Skírnir - 01.01.1897, Qupperneq 22
22
Þjöðverjaland.
Jieim, ])á eáu Þjóðverjar sér fært að hefta framgang samningsmálsins í
tæka tíð, með ýmiskonar fyrirtölnm og ærslagangi. Og þessu víluðu þeir
ekki fyrir sér að beita. Stundum héldu einstakir menn úr þeirra flokki
orðmælgisræðnr með dðmlausum drætti og hringli; þannig talaði einn
þeirra í 12 stundir samfleytt. Ymist vörnuðu þeir öðrum máls með því
að herja reglustikum í borðin, stappa niður fótunum, æpa og ærslast, svo
að ekki mátti mannsmál heyra. Loks tókst forseta með hálfgerðum refj-
um þó, að Iýsa samþykt af meiri hluta frumvarp um þá breytingu á þing-
sköpum, að alla þingmenn, sem óróa gerðu eða truflun í þingsalnum og
eigi vildu hlýða forseta, þá gæti forseti gert þingræka í 3 daga og léti
þeir sér ekki segjast, gæti þingdeildin gert þá ræka af þingi í
mánuð.
Eftir þetta urðn dagleg áflog, ryskingar og barsmíðar í þingsalnum
og enda hafðir hnífar á lofti; forseta vóru árásir gervar, svo að hann
varð að flýja salinn. Þá lét stjórnin gera virki um forsetastólinn og
skipaði. lögregluliði um þingsalinn og um alt þinghúsið. Nú fóru Þjóð-
verjar að gugna; en ýmsum af þeim, er hingað til höfðu eigi verið and-
stæðir stjórninni, þótti hún nú farin að gerast nógu ráðrík. En 26. nóv-
ember gerðist það tíðinda á þingfundi, að 14 þingmenn af flokki lögjafn-
ing:ja þyrptust að forseta í fundarbyrjun, réðuBt á hann og hröktu hann
út úr salnum. Eór þá alt í uppnám og barðist allur þingheimur og vóru
ýmsir þingmenn teknir fastir og settir í varðhald. Varð nú óeirð og hálf-
gildingsuppreisn um alla Yínarborg og breiddust óspektirnar út til ann-
ara bæja og út um alt land. Gekk svo nokkra daga; lét stjórnin taka
fasta þá er hún náði í af þeim, er óspektum ollu; en óspektirnar tóku
að gerast mjög með ýmsu móti og af ýmsum tilefnum, og snerust víða
upp i ofsóknir kristinna manna gegn Gyðingum. 30. Nóv. tjáði borgar-
stjórinn í Vin Badeni ráðgjafa, að hann treystist nú eigi til að veitahon-
um fylgi lengur, kvað ella liggja við uppreisn, er hann treystist eigi að
buga. Sagði þá Badeni af sér völdum, en 8. Des. gaf keisari út bráða-
birgðarlög, er heimiluðu honum og stjórn hans, að somja af Austurríkis
hendi við Ungverja, um br&ðabirgða endurnýjun samningsins um hin sam-
eiginlegu mál, og við það stóð í árslok.
Þjóðverjaland. — Um Kúslandsferð Yilhjálms keisara er áður getið
í Rúslandsþætti og þarf hennar ekki hér að minnast.
Þjóðverjar yirðast nú gefa sínum fornu erfifjandmönnum, Frökkum