Alþýðublaðið - 08.09.1959, Qupperneq 3
NYJU DEHLI, 3. sep. (Reuter).
— Dalai Lama skírskotaði í
dag til allra þjóða og allra
landsstjórna heims um hjálp
hinni hrjáðu og óhamingju-
BÖmu tíbetsku þjóð til handa.
4
á ÓL ívefur?
Á ÁRSÞINGI Skíða-
sambands Islands, sem
haldið var á Akureyri um
helgina, var samþykkt að
leggja til við Olympíu-
nefnd fslands, að sendir
verði f jórir íslenzkir skíða
menn til keppni í fjalla-
greinum Olympíuleikanna
í Squaw Vauley í Banda-
ríkjunum í vetur. — Skíða
mennirnir eru Eysteinn
Þórðarson, ÍR, Kristinn
Benediktsson, ísafirði,
Jóhann Vilbergsson, Siglu
firði og Magnús Guð-
mundsson, Akureyri. Ol-
ympíunefndin á eftir að
fjalla um málið, en það
verður gert á fundi ein-
hvern næstu daga, sagði
Bragi Kristjánsson, for-
maður Olympíunefndar-
innar í viðtali við Alþýðu-
blaðið í gærkvöldi.
Hinn ungi „guð-kóngur“ T-
beta bar þessa hjálparbeiðni
frajp í ávarpi til heimsmála-
deildar indverska þingsins.
Dalai Lama sagði, að hann
ætti einskis annars völ en biðja
Sameinuðu þjóðirnar að íhuga
mál Tíbeta, sem þegar lægi fyr
ir aðalráðinu. Hann sagði, að
hann væri fús að fallast á öll
skynsamleg ráð önnur, en sem
stæði virtist sem þetta væri
eina leiðin sem unnt væri að
fara. — Hann sagði, að áður en
kínverskar hersveitir réðust
inn í Tíbet, hafi það verið ó-
háð konungsríki. „Saklausir
menn, konur og börn, eru drep-
in hópum saman daglega til
þess að kínverska stjórnin nái
markmiði sínu, að þurrka al-
gjörlega út hina tíbetsku þjóð.
WMWWMMWWWMMIWWW
Glæpir gegn mannúðinni eru
daglega framdir — og trúar-
bragða glæpir. Þúsundir
klaustra hafa verið jöfnuð við
jörðu og helgigripir gjöreyði-
lagðir“.
Framhald af 1. síðu.
Hugkvæmni
Hannibais
Var að flytja „alþingishátíðar-
borðbúnað“ ríkisins til Kefla-
víkur til notkunar í forseta-
veizlunni.
Eisenhower boðaði forföll
Cieð eftirfarandi skeyti til for-
Beta íslands í gærmorgun, svo-
bljóðandi:
„Mér var rétt í þessu til-
kynnt að vegna veðurskilyrða
gæti flugvél mín ekki lent á
Islandi á leið okkar heim til
Bandaríkjanna. Ég þarf ekki
að lýsa því hversu leitt mér
þykir að verða af þessu tæki-
færi til að sjá enn einu sinni
hið fagra land og að heim-
sækja yður, þótt ekki hefði
orðið ' nema stutta stund.
Þakka yður innilega fyrir hið
góða boð yðar til hádegisverð-
ar.
Með beztu kveðju og ósk-
um til yðar og allra lands-
manna.
Dwight D. Eisenhower“.
Eftir viðtöku þessa skeytis
Bvaraði forseti íslands með eft-
irfarandi skeyti:
„Forseti Bandaríkja Ame-
ríku herra Dwight D. Eisen-
hower.
Flugvél forseta Bandaríkj-
anna.
Ég þakka skeyti yðar í
morgun og þrátt fyrir þau
vonbrigði að veðurskilyrði
hafa komið í veg fyrir lend-
ingu, þá þökkum við yður
vinsamlega ákvörðun að koma
hér við og þiggja boð okkar.
Ég óska yður mikils árang-
urs í alþjóðlegu friðarstarfi,
þjóð yðar allrar blessunar og
yður sjálfum góðrar heim-
komu.
L Ásgeir Ásgeirsson“.
HUGKVÆMNI Hannibals
Valdimarssonar er furðuleg,
þegar hann glennist á geyst-
Ustu sprettunum í ræðu eða
riti. Þetta sannast á Útsýn í
gær. Þar birtist löng grein
eftir Hannibal um ást hans á
öldruðu fólki og fjandskap A1
þýðuflokksins við þá þjóðfé-
lagsþegna, sem eiga honum
alla sína hagsmuni og umbæt-
ur að þakka.
Og svo kemur rúsínan í
pylsuendanum: Hann gefur í
skyn, að Alþýðuflokkurinn
hafi tapað á alþingi hlutkesti
í sjö skipti af átta vegna þess
að hann lét ekki Hannibal og
Finnboga Rút bróður hans
segja sér fyrir um afgreiðslu
mála!
Sé forstjónin orðin svona
hliðholl Alþýðubandalaginu
vegna ástar þess á aldraða
fólkinu í landinu, þá hefur
hún hins vegar gleymt að-
gerðarleysi Hannibals Valdi-
marssonar í þessum málum,
meðan hann var félagsmála-
ráðherra. Gæti útskýring þessi
ekki verið efni í nýja grein
eftir annan hvorn bróðurinn?
HONG KONG, 3. sept. (Reuter)
— Forsætisráðherra hins komm
únistíska Norður-Vietnam,
Pham Van Dong, hefur sent
orðsendingu til aðalritara Sam-
einuðu þjóðanna, Dag Hamm-
arskjöld, og beðið þess, að „ó-
réttmæt ákæra“ Laos-stjórnar
á Norður-Vietnam verði ekki
tekin til greina.
Útvarpið í Hanoi skýrði enn-
fremur frá því, að líkar orðr
sendingar hefðu verið sendar
í gær til forseta aðalráðs Sam-
einuðu þjóðanna og öryggis-
ráðsins.
í orðsendingu forsætisráð-
herrans sagði, að raunveruleg
orsök átakanna í Laos væru af-
skipti Bandaríkjastjórnar, sem
miðuðu að því, að gera Laos að
þandarískri herbækistöð.
Löve 47,66 m.
og
Á ALÞJOÐAMÓTI í frjáls-
íþróttum, sem fram fór í Ála-
borg á laugardaginn, keppti
Þorsteinn Löve, en hann var
sem kunnugt er, einn af þre-
menningunum sem tóku þátt
í Leipzig-mótinu.
Þorsteinn keppti bæði í
kringlukasti og sléggjukasti
og var sigursæll. Hann sigr-
aði í kringlukasti með 47,06
m. kasíi, annar varð Normann,
Svíþjóð, 44,92 m. og þriðji
Wulff, Þýzkalandi, 43,70 m. f
sleggjukasti sigraði Wulff
með 55,80 m., annar varð Þor-
steinn með 43,47 m. og þriðji
Nielsen, Danmörku, 40,90 m.
Keppéndur voru frá mörgum
þjóðum.
Fíllinn hans ESsen-
howers erdáinn
BRAZZAVILLE, Congó,
7. sept. — Fíll, sem Ful-
bert Youlou, forsætisráð-
Iierra Congolýðveldisins,
hugðist gefa Eisenhower
forseta, gaf upp öndina
hér í Brazzaville síðast-
liðinn föstudag,
Youlou hafði tilkynnt
Eisenhower síðastliðinn
miðvikudag um gjöfina.
Dánarorsök fílsins er ó-
kunn og hann verður því
krufinn.
opnar
sýningu
FLÓKI NILSEN opnaði s.
1. laugardag sína fyrstu
sýningu, í bogasal Þjóð-
minjasafnsins. Eru það
allt grafikmyndir, enda
leggur Flóki, eini íslenzk-
ra listamanna, eingöngu
stund á þá listgrein. Sýn-
ingin er mjög nýstáídeg
og búast má við að mörg-
um leiki hugur á að sjá
hana. Myndin er tekin við
opnunina á laugardag, —
fremst á%enni er Flóki Nil
sen. hinir eru skáldin Jón
frá Pálmholti og Þor-
steinn Jónsson frá Hamiri.
JiiiimiiimiimiiiiiiiiimimiimimmiimiiiimiimmiiiiiimiimmimiiiimiiimimiiiiiimmmiiiiiiKmmimuuir
SELFOSSI í gær. — Um
átiándu sumarhelgina var í
fyrsta sinn farinn á bílum all-
ur hringurinn kringum Skjald
breið.
Laugardaginn 22. ágúst s.l.
kl. 4 e. h. lögðu tveir jeppar
frá Selfonsi af stað og var
förinni heitið kringum Skjald
breið. Bílstjórar voru Kjart-
an Ögmundssón óg Sveinn
Guðnason, mjólkurbílstjórar
á Sélfossi. Við Ljósafoss slóst
Böðvar Stefánsson, skóla-
stjóri, með í förina. Alls voru
11 manns í þessari ferð. En
bílstjórarnir eru þaulkunn-
ugir á Grímsnesafrétti.
Var nú ekið eins og leið lá
á Þingvöll og Kaldadalsveg.
Af Kaldadalsvegi var beygt í
Brunnum og tekin stefna norð
an við Sandfell og austur með
Ilrúðurkörlum, um Lamba-
hlíðar að Tjaldafelli og þang-
að komið kl. 9 að kvöldi; en
þar skyldi náttstaður hafður.
Skömmu eftir að farið var
úr Brunnum náðu ferðafólk-
inu tveir jeppar úr Borgar-
firði, sem urðu samferða og
liöfðu sama nóttstað við
Tjaldafell. Héldu þeir að
morgni að Hagavatni og nið-
ur Biskupstungur. Að morgni
á sunnudag héldu Árnesingar
áfram förinni vestan við
Sköflungaháls að Mófellum
vestan við Hlöðufell og niður
með þeim að vestan, og þaðan
var stefnt á Skriðuhnúk og
svo niður með Skriðu, síðan
vestur að Kerlingu, sem er
hnúkur sunnan í Skjaldbreið.
Þar er leitarmannaskýli
Grímsnesinga og þaðan er illa
rudd braut um Goðaskarð nið-
ur á Hoffmannaflöt. Frá
Tjaldafellum og að Skriðu hef
ur aldrei verið ekið á bílum!
fyrr. Er sú leið mjög ógreið-
fær og seinfarin og ekki far-
andi nema1 með leiðsögn kunn
ugs manns.
Sauðfé var þarna í innstu
grösum við Þórisdal. Þess má
geta, að enga rjúpu sá ferða-
fólkið.
Skrifað cftir frásögn eins
bílstjórans. — J. K.
"•■lii 111111111111111111 ii iiii ii iii iiii 11111111 iiimt 1111111111111(11
Ein umsókn um
UM embætti skólameistara
við Menntaskólann að Laugar-
vatni hefur borizt ein umsókn,
— frá Jóhanni Hannessyni, M.
A„ bókaverði við Fiskesafnið
í Cornellháskóla í íþöku.
(Menntamálaráðuney tið).
06 SI6ARETTUR
HONGKONG. — Þegar
Kin-Cheung, fimmtugur
verzlunarmaður hér í borg
var dreginn fyrir rétt fyi ■
ir skemmstu og sakaóur
um að svíkjast um að
i- greiða fráskilinni konu
sinni tíu dollara fram-
færslustyrk á mánuði,
tjáði hann dómaranum, að
hann gæti ekki staðið við
I greiðslurnar af því hann
hefði fyrir hjákonu og átta
| börnum að sjá.
Þ,á litlu peninga, sem
| eftir væru, bætti hann
| við, þarfnaðist hann til
|: kaupa á sígarettum.
Dómarinn skipaði Kin-
i Cheung að reykja minna.
/
Alþýðublaðið — 8. sept. 1959 £
5iiiminiimíiunmiiiiiuHiiuiiiJuiuimiiniuiiiumHmii!iHiiiu!nniiU'j!:!’:!::!!í!!'i!!j!*!!iii!iumii!ii!miiiii»ir