Alþýðublaðið - 06.11.1959, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 06.11.1959, Blaðsíða 10
Leikfélag Selfoss IKAUPB LAUGARDAGINN 24. Þ. m. frumsýndi Leikfélag Sel- fosS „Koss í kaupbæti“. Sýn- ingin fór fram í Iðnskólahús- inu. Aðsókn og undirtektir voru hinar beztu, þrátt fyrir að kjördagur væi'i að morgni næsta dags. Allir er kynnzt hafa þess- um leik, sem er gamanleikur, og öðrum slíkum, vita hvers þarf helzt með svo þeir fái notið sín. Margur, sem er ókunngur leiklist, heldur að miklu auð- veldara sé að sviðsetja gam- anleiki en sjónleiki af öðru tagi; en svo er þó ekki í raun og veru. Sýningin bar það með sér, að leikendur hafa ekki verið einir' að v'erki, enda' notið leið beiningar eins reyndasta og bezt menntaða leikhússmanns, sem völ er á. En leikstjórinn var Haraldur Björnsson, einn af frumerjum leiklistar höfuð staðarins. Hlutver'kaskipun var þessi: Harry Archer er leikinn af Ólafi Ólafssyni. Ólafur hefur komið fram áður á leiksviði á Selfossi við góðar undirtekt- ir. Hann br'ást heldur ekki að þessu sinni og varð lögfræð- ingurinn, mjög sannur í með- ferð hans. Konu hans Janet lék frú Lo- vísa Þórðardóttir. Hún hefur áður sýnt ótvíræða hæfileika m. a. í Vilborgu grasakonu í „Gullna hliðinu“; er sýnt var á Selfossi og víðar fyrir nokkr um árum. Lovísa gerði hlut- verki sínu hin prýðilegustu skil, bæði sem móðir og eig- inkona, svo ekki hallaðist á ' hjá hjónunum. Börn þeirra, Lenny og Corliss, léku Hall- dór Magnússon og Elín Arn- oldsdóttir. Bæði hafa þau sést áður á „senu“ við góðan orðstír. Halldór fór mjög lögu lega með sitf hlutverk að þessu sinni. Elín Arnolds- dóttir er mjög samvizkusöm við æfingar og trú við sjálfa v sig. Enda er svo að hún má tvímælalaust teljast hlutgeng á leiksviði þó víðar væri en á Selfossi. Meðferð hennar á hlutverk- inu var slík að vart verður betur gert eftir mínu viti. Geor'g Areher lék Klemens Erlingsson. Hlutverkið féll sér lega vel að persónu Klemens- ar, enda meðferðin eðlileg og sönn. Louise, þjónustustúlkuna, lék frú Kristín Helgadóttir af sönnum myndugleik, mjög eðlileg í umgengni við heim- ilisfólkið og þá, sem að garði bar. Robert Pi'ingle var í hönd- um Óla Þ. Guðbjartssonar, lítið hlutverk, en þó ekki vandalaust vegna eðlis síns, en þar var hvorki of né van, enda Óli áður sýnt að hann veldur hlutvei'ki, þó stærra sé. Konu hans, Dorothee, lék Ingunn Jónsdóttir, að ég ætla lítt vön, en fór svo með hlut- verkið að ætla hefði mátt að þar væri ekki viðvaningur á ferð. Mildred, dóttir þeirra, Iék Nína B. Knútsdóttir, nýliði, en fór mjög Iögulega með sitt hlutverk, og var þó ekki vandalaust á köflum. Raymond bróðir Mildredar lék Guðlaugur Thorarensen. Leikur hans var mjög skemmtilegui', en nokkuð brast á framsögn,sem eðlilegt er, enda aðeins 12 ára dreng- ur. William Frankin lék Sig- urður S. Sigurðsson, nýr mað- ur á leiksviði, en lofar engu gð síður góðu, ef áfram held- ur. Konu hans Mary lék Hulda Þórðardóttir. Hún hefur áður lítillega komið á svið, m. a. á Laugaivatni og sást það full- vel á leik hennar í frúnni, að hún býr yfir meiru en þetta hlutverk gaf tilefni til. Dexter son þeirra lék Sverr ir Guðmundsson.. Meðfeið hans á hlutverkinu var slík, að auðséð er að þar er efni- viður fyrii' hendi, enda nokk- uð vanur, m. a. frá Hafnar- firði. Vonandi eiga Árnesing- ar eftir að sjá hann oft á leik- sviði í framtíðinni. Jimmy Earhart lék Stein- dór Hjörleifsson, lítið hlut- verk, en engu að síður skilað af trúmennsku. Willard málara lék Klem- ens Erlingsson og verður að telja eðlilega meðferð hans á því litla hlutverki. Heildarsvipur leiksins var slíkur, að ástæða er að telja sýninguna nokkurt afrek, og full ástæða er að óska félag- inu til hamingju með það að hafa tekizt á hendur að skemmta Árnesingum og ef tþ vill nágrönnum nú í skamm- deginu. Ekki verður skilizt við þetta mál án þess að minnast fram-. kvæmdastjóra félagsins, frú Áslaugar Símonardóttur. Ég fullyrði af kunnugleika að vafasamt mætti telja að fél. tækist það, sem gera á án hennar. En hún leysir útrétt- ingar allar af svo frábærri elju og rögg, að fágætt er, enda munu þeir, sem hún leit- ar til með hjálp, meta áhuga hennar og ósérhlífni og veröa því jafnan vel við bón henn- ar, og skal það þakkað jafn- framt. Sýningin fór fram í Iðn- skólahúsinu eins og áður grein ir, en það hús var stækkað í haust vegna þarfa skólans, en jafnframt var þá reynt að sinna þörfum leikfélagsins eftir beztu getu, og ber að þakka foiráðamönnum hrepps félagsins þann skilning og stuðning, sem þeir jafnan hafa sýnt hinu unga leikfélagi. Þessi lausn á húsnæðismál- um hinna ýmsu félaga á Sel- fossi er þó ekki nema milli- stig og leysir ekki vandann. Takmarkið hlýtur að verðh myndarlegt félagsheimili í Þessum fjölmennasta hreppi sýslunnar, og vonandi að það mál verði leyst sem fyrst til vaxtarskilyiða hinum ýmsu félögum, sem nú eru á hrak- hólum, og menningarauka hinu ört vaxandi kauptúni við Ölfusá. Þökk fyrir skemmtunina, Leikfélag Selfoss, megi gifta og stórhugur jafnan vera hlutskiptið. G. J, iVIINNINGARORÐ: J ^ Guðfinna Jónsdóftir Blóðbruflaup „BLOÐBRULLAUPIГ verður sýnt í Þjóðleikhús inu í kvöld kl. 8. Er það sjöunda sýnjng á þessu leikriti. Þetta fræga leik- rit Lorca er talið eitt mesta meistaraverk leik- bókmenntanna, sem skrif- að hefur verið á þessari öld. Ohætt er að ráðleggja öllum, sem unna fögrum skáldskap, að sjá þetta Iistaverk. — Myndin, er af Arndísi Bjömsdóttur í hlutverki móðurinnar. VAMMUUVMWMMVMMMMM' Ýfarlepr gras- Framhald af 2. síðu. slíkt gefa mjög góða raun. Myndast þá ekki of hár hiti í grasinu og fá má fulla nýtingu votheysgeymslunnar með því að nota lausan hólk til síðustu fyllingar og fergjunar. Framangreindai' upplýsingar létu þeir Steingrímur Her- mannsson, forstöðum. Rann- sóknaráðs ríkisins, cg Ásgeir Þorsteinsson verkfræðingur fréttamönnum í té í gær, og sýndu um leið fyrrnefndar til- raunir í grasverkun. GUÐFINNA JÓNSDÓTTIR lézt að heimih sínu, Fi'akkastíg 20, 31. okt. sl. og verður borin til grafar í dag. Guðfinna var fædd 27/8 1872 að Arnarhóli í Gaulverjabæjar- hreppi, dóttir Jóns Þói ðarsonar og konu hans, Helga Símonar- dóttur. Þegar Guðfinna var á þriðja ári fluttust foreldrar hennar að Þóroddsstöðum í Ölf- usi og ólst hún þar upp til 10 ára aldurs, en flutti þá til Reykjavíkur og var þar búsett til æviloka. Árið 1895 giftist hún Magnúsi Magnússyni múr- ara, en hann missti hún árið 1944. Guðfinna hafði mikla mann- kosti til að bera, ríka réttsýni, trúmennsku og vinnusemi. Það má með sanni segja, að Guð- finna hafi verið góð kona og kom það ekki sízt fram í barn- gæzku hennar. Henni varð sjálfri ekki barna auðið, en ól upp tvær fóstur- dætur, Láiu Proppé og Sigríði Magnúsdóttur. Láru missti hún árið 1926, en Sigríður bjó ávallt hjá fósturmóður sinni. Er börn Sigríðar og síðai' barnabörn uxu upp, tók Guð- finna miklu ástfóstri við þau; hún kenndi þeim trúrækni og iðjusemi.og verða þau áhrif, er hún hafði á börnin, seint þökk- uð. Börnin voru allt hennar líf og var hún ávallt með hugann við „blessuð börnin sín“. Við flest, börnin hennar, gát- um lítið launað ástúð hennar, en mikið vel kunni hún að meta alúð og umhyggju þeirra, er önnuðust hana í veikindum hennar. Við kveðjum hana í dag, en minninguna um góða og ásti'íka móður munum við ávallt eiga. E. Smygl Framhald af 1. síðu. i óskuðu þeir eftir að fá lög- bundna leitarheimild í verzlun- um, en ekki tókst að fá það f gegn. Við það situr. Áfengissmygl kvað Unn- steinn ástæðu til að ætla að hefði stórminnkað upp á síðkast ið. Bæði hefði Tungufoss-smygl ið haft sín áhrif og eins ætti tollgæzlan æ betra með að fylgj ast með áfengiskaupum íslend- inga erlendis. Nýjar bækur (Framhald af 4. síðu). eftir Peter Freuchen, Ferð um fornar helgislóðir eftir sr. Sig- urð Einarsson, Bréf Matthíasar Jochumssonar til Hannesar Haf stein og nýtt bindi í ritflokki Matthíasar Jochumssonar. •— Myndin, sem hvarf nefnist skáldsaga eftir Jakob Jónsson, Kominn af hafi er skáldsaga eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur og smásögur eftir Ragnheiði Jónsdóttur. Álitamál nefnist bók eftir Símon Jóh. Ágústsson og Prédikanir séra Ásmundar Guðmundssonar biskups. Loks koma út 7 barna- og unglinga- bækur. MARGAR í DEIGLUNNI Fjölmargar bæku.- aðrar en þær, sem nú hafa verið taldar koma auðvitað út um jólin. For lagsbókum Menningarsjóðs var sagt frá hér í gær og auk þess munu fjölmargir aðrir útgefend ur vera á stjái með eina bók eða fleiri. Sumir forleggjarar vildu helzt ekkert segja frá bókum sínum í gær og báru því við, að ekki væri víst að þær kæm- ust út fyrir jólin. Þannig geng- ur á ýmsu með jólabækurnar. Framhald af 3. síðu. 1925. Hin síðasta „Vígbúnaðar- kapphlaupið“, kom út í júní í fyrra. Þess má geta til gam- ans, að hann varð annar í 1500 metra hlaupi á Olympíuleikun- um í Stokkhólmi 1912. Yfirlfiini Klæðskerar. VEGNA greinar í Þjóðvilj- anum í gær um búrekstur á Ketlu á Rangárvöllum, óska ég að blaðið birti eftirfarandi leiðr.éttingu: Nokkur undanfarin ár höf- um við 'Vilhjálmur Þór rekið nokkurn búrekstur á Ketlu. Síðastliðið haust tók ég einn við nefndum biirekstri, og er Vilhjálmi Þór hann með öllu óviðkomandi síðan. Hvað viðvíkur hinni mjög slæmu útkomu á vænleika lambanna í haust, þá mun koma í Ijós, að þar var ekki fóður- skoríi um að kenna. Skúli Thorarensen (sign). Reykjavíkurhöfn óskar eftir tilboði í föt og kápur handa 20 mönnum (hafnsögu-véla og * vatnsmönnum hafnarinnar), Tilboð ásamt efnissýnishorni sendist hafnar- skrifstofunni fyrir 30. des. n.k. Hafnarstjórinn. Framhald af 12. síðu. Sisavang Vong kom til valda 1004 í landi „hinna milljón fíla og hvítu sól- hlífanna". Þá var Laos í'rönsk nýlenda. Konung- urinn var tengdur Frakk- Iandi sterkum höndum, hann fæddist 14. júlí 1985 á þjóðhátíðardegi Frakka , stundaði nám í frönskum skólum og unni öllu því er franskt var. Líf hans var sambland vestrænna siða og austrænna. Hann er talin hafa átt 25 kon- ur og 38 börn, en opinber- lega átti hann aðeins eina konu og hörn þeirra ein eru konunghorin. Sisavong hefur ríkt lengur én nokkur annar konungur. f 6. nóv. 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.