Skírnir - 01.01.1897, Síða 25
Þjóðverjaland.
25
ngastir, að væri hægt að beina þeim 7 eða 8 tugum þúsunda íólks,
sora árlega flytur sig úr Iandi öllum í eina átt, t. d. til að setjast að í
Brasiliu eða oinhverju öðru Suðurameriku-ríki, þá mundu þeir varðvcita
þar að fullu þjððerni sitt og bróðurlega mynda nýtt og stórt þjóðverskt
riki vestan hafs. í Brasiliu eru nú til staðir eins og Joinville, sem mega
heita alveg eins þýzkir eins og Berlín, Dresden eða Hannover. Nokkrir
innlendir Brasiliumenn eiga þar heima, en þeir búa alvcg út af fyrir sig.
Yerksmiðjurnar, skólarnir, kirkjurnar og bæjarstjórnin — þetta er alt
alþjóðverskt og þá er svo sem auðvitað að blöðin eru þýzk og bjórinn
er þýzkur. Nú er Bérstakur styrkur boðinn hverju því eimskipafélagi,
sem flytja vill þýzka útfara til Suður Brasilíu.
Það þarf ekki rnikinn spásagnaranda til að sjá það fyrir, að þegar
þessum þýzku nýlendum vex fiskur um hrygg, þá munu þær gera sér lit-
ið dekur við þá hálfsiðuðu kynblendinga, sem nú bafa það að atvinnu
að gera byltingar í Suðurameríku og kalla sjálfa sig stjórn. Þeir mundu
þá fljótt kasta af eér valdi þeirra og stofna þýzkt þjóðríki. Auðvitað
mundu þeir að likindum ekki gerast lýðlendur Þjóðverjalands, heldur
mynda sjálfstæð þýzk þjóðveldi, en eflaust mundu þau standa í vináttu-
sambandí og ef til vill verzlunarsambandi við Þjóðverjaland, leita þýzkrar
aðstoðar ef á þyrfti að halda — verða í einu orði nýtt Þýzkaland vest-
an hafs.
Stjórnin þýzka lítur með velþóknun á Bérhverja viðleitni í þeBsa átt
og veitir henni fúslega stuðning sinn.
í nóvembermánnði og desember gerðust af Þýzkalands völdum þau
tiðindi i Kinlandi er hér verður á að minnast.
í héraðinu Shantung við Kjá-TVjáflóa höfðu í róstum nokkrum verið
myrtir 2 oða 3 þýzkir trúboðar. Þjóðverjar settu þegar á land horlið
nokkurt þar austur frá til þesB að knýja Kínverjastjórn til fullra mann-
bóta. Þjóðverjar höfðu lengi haft góðan augastað á Kjá Tsjá-flóanum og
rennt ágírndaraugura til héraðsins þar upp af. Það var auðsætt, að þetta
var hinn mesti hvalreki, sem þoim gat í hendur borist, að kínverskir ó-
róaseggir skyldu gera þeim þann greiða, að myrða fyrir þeim þoBaa trú-
boða; þvi að það gaf stjóruinni sárþráð og kærkomið tilefni til að koma
fram ósvífnum kröfum á hendnr Kínverjastjðrn. Vilhjálmur keisari sendi
Hinrik bróður siun á þýzkum járnbarða með nokkrum fyigiskipum austur
til Kínlands með her manns, og höfðu þá Þjóðverjar 37» þúsund her-