Morgunblaðið - 17.11.2000, Qupperneq 70
70 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
sinadrAttur I
SINADR/(TTUR I
f
ÞU ÆTUR
SEINT/tt)
LAGAST!
Hundalíf
Smáfólk
T0NI6HT 15 HALLOWEEM..HOU) COME YOURE
NOT 5ITT1N6 OUT 1N A PUMPKlN PATCH UJAITIN6
FOK THE 6REAT PUMPKIN, ANP MAKIN6 ATOTAL,
COMPLET6 ANP A05OLUTE FOOL OF Y0UR5ELF?
Hrekkjavakan er í kvöld. Hvað kemur til að þú ert
ekki út á akri hjá graskerunum að bíða eftir risa-
graskerinu og verða þér til skammar?
YOU HAVE A NICE UJAY
OF UJ0RPIN6 THIN65..
Þú orðar hlutina
skemmtilega.
HEMffl
9í
THANK YOU.. I UUORK THEM
OUTON LITTLE 5LIP5 OF
PAPER 6EF0REHANP.. >
Þakka þér fyrir. Ég skrifa
þetta niður á bréfsnepla
og æfi mig fyrirfram.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Ljós við Látraröst
Frá Ólafí Guðmundssyni:
ÉG ÓSKA birtingar í Morgunblað-
inu á meðfylgjandi athugasemdum
mínum vegna rangra heimilda sem
skráðar eru í endurminningabók
Ásgeirs Erlendssonar, sem út kom
síðastliðið haust á vegum Vest-
firska forlagsins.
í þessari ágætu bók endurminn-
inga Ásgeirs Erlendssonar um lífs-
kjör í Utvíkum Rauðasandshrepps
á fyrrihluta tuttugustu aldar eru
margar og greinargóðar lýsingar á
atburðum, sem við eldri íbúar
þessa héraðs könnumst við frá
uppvaxtarárum okkar. Samt verð-
ur vart brenglaðra frásagna á
stöku stað, sem koma hefði mátt í
veg fyrir með betri yfirvegun
heimilda. Dæmi um það er á blaðs-
íðu 52, en þar segir: „Margir karl-
menn úr hreppnum fóru í aðra
landshluta á vetrum til róðra.
Þannig var það með tvo unga
bændur, sem þá nýlega höfðu sest
að í Breiðavík. Það mun hafa verið
veturinn 1924 að þeir fóru til
róðra. Sigurður Guðmundsson réð
sig á mb. Valtý frá Reykjavík en
Guðmundur Olafsson réðst til
bróður síns Haraldar, sem var
skipstjóri á mb. Goðafossi frá
Vestmannaeyjum. Þessir menn
urðu eins og svo margir aðrir að
skilja komn- og börn eftir með búin
til að sjá sér og sínum farborða.
En þeir komu ekki aftur. Báðir
þessir bátar fórust þennan vetur.
Þá var sýslumaður í Barðastrand-
arsýslu Éinar Jónasson. Ég heyrði
sagt að hann hefði gert það af góð-
mennsku sinni að kaupa jörðina af
ekkjunum og borgað sómasamlega
fyrir - og jafnvel meira en það.“
Þetta er málum blandið. Ekki
voru þessir menn nýlega sestir að í
Breiðavík. Sigurður hafði flust
þangað unglingur með föður sín-
um, Guðmundi hreppstjóra frá
Vatnsdal, 1911, en samkvæmt
ábúendatali var hann skráður
bóndi með föður sínum frá 1916 og
áttu þeir tæplega helming jarð-
arinnar. Guðmundur B. Ólafsson -
faðir minn - var fæddur í Breiða-
vík 1889 og ól þar allan sinn aldur,
tók við búi foreldra sinna þegar
ekkjan móðir hans hætti búskap,
og bjó hann einnig á öðrum tæp-
lega helmingi jarðarinnar.
Það var 28. febrúar 1920 að Sig-
urður Guðmundsson drukknaði,
fórst með kútter Valtý frá Reykja-
vík. Jarðarhluta þeirra feðganna
keypti þá Andrés Guðbjartsson, en
hann flutti til Ameríku ári síðar og
seldi þá jörðina Haraldi Ólafssyni í
Breiðavík, sem þá var skútuskip-
stjóri á skipum frá Patreksfirði, og
sá því Guðmundur bróðir hans um
búskap þeirra beggja. Haustið
1925 ákvað Haraldur að flytja til
Vestmannaeyja og taka þar við
formennsku á mb. Goðafossi. Seldi
hann þá Einari Jónassyni sýslu-
manni sinn helming jarðarinnar.
Þau kaup voru ekki af góð-
mennsku eða í gustukaskyni, því
Haraldur var frekar vel stæður,
heldur var það af áhuga sýslu-
manns á búrekstri og auknum
ræktunarmöguleikum á jörðinni
Breiðavík, eins og um er getið í
frásögn Ásgeirs.
Það var sex árum eftir drukkn-
un Sigurðar Guðmundssonar, að
Guðmundur B. Ólafsson réðst í
áhöfn hjá Haraldi bróður sínum, á
vetrarvertíð 1926, og fórst bátur-
inn með þeim bræðrum og allri
áhöfn 9. janúar 1926 við Vest-
mannaeyjar.
Ekkjan, María Torfadóttir -
móðir mín - stóð þá uppi með tvo
unga syni sína og hafði ekki að-
stæður eða áhuga á áframhaldandi
búskap, en vitað var að sýslumað-
ur vildi auka við jarðnæði sitt.
Gengið var frá sölu til sýslumanns
á hennar hluta jarðarinnar árið
1927 og það haust flutti María með
okkur syni sína og Sigríði tengda-
móður frá Breiðavík til Patreks-
fjarðar. Þetta voru einu viðskipti
sýslumanns við ekkjur í Breiðavík
og aldrei hefur það komið fram að
umsamið verð jarðarinnar hafi þá
verið „sómasamlegt - og jafnvel
meira en það“, heldur verður að
telja það eðlilegt að miðað væri við
söluverð Haraldar á jafnstórum
jarðarhluta skömmu áður.
Hitt er svo annað mál, að vegna
sjóðþurrðar sýslumanns á sýslu-
sjóði Barðastrandarsýslu var hon-
um vikið frá embætti af þeim sök-
um 1928 og fékk María því aldrei
greiddan hluta jarðarverðsins, og
vantaði þar á kr. 1.535,00, sem var
töluverð fjárhæð í þá daga. Ríkis-
sjóður yfirtók eignir sýslumanns,
þar með jörðina Breiðavík, og þess
ber að geta að tíu árum síðar, 15.
mars 1937, fékk fjárhaldsmaður
okkar bræðranna þessa upphæð
óvænt greidda frá ríkissjóði, að
móður okkar löngu látinni.
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
16 Pitt Place
Epsom, KT17 4PY, UK.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt i upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Sorgar og
samúðarmerki
Borið við minningaralhalhir
ogjarðarfarir.
Allur ágóði rennur til
líknarmála.
Fæst á bensúistöðvum,
í Kirkjuhúsinu og í
blómaverslunum.
H KRABBAMEINSSJÚK BÖRN
<5Cr HJÁLPARSTOFNUN
V3íy KIRKJUNNAR
Expresso kaffikönnur
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
fyrir raf-
magnshellur
og gas.
6 stærðir.
Verð frá
kr. 995.
PÓSTSENDUM
1