Alþýðublaðið - 12.09.1959, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 12.09.1959, Blaðsíða 3
PEKING, 11. sept. (Reuter). — Forsætisráðherra Kína, Sjú En Fiai, lagði í dag til, að kínversk- indverska landamæradeilan yrði leyst á friðsamlegan hátt. Sjú sagði í ræðu í fastanefnd [kínverska þjóðþingsins í dag, að Indverjar hefðu krafizt þess af Kínverjum, að þeir viðurkenndu landamæri, sem ákveðin væru af brezkum heimsvaldasinnum, og Indverj- ar hefðu beitt vopnum til þess að koma fram þessum kröfum gínum. Kínversku blöðin birtu á sama tíma og ræða Sjú stóð yf- ir, hálfrar síðu landakort, sem sýndu mismun landamæralín- unnar á kínverskum og ind- verskum kortum. Þar voru einnig merktir inn 13 staðir, þar' sem sagt var að indversk- ar hersveitir hefðu ráðizt inn í Kína. í ræðu sinni sagði Sjú, að landamæralínan skyldi haldast óbreytt og ekki færð úr skorðu með ofbeldi eða ólöglegum ráð- stöfunum. Fastaráðið er kosið af kín- verska þjóðþinginu til þess að gegna störfum fyrir þingið, þegar það stendur ekki yfir. ÁSTANDIÐ HÖRMULEGT. , Tilkynningu Tass frá i gær gat að líta í kínverskum frétta- blöðum í dag, en þar var á- standinu milli Indlands og Kína lýst sem „hörinulegu“ og þess óskað, að stjórnir Ind- lands og Kína leystu deiluna á friðsamlegan hátt. Almenningur í Peking talar mikið um atburðina við landa- mærin, en ekkert hafði þar heyrzt um þessa atburði fyrr en í gær. Mikill hátíðaundirbúningur er þar í borg fyrir 1. október n. k., en þá er 10 ára afmæli kínverska kommúnistalýðveld- isins. — Drengir og stúlkur úr alþýðuhernum gengu her- göngu með riffla um öxl í sól- skininu á hinu víðfeðma „torgi hins himneska friðar“, en æf- ingar standa yfir fyrir hersýn- ingu á afmælinu. Nýja Dehli, 11. sept. (Reuter) NEHRU, forsætisráðherra Indlands, sagði firéttamönnum í dag, að hann byggist ekki við neinum bardögum — ekki einu sinni smábardögum — út af landamæradeilum Indverja og Kínverja. Hann sagði, að hann hefði áður „varað við“ og sagt að ástandið væri alvarlegs eðlis. Hefði þessi viðvörun ekkí svo lítið átt rót sína að rekja til tónsins í bréfi Sjú En-Lai á dög- »núm. Hættan væri ekki fólgiíi í landamæradeilum en „vaxandi framkvæmdar, æsings og stund lUm reiði á báðiar hliðar“. iNehru tilkynnti í dag, að ihann mundi fara í heimsókn Isína til Afganistan og íran í inæstu viku. Kyrrð s Laos LAOS, 11. sept. (Reuter). — Upplýsingaráðherra Laosstjórn ar sagði í dag, að engir bar- dagar væru nú háðir í öllu ríkinu. Hann sagði, að í stað- inn væru uppreisnarmenn að hefja áróðursherferð gegn stjórninni. Átta flutningavélar flugu til Vientiane frá Bankok í dag með aukna vopnasendingu til hers Laosstjórnar frá Ameríku mönnum. Sagt er að 260 manns hafi fallið úr stjórnarhernum síðan átökin hófust fyrir tveim mán- uðum og um 125 hafi særzt. * LONDON: •— Brezk, frönsk og vestur-þýzk blöð skrifuðu öll ánægjugreinar um ræðu Eisen- hower forseta í sjónvarpið ame- ríska. í gærkvöldi. — Ensku blöðin birtu úrdrátt úr ræðunni á forsíðum og létu í Ijósi á- nægju sína í því sambandi. að gagnkvæmar heimsóknir yrðu til þess að minnka spennu á alþjóðavettvangi. — Vestur- Þýzku blöðin voru á sömu skoð- un og frönsku blöðin voru hrærð yfir vinsamlegum at- hugasemdum í garð Frakka. •—o— ic SIDNEY: — ' Alexandra, prinsessa af Wales er nú í heim sókn í Ástralíu. Prinsessan nýt- ur mikillar hylli almennings. í dag var hún að horfa á flug- elda,. en skyndilega féll log- andi, ískrandi kúla niður svo sem 20 metra frá prinsessunni. Opinberir yfirvaldsmenn, sem sátu hið næsta prinsessunni, ruku í skelfingu upp til handa og fóta, eú) hún brosti aðeins góðlátlega. Enginn særðist og allir voru stórhrifnir af fram- komu prinsessunnar. ■—o— ic LONDON: — Nikita Krú- stjov tók í dag á móti Takeo Miki, aðalritara hins frjáis- lynda lýfræðisflokks í Japan, sem situr nii að völdum. — Á- heyrnin var veitt samkvæmt beiðni Mikis. —o— KAUPM.HÖFN; — Friðrik konungur, sem núér 60 ára að aldri veiktist í dag. Opinber- lega hefur verið frá því skýrt að veikindin séu ekki alvarleg, en konungur hefur þjáðst af lungnasjúkdóm. Framhald af 1. síðu. Hirnar. Þeim var bannað að tala. Þeir reyndu að útskýra hvern- ig á ferðum sínum stæði en þemi var sagt, að ef þeir ekki Bteinþegðu yrðu Þeir skotnir. LOFA Ö.LLU FÖGRU. Bawdaríska utanríkisráðu- jieytið gaf út eftirfarandi yfir- lýsingu eftir að Thor Thors Ihafði borið fram mótmælin: Atburðirnir á Keflavíkurílug Velli hafa verið ræddir við ís- lenzka ambassadorinn á mjög vinsamlegan hátt. Og ráðuneyt- ið hyggst athuga málið gaum- gæfilega þegar í stað. Ambassa dorinn var fullvissaður um það, að unnið yrði að fullnægjandi lausn á máli þessu mjög fljót- lega. _______________ f* KALKÚTTA: — Stjórn VesturrBengal skipaði svo fyrir í dag, að alliy þeir, sem teknir Voru fastir í sambandi við ó- eirðirnar se mvi."ðu út af mat- vælaverði fyrir skömmu síðan, Bkyldu allir látnir lausir. Knatispyrnumót Norðurlands KNATTSPYYRNUMÓT Norð- urlands hófst á Akureyri í gær. Fóru fyrstu leikar þannig að KA unnu HSÞ með 10:2 og Þór KS með 4:1. — í dag keppa HSÞ við KS og Þór við KA. London, 11. sept. (Reuter). ÍHALDSFLOKKURINN, — flokkur Harolds Macmillan, forsætisháðhdsga. hóf kosninga- baráttu sína fyrir þingkosning arnar 8. okt. n. k„ með Þeirri yfirlýsingu, að hann hafi vutt Komið upp um Uhdirbúning moriilræiis við Hakarios Nicosia, 11. sept, (Reuter). EINN foringja fyrrverandi neðanjíirðarhreyfingar þjóð- ernishreyfingarinnar á Kýpur, var ákærður hér í dag fyrir að hafa staðið að undirbún- ingi morðti’ræðis við Maka- rios erkibiskup. Fundur trúnaðarbréfs frá fyrrverandi meðlim EOKA- hreyfingarinnsc í Aþenu til reglubróður hans á Kýpur varð til þess að upp komst um samsærið. Það var ekki Makarios einn, sem láta átti lífið heldur með ’honum 50 af fylgdarmönnum hans, þ. á. m. nokkriir ráðherv ara úr bráðabirgðastjórn Kýp- ur. Onassis og María flugu saman til Feneyja Feneyjum, 11. sept. (Reuter). MARIA CALLAS kom til Feneyja í dag í flugvél í fylgd með skipakónginum Onassis, en hin gljáhvíta skemmti- snekkja skipakóngsins lá við akkeri í höfninni. Hinn 53 ára gamli auðkýf- ingur, Onassis, hafði verið í sífelldum feluleik við frétta- menn í Mílano og kórónaði síð ast snilld sína með því að lenda einkaflugvéj sinni á örsmáum, afskekktum flug- velli nálægt Milano, þac sem óperusöngkonan, sem þekkt- ust cr’h'idir nafninu „Tígris- ynjan“ á Ífalíu beið hans með litla kjölturakkann sinn en engan farangur. Til þessa hafa bæði hjúin neitað því fastlega, að á milll þeirra væri nokkuð nema „vin átta“. Onassis sa-gði fréttamönnum í París í gair, að hann myndi fljÚga til Feneyja í dag til þess að fara um horð í skemmtisnekkju sína, sem þar liggur við akkeri og fara síð- an í 10 daga ferð til Grikk- lands. Hann lét þess ekki get- ið, að Maria mundi fara með honum. Maria Callas lýsti því yfir á þriðjudaginn, — að 10 ára hjúskap hennar og fyrrverandi iðjuhöids Giv- anni Battista Meneghini væri lokið, en „ekki af tilfinninga ástæðum“. Meneghini, sem er 62 ára sagði í viðtali við firéttamenn í gær. að hann reiknaði skiln- að sinn við konuna frá þeirvi stundu, er þau komu af skipi Onassis. Skipakóngurinn skildi við hina 28 ára gömlu eiginkonu á flugvellinum í París í dag. Þau voru umkringd blaða- mönnum. Til þess að komast hjá.slík- um ófögnuði, þegar Iian gfipi „tígrisynjuna“ upp í vél sína lenti hann á afskekktum flug velli. brautina fyrir gagnkvæmum heimsóknum Eisenhowe.rs og Krústjovs. 1 hinni opinberu yfirlýsingu flokksins stóð, að fyrir „frum- kvæði íhaldsstjórnarinnar hafi djúpið milli vesturs og austurs verið brúað“. Því var bætt við, að í kjölfar heimsóknar Mac- millan til Sovétríkjanna s. 1. vetur hafi fylgt fjöldi atburða, sem hafi dregið úr spennunni a alþjóða vettvangi. „Gagnheim sóknir Krústjovs og Eisenhow- ers eiu síðustu sannanirnar“. Við blaðamannafund, sem. boðað var til af tilefni þessarar flokksyfirlýsingar, sagði Mac- millan. að hinar ggnkvæmu heimsóknir æðstu manna aust- urs og vesturs sköpuðu nýtt á- stand. Macmillan vildi, að framámál flokksins í kosningunum væru utaríkisstefnan Og fundur æðstu manna, en verkamanna flokkurinn hefur þú bent á það, að fundur æðstu manna hefur ætíð verið eitt af hans baráttu- málum. Þingi alþýðusambandsins brezka lauk í dag, en þar yar lýst yfir stuðningi við verka- mannaflokkinn í kosningunum. mMMWMWMWWWMWW flugu saman hið átt til Feneyja og lystisnekkjunnar, svo blár reykurinn stóð aftur af þeim. Og þau snarasta í VARSJÁ, 11. sept. (Reut- er). — Sextán ára gömul skólastúlka, sem franidi sjálfsmorð með því að stökkva út um glugga á fimmtu hæð lenti niður á 49 ára gömlum manni og meiddi hann svo, að hann lézt á sjukrahúsi daginn eftir. — Fregn þessi birt- ist í pólska blaðinu Wiec- zorny í dag. WWWWWWWWWWMWMW Alþýðublaðið — 12. sept. 1959 J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.