Alþýðublaðið - 06.11.1959, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 06.11.1959, Blaðsíða 12
40. árg. — Föstudagur 6. nóvémber 1959 — 241. tbl. IÞetta eru óvenjulegar mýnd'i.-. Þær eru teknar á því augnabliki, er innbrotsþjófuv var istaðinn að verki og handtekinn. Það var lögregluhundurinn Champ, sem tók mann- inn. Maðurinn hylur andlit sitt fyrir ljósmyndavélinni, langar ekki til að þekkjasi í blöðunum, en samt cr það eins og alltaf, — „of seint að iðrast eftir dauðann.“ Wl f_ Síamstvíburarnir í Oregon skildir sundur úr BANDARÍKIN áttu að- eins tvær kjarnorkusprengj- ur árið 1945 og vörpuðu þeim báðum á japanskar borgir. Er skýrt frá þessu í grein í banda ríska tímaritinu TJS News and World Report og segir að hinn nýlátni hershöfðingi George Marshall hafi skýrt frá þessu við blaðamann frá ritinu árið 1954 en beðið um að ekki yrði frá þessum staðreyndum skýrt fyrr en eftir dauða sinn. í viðtalinu segir Marshall, .að eftir lilraunirnar með kjarnorkusprengjuna í Nýju Mexikó 16. júlí hafi herfræð. ingar ekki vitað hvernig átti að nota hana í styrjöld. Sum- ir vildu varpa sprengjunum í hafið út af Japan en ekki var vitað hvernig hún mundi hegða sér í vatni. Aðrir lögðu til að sprengjunni yrði varp- að á hrísgrjónaakur til þess að hlífa mannslífum. Marshall sagði að mikil leynd hefði hvílt yfir þessum fyrirætlunum og jafnvel Mac Arthur, yfirmaður bandaríska hersins á Kyrrahafssvæðinu hafi ekki vitað um sprengjurn ar fyrr en þær voru fluttar til bækistöðva þar áður en flogið var til Hirosmíma. Áuðvifað leikkona. PÓRTLAND, okt. (UPI). — Tvær litlar stúlkur, sem dval ið hafa alla sína stuttu ævi á sjúkrahúsi, hverfa væntan- lega bráðum heim til sín, al- heilbrigðar. Leanettc Kim og Dennett Linn fæddust 29. júní í sumfK- og voru þá fastar saman á brjóstinu. Þær eru dætur bóndahjóna í Oregon- fylki. A undanförnum árum hefur nokkrum sinnum verið rejmt að aðskilja slíka Síams tvíbura og stundum héfuic það HÚN heitir Marie Da- ereux og er auðvitað kvik myndaleikkona, ensk, frá New Malden í Surrey. Hún leikur í kvikmynd, sem á að gerast á Ind- landi, en sjálf hefur hún nátturlega aldrei til Ind- 'lands komið. tekizt. 6. október sl. voru þær aðskildar að viðsíöddum íjöl- mörgum læknum og h júkrun- arkonum. Tókst aðgerðin sjálf vel, en eftir uppskurðinn veiktist önnur stúlkan af sjúkdómi, sem lækmvnir réðu ekki við í fyrstn. Varð að gera á lienni ýmsar aðgerðir til þess að hún gæti andað eðlilega. Nú*Virðist hún kom- in yfir þetta. En annað vanda mál krefst úrlausnar. Þær hafa báðrc sár þar sem te.kið var skinn af líkama þeirra til þess að setja yfir sárið, sem kom þar semj þær voru fastar saman. V i'ður að gera á þeim vandasamar aðgerðir áður en þær fá að fara heim, en lækn 8i- eru vongóðir um að þetta takist. In hjóbins engin FRUMMAÐURINN varð grænmetisæta í fyrstu en fór að éta kjöt fyrir um 500 þús. árum, segir enskur mann- fræðingur, dr. S. B. Leakey að nafni, í fyrirlestri, sem hann hélt fyrir skömmu í London. Það var dr. Leakey, sem fann leifar af beinagrind frummanns, er hanh telur vera hlekk milli apamanns ins og mannsins. Um þennan fund hefur mikið verið rætt. Fundarstaðurinn er Olduvay- gjáin í Austur-Afríku. Frum- maður þessi hefur hlotið vís- indaheitið: „Zinianthropus Boisei. Beinagrindin var í 450 brot- um, sem vísindamenn urðu að setja saman af miklum hag- leik og kunnáttu, áður en heil leg mynd skapaðist af þessum frumsstæða manni. Hjá henni voru steinverkfairi og beina- grindur af fuglum, rottum, eðlum og fleiri dýrum, sem WWWWWWWWWMWWM hann virðist hafa lagt sér til munns. Annars er það af rannsóknum á tönnum hans, sem vísindamenn telja sig geta dregið þá ályktun að hann hafi nýlega verið farinn að taka upp kjötát, segir dr. Leake.v. 30. OKTÓBER sl. var lát konungsins í Laos til- kynnt með 21 fallbyssu- skoti í höfuðborginni Luang Prabang. Sisavang Vong varð 74 ára að aldri og hafði ríkt síðan 1904 eða í 55 ár samfleytt, ef frá eru drengir nokkrir mánuðir 1945. Við kon- ungdæminu tekur sonur hans, Savang Vatthana, 52 ára. Framhalda á 10 síðu. JAKARTSA, Indónesíu, okt. (UPI). Reiðhjólið hefur breytt lifnaðarháttum indónesisku þjóðarinnar. Það hefur kom- ið eins og blessun til þessar- ar þjóðar, sem svo illa hefur gengið að fá faratæki, sem henta landslagi og staðhátt- um. Reiðhjólið er eiginlega tákn hins nýja ríkis Indó- nesíu. Hollenzkur þjóðfélags- fræðingur hefur látið svo um mælt, að án reiðhjólsins hefði aldrei orðið nein bylting í landinu. Með hjálp reiðhjóls- ins var áróðri fyrir frclsi og sjálfstæði sáð um allt land og hinir pólitísku flokkar tóku það í þjónustu sína. CHICAGO, okt. (UPI). Bandaríski sálfræðingurinn Schaefer segir að dýrasálfræð ingar hafi misst af einstæðu tækifæri til þess að kynnast leyndustu afkimum sálarlífs andarsteggja er Hermann, andarsteggur, sem hélt að hann væri hundur varð und- ir bíl, sem hann elti og „gelti“ að. Hermann var húsdýr á bú- garði í Suður-Dakóta og fyrsta ár ævi sinnar var hann eins og aðrar endur, en svo varð hann fyrir því óláni að „konan“ lians dó og þá fór hann að halla sér að litla hundinum Tony og elti hann um allt. Og smám saman fór Hermann að hegða sér eins og Tony, hann elti bíla og þegar Tony gelti reyndi Hermann líka að gelta. Þegar rigndi fór Hermann í skjól þvert of- - an í venjur annara anda. Sálfræðingar fengu veður af þessari undarlegu hegðun andarinnar en eins og fyrr segir varð Hermann undir bíl - áður en þeir gætu gert til- raun til bess að fá hann til að hegða sér eins og önd aftur. QMM)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.