frá þeirri
grundvallarhugsun að nota vaxta-
bætur til að jafna bil þeirra tekju-
lágu og tekjuháu? Er ekki yfirlýst
stefna að hvetja til spamaðar? Nú-
verandi reglur um vaxtabætur
hvetja ekki til sparnaðar, heldur að
skipt sé reglulega um húsnæði og
menn eigi sem minnst.
Alþingi
Ég beini þeim tilmælum til Al-
þingis að endurskoða frumvarpið og
bæta inn í það ákvæðum sem
tryggja að vaxtabætur fylgi fast-
eignaverði, þannig að ekki verði mis-
munun eftir búsetu. Sem og að
tekjulágir bæði hjón sem og ein-
stæðir foreldrar eigi rétt á bótum
þar tfi þeir hafa greitt upp íbúð sem
er í samræmi við fjölskyldustærð.
Höfundur er varaformaður
félagsmálaráðs Reykjavikur.
Guðrún Erla
Geirsdóttir
PHYTO SOYA
JURTA ÖSTROGEN
Fæst í apótekum b—
Ofnæmi eða óþoli gagnvart hreinsiefnum
í heimilishaldi og iðnaði.
Tlðum þvotti með sótthreinsandi efnum.
Óhreinindum, málningu, olíu, kltti, sementi
o.þ.h.
Húðþurrki vegna vinnuumhverfis.
u
íhiyHA
K. Pétursson ehf
www.kpetursson.net
"J
Til hamingju,
Stj örnustúlkur!
UNDANFARIÐ hefur afreksfólk
okkar í íþróttum mikið látið að sér
kveða á alþjóðlegum vettvangi. Við
íslendingar erum jafnan stolt af
okkar fólki og látum vel af þegar vel
gengur og er það mjög gott. Evrópu-
meistaramót í hópfimleikum, Euro-
team 2000, var haldið í Birmingham
á Englandi dagana 27. og 28. októ-
ber sl. Lítið hefur farið fyrir umfjöll-
un fjölmiðla hér á landi um þetta mót
og það eru líkast til ekki margir sem
vita að lið Stjörnunnar úr Garðabæ
varð þá Evrópumeistari í dansi, með
einkunnina 9,0. Minni afreka er oft
getið í fjölmiðlum en um afrek þessa
móts hefur umfjöllun verið lítil sem
engin. Umfjöllun fjölmiðla um afrek
íþróttahópa hefur verið mjög mis-
skipt hér á landi og væri það verðugt
rannsóknarefni að kanna hvaða
íþróttahópar fá mesta umfjöllun og
einnig kynjaskiptingu hvað það
varðar. Það sama er að segja um
styrki, aðbúnað og aðstöðu íþrótta-
hópa, þar erum við stutt á veg komin
í jafnréttismálum.
Fyrir íslands hönd kepptu tvö lið
kvenna á Euroteam 2000, Stjarnan
úr Garðabæ og Gerpla úr Kópavogi.
Keppni í hópfimleikum er þríþætt,
keppt er í dansi, á trambólíni og í
stökki á dýnu. Fyrri daginn var
keppt til undanúrslita. Af sextán lið-
um sem tóku þátt í keppninni kom-
ust átta lið í úrslit. Lið Stjörnunnar
varð númer tvö í undanúrslitum, að-
eins 0,05 stigum fyrir neðan efsta lið,
en lið Gerplu komst ekki í undan-
úrslit. Seinni daginn var keppt til úr-
slita og leiddu Stjörnustúlkur
keppnina eftir tvær íyrstu umferð-
imar, þ.e. í dansi og á trambólíni. En
lítið má út af bregða í slíkri keppni
og urðu þeim á mistök í stökki á
dýnu sem urðu til þess að forystan
var töpuð, Stjarnan hlaut fjórða sæt-
ið til Evrópumeistara í hópfimleik-
um. Þrátt fyrir þetta var frammi-
staðan írábær og þær urðu
Evrópumeistarar í dansi eins og áð-
ur segir. Það er því óhætt að segja
að Stjörnustúlkumar vom okkar
landi til sóma á þessu móti. Er þetta
virkilega ekki verðugt efni fyrir
íþróttafréttir Morgunblaðsins?
Forsagan hér heima á íslandi um
Hópfimleikar
Það er hart að verða af
--7---------------------
Islandsmeistaratitli
vegna mistaka við
útreikninga, segir
Gyða Halldórsdóttir,
og enginn er sæll með
falskan titil.
þátttöku í Evrópumeistaramótinu er
þó öllu raunalegri og hefur stjóm
Fimleikasambands íslands þar eng-
an sóma af. Ég var áhorfandi á Is-
landsmótinu í hópfimleikum í byrjun
apríl sl., þar sem raunasagan hófst.
Þar varð fljótt ljóst að vinnubrögðin
við einkunnagjöf mótsins vom ekki
nægjanlega vönduð, sérstaklega
hvað varðar framsetningu og út-
reikninga. Mjótt var á munum þegar
niðurstaða mótsins var kynnt og
samkvæmt henni var Gerpla með
25,035 stig, Stjarnan í öðm sæti með
25 stig. Sem áhorfanda virtist mér
strax að munurinn væri allt of lítill
til að ekki væri enn betur farið yfir
útreikningana fyrir afhendingu
verðlauna. Án frekari athugunar
vom Gerplustúlkur krýndar sem Is-
landsmeistarar. En hvað svo? Þegar
betur var að gáð og farið yfir út-
reikninga mótsins eftir á, kom í ljós
að samkvæmt réttum útreikningum
var það Stjaman sem átti Islands-
meistaratitilinn. Samkvæmt því
hafði Stjarnan hlotið
25,00 stig í fyrsta sæti,
Gerpla 24,95 stig í ann-
að sætið og Bjarkirnar
úr Hafnarfirði 24,90 í
þriðja sætið. Þrátt fyr-
ir þetta var titlinum
ekki haggað, kæra-
fresturinn aðeins 15
mínútur og aðeins tveir
tilgreindir aðilar sem
mega kæra og kærðu
ekki innan frestsins.
Merkilegt að þessir að-
ilar þurfi að passa upp
á útreikninga án þess
að hafa til þess for-
sendur og að ná-
kvæmnin sé ekki meiri
þegar búið er við svo stífar og ófrá-
víkjanlegar reglur sem raun ber
vitni. Það er greinilegt að reglurnar
þarfnast endurskoðunar og það væri
líka ekki úr vegi að stjórn FSÍ
kynnti sér vinnubrögð hestamanna í
þessum málum en þar er réttum nið-
urstöðum framfylgt og þær látnar
gilda þó svo að verðlaun hafi verið
afhent.
Þar sem Islandsmótið átti að
skera úr um þátttöku á Evrópu-
meistaramótinu varð uppi málaþóf
mikið og erfitt í stjórn FSÍ, ekki síst
ef rétt er sem sagt er að tveir stjóm-
armenn úr fylkingu Gerplu hafi ver-
ið með í umfjöllun þessa máls. Stjórn
FSÍ ákvað að halda úrtökumót til að
skera úr um þátttöku á Evrópumót-
inu. Þar með var enn frekar brotið á
stúlkunum. Hvert mót er áhætta
fyrir þátttakendur og miklu er til
kostað við undirbúning, sérstaklega
hvað varðar vinnu og álag á líkama
og sál. Úrtökumótið var haldið 3.
október sl. og varð Stjarnan þá í
fyrsta sæti með 24,20 stig, Björk í
öðra með 24,15 og Gerpla tölvert
neðai' í þriðja sæti með 22,45. Til að
undirstrika vitleysuna og þar með
tilgangsleysi þessa móts tók stjórn
FSÍ ákvörðun andstætt úrskurði
tækniráðs FSÍ og þvert á niður-
stöður úrtökumótsins. Akveðið var
að Stjarnan og Gerpla yrðu fulltrúar
íslands á Evrópumótinu. Stúlkurnar
í Björk vom að vonum alls ekki
ánægðar með niðurstöðuna enda
þeirra árangur á úrtökumótinu ekki
virtur. Eðlileg vinnubrögð innan
stjórnar eiga að vera
þau að þeir, sem tengj-
ast málum persónu-
lega, víki af fundi þegar
um þau er fjallað. Ég
spyr! Var það gert í
stjórn FSI þegar um-
ræddar ákvarðanir
vom teknar?
Sárt er til þess að
vita að stjóm FSÍ beri
ekki meiri virðingu fyr-
ir því álagi og þeirri
miklu vinnu sem fim-
leikafólk leggur á sig til
að byggja upp árangur.
Úrtökumót aðeins
mánuði fyrir Evrópu-
mót er algjör hneisa og
ekki síst eftir það sem á undan var
gengið. Það er líka enn frekari lítils-
virðing á þann undirbúning sem til
þarf fyrir slík stórmót sem þetta
Evrópumót er. Árangur Stjörnunn-
ar var frábær. Fram hjá því verður
samt sem áður ekki litið að allt þetta
stjórn- og ráðaleysi hafði mikil áhrif
á allan undirbúning. Þetta var tmfl-
un sem kom í veg fyrir enn betri
undirstöðu.
Ég ætla rétt að vona að stjórn FSÍ
beri gæfu til þess að taka sig á við
undirbúning og mótshald hér á
landi. Það ætti að vera sjálfsögð
krafa á fimleikamótum að hver dóm-
ari birti sína niðurstöðu hverju sinni
þannig að viðstaddir geti fylgst með.
Þannig myndu viðstaddir veita
nauðsynlegt og gott aðhald og er það
líka jákvætt fyrir dómara í svo fá-
mennu þjóðfélagi þar sem tengsl
dómara geta auðveldlega haft áhrif á
einkunnagjöf. Einnig er nauðsynlegt
að dómarar hafi tölvur fyrir skrán-
ingu og útreikninga á einkunnagjöf
til að tryggja rétta útreikninga. Að
endingu má það alls ekki bregðast að
niðurstöður verði yfirfamar svo ekki
komi til að menn þurfi að þrátta um
útreikningana eftir á. Nú á tölvuöld
hlýtur að vera hægt að gera bragar-
bót á þessum málum. Það er ansi
hart að verða af Islandsmeistaratitli
vegna mistaka við útreikninga og
enginn er sæll með falskan titil.
Höfundur er hjúkrunarfræðingvr
og áhugamaður um réttlæti og
jafnrétti í iþröttum.
Gyða
Halldórsdóttir