Morgunblaðið - 17.11.2000, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 75
FÓLK í FRÉTTUM
Verð 3.995
DOMUS MEDICA
við Snorrabraut - Rvík
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
HARMONIKUBALL
„Syngjum dátt og dönsum....“ í ÁSGARÐI,
Glæsibæ við Álfheima á morgun, laugardagskvöldið
18. nóvember kl. 22.00 með félögum úr Harmonikufélagi
Reykjavíkur og Ragnheiði Hauksdóttur söngvara.
Allir velkomnir.
Hvert fór
draumurinn?
Sálin hans Jóns míns: í leit að hinu fuilkomna popplagn-
á braut með titillaginu „Annar
máni“.
Þessi plata er víst hugsuð sem
fyrri hluti ákveðins þema - seinni
platan er væntanleg strax á næsta
ári - og því eru textarnir vísvitandi
óræðir og torkennilegir. Metnaður
og natni eru af hinu góða en eru
vissulega vandmeðfarnir hlutir.
Umgjörð plötunnar minnir nefni-
lega óþyrmilega á framsækna rokk-
ið sem tröllreið fyrri hluta áttunda
áratugarins (e. prog rock) er hljóm-
sveitir eins og Yes og E.L.P fóru
nett yfír strikið í alvarlegheitúnum.
Þessu metnaðarfulla og hug-
myndafræðilega verki fylgja því
sértækir textar sem fullerfitt er að
botna í. Englar, alheimurinn, eilífð-
arvél, holdgerving, og einhver
meiriháttar andans barátta er
þama á kreiki og þama er að fínna
dularfullar og djúpvitrar línur eins
og „...þær hafa hlutverkaskipti og
Sól gengur henni í móðurstað...“,
„Kannski er annar máni, önnur vídd
sem öllu getur breytt“ og „Allt er
til. Ork’og efni ummyndast hér.“
í beinu framhaldi af þessu er um-
slagshönnunin vægast sagt tilgerð-
arleg. Það er greinilegt að þetta á
vera óskaplega djúpt og alvarlegt
en sú ætlan mistekst hrapallega.
Minnir óneitanlega á auglýsinga-
herferðir símafyrirtækjanna við
fyrstu sýn; er einhvers konar Pink
Floyd umslag á villigötum.
Hljóðfæraleikur er almennt góð-
ur, þó trommuleikur sé fullhastur
og vélrænn á köflum. Hljómurinn er
í fínu lagi og notkun ýmissa hljóð-
brellna er oft á tíðum vel til fundin.
Bestan leik á plötunni á þó söngvar-
inn, Stefán Hilmarsson, sem heldur
alltaf dampi og vel það þrátt fyrir
slitróttar lagasmíðamar.
Á heildina litið er þetta frekar
áreynslulaus og tilþrifalítil plata þó
Sálin sýni, því miður þó aðeins í
tveimur lögum, að þeir era þess vel
megnugir að snara út svo sem einu
meistaraverki ef þeir myndu virki-.
lega leggja sig eftir því. En það er
ekki að gera sig, a.m.k. ekki í þetta
skiptið. Það má því fullljóst vera að
Guðmundur Jónsson og félagar ná
hér engan veginn að standa við
stóra orðin. Metnaðarfull plata? Já.
Góð plata? Ekkert sérstaklega.
Heildarniðurstaðan er því nokkuð
dapurleg en engu að síður hrein,
klár og augljós. Vonbrigði.
Arnar Eggert Thoroddsen
Jip lakkskórnir komnir
Pantanir óskast sóttar
% í
Hljómsveit Hjördísar Geirsdóttur
leikur fyrir dansi.
Húsiö opnað kl. 22:00. Miðaverð kr. 1000.
Allir velkomnir á áfengislaust dansiball.
Nefndin.
TOJVLIST
(ieísladiskui*
ANNARMÁNI
Annar máni, geisladiskur Sálarinn-
ar hans Jóns míns. Sveitina skipa
þeir Friðrik Sturluson (bassi, bak-
raddir), Guðmundur Jónsson (gítar,
hljóðsarpur, forritun, bakraddir,
farsími, hljómborð, blokkflauta,
pianó), Jens Hansson (rafsax,
hljómborð, saxófónn, bakraddir),
Jóhann Hjörleifsson (trommur,
marimba, víbrafónn, slagverk, for-
ritun) og Stefán Hilmarsson (söng-
ur, bakraddir, trommur). Sírengja-
sveit aðstoðar þá félaga í þremur
lögum. Hana skipa þau Eyjólfur B.
Alfreðsson (vióla), Lovísa B. Fjeld-
sted (selló), Sigurlaug Eðvaldsdótt-
ir (fíðla) og Margrét Kristjánsdóttir
(fíðla). Strengjaútsetningar voru í
höndum Samúels J. Samúelssonar.
Lögin eru eftir Guðmund Jónsson
fyrir utan „Upp’í skýjunum“, „Ei-
lífðarvélin“ og „Hún mun lýsa lengi
vel“ sem eru eftir Jens Hansson.
Textar eru eftir Friðrik Sturluson
og 31. febrúar, sá fyrrnefndi á sex
texta en sá síðari fímm. Upptökum
stýrði Guðmundur Jónsson. 44,27
mín. Spor/Skífan gefa út.
PLATAN Annar máni með Sál-
inni hans Jóns míns er fimmta
hljóðversskífa sveitarinnar og hún
hefur ekki verið lítil eftirvæntingin
eftir þessari útgáfu, sprottin jafnt
frá aðdáendum sem tónlistarann-
endum almennt. Kemur þar til m.a.
að Sálin, eins og sveitin er oft köll-
uð, hefur ekki gefíð út stóra plötu
með framsömdu efni í fimm ár en
þar að auki hefur sveitin verið óspör
á yfirlýsingamar varðandi þessa
nýjustu plötu sína. „Mér finnst við
aldrei hafa verið betri og að við
séum að gera langbestu tónlistina á
ferlinum, Annar máni er besta plat-
an okkar að öllu leyti,“ segir Guð-
mundur Jónsson í viðtali við Morg-
unblaðið, sunnudaginn 12.
nóvember. Fyrr á þessu ári, nánar
tiltekið 17. júní, í sama blaði, lýsti
hann því yfir að: „...á þessari plötu
ætlum við að finna nýjan hljóm. Við
erum alltaf að reyna að semja hið
fullkomna popplag. Það hefur alltaf
verið útgangspunktur þessarar
hljómsveitar."
í ljósi þessa er ekki nema von að
alþjóð hafi iðað í skinninu eftir plöt-
unni, en Sálin á sér afar stóran og
dyggan aðdáendahóp um allt
land.Við áhlustun leynir sér heldur
ekki að Sálarmenn ætla sér mikið
með þessari skífu.
í dómi sínum um plötu Sigur Rós-
ar, Ágætis byrjun, sem hann kallar
„Nýir tímar“ (12. júní 1999, Morg-
unblaðið) segir Árni Matthíasson
hana vera: „ágætis byrjun á meiri
metnaði fyrir íslenska tónlist".
Sannleiksgildi þessarar setningar
virðist vera þó nokkuð er
maður lítur yfir tón-
listarflóra dagsins í
dag, hljómsveitir
eins og Stolið og
Ulpa spila einhvers
konar framsækna
popp/rokktónlist á
meðan að sveit
eins og Land og
synir gerði
markmiðs-
bundna og af-
ar vel heppn-
aða tilraun til
að brjótast
frá þnggja
gripa poppinu yfir í eitt-
hvað tilraunakenndara og „alvar-
legra“ með plötu sinni Herbergi 313
sem út kom í fyrra. Sálin hans Jóns
míns virðist heldur ekki hafa farið
varhluta af þessari þróun þegar
platan Annar máni er skoðuð.
Gott popplag virðist stundum
gulli betra, getur jafnvel bjargað lífi
manns ef því er að skipta. Dægur-
lagasveitir eins og Bítlarnir, Beach
Boys og Abba hafa sýnt fram á gildi
þess að reyna sig við hina fullkomnu
dægurlagasmíð eins og Guðmundur
talar um. Snilldarpopplög era ekk-
ert annað en hreinustu listaverk
sem hægt er að jafna saman við
hvaða listgrein aðra sem er og plöt-
ur eins og Revolver (The Beatles)
og Pet Sounds (Beach Boys) era
sannarlega „fullkomnar" poppplöt-
ur. Héðan frá íslandi era og mörg
dæmi um frábærar poppplötur,
nægir að nefna verk eins og æ með
Unun, Tivoli með Stuðmönnum og
Herbergi 313 með Landi og sonum.
Samnefnd plata Sálarinnar frá 1991
myndi einnig hæglega fylla þennan
flokk.
Er annað lagið á Öðrum mána er
hálfnað er platan þegar á góðri leið
með að verða að tímamótaverki í ís-
lenskri popptónlistarsögu. Upphafs-
lagið „Meginbúðir andans" er ein-
faldlega frábært og lagið þar á eftir
„Ekki nema von“ er stórkostleg
poppsmíð, melódramatískt lag sem
er eitt það besta sem ég hef heyrt á
þessu ári. Þarna
er „hið fullkomna
popplag" komið
ljóslifandi í leitirn-
ar. En vonirnar um
meistaraverk Sálar-
innar fjara út með
lokatónum þessarar
snilldar, tættar sund-
ur af hressilegum en þunnum slag-
aranum „Öll sem eitt“. Næstu tvö
lög á eftir silast dauflega áfram og
það er eins og einhvem neista vanti.
Grípandi og góðar melódíur - eitt
sterkasta einkenni góðra popplaga
- era víðs fjarri. „Þú mátt vita það“
er í svipuðum rólegheitagír, hug-
myndaríkur trommuleikur nær þó
að lyfta því nokkuð upp. Lagið
„Lýður“ hristir svo aðeins upp í
plötunni, fínasta popplag sem er í
svipuðum gæðaflokki og tvö fyrstu
lögin. Lagið „Bjargvættur“ dregur
hana þó strax niður aftur í meðal-
mennskuna. Ballaðan „Hún mun
lýsa lengi vel“ er haglega smíðuð en
frekar óframleg, líður auk þess fyr-
ir kauðslegar bakraddir í endann.
Næstsíðasta lagið, „Sól, ég hef sögu
að segja þér“, er fyrirtaks popp,
hefðbundið og traust Sálarlag. Plat-
an hverfur svo hægt og tilbrigðalítið
Dansleikur í Hreyfilshúsinu
föstudagskvöldið 17. nóvember kl. 22:30
Teg. 2623 í rauðu
og svörtu lakki
Stærðir 18-24
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 -
Sími 568 9212
Rvík