Alþýðublaðið - 15.01.1960, Blaðsíða 1
41. árg. — Föstudagur 15. janúar 1960 — 10_ tbl,
TOGARINN URANUS er
væntanlegur til Reykjavíkur kl.
3 í dag. Má búast viS, að mik-
ill fjöldi fólks verði til þess að
fagna skipverjum, er þeir stíga
á land.
Ekkert samband var haft við
togarann í gær. Var ekki talin
ástæða til Þess að senda flugvél
aftur til þess að sveima yfir tog
aranum, þar eð skipverjar
höfðu gefið til kynna með ljós-
merkjum, að þeir þyrftu ekki
á neinni aðstoð að halda.
Alþýðublaðið átti stutt símtal
við skipstjórann á Þormóði goða
í gær um kl. 5, er skipið átti
um 50 mílur ófarnar til Reykja-
víkur. Var þá allt gott að frétta
af Þormóði goða en ekki kvaðst
Blaðið hefur hlerað
Að Jón Helgason hafi sagt
upp sem ritsjtóri Frjálsrar
þjóðar. Mun hann þó starfa
eitthvað við blaðið áfram
fyrst um sinn. Líklegasti
eftirmiaður Jóns er talinn
Bergur Sigurbjörnsson.
Hans Sigurjónsson skipstjóri
hafa heyrt neitt í Úranusi né
haft samband við skip er heyrt
höfðu í Úranusi. Bendir það til
þess að senditæki Úranusar séu
enn óvirk.
Skeiðarár-
hlaup í
vændum?
BÆNDUR í Öræfum telja
hættu á því, að Skeiðarárhlaup
sé í vændum. Hefur vaxið mik-
ið í ánni undanfarið.
Heitir nú
Gautur
GAMLI Óðinn hefur nú feng-
ið nýtt nafn og heitir framveg-
is Gautur. Nýi Óðinn heldur
heimleiðis upp úr 20. janúar.
Er skipið enn í Álaborg.
ÁRIÐ 1959 var afli ís-
lenzku togaranna 46 þús-
und lestum minni en árið
1958. Karfaaflinn var 13
þúsund lestum minni, en
samdrátturinn nam um 33
S/ÖGA V/GGA
þúsund lestum af öðrum
fiski, aðallega þorski og
ýsu.
EINN togari seldi afla sinn í
Englandi í gær. Var það Akur-
ey frá Akranesi, sem seldi í
Grimsby 145 lestir fyrir 10.662
sterlingspund. í dag selur í
Þýzkalandi Askur. Neptúmis
seldi í gær 128 tonn fyrir 85.223
mörk. Togarinn Marz landaði
í Reykjavík í fyrradag, 120 Iest
um.
ALLIR Á HEIMAMIÐUM.
Islenzku togarari\ir veiða nú
allir á heimamiðum, nema Þor-
móður goði og Úranus, sem eru
á leiðinni frá Nýfundnalandi,
eins og kunnugt er. Hafa afla-
brögð þeirra verið mjög léieg
í vetur.
Togararnir liafa aðallega Ver
ið úti fyrir Vesturlandi. Síð-
ustu dagana hafa þeir verið að
veiðum út af Selvogsbanka, en
eru að færa sig austur á bóginn.
Skrapa þeir ufsa á þessum slóð-
um, en markaður fyrir hann er
sæmilegur í Þýzkalandi, verri
í Englandi.
Búizt er við því, að allmarg-
ir togarar selji erlendis á næst-
unni.
Tveir togarar, Vöttur og Aust
firðittgur, liggja í Reykjavík, og
Keilir er í slipp til viðgerðar.
Akureyrartognrarr.ir fiska
Framhald á 7. síðu.