Skírnir - 01.01.1897, Side 8
8
Gríska stríðið.
halda, svo að því yrði afstýrt að slíkt kæmi fyrir framvegis, og loks að
framfylgja í eyjunni lögum ins gríska rikis.“
Þetta var nú alt gott og blessað, og heíði líklega gengið óátalið, ef
sjö Biðustu orðunum hefði verið slept. Þau sögðu það dularlaust, að til-
gangurinn væri að innlima Krítey í Grikklands-ríki. En það var ekki
við að húast, að stórveldin gætu þolað það; smáríkin öll norðan til á
Balkanskaga sátu með brennandi hitasótt í blóðinu og biðu þess, hvað í
skærist. Hefði Grikkjum haldist uppi að ræna Tyrki eynni þannig umsvifa-
laust, þá hefði þau öll skilið það sem „innköllunar“-auglýsing til skuld-
heimtumanna í þrotabúi Tyrkjans. Bolgaraland, Serbía og Svartfjalla-
riki (Montenegró) hefðu þá öll hafið ófrið til að reyna að sölsa undir sig
hvert sinn skerf úr dánarbúi „sjúka mannsins." En þó að stórveldin hefði
nú getað unnað hverju þessara smáríkja síns skerfs, þá getur ekkert þeirra
unnað öðru að hljóta Miklagarð; en er alt væri annað af Tyrkjanum rúið
mundi að þvi reka að skera úr, hver í „Garðinn" skyldi Betjast. Þetta
mundi leiða til ófriðar stórveldanna á milli; en það vilja þau öll sem
lengst forðast, og því vilja þau á frest skjóta skiftafundi í þrotabúi „sjúk-
lingsins" svo lengi sem kostur er á.
Hér var því ekki 'um annað að gera fyrir þau, ef þau vildu afstýra
almennu ófriðarbáli um meiri hluta allrar álfu vorrar, en að leggja bann
fyrir atferli Grikkja. Stórveldin skipuðu því aðmirálum sinum, þeim er
flotum þeirra stýrðu við Krít, að setja her á land i Canea-borg og taka
hana á sitt vald, en skipin skyldu vörð halda með ströndum fram. Þessu
var skjótt hlýtt: Englar, Frakkar, Búsar, Þjóðverjar, Ítalír og Austur-
ríkismenn tóku borgina á sitt vald í nafni „samþykrar Evrópu.“ Þeir
tilkyntu Tyrkjum, er vóru að gera grafir og skotvígi um borgina, og
eins uppreÍBtarmönnum og landhersveit Grikkja, er vðru á leiðtil aðsókn-
ar um borgina, að hvorugir mættu 4 aðra ráða né nokkurn ófrið hefja í
borginni né 4 tiltoknu svæði í námunda við hana; ella skærust þeir í
leik og skytu 4 þá, er ófrið byrjuðu. Grikkir og uppreistarmonn trúðu
því laust, að þetta væri alvara, og héldu hcr sínum inn yfir takmörk
þau, er hinir höfðu bannað þeim yfir að fara. En þá létu stórveldin til sín
taka og sendu 40 fallbyssuskot á þá. Hörfuðu þá Grikkir og uppreÍBtar-
menn undan. Flestum af þessum 40 skotum skutu ensku skipin.
Margir menn í Evrópu urðu óðir og uppvægir við fregnina um þetta.
Enskir þingmenn og aðrir menn þar í landi af „frjálslynda“ floknum
reyndu að nota þetta til áfellis stjórninni; kölluðu það in mestu firn og