Skírnir - 01.01.1897, Qupperneq 14
14
Gríska stríðið.
og vildi því draga ðfriðinn í lengstu lög til að reyna að æfa liðið og
bæta úr öðru, er áfátt var. Afleiðingin varð, því miður, sfl ein, að Tyrk-
ir gátu kosið tímann, er ðfriðurinn hðfst, og þeir kusu að hefja hann
rétt í byrjun innar miklu föstu Grikkja. Þá mega Grikkir engrar ket-
fæðu neyta, lifa þá á vatni, brauði og ávöxtum, og urðu því að borjast
glorhungraðír þðtt stðrar sauðahjarðir væru á beit alt umhverfis. Á Langa-
frjádag höfðu þeir barist í sjö daga samfleytt, hungraðir og við kraftlausa
fæðu; að kveldi þess dags voru þeir magnþrota og flýðu um nóttina sem
fætur toguðu. Bn í þessa sjö daga börðust þeir hraustlega. Þá skorti
aldroi hug né harðfengi, en æfingu og hlýðni því meir.
Tyrkir eiga ekkert herskip, er heita megi í haffæru standi, en Grikk-
ir eiga herflota, eigi stóran að vísu, enn allgóðan, og eru ágætir sjómenn.
Þótti víst að þeir hefðu alt ráð Tyrkja í hendi sér á sjó. Bn floti þeirra
gerði lítið að verkum, sem nokkurt lið var í, og furðaði alla, að hann
mátti heita til einskis notaður; en það þykir nfl síðar sannað, að stórveld-
in hafi harðlega banuað Grikkjum að beita flotanum þar sem helzt mátti
lið að verða, og höfðu þau nstgan flota í nánd til þess, að Grikkir máttu
til að hlýða.
Tyrkinn mátti hér að leikslokum sanna, að honum verða sjaldan
styrjaldir til ávinnings. Bíði hann ósigur, eru tekin af honum lönd; en
sigri hann og leggi eitthvað undir sig, er það tekið af honum alt aftur,
er friður er saminn.
Rúsland. Það mun ðhætt að fullyrða. að Grikkir eigi það meira
Rúsum að þakka, en nokkrum öðrum, hve vel þeir sluppu frá stríðsflani
BÍnu. Reyndist Georg konungi það enn giftudrjflgt, að hann er af kyn-
sælli ætt (sonur Kiistjáns IX. Danakonungs), mððurbróðir Nikulásar þriðja
Rflsakeisara, en Olga Grikkjadrotning og Nikulás keisari af öðrum og
þriðja (hún sonardóttir Nikulásar I.). Það er mælt, að enginn maður í
heimi hafi jafnmikil áhrif á Nikulás III. eins og móðir hans, en af henni
þykir hvervetna gott leiða. — Öllu kaldari reyndist mága-ástin hjá Vil-
hjálmi Þjóðverjakeisara. Krónprinsinn gríski (elzti sonur Georgs) er kvænt-
ur systur Vilhjálms. En það votta allir, sem til þektu, að Vilhjálmur
hafi reynt að gera Grikkjum alt það ílt, er hann mátti.
Nikulás Rúsakeisari er ótakmarkaður einvaldsherra í sínu ríki, en
það er svo mikið og hann bvo voldugur höfðingi og mikils háttar, að við
hann þykir öllum þjóðhöfðingjum gott að vingast. — í April-mánuði fór