Alþýðublaðið - 08.09.1959, Síða 12

Alþýðublaðið - 08.09.1959, Síða 12
40. árg. — Þriðjudagur 8. sept. 1959 — 191. tbl. Engar nýjar innrásir á indvérskt landsvæði Fregn til Alþýðublaðsins. Flateyri í gær. TRILLUBÁlTURINN Bliki frá Flateyri lenti í talsverðum Viðskipíi við Tékkóslóvakíu AÐ undanförnu hafa farið fram í Prag viðræður um við- skipti íslands og Tékkóslóvak- íu á tímabilinu 1. september 1959 til 31. ágúst 1960. Lauk ljeim hinn 2. september s. 1. með undirskrift samkomulags um vörulista þá, sem gilda eiga þetta tímabil. Samkomulagið undirrituðu formenn tékk- nesku og íslenzku samninga- nefndanna, þeir Frantisek Schlegl og Jónas H. Haralz ráðuneytisstjóri. Er gert ráð fyrir verulegri aukningu á sölu íslenzkrar nið- ursuðuvöru og landbúnaðaraf- urða til Tékkóslóvakíu, og einn ig nokkurri aukningu á sölu freðfisks, frystrar og saltaðrar síldar og fiskimjöls. Gert er ráð fyrir auknum kaupum ís- lendinga af vefnaðarvöru, hjól- börðum, gólfdúk, gúmmískó- fatnaði, sykri, rafmagnsvöru og járn- og trjávöru. íslenzku samninganefndina skipuðu, auk Jónasar H. Har- alz, þeir dr. Oddur Guðjóns- son og Árni Finnbjörnsson, ræðismaður. Nefndinni til ráðuneytis voru fulltrúar frá Sambandi ísl. samvinnufélaga og Verzlunarráði íslands, þeir Agnar Tryggvason og Þorvarð- ur Jón Júlíusson. hrakningum um helgina. Fór báturinn í róður á fimmtudag en á laugardag lýsti Slysavarna féilagið eftir honum, þar eð hann var þá ekki kominn til hafnar. Var þá skýrt frá því, að síðast hefði hann sést inni á Fljótavík og var talið að hann hefði verið þar að veiðum. í kvöld kl. 7,30 kom bátur inn að landi. Skýrðu mennirnir svo frá, að þeir hefðu ver:ð að veiðum en farið nn á Fljótavík til þess að taka vatn. Hafði hellzt niður hjá þeim vatn. En er þeir héldu út aftur var orðið mjög sjóótt. Héldu þeir þá sjó fram á sunnudag og voru á tímabili að hugsa um að hleypa í strand í Hornavík. Ekki varð þó af því. títvarpstæki höfðu þeir um borð og heyrðu tilkynn ! ingu Slysavarnarfélagsins en ekki gátu Þeir látið,um sig vita. í gær gátu þeir loksins látið bát vita um sig. Mennirnir voru 2 um borð, Gunnar Valdimarsson og Friðrik Þórisson. FYRRI hluti keppninnar um titilinn „Un-gfrú Reykjavík 1959“ fór fram í Tivoli s. 1. sunnudagskvöld. Komu þar fram sjö stúlkur en þrjár for- fölluðust fyr'e keppnina. Veð- rr var ekki ákjósanlegt og voru áhorfendur því ekki eins marg- ir og búast hefði mátt við. — í þessum fyrri hluta keppninnar komu stúlkurnri- fram í kjól- um, og verða fimm þeirra vald- ar til úrslitakeppni og koma þá fram á sundbolum. Urslita- keppnin átti að fara frarn í gærkvöldi, en var frestað vegna veði'rs, en hún verður strax og veður leifir, Eld-J verður um neina framhaldskeppni í útlönd um að ræða að þessu sinni, en fyrstu verðlaun eru flugferð til Mallarka og tíu daga dvöl þar, önnur vrcðlaun eru flugferð til London.eða Kaupmannahafnar. Þetta er fyrsta keppni um tit- ilinn „Ungfrú Reykjavík“ og standa forstöðumienn Tivoli fyr ir henni. Engel Lund heldur tónleika TÓNLISTARíFÉLAGIÐ held ur tónleika fyrir styrktarmeð- limi sína miðvikudags- og fimmtudagskvöld kl, 7. Engel Lund syngur þjóðlög frá 9 lönd um. Páll ísólfsson ieikur undir. MIIIIIIIIIIIIflllIIIIIIIIIIIIIIIlIIlIlIIIIfllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIfiMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIiaillllllMllllr = L | Hálmstrá Þjóðviljans: Tíminn | I er á ÞJÓÐVILJINN reynir á sunnudag að afsaka það | frumhlaup sitt að senda utanríkisráðherrum Norðurland = anna tóninn og saka þá um fjandskap við íslendinga í | landhelgismálinu. Þó er kommúnistablaðið ólíkt varfærn I ara eftir ummæli Jens Otto Krags og Halvards Lange, | enda ekki ósennilegt, að almenningsálitið hafi stungið | þykkskinnunginn. íslendingar gera sér áreiðanlega Ijóst, | að bessi framkoma í landhelgismálinu getur aðeins skað- | að íslenzka málstaðinn. En Þjóðviljinn hefur eitt hálmstrá. Það er sú dæma- | lausa tiltektarsemi Tímans að taka undir við kommún- = istahlgðið og gera frumhlaup þess að sínu. Þjóðviljinn r endurprentar uppsuðu Tímans á orðum og afstöðu komm- I únistablaðsins pg segir því næst: Hér geta menn séð, Tím | inn er á sama máli, og1 hnífurinn gengur ekki á milli Al- | þýðubandalagsins og Framsóknarflokksins. Hálmstráið er hins vegar ósköp veikt. Athæfi Þjóð- | viljans batnar ekkert við það ólán Framsóknarflokksins, | að Tíminn skyldi detta kylliflatur í sama forarpollinn. Þetta mætti verða til þess, að Tíminn reyndi að hafa | aðra og skárri stefnu í landhelgismálinu en nasnaspörk 1 Þjóðviljans. NÝJU DELHI, 7. sept. (Reuter) — Nehru, forsætisráðherra Ind land, skýrði í dag frá mótmæl- um Indverja til kommúnista- stjórnar Kína vegna innrása á indverskt landsvæði og handtöku indverskra manna í Tíbet. Nehru skýrði neðri deild ind- verska þingsins ennfremur svo frá, að engar breytingar hefðu orðið á 'norðaustur takmörkum ríkisins síðan 24. ágúst síðast- liðinn, þegar hann gaf skýrslu um íhlutun Kínverja. Nehru gaf þessar yfirlýsing- ar, þegar blaðið Indian Ex- press hafði það eftir óöruggum heimildum, að kínverskar her- sveitir hefðu ráðist inn í Lahauldalinn í Punjab. Nehru sagði, að þar hefði ekkert gerzt, a. m. k. ekki svo hann vissi. Indverskar her- sveitir væru á verði á landa- mærunum og þær mundu ekki liggja á liði sínu. Einn meðlima hægri arms Jan Sangh-flokksins sagði þá í þessu sambandi: „Við höfum það á tilfinningunni, að við sé- um leyndir einhverju varðandi það, sem er að gerast í þessu máli“. Húnerdáin BREZKA kvikmyndaleik- konan, Kav Kendall, lézt á sjúkrahúsi í London í fyrradag. Hún „sló í gegn“ fyrir nokkr- um árum í gamanleik, sem varð mjög vinsæll í London og hét: „Bell, book and candle“. Þar lék hún aðalhlutverkið á móti Rex Harrison. Þau gengu í hjónaband skömmu síðar. Síðan hefur hún leikið all- mikið og getið sér góðan orð- stí. M. a. lék hún í London að- alhlutverkið í leikriti.því, sem í íslenzkri þýðingu var nefnt „Tengdasonur óskast“ og sýnt var í Þjóðleikhúsinu s. 1. vetur. Neifa að vinna eftirvinnu ÞEGAR starfsmenn í einni járnsmiðjunni hér í bæ fengu skattseðla sína, ofbauð þeim svo, að þeir ákváðu á stundinni, að neitg algerlega að vinna eftirvinnu. Þeir sögðu sem svo: Það borgar sig ekki að vinna eftirvinnu. Þetta fcir allt í skatta. Margir hafa sömu sögu að segja. Kay Kendall var á 33. ald- ursári þegar hún lézt. UM TVÓLEYTIÐ á sunnu- daginn varð 5 ára gamall direng ur fyrir bifreið í Hlíðunum. — Hann höfuðkúpubrotnaði. — I gær var líðan hans eftir öllum vonum. Drengurinn hafði farið út eft ix' hádegið til þess að léika sér. Mun hann hafa hlaupið út á götu og þvert fyrir bifreið, sem iiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii átti þar leið um, Lögreglan og sjúkrabifreið var þegar kvödd á staðinn, og var drengurinn fluttur á Slysa- varðstofuna og að lokinn rann- sókn þar á Landsspítalann. í gær fengust þær upplýsing- ar, að drengnum líði vel eftir atvikur.^. Var vonast til, aðl meiðsli hans væru e/ki mjög al- varleg. Drengurinn heitir Svein björn Egill Hauksson, til heim- lilis að Mávahlíð 43.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.