Alþýðublaðið - 07.01.1960, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 07.01.1960, Qupperneq 16
RITHOFUNBUBINN Ge- orgc Rernard Shaw hneyksl- aðist á sínum tíma mjög á enskri stafsetningu og kvað hana í svo litlu samraemi við framburð málsins, að engu tali tæki. Er frægt dæmið, sem hann tók, er hann sagði, að stafa mætti orðið FISH (fiskur), samkvæmt gildandi stafsetningu, þannig: GHOT or QjQr, w:[) j\ x s-'/qj p qv W7. po V?. Q0 /:r p \r\. x sQ 4 d1 \ x rxgv PQ /l q:l |0 0/ pf) pSj. \ 9yp9 4 j[ aj 9\p9 qm q/I HOl rj0\U 4. \ /q 4 \vJ xlc h?loj\; fH 4 9i/? 09v; 9\ qqj\ \ Q ’o|ln. q (ar, \ q yxii. 9\ >9/ \ \gr, y?\\. taj£MM) (þ. e. a. s. gh eins og í orðinu enough, o eins og í women, t eins og í national). Var þetta Shaw slíkt hjart- ansmál, að hann kvað svo á í erfðaskrá sinni, að efnt skyldi tii samkeppni um nýtt staf- róf og skyldi síðan eitt af verkum hans endurskrifað á því stafrófi og eintök send tii allra almenningshókasafna í hinum cnskumælandi heimi og Suður-Ameríku og til lands hókasafna alls staðar annars staðar í heiminum Nú er nýlokið samkeppni um 500 sterlingspunda verð- laun fyrir slíkt letur. Bárust JV /n/WJ' 41. árg. — Fimmtudagur 7. janúar 1960 .e^ 24 milljarða ára gamlar stjörnur f y 467 tillögur, en fjórar voru taldar bera af. Munu nú höf- undarnir fjórir, ásamt P.A.D. MacCarthy, lektor í hljóð- fræði við Háskólann í Leeds, vinna að jbví í sameiningu að semja „endanlegt, brezkt staf- róf“. Og er hugmyndin að umskrifa leikritið Androcles og ljónið á því letri. Oll stafrófin, er sigur háru úr hýtum, og þá sennilega hið endanlega stafróf líka, eru ný að gerð, en ekki breytingar á eldri gerðum. Þó skal tekið fram, að með þeim er skrifað frá vinstri til hægri og byrjað efst til vinstri og endað neðst til hægri. Á meðfylgjandi mynd sjást þrjár af leturgerðunum. Stærsti búturinn er Faðir vorið skráð með stafrófi Kingsley Reads. Þá koma orð- in easy spelling (auðveld staf- setning) með letri J. F. Mag- raths og loks nafnið Geoi'ge Bernard Shaw með stafrófi Dr. Pugmires. Þrjú af þeim fjórum staf- rófum, sem verðlaun hlutu, nota nálivæmlega 40 merki til að tákna mismunandi hljóð. PASADENA, 29. desember. - Bandarískir stjörnufræðingar hafa fundið stjörnur í ‘Vetrar- brautinni, sem virðast vera 24 milljarða ára gamlar, eða allt að helmingi eldri en aðr- ar þekktar stjörnur. Stjörnu- fræðingarnir eru ekki vissir iMWWWWWWWVWWW G ift 81 c I Góð sala KEILIR seldi í gær 216 lestir af síld í Bremerhaven fyrir 148 þús. mörk. ELZTU hjónin í Banda- ríkjunum hafa nýlega haldið upp á 81 árs gift- ingarafmæli. Þau hjónin, Peter og Celestia Peter- son, eru bæði 99 ára og gengu í heilagt hjónaband í desember 1878. um að útreikningar sínir séu réttir, en telja að .annað hvort séu hugmyndlr manna um aldur alheimsins rangar. eða reikningsaðferðin sjálf röng. Þessar upplýsingar koma fram í skýrslu frá stjörnu- fræðingum í athuganastöðv- unum á Palomar og Mount Wilson. Stjörnuþyrpingin, sem þeir fundu er auðkennd NGC188. Hún er 3000 ljósár í burtu í sömu stefnu og Pól- stjarnan. Það, sem mesta athygli vek- ur, er að stjörnuþvrping þessi er í vetrarbraut okkar en sum ar stjörnurnar innan þyrping- arinnar eru fast að því út- kólnaðar. Þær hafa brennt upp 18 prósent af vatnsefni sínu, en sólin hefur brennt 5 prósent af vatnsefni sínu. en hún er talin 5 milljarð ára gömul. Eitt er víst, NGC188 er elztl Framhald á 14. síðu. LAUFI ALLIR, sem eiga garð kannast við nöguð og hrörnuð blöð á trjám og runnum. — Blaðlúsin hefur eyðiiagt þessi blöð og mundi eyðileggja fleiri ef gulrautt skordýr með svarta bletti á baki væri ekfci á næsitu grösum. Þetta er Maríubjallan en Uppáhaldsf æða hennar er einmitt blaðlúsin, Ef Maríubjallan væri ekki á ferðinni mundu blaðlýsnar valda gífurlegum iskaða á trjám og runnum, en náttúran hefur gripið í taumana og þúsundir og milijónir af bjöllum halda lúsunum í skefjum. Maríubjallan gerir meira gagn en allt það skordýraeitur, Sem árlega er úðað á garðagróður. En eitrið drepur líka Maríubjölluna, en aftur á móti er það ekki aðeins fullvaxnar Maríubj öllur, sem eyða blaðlúsunum heldur einnig lirfur þeirra. Ein lirfa getur aUðveldlega étið 20 lýs á dag. Maríubjöllurnar eru ákaflega frjó'samar. Margar teg- undir eru til af þeim'og hér á landi eru þær all-algengar. Sú tegund, sem er einna algengust hér, er með ellefu svarta bletti á sínum gulrauða skrokk. Maríubjöllur þykja víða hreinustu nytjadýr, og eru þess dæmi að þær hafi gengið kaupum og sölum í Vestur heimi, er menn hafa viljað bæta um varnir gegn hin- um mikla .skaðvaldi, Jblaðlúsinni.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.