Alþýðublaðið - 06.11.1959, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 06.11.1959, Blaðsíða 11
27. dagur yrði hamingjusamur, eins og Adele hafði lofað að gera hann. Hún hafði trúað henni þegar • hún sagðist aldrei svíkja hann aftur, en nú ef- aðist hún um að það væri rétt. Hún heyrði að hann ók inn stíginn og inn í bílskúrinn, fótatak hans á malarstígnum fyrir framan húsið og úti- dyrnar opnast. Hún beið - þess að hann kæmi upp, hlustaði á hvíslið meðan hann talaði við Adele í forstofunni. Loks kom hann inn. Hún komst við þegar hún sá hve þreyttur hann var. Hana langaði til að ganga til hans og leggja hendurnar um hálsinn á honum og segja honum að hún elskaði hann og meðan hann þarfnaðist hennar yfirgæfi hún hann ekki. í stað þess sat hún kyrr í stólnum og hreyfði sig ekki. ,,Hvernig líður henni?“ hvíslaði hann. Bunty opnaði augun og þau fylltust af tárum. Hún reyndi að rétta fram hend- urnar. „Pabbi —“ „Hvernig líður kerlingunni minni?“ Hann þrýsti henni að sér og kyssti á hár hennar. Svo lagði hann hana á koddann. Hann tók upp úr sitt og at- hugaði æðarsláttinn, áhyggju- fullur á svip. . „Hefur hún verið mikið veik?“ ,,Já“. „Eabbi, fer mér ekki að batna?“ „Yitanlega, ástin min. Þér líður vel á morgun“. „Mamma var vond af því að ég er veik“. Leigh herpti varirnar sam- an. „Ég kem strax aftur, elsk- .... áparið yður hlaup & íaaifli œargra veralana! WKUOöl ö öm «EWI! -AuSturgtxggCi an“, sagði hann. „Jill líka. Vertu góð stúlka meðan við förum til Florrie og ungfrú Evans“. Hann fór með Jill út úr her- berginu. „Ég held að hún megi ekki vera ein í nótt“. „Ég skal vaka hjá henni, Leigh". „Ekki allan tímann, elskan mín. Við skiptumst á. Því mið ur segist Adele vera hálf las- in“. „Ó, Leigh! Heldurðu að hún sé að verða veik?“ „Nei, áreiðanlega ekki, hún vill ekki hjúkra henni“. Hún leit áhyggjufull á hann. „Sumir geta ekki verið hjá veiku fólki, Leigh.“ „Er það?“ IJún vissi ekki hverju svara skyldi. „Ég ætti víst að líta á hin- ar“. „Ég held að ungfrú Evans sé betri“. „Guði sé lof fyrir það, mér virtist hún ætla að sleppa vel“. Hún lagði hendina á hand- legg hans. „Ertu mjög þreyttur?“ „Nei“. „Verðurðu að fara aftur?“ „Já“. Hann tók fast um hendur hennar. „Þakka þér fyrir að þú komst, ástin mín“. „Ó, Leigh, láttu ekki svona. Eins og ég hefði getað gert annað þegar þú þarfnaðist mín“. Hún leit á hann með á-' hyggjusvip. „Viltu ekki borða eitthvað?" „’Kannski, en þó held ég að ég hafi enga matarlyst. Ég ætla að fá mér eitthvað að drekka“. „Þú verður að borða. Það er mjög þýðingarmikið að þú borðir, þetta getur staðið í nokkra daga“. „Það er víst áreiðanlegt“. Hún fór inn til Bunty þegar hann var farinn og sá að hún var sofandi. Hún ákvað að hætta á að hún vaknaði ekki, ef hún kallaði, myndi Leigh heyra til hennar. Hún flýtti sér niður í eld- hús. Frú Ford var farin. Hún leit inn í ísskápinn og fann kjötleifar og salat. Hún hug- leiddi hvort óhætt væri að taka til mat eða hvort Adele reiddist því. Það væri betra fyrir Leigh að borða eina brauðsneið en ekkert. „Ég var að furða mig á því hver væri hér. Þegar hún leit við sá hún að Adele stóð í dyragættinni. „Bunty er sofandi svo mér datt í hug að vita hvort ég gæti ekki gert eitthvað hér niðri“. yður fyrir. Nema yður langi í eitthvað að borða. Ég verð að segja fyrir mitt leyti, að það að sjá svona marga veika rændi mig matarlystinni“. „Ég hélt að Sanders læknir ætti að fá sér eitthvað að borða. Hann þarf að fara aft- ur út og er mjög þreytulegur.“ „Hann segist ekki vera þreyttur“, sagði Adele stutt í spuna. „Ég bauðst til að taka til mat fyrir hann, en hann sagðist ekki vera svangur11. „Haldið þér ekki að það ætti samt að taka til mat fyr- ir hann?“ „Umhyggja yðar er stórkost leg!“ sagði Adele fyrirlitlega. Jill fann að hún roðnaði. Síminn hringdi og hún fór og tók tólið af án þess að segja eitt orð. Það var einn sjúkl- ingurinn enn. Hún skrifaði nafnið niður og fór upp á loft þar sem hún mætti honum í dyrunum að herbergi Bunty. „Ég var að gefa henni sprautu. Ég held að hún bæri ekki strax á sér. Er Adele bú- in að búa um í gestaherberg- inu fyrir þig?“ „Hún hefur ekki talað neitt um það hvar ég ætti að sofa. En það er nógur tími til að tala um það. Frú Draycott var að hringja. Jimmy er fár- veikur. Hann er með háan hita 'og öll einkenni matar- eitrunar11. „Þá er víst bezt að ég fari þangað“. „Fáðu þér að minnsta kosti eitthvað að drekka áður“. „Ef þú vilt fá þér glas með mér“. Jill hikaði. „Ég held ekki —“ Hann lagði hendina á axlir hennar. „Þetta eru ekki venjulegar kringumstæður. Þó ég hefði hitt þig í fyrsta skipti í dag og þú værir aðeins vingjarn- leg, ókunn kona, hefði ég heimtað að þú fengir þér eitt glas með mér“. „Allt í lagi“. Adele kom fram úr eldhús- inu með smurt brauð á fati. „Ég smurði þetta fyrir þig, Leigh“. GBANNARNiB Hálfan lítir af vatni á vélina. W’ ,Það held ég ekki, þakka á „Þakka þér fyrir“. Svo spurði hann snögglega: „Þetta er víst ekki brauð frá Salt- ford?“ „Vitanlega ekki. Ég sendi frú Ford til Abbotts“. Leigh kinkaði ánægður kolli. „Gott. Við vitum að vísu ekki enn hvort það var brauð- ið, en maður er aldrei of gæt- inn“. Hann fékk sér brauð- sneið. „Hvað ætlið þið Jill að borða?“ „Ég er ekki svöng, en ef ung frú Faulkner vill fá eitthvað, þá —“ „Ég vil ekkert", sagði Jill, „þakka yður fyrir. Ef ég má, þá langar mig að hringja til móður minnar. Ég lofaði henni að hringja í kvöld og láta hana vita hvernig allt gengi“. Leigh kom með glas inn fyrir hana. Hann hélt á sínu eigin glasi og borðaði brauð- sneið. „Adele er að búa um þig inni í gestaherberginu". „Ég hefði helzt viljað gera það sjálf. Ó, Leigh —“ „Hvað er að?“ „Er það rétt gert af mér að vera hér?“ „Ég véit ekki hvernig ég færi að án þín“. Adele sat hjá Bunty um stund eftir að hann fór. Þeg- ar hann kom aftur eftir tvo tíma, fór hún niður og Jill tók við. Það þurfti ekki að hugsa meira um ungfrú Ev- ans. Hún var slöpp og las- burða en hún var mikið betri. Florrie var líka á batavegi. Það var Bunty sem var veik- ust. Adele leit á Leigh, sem var að hengja upp frakkann sinn. „Ég var að koma frá Bunty. Hún sefur vært. Ungfrú Faulknep er hjá henni núna. Ég skil ekki hvers vegna þarf að sitja hjá henni“. „Er það ekki?“ Adele greip andann á loft. „Elskan mín, vertu ekki svona óvingjarnlegur við mig“. „Fyrirgefðu“. Hann fór út úr herberginu og hún heyrði að hann fór upp á loft. Hún sat við eldinn og velti því fyrir sés, sem hafði skeð. Þegar síminn hafði hringt um morguninn og það var Jill Faulkner sem spurði Leigh að því hvort hún gæti fengið frí í dag, hafði hún glaðst yfir því að heim- sókn hennar kvöldið áður hafði borið ávöxt og hún ætlaði að fá sér aðra vinnu. Það gát svo sem verið að hún ætlaði' það é'nn, en nú hafði matareitrunin orsakað það hún var komin heim til þeirra og ætlaði meira að sofa þar um nóttina. Hún vissi að Leigh fyrir- leit að hún gat ekki hugsað um Buny. Hann skildi ekki að hún gat blátt áfram ekki haldið við ennið á fólki og hellt úr spýjubökkum. Henni datt sem snöggvast í hug að það hefði verið heimskulegt af henni að snúa aftur heim, en hún vissi, að það var enn heimskulegra af henni að ef- ast um að þar hefði hún breytt rétt. Símahringingin frá Ronnie þá um kvöldið hafði sýnt henni svart á hvítu hve gáfulegt það hafði verið að segja skilið við hann. Hann var að reyna að fá hana til að snúa aftur til hans, hótað henni að koma til hennar og koma illu af stað. Hún hafði MINJASAFN bæjarins. Safn deildin Skúlatúni 2 er opin daglega kl. 2—4. Árbæfar- safn opið daglega frá kl. 2 —6. Báðar safndeildir eru lokaðar á máaudögum. . "k Systrafélagið Alfa, Eins og auglýst var í blað- inu í gær, heldur Systrafélag- ið Alfa sinn árlega bazar sunnudaginn 8. nóvember í Félagsheimili verzlunar- manna, Vonarstræti 4. Verð- ur bazarinn opnaður kl. 2 e. h. stundvíslega. Þar verður mikið um hlýjan ullarfatnað barna, og einnig verður ýmis- legt, sem hentugt gæti orðið til jólagjafa. Það, sem inn kemur fyrir bazarvörurnar, verður gefið til bágstaddra. Allir velkomnir. k Sunnudagaskóli guðfræSideildar Háskólans tekur til starfa sunnudag- inn 8. nóv. kl. 10.30 f. h. í kapellu Háskólans. Öll börn velkomin. ★ Verkakvennafélagið Framsókn minnir félagkonur á bazar- inn, sem haldinn verðurinið- vikudaginn 11. þ. m. Vinsam- legast komið gjöfum til baz- arsins sem fyrst í skrifstofu félagsins, Hverfisgötu 8—10, opið alla virka daga kl. 4—6 e. h. Ríkisskip. Hekla fer frá Rvík á morgun austur um land í hringferð, Esja er á Akureyri á aust urleið. Herðu- breið er á Austfjörðum á suð urleið. Skjaldbreið er í Rvík. Þyrill er í Rvík. Skaftfelling ur fer frá Rvík í dag til Vest- mannaeyja. Skipadeild SÍS. Hvassafell er í Reykjavík. Arnarfell fór í gær frá Ósk- arshöfn áleiðis til Rostock og Stettin. Jökulfell er væntan- legt til New York 9. þ. m. Dísaríell fer í dag frá Gufu- nesi áleiðis til Hornafjarðar. Litlafell er á leið til Reykja- víkur að austan. Helgafell fór í gær frá Gdynia áleiðis til ís lands. Hamrafell er í Reykja vík. Eimskip. Dettifoss kom til Reykja- víkur 3/11 frá Hull. Fjallfoss fer frá New York í dag til Reykjavíkur. Goðafoss fer frá New York 12/11 til Reykja- víkur. Gullfoss fer frá Reykja vík í dag kl. 17 til Hamborg- ar og Kaupmannahafnar. Lag arfoss kom . til Rotterdam 3/11, fer þaðan til Antwerp- en, Hamborgar og Reykjavík ur. Reykjafoss er í Hamborg. Selfoss kom til Hull 4/11, fer þaðan til Reykjavíkur. Trölla foss fór frá Hamborg 31/10, var væntanelgur til Reykja- víkur í morgun. Tungufoss fór frá Rostock 4/11 til Fur, Gautaborgar og Reykjavíkur. * Frá Guðspekifélaginu. Reykjavíkurstúka Guðspeki- félagsins heldur fund í kvöld, föstud. 6. þ. m. Id. 3.30 á venjulegum stað. — Fundarefni: Gretar Fells svarar spurningum. Kaffi með kökum. Félagar, sækið vel. — Allir velkomnir. Alþýðublaðið — 6. nóv. 1959 J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.